Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
9
Hin nýbyggða brú yfir Laxá í Leirársvéit. Sláturhús Sláturfélags Suðurlands sést á bak við.
Morgunbladid/HBj.
Borgarfjörður:
Syigrúm til aukinna vega-
framkvæmda næsta sumar
— vegna sparnaðar við útboð í haust
Borgarnesi, 24. nóvember.
BYGGINGU nýrrar brúar yfir Laxá f
Leirársveit er lokið og hafin er undir-
bygging vegarins frá Geldingaá, yfir
Leirá og Laxá og suður fyrir Akranes-
vegamót.
Skóflan hf. á Akranesi, sem tók
að sér vegarlagninguna fyrir 4.486
þúsund krónur sem er um 37% af
kostnaðaráætlun vegagerðarinnar,
hófst handa um fyrstu fram-
kvæmdir i vikunni, að sögn Birgis
Guðmundssonar, umdæmisverk-
fræðings Vegagerðar ríkisins á
Vesturlandi. Kostnaðaráætlun
vegagerðarinnar hljóðaði upp á
rúmar 12 milljónir. 15 aðilar buðu í
verkið, 10 þeirra voru undir kostn-
aðaráætlun og 3 þeirra voru undir
50% af kostnaðaráætlun, en Skófl-
an hf. á Akranesi var lægstbjóðandi
eins og áður sagði. Verkið felst í
undirbyggingu vegarins frá Geld-
ingaá, þar sem bundna slitlagið frá
Borgarnesi endar, yfir Leirá, þar
sem nýtt ræsi var byggt í sumar í
stað gamallar brúar og Laxá, þar
sem ný glæsileg brú var byggð í
sumar en er ótengd, og allt suður
fyrir Akranesvegamót að enda
bundna slitlagskaflans frá Akra-
nesi. Er þetta um 5 kílómetra veg-
arkafli og sagði Birgir að vonast
væri til að hægt verði að leggja
bundið slitlag á hann næsta sumar,
a.m.k. hluta hans. Takist það verð-
ur vegurinn á milli Akraness og
Borgarness, sem er um 35 kílómetra
langur, allur með bundnu slitlagi.
Aðspurður um hvað gert yrði við
það fjármagn sem sparaðist með
hagstæðri útkomu á þessu verki,
sagði Birgir það vera Alþingis að
ákveða slíkt, en Ijóst væri að hægt
yrði að framkvæma meira á næsta
ári af verkum sem á áætlun hefðu
verið 1985. Hagnaðurinn kæmi þvi
ekki fram að fullu fyrr en árið 1985.
— HBj.
CRANMID
Laugavegur 17b. S. 12040
Björgunartæki til að
ná mönnum út
úr bílum, sem
lent hafa í árekstri
BJÖRGUNARTÆKI, ætluð til að bjarga fólki úr bílum, sem lent hafa í
árekstri, eru nú fáanleg hér á landi. Fyrirtækið Pálmason & Valsson hf.
á Klapparstíg 16 í Reykjavík hefur einkumboð fyrir björgunartæki frá
hollenska fyrirtækinu V.B. Holmatro.
Hermann Valsson, hjá Pálma-
son & Valsson hf., sagði í spjalli
við blm. Morgunblaðsins fyrir
skömmu, að fyrirtækið hefði á
boðstólum klippur, atgeira og
tjakka. „Klippurnar gegna því
hlutverki," sagði Hermann, „að
klippa í sundur dyrapósta,
gluggapósta, stýrisstöng eða
gólfbita. Það tekur aðeins um
fimm sekúndur að klippa hvern
póst í sundur.
Tjakkurinn, sem við höfum á
boðstólum, hefur 10 tonna átak
og hann getur rétt bílþök eða
lyft þeim upp ef þau hafa lagst
sarnan."
Hermann sagði helsta kost
þessara tækja vera þann, að þau
ynnu hratt og hljóðlega, en um-
fram allt örugglega. „Það hefur
oft mjög slæm áhrif á mann,
sem fastur er inni í bifreið, sem
lent hefur í árekstri, ef mikil
barsmíð og læti eru við að losa
hann og bjarga honum," sagði
Hermann. „En þannig vill oft
fara, þegar notuð eru kúbein og
járnsagir við björgunarstörf."
Hermann Valsson gat þess að
lokum að slökkviliðið í Reykja-
vík hefði þegar fengið til sín at-
geir og klippur og tjakkur væri
væntanlegur til þess, nú á næst-
unni.
_»H\rande w-g-J
ataö'e° ^\\ '!Í'uvS*'e*‘1ÍJÍc,\ p»ata9ern
wnm\n ú' "» KA\taoóa ”V skttyfö' r
U'O
Ow
twe v
*v
&&&&***
Sön9a"er
Otan
i \s\aod'
saro1
dóroa
V\ö»r
tPlóö'T'
Nýjar LP-plötur:
1. vinaælar plötur
David Bowie - Ziggy Stardust (21p live)
Genesis - Genesis
Bara-flokkurinn - Gas
Paul McCartney - Pipes Of Peace
Mozzoforte - Yfirsýn
Marc and the Mambas - Torment &
Toreros
Psychic TV - Dreams Less Sweet
(Lp+ 12")
Psychic TV - Force
The Hand Of Chace
The Jam - Snap
2. danatónlist
ABC - Beauty Stab
Duran Duran - Seven and the
Ragged Tiger
Gang Of 4 - Hard
Maicolm McLaren - Duck Rock
Milli tveggja elda
New Order - Power, Corruption & Lies
Rip Rig and Panic - Attitude
Rolling Stones - Undercover
Yello - Solid Pleasure/Claor Que Sl/
You Gotta Say Yeas
3. 12”45 rppm
Cabaret Voltaire -
Just Fascination
Joy Division - Atomsphere
Killlng Joke - Me Or You
New Order - Blue Monday
New Order - Confution
Pil - This Is Not A Love Song
Siouxsie and the Banshees —
Dear Prudence
4. þungarokk (Heavy Metal)
Cirith Ungol - Frost and Fire
Iron Maiden - Piece of Mind/Klllers etc.
Klss - Llck It Up/Dynasty/Unmasked
Mötley Criie - Mötley Crue
Rainbow - Bent Out Of Shape
Saga - Heads Or Tales
Ýmsir - Hardrock '83/U.S. Metal/
Metal Massacre
5 Reggae
Black Uhuru —
Black Sounds Of Freedom
General Saint & Clint Eastwood —
Two Bad D.J.
Linton Kwesi Johnson —
Force Of Victory
Linton Kwesi Johnson —
Bass Culture
Bob Marley — Confrontation
Michael Smith — Mi Cy-aan Believe It
6. Jazz
Gary Burton Quartet — Plcture This
Gary Burton Quartet — Easy As Pie
Gary Burton Quartet/Steve Swallow —
Hotel Hello
7. Pönk
Anti-Nowhere League —
Live In Yogoslavia
Conflict —
It's Time To See Who's Who
Crass - Yea Sir I Will/Christ/Penis Envy/
Stations/Feeding + allir singlararnir
Exploited — Punks Not Dead
Flux Of Pink Indians —
Strive To Survive (Frábær)
Punk And Dlsorderly (Safnplata)
Sex Pistols — Anarchy In The UK 12”
Rudimentary Peni —
Death Church (Frábær)
Eigum aö sjálfaögðu allar (s-
lenskar sem erlendar plötur
sem skipta máli, bækur og
tímarit.
Hermann Valsson hjá Pálmason & Valsson hf., heldur hér á klippum
eins og þeim, sem skýrt er frá ( fréttinni. Á myndinni sjást einnig
tjakkur og atgeir, sem fáanlegir eru hjá sama fyrirtæki.
Ný þjónusta Eimskips:
Reglubundnir flutningar
til og frá Borgarnesi
Borfjarne.si, 12. desember.
HF. EIMSKIPAFÉLAG fslands hef-
ur ráðið umboðsmann í Borgarnesi
og hefur nú hafið reglubundna flutn-
inga á milli Borgarness og hinna
ýmsu þjónustuborga fyrirtækisins
um víða veröld. Þetta gerir Eimskip
án þess að vera með siglingar til
Borgarness, hér koma til sögunnar
þær breytingar sem orðið hafa í
starfsemi Eimskips sem og annarra
skipafélaga með gámavæðingunni
svokölluðu, þannig að skipafélögin
sjá nú orðið ( auknura mæli um
flutningaþjónustuna alla leið frá
kaupanda til seljanda, þó yfir land
sé að fara hluta leiðarinnar. f þessu
tilviki hefur Eimskip samið við vöru-
flutningafyrirtæki hér á staðnum
sem sér um flutningana til og frá
Reykjavík jafnóðum og skipin eru
losuð eða lestuð.
Borgarnes, og þá um leið hérað-
ið allt, er fyrsti staðurinn hér á
landi sem Eimskip kemur í sam-
band við umheiminn á þennan
hátt og kynntu nokkrir forráða-
menn fyrirtækisins, Þórður Sverr-
isson, fulltrúi framkvæmdastjóra
flutnings- og markaðssviðs, Kjart-
an Jónsson og Óskar V. Friðriks-
son, þessa nýju þjónustu á fundi
hér fyrir skömmu. Páll Guð-
bjartsson, forstjóri Vírnets hf., er
hinn nýi umboðsmaður Eimskips í
Borgarnesi og fyrirtækið Steinar
og Jóhann-vöruflutningar sem
Halldór Gíslason rekur hefur tek-
ið að sér flutningana til og frá
Reykjavík. Sögðu Eimskipsmenn
að þegar hefði orðið umtalsverð
aukning á flutningum félagsins til
Borgarness og héraðsins alls á
þeim stutta tíma, sem liðinn væri
síðan þetta nýja fyrirkomulag
flutninganna var tekið upp og
hefði nýbreytnin mælst vel fyrir.
Þó sögðust þeir hafa áhuga á að
flutningarnir myndu enn aukast,
ekki síst útflutningur frá staðn-
um.
Eins og áður sagði eru vörur til
Borgarfjarðar sem koma með
skipum Eimskips að utan settar
strax á flutningabíla og fluttar
hingað uppeftir sama dag eða dag-
inn eftir. Þær eru síðan geymdar
hér í húsplássi sem umboðsmaður-
inn hefur umráð yfir og þær leyst-
ar þar út. Þetta fyrirkomulag get-
ur sparað þeim aðilum sem flytja
vörur þannig beint inn til landsins
mikla snúninga og Reykjavíkur-
ferðir, ekki síst ef frumvarp við-
skiptaráðherra um heimild til að
veita sparisjóðum leyfi til að
versla með gjaldeyri nær fram að
ganga og hægt verður að ganga
frá þeirri hlið málanna hér í
Sparisjóði Mýrasýslu.
HBj.
Rangt húsnúmer
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um opnun nýrrar verslunar, Búð-
arkots, að Laugavegi 92, var hús-
númerið vitlaust. Þar var sagt að
versluninni væri í bakhúsi að
Laugavegi 12. Verslunin er eins og
áður sagði í húsi nr. 92, að húsa-
baki við Stjörnubíó.
Hársel
f FRÉTT í Mbl. í gær um nýja
hárgreiðslustofu að Tindaseli 3, í
Breiðholti, misritaðist heiti stof-
unnar. Stofan heitir Hársel og eru
hlutaðeigendur beðnir velvirð-
ingar á þessu ranghermi.