Morgunblaðið - 16.12.1983, Blaðsíða 48
Bítlaæöiö'
w
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Eimskip lækkar flutnings-
gjöld stykkjavöru um 7%
GERT er rið fyrir, að nýja stóla-
lyftan í Bláfjöllum verði tekin í
notkun fljótlega eftir áramót, en
nú er lokið rið að splæsa saman
vírinn í lyftuna, en hann slitnaði,
eins og kunnugt er af fréttum
fyrir nokkru. Starfsmenn íBlá-
fjöllum munu vinna að þvíá næst-
unni að hengja stólana í lyftuna.
Morgunblaðið/ G.R.
Lækkunin nemur um 90 milljónum króna á ársgrundvelli
EIMSKIP hefur ákveðið aö lækka
gjaldskrá fyrir flutning á stykkja-
vöru til landsins um 7% frá 19.
desember næstkomandi að sögn
Harðar Sigurgestssonar, forstjóra
Kimskips, sem sagði þessa lækkun
gilda á flutningum frá öllum höfn-
um félagsins til landsins. Lækkun-
in er jafnvirði 90 milljóna króna á
ársgrundvelli.
Hörður sagði tvær megin-
ástæður vera fyrir því að Eim-
skip teldi þessa lækkun mögu-
lega að þessu sinni. „Annars veg-
ar er um að ræða aukna hag-
kvæmni í rekstri félagsins, sem
meðal annars hefur skapast með
auknum gámaflutningum, fjár-
festingu í nýjum tækjum og að-
stöðu, endurskipulagningu og
endurnýjun á skipastóli félags-
ins.
Hins vegar er um að ræða
bætt rekstrarskilyrði félagsins
almennt. Er þar meðal annars
átt við lægri vexti á erlendum
fjárskuldbindingum og hagstæð-
ara olíuverð, en einnig þá festu,
sem skapast hefur í efnahags-
málum innanlands með minnk-
andi verðbólgu og stöðugra gengi
íslensku krónunnar," sagði
Hörður Sigurgestsson.
„Þótt veruleg óvissa ríki nú
um þróun efnahagsmála á árinu
1984, og verulegur efnahagssam-
dráttur hafi áhrif á afkomu
fyrirtækisins, þá telur félagið
rétt að bætt afkoma nú komi
fram i lækkun á framangreind-
um flutningsgjöldum," sagði
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips.
Almenn vaxtalækkun 21. desember nk.:
Vextir lækka um
5 prósentustig
BANKASTJÓRN Seðlabanka íslands hefur ákveðið lækkun almennra inn-
láns- og útlánsvaxta frá og með 21. desember nk., en ákvörðun þessi er tekin
að höfðu samráði við rikisstjórn og bankaráð. Samkvæmt upplýsingum Mbl.
mun almennir vextir lækka á bilinu 3—5 prósentustig, en meðaltalslækkunin
er um 5 prósentustig.
Vaxtalækkun þessi er fjórða
skrefið í þeirri aðlögun vaxta að
hjaðnandi verðbólgu, sem hófst 21.
september sl. í þessum þremur
áföngum hafa vextir algengustu
óverðtryggðra inn- og útlána verið
lækkaðir um allt að 20 prósentustig
og eru dæmi þess að vextir ákveð-
inna lánsforma hafi verið lækkaðir
um allt að helming á tveimur mán-
uðum.
Verðbólga hefur verið á hröðu
undanhaldi síðustu vikur og mán-
uði og er hún nú í námunda við
25%, en við það stig munu útlán og
tímabundin spariinnlán skila já-
kvæðum raunvöxtum, ef tekið er
mið af verðtryggðum lánum, en
ekki verða neinar breytingar á
ávöxtun þeirra.
Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1984 lagt fram í gærkvöldi:
Drögum saman tekju-
stoftia eins og hægt er
— segir Davíð Oddsson, borgarstjóri
FRUMVARP að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1984
var lagt fram á fundi borgarstjórnar
í gærkvöldi. Samkvæmt frumvarpinu
eru tekjur borgarinnar áætlaðar um
2.405,4 milljónir króna á næsta ári,
en gjöld hins vegar 1.862,7 milljónir
króna. Rekstarafgangur, eða fram-
kvæmdafé, er því áætlað 542,7 millj-
ónir króna. Gert er ráð fyrir, að tekj-
ur aukizt um 36% miðað við síðustu
áætlun, en gjöld hins vegar um 30%.
Rekstrarafgangur, eða fram-
kvæmdafé er áætlað að aukist um
tæplega 60%.
„Þessi áætlun ber vott um það,
að borgarstjómarmeirihlutinn
reynir að draga saman tekjustofn-
ana eins og mögulegt er og að hef-
ur verið stefnt. í fyrra var fast-
eignagjaldaprósentan lækkuð um
15,8% og þeirri lækkun verður
haldið við nú. Að þessu sinni verð-
Skýrsla bandarfsks sérfræðings lögð fram í utanríkisnefnd:
Getum helgað okkur Reykja-
neshrygg og stór svæði hjá
Á FUNDI utanríkismálanefndar á
mánudaginn lagði utanríkisráð-
herra fram lokaskýrslu bandarísks
sérfræðings í hafsbotnsmálum, en
þar kemur m.a. fram að íslend-
ingar geta helgað sér Reykjanes-
hrygg og víðáttumikil svæði út frá
hlíðum hans. Sérfræðingur þessi
vann einnig fyrir ísland í Jan May-
en-málinu, og vann þar ómetanlegt
starf, að þvi er fram kom í samtali
blm. Mbl. við Kyjólf Konráð Jóns-
son alþingismann í gær.
Sagði Eyjólfur að sérfræðing-
urinn væri dr. Talwani, fyrrum
forstöðumaður jarðfræðistofn-
unar Columbia-háskóla f New
York og var skýrsla hans lögð
fram sem trúnaðarmál. Sagði
Eyjólfur Konráð að á fundi
utanríkismálanefndar í gær-
morgun, hefði verið ákveðið að
fulltrúar þingflokkanna legðu á
ráðin um það fyrir jólaleyfi, með
hvaða hætti allir þingflokkarnir
gætu sameiginlega staðið að
undirbúningi samningaviðræðna
okkar við Breta, íra og Dani
fyrir hönd Færeyinga, en þær
verða væntanlega á næstu vik-
um. Sagði Eyjólfur að þá yrði
væntanlega staðið að viðræðun-
um með sama hætti og Jan May-
en-viðræðunum á sínum tíma.
Aðspurður um skýrsluna sagði
Eyjólfur Konráð að hún væri
trúnaðarmál, en þó væri engin
launung á því að hún styddi
mjög sjónarmið íslendinga, sem
þeir hafa haldið fram í 4 ár, m.a.
með ítrekuðum alþingisályktun
um og er það mat hins banda-
ríska sérfræðings, að við getum
helgað okkur Reykjaneshrygg og
víðáttumikil svæði út frá hlíðum
hans og einnig ættum vlð mikil
réttindi á Rockall-hásléttunni.
Þrátt fyrir þetta væri það mat
sérfræðingsins að sú stefna ís-
lendinga sl. 4 ár að leita sam-
starfs við aðrar þjóðir sem uppi
hafa kröfur um réttindi á þessu
svæði væri rétt. Þá sagði Eyjólf-
ur Konráð að enginn vafi væri á
því að svæði þetta hefði mikla
þýðingu fyrir okkur, bæði hvað
varðar nýtingu lífvera og jarð-
efna á svæðinu.
Geir Hallgrímsson, utanrík-
isráðherra, sagði í gærkvöldi að
menn væru að gera því skóna að
undirbúningsviðræður við Breta
og íra vegna þessa máls hæfust
seinni hluta janúarmánaðar, en
hvað efni skýrslunnar varðaði
vildi Geir ekki gefa neinar upp-
lýsingar.
ur útsvarsprósentan lækkuð úr
11,88% í 11%. Við gerum okkur
eigi að síður grein fyrir því, að
vegna snarminnkandi verðbólgu
verður greiðslustaðan erfið fyrir
fólk, en þarna er um varanlega
lækkun að ræða, sem mun skila
sér í hreinum tekjum, þegar fram
líða stundir,“ sagði Davíð
Oddsson, borgarstjóri, í samtali
við Mbl.
„Vegna hins mikla verðbólgu-
ástands á þessu ári verður nokkur
hallarekstur, en hann verður
hreinsaður út á næsta ári. Jafn-
framt verður haldið uppi mark-
vissum framkvæmdum, sagði
Davíð Oddsson ennfremur.
Stærstu tekjuliðir frumvarpsins
eru tekjuskattur, eða útsvar upp á
1.090,0 milljónir króna og er þar
um að ræða tæplega 47% hækkun
frá frumvarpi síðasta árs að ræða,
fasteignagjöld upp á liðlega 378,7
milljónir króna, sem er um 71,9%
hækkun og aðstöðugjöld upp á 380
milljónir króna og er þar um að
ræð 43,5%.
1 gjöldum vega félagsmálin
þyngzt, en í þau er ætlað að verja
liðlega 615,8 milljónum króna, en
það er liðlega 59% hækkun frá
frumvarpi fyrra árs. Til gatna-
gerðar er áætlað að verja tæplega
435,8 milljónum króna, sem er um
1,6% hækkun frá fyrra árs frum-
varpi og loks er ætlað að verja
275,2 milljónum króna til fræðslu-
mála, sem er um 36,3% hækkun
frá frumvarpi síðasta árs.