Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984
7
Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig á einn eöa
annan hátt á 70 ára afmœli minu 19. desember sl.
Hjartans þakkir.
Sranborg Sæmundsdóttir.
Talskólinn
Námskeið í framsögn og taltækni 5 vikur 20
kennslustundir.
9. og 10. janúar
13. og 14. febrúar
19. og 20. mars.
Innritun daglega í síma 17507 kl. 16.00—19.00.
Þeir sem hafa þegar skráð sig vinsamlega staö-
festið innritun fyrir 6. janúar.
Talskólinn,
Skúlagötu 61, sími 17507.
útvarp, sílsalistar, grjótgrlnd. Verð
265 þús. (Skipti.)
Daihatsu Taft diesel 1982
Hvítur, ekinn aðeins 9 þús. km.
Sportfelgur o.fl. Verö 410 þús.
Volvo 244 GL 1980
Brúnsanz, ekinn 56 þús. sjálfskipt-
ur, aflstýri, útvarp, segulband,
snjó- og sumardekk. Verö 310 þús.
Skipti á ódýrari.
Toyota Crown diesel 1982
Blágrár, ekinn 33 þús. Sjálfskiptur,
aflstýri, útvarp, segulband, snjó-
dekk, sumardekk, grjótgrind, over-
drif. Veró 490 þús. Skipti á ódýrari.
Volvo 245 GL 1982
Gráblár, ekinn 33 þús. aflstýri, út-
varp, segulband, snjó- og sumar-
dekk, overdrive, sílsalistar, grjót-
grind, dráttarkúla, litað gler. Verö
460 þús. Skipti BMW ofl.
Bílamarkaðurinn,
Grettisgötu
þakkar viðskipti á gamla
árinu og óskar viðskipta-
mönnum sínum gleðilegs
nýs árs.
Daihatsu Charade
XTE 1981
Rauður, ekinn 41 þús. km. Spar-
neytinn framdrifsbíll. Verð kr. 185
þús. Góö lán.
Daihatsu Charmant 1983
Hvítur, 4ra dyra, ekinn 3 þús
km. Sjálfskiptur. Snjó- og
sumardekk. Verö 310 þús. Ath.
skipti.
M. Benz 307 1978
Gulur, ekinn 126 þús. km. Aflstýri,
útvarp. Urvalsbíll. Verö 350 þús.
(Skipti).
International Scout 1979
Blár og hvítur, 8 cyl. sjálfskiptur
með öllu. Útvarp og segulband.
Breið dekk. Sportfelgur. Jeppi í
toppstandi. Verð kr. 350 þús.
(skipti ath.).
Volvo Laplander 1980
Litur: Grár. Ekinn 2500 km. Verð
230 þús.
Nú er rétti tíminn til bilaksupa.
Ýmis kjör koma til greina. Komiö
með gamla bílinn og skiptiö upp i
nýrri og semjið um milligjöf. Bílar á
söluskrá sem fást fyrir skuldabréf.
Frjalst oKa* dagblaö
,iia5ur
árs*nS
ioncrl
’-NSiONO*6LLei»T« SCMNAM
Málgagn sós/atóma, verka/ýðs- j|
hreyfingar og þióðf.r_..„
Gott ár - rrrnðflÓSiálfstaeaisbaráttan
Hermangsar — á komandi ari
Hófleg bjartsýni
Forystugreinar dagblaðanna um áramót bera allar svipmót afla-
samdráttar og efnahagsþrenginga, sem tengjast nýbyrjuðu ári
og sníða afkomu þröngan stakk. Hinsvegar hefur tekizt að ná
niður verðbólgu með ólíkindum, eða úr 130—150% vexti, á
fyrstu mánuðum ársins, niður í nálægt 20%. Sá árangur auðveld-
ar okkur að undirbyggja sókn til betri lífskjara, ef samheldni ríkir
á nýju ári og viö glutrum ekki niður þeim mikilsveröa árangri,
sem náöst hefur. Það á því að vera hægt að líta með hóflegri
bjartsýni til næstu framtíðar.
„Einstakur
árangur“
Uagblaöið Vísir segir í
forystugrein á áramótum:
„Að því er varðar stöðu
lands og þjóðar, afkomu og
efnahag íslendinga, fer
ekki á milli mála að um-
talsverðasta breytingin
sem átt hefur sér staö á
þessu ári er árangurinn í
baráttunni gegn verðbólg-
unni.
í upphafi ársins og fram
eftir fyrstu mánuðum þess
var öllum Ijóst að óðaverð-
bólga var að kollsigla þjóð-
arskútuna. Þegar veröbólg-
an nam rúmlega 130% á
miðju ári var sýnt að þjóð-
arbúiö, heimilin, atvinnu-
fyrirtrekin og einstaklingar
allir stóðu frammi fyrir al-
varlegasta efnahagsskip-
broti sögunnar.
Undir forystu nýrrar rík-
isstjórnar var ráðist til at-
lögu gegn þessum fjanda.
Viðnámið hófst og ótrúleg-
ur árangur hefur þegar
komið í Ijós.
Við þessi áramót melist
verðbólgan innan við 20%
og allt niður í 10% á árs-
grundvelli. Þessi útkoma
hefði þótt kraftaverk ef
einhver hefði þorað að spá
um hana á miðju ári. Og
hún er kraftaverk, einstak-
ur árangur, sem allir hljóta
að fagna og þakka.“
„Erfiðleikar
steðja að
íslenzku
atvinnulífi“
Alþýðublaðið gagnrýnir
kaupmáttarskerðingu í ára-
mótaleiðara, en segir síð-
an:
„Og hér hefur þó ekki
verið minnzt á þá erfið-
leika sem steðja að is-
lenzku atvinnulifi og hafa
m.a. birzt í stórauknu at-
vinnuleysi síðustu mánuði.
Því miður virðast engin
þau teikn á lofti sem boða
bjartari tíma í þeim efnum.
íslenzkur sjávarútvegur
mátti allra sízt við því nú á
gífurlegum erfiðleika-
tímum útgerðar og fisk-
vinnslu, að jafnsvört
skýrsla um ástand þorsk-
stofnsins yröi sá kaldi
raunveruleiki, sem við
blasir. I>egar ofan á bætist
úrræðaleysi og um margt
fumkennd viðbrögð stjórn-
valda, þá verður ekki séð
annað, en áframhaldandi
erfiðleikar með talsverðu
atvinnuleysi verði viðvar-
andi í íslenzku atvinnulífi á
næsta ári.“
„Dýki sívax-
andi eymdar“
Þjóðviljinn er með fjór-
skiptan leiðara á gamla-
ársdag: I) „Kjaraskerðing-
arár, 2) „Atvinnuleysisár",
3) „Hermangsár" og 4)
„Gott ár — gróðaár". Orð-
rétt segir blaðið: „Inisund-
ir heimila í landinu búa við
skorL Launin duga ekki
fyrir nauðsynlegum út-
gjöldum. Frásagnir um
vaxandi eymd berast á
hverjum degi. Hjálpar-
stofnanir fá í auknum mæli
beiðnir um aðstoð frá inn-
lendum heimilum. ísland
hefur verið dregið niður í
dýki sívaxandi eymdar.
LÍeiftursóknarhöggið féll
svo þungt að þorri lands-
manna mun ekki bíöa þess
bætur í áraraðir."
„Ársins 1983 verður
minnst fyrir þá sök að her-
mangsöflun risu úr ösku-
stónni," segir Þjóðviljinn,
„og boöuðu blómatíma
vaxandi vígbúnaðargróða í
öllum landshlutum... “.
„Ríkisstjórn Verzlunar-
ráðsins hefur vissulega séð
um sína. Með klingjandi
kampavínsglösum fagnar
forstjóraherinn merkum
tímamótum. Árið 1983 hef-
ur í þeirra sögu reynst ein-
stakur tími. Gott ár. Gróða-
ár“.
„Snúum bök-
um saman“
Áramótaleiðari Tímans
fjallar m.a. um hjöönun
vcrðbólgu, sem hafi reynzt
meiri en björtustu vonir
stóðu til. Samdráttur í afla
og þjóðartekjum hafi
hinsvegar aukið verulega á
vandann. Kaupmáttur
ráðstöfunartekna hafi
skerzt um 12%. Orðrétt
segir Tíminn:
„Tímar eins og þeir, sem
íslendingar búa við nú,
krefjast þess, að einstakl-
ingar og stéttir snúi bökum
saman og hjálpist að við að
sigrast á vandanum. Tím-
arnir gera ekki aðeins
kröfu til þess að ríkisstjórn
sé ábyrg, heldur stjórnar-
andstaða einnig. Þess eru
ekki fá dæmi, að öfgafull
og óábyrg stjórnarandstaða
hafi orðið frelsi þjóðar að
falli.“
í öðrum leiðara sama
dags segir Tíminn: „Hinar
dökku horfur snerta hins-
vegar svartsýnar spár um
afla á nýja árinu og þaö
alvarlcga ástand { fram-
leiðslu- og atvinnumálum,
sem þvi fylgir ef þær spár
ganga eftir. Það verður því
vandrötuð siglingin hjá
stjórnendum þjóðarinnar
1984, þótt mörgum þyki
vafalaust vandamálin létt-
væg miðað við hörmungar
I margra annarra þjóða.“
BALLETTSKOLI
EDDU
SCHEYING
Skúlatúni 4
Ný námskeiö hefjast mánudaginn 9. janúar.
Byrjenda- og framhaldsflokkar frá 5 ára aldri.
Innritun og upplýsingar í síma 25620 kl. 16—18.
Afhending og endurnýjun skírteina laugardaginn 7. janúar kl. 14—16.