Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984 ficfc/'iAnn i P,.» S.odld. „ 'é.y Inef 5cb t'Jorvx Har\r\ cr ob fireyfcaít i. Fiérildi.’1 Með morgunkaffinu Vi<> a-llum að fara It'll im-A 'ann Þú i'Hur trúlega gert þér í hugar- lu-nnan? lund móttökurnar, ef ég kem svona heim til mín? HÖGNI HREKKVISI '* '* itW.* M. Nmitfht Symliralr, Inr O HútZNI, ER FALLBGA INHfÖKKOP GJOF //' íþróttafélög í Keflavík Skúli Magnússon, Keflavík, skrif- ar: „f Keflavík hefur áhugi á íþrótt- um verið mikill undanfarin ár. Ráðamenn bæjarins hafa líka verið ósparir á fé til framkvæmda þegar íþróttir eru annars vegar. Ekki er það undarlegt, þar sem íþróttafé- lögin hafa átt marga stuðnings- menn innan bæjarstjórnar og í röð- um ráðamanna bæjarins. En sá stuðningur sýnir, að ef vilji er fyrir hendi, er flest hægt að gera, hvort sem það er til eflingar íþrótta eða annars. Framan af, meðan fámenni var í Keflavík, var dauft yfir íþróttun- um. Þau íþróttafélög sem stofnuð voru lognuðust fljótlega út af. Við stofnun Ungmennafélags Keflavík- ur 1929 verða þáttaskil í keflvískri íþróttasögu. Uppfrá því hafa íþróttir jafnan verið iðkaðar skipu- lega og starfið aldrei fallið niður. Allt fram til ársins 1950 var UMFK, eina íþróttafélagið í Kefla- vík sem eitthvað kvað að, en það ár var Knattspyrnufélag Keflavíkur stofnað. Hleypti það nýju lífi í íþróttastarfsemina er á leið. Þessi tvö félög hafa sl. áratugi haldið merkinu á lofti heima og heiman. Heimildir um íþróttir í Keflavík eru fáar fram eftir árum. í dag- blöðum cru að vísu víða stuttar frá- sagnir, en þær ná mjög skammt. Hef ég haldið þeim saman eftir því sem ég hef rekist á þær. Árið 1940 verður nokkur breyting á er blaða- útgáfa hefst í Keflavík, en einkum eru til góðar heimildir eftir 1950. Annars væri ekki úr vegi að kefl- vískir íþróttamenn hygðu örlítið meira að sögu sinni, einkum fyrir 1940. Enn eru á lífi menn sem þá tóku þátt í íþróttum og muna sitt- hvað sem aldrei hefur á blað kom- ist. Góður árangur og gömul met verða harla lítils virði ef ekki er reynt að halda þeim á loft. Eftir örfá ár getur verið um seinan að ná slíkri vitneskju saman. Sagan um frumherjana og erfiðleika þeirra getur hins vegar orðið hinum yngri gott fordæmi til frekari sigra. — o — Skotfélag Keflavíkur var stofnað í Keflavík 21. nóv. 1869 af 15 félög- um. Þeir voru kaupmenn og versl- unarmenn í Keflavík og bændur úr nágrenninu. í stjórn þessa fyrsta íþróttafélags í Keflavík voru: Fakt- orarnir P.L. Levinsen og ólafur Norðfjörð, ásamt H.P. Duus, kaup- manni. Hvatinn að félagsstefnunni hef- ur trúlega komið frá verslunar- mönnum í Keflavík. Hafa þeir kynnst svipuðu félagsstarfi á veg- um verslunarmanna í Reykjavík, en skotfélag hafði starfað þar um tíma. I einni af Reykjavíkurbókum Árna Óla er frásögn um það félag og skotkeppni þess við Keflavíkur- félagið. f febr. 1871 ákváðu félagsmenn að reisa sérstakt hús til funda- halda. í des. 1872 var húsbygging- unni að mestu lokið. Húsið var jafnan kallað Skothúsið, og var það fyrsta hús í Keflavík sem byggt var sérstaklega til samkomuhalds. Skothúsið stóð lengi eftir að Skot- félagið var hætt starfi. Félagar háðu skotkeppnir sín á milli og voru mjög nákvæmar regl- ur um framkvæmd slíkra móta. Auk funda hélt félagið skemmtanir í húsi sínu, t.d. dansleiki. Fundabók Skotfélagsins er varð- veitt í Byggðasafninu í Keflavík. Sagði Helgi S. Jónsson mér, að hann hefði bjargað henni úr rusli, sem henda hefði átt á sorphauga. Er bókin hinn mesti kjörgripur, því Skotfélagið er fyrsta félagið, sem stofnað var í Keflavík. Fundir eru skráðir í bókina fram til 1873, eftir það er óvíst um starf Skotfélagsins, og ekki ljóst hvenær það hætti störfum. Á árum Skotfélagsins voru íbúar í Keflavík innan við 200. (Aðalheimildir um Skotfélagið eru í þremur greinum eftir Helga S. Jónsson í Faxa 1951, og í grein eftir Skúla Magnússon í Faxa 1981). — O — Áhugi á skák var nokkur hér á 19. öld, en heldur var sú íþrótt staðbundin sökum erfiðra sam- gangna innan lands og utan. í frétt í Þjóðólfi 21. nóv. 1902 er sagt frá nokkrum nýstofnuðum taflfélögum úti á landi, þar á meðal í Keflavík. Forgöngumaður þess var Konráð Stefánsson, skólapilt- ur. Ekki veit ég nein deili á manni þessum og engar frekari heimildir virðast til um félag þetta. Hygg ég að Konráð hafi verið hér aðkomu- maður í stuttan tíma og félagið hætt starfi er hann fluttist burt. — o — Á fyrri hluta þessarar aldar var Guðmundur Hjaltason einn aðal- boðberi ungmennafélagshreyf- ingarinnar. Hann ferðaðist um landið þvert og endilagt og hvatti til félagastofnana og hélt fyrir- lestra um margvfsleg efni. Enda létu ungmennafélög þeirra tíma sér fátt mannlegt óviðkomandi. f febr. 1912 kom Guðmundur til Keflavíkur og hélt þar tvo fyrir- lestra. Ferðaðist hann þá vfðar um Suðurnes. Aftur kom hann til Keflavíkur í mars og flutti þar 3 fyrirlestra. Um þessar ferðir sínar til Keflavíkur 1912 skrifar Guð- mundur í tímaritið Skinnfaxa það ár (Bls. 93). Þar getur hann þess, ad ungmennafélag hafi starfað í Kefla- vík, en sé nú í dái. Ekki hafa fundist aðrar heimildir um starfsemi þessa félags. — o — Jakob Sigurðsson (f. 1901, d. 1969), síðar kaupmaður í Keflavík, var fyrsti sundkennari í Keflavík, sem vitað er um. (Rétt þykir að geta þess að einhvern tíma var kennt sund í íshústjörninni, sem var við hús ísfélags Keflavíkur við Vatnsnesveg. Trúlega hefur það verið á árunum 1920—30. Annars er það ekki alveg ljóst, því mér er ekki fullkunnugt um hvenær íshús- tjörnin var gerð og bakkar hennar steyptir upp. Sbr. Faxa, des. 1950, ræðu Ragnars Guðleifssonar við endurvígslu Sundhallar Keflavík- ur.) Á unglingsárum sínum dvaldi Jakob stundum í Keflavík. Fann hann þá greinilega hve þörfin fyrir sundkunnáttu í sjávarplássi var brýn. Árið 1918 hóf Jakob sund- kennslu í Hafnarfirði og hafði áhuga á slíkri kennslu í Keflavík. Fyrstu tilraun til að koma á sundkennslu hér syðra, gerði hann í febr. 1923. Þann 11. s.m. fór hann til Keflavíkur ásamt Steini Sig- urðssyni, bókhaldara, sem flutti þar fyrirlestur um sundíþróttina. Eftir fundinn var kosin 3ja manna nefnd sem koma skyldi sund- kennslu af stað. í stuttri frétti í ~ . ... * - iv Hvenær er ljósatími götuljósa? Guðbjörg Olafía Gísladóllir skrif- ar: „Kæri Veivakandi. Mig langar til að beina ákveð- inni fyrirspurn til gatnamála- stjóra: Hvenær er ljósatími götu- Ijósa og við hvað niiðast hann? Eg hef tekið eftir því að nieðan Sem dæmi vil ég nefna, að núna í haust kom þvílík þoka, að menn mundu vart annað eins. Man ég þá, að götuljósin tendruðust ekki fyrr en seinni hluta dags. Hvað veldur þessu? Ég vonast til að gatnamálastjóri geti skýrt þetta." tilkynningar eru lesnar í útvarpi, þar sem bílstjórar eru hvattir til að nota ökuljósin, þá er ekki kveikt á einu einasta götuljósi borgarinnar. Á þetta einkum við á vetrardögum, þegar umferð er mikil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.