Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984 Þarf að leggja meiri áherslu á rannsóknir á vistfræði sjávar — segir Ólafur Karvel Pálsson fiskifræðingur, en Mbl. leitaði álits hans og Þórunnar Þórð- ardóttur sjávarlíffræðings á ummælum dr. Jóns Gunnars Ottóssonar í Mbl. á aðfangadag f VIÐTALI í Morgunblað- inu á aðfangadag gagnrýndi dr. Jón Gunnar Ottósson líffræðingur fiskifræðinga fyrir að taka ekki tillit til fæðu fiskanna þegar verið væri að skýra stofnsveiflur og spá fyrir um þær. Sagði dr. Jón Gunnar m.a. efnis- lega, að þar sem allt líf í sjó byggðist beint eða óbeint á þörungunum og þörunga- svifinu, hlytu jafnvel hinar smávægilegustu breytingar á því að hafa áhrif á af- komu fiskanna. Á einum stað sagði dr. Jón Gunnar: „Vandamál þorsksins þarf ekki endilega að felast í stærð hrygningarstofnsins, það gæti alveg eins verið að hafa næga fæðu handa ungviðinu og rétta. Nýklakin seiði þurfa aðra fæðu en eldri seiði, sem nærast síðan á öðru en fullvaxnir fiskar. Ef fæðuna vantar á einhverju stigi hlýtur árangurinn að hrynja. Þess vegna verðum við að afla vitneskju um almenna líffræði þorsksins og tengsl hans við aðrar lífverur í sjónum. Á þessu sviði virðist vera misbrest- ur.“ Mbl. bar þessi ummæli dr. Jóns Gunnars undir ólaf Karvel Pálsson fiskifræðing og Þórunni Þórðardóttur sjávarlíffræðing hjá Hafrannsóknastofnun. ólafur Karvel sagði að það væru engin ný sannindi að allt líf í sjónum byggðist á þörunga- svifinu. „Það er sjálfur grund- völlurinn," sagði hann, „en það má til sanns vegar færa að ekki hafi verið nógu mikið gert af því að leita svara við ýmsum vist- fræðilegum spurningum um samspilið i lífríki sjávar. En stjórnvöld hafa einfaldlega ekki gefið okkur það fé úr að spila að hægt sé að reka slíkar rannsókn- ir af þeim krafti sem þarf. Hvers vegna er þorskstofninn minni nú en áður? Hvers vegna er þorskurinn léttari? Þetta eru vistfræðilegar spurningar sem við fáum ekki svör við með því að rannsaka þorskstofninn sem slíkan, heldur verður einnig að kanna samspil stofnsins við líf- ríkið í heild. Hitt er svo annað mál, að rannsóknir á fæðu fiska í sjón- um hafa verið stundaðar um árabil. En það er annar hand- leggur að beita niðurstöðum slíkra rannsókna við stjórnum fiskveiða. Það er gífurlega flókið mál og rannsóknir eru ekki það iangt á veg komnar að hægt sé að beita þessum niðurstöðum af viti,“ sagði Ólafur Karvel. Þórunn Þórðardóttir er ein þeirra sem fengist hafa við rannsóknir á svifi sjávar um áratuga skeið. Þórunn sagði m.a.: „Ég er sammála Jóni Gunnari um mikilvægi plantnanna, hvort sem er á landi eða í sjó. Sömu- leiðis er ég sammála honum um það að fæðan skiptir meginmáli. En á einum stað segir Jón Gunn- ar að smávægilegustu breyt- ingar á þörungasvifinu geti haft mikil áhrif á afkomu fiskanna. Ég veit ekki alveg hvaða smá- vægilegar breytingar, eða breyt- ingar á hlutföllum á milli ein- stakra tegunda, það er að segja, breytingar á flórunni. Ef hann á við breytingar á samsetningu flórunnar benda þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á íslenska hafsvæðinu ein- dregið til að flóran haldist mjög stöðug frá ári til árs, þrátt fyrir ótrúlegha mikla sveiflu á vor- komu gróðurs. Á Selvogsbanka, til dæmis, virðist samsetning flórunnar alltaf vera mjög svip- uð, en þar getur þó munað allt að mánuði á vorkomu gróðurs á milli ára. Þetta svæði var fyrst rannsakað um aldamótin af Dananum Paulsen, síðan aftur 1932,1958,1976 og 1981, og alltaf hefur flóran verið nokkurn veg- inn eins. En sveiflurnar í vorkomu gróðurs hafa auðvitað sitt að segja. Þörungasvifið breytist mjg ört yfir árið, hver tegundin tekur við af annarri og þarna er um fíngert samspil að ræða. Fyrst eftir klak lifa þorskaseiðin að miklu leyti á eggjum og lirf- um rauðátunnar, sem aftur lifir á þörungasvifinu. Og það getur haft sitt að segja um fæðumagn- ið sem ungviði þorsksins stendur til boða hvenær vorkoma gróð- ursins er. Við höfum rannsakað þetta kerfisbundið allt frá árinu 1970. Vorkoman var mjög seint á ferð- inni árin 1977 og ’79, en hins veg- ar voraði snemma í sjónum 1973, ’76 og ’81, en einmitt þessi þrjú síðastnefndu ár var rauðátu- magnið á Selvogsbanka og út af Reykjanesi yfir meðaltali ár- anna 1961 til 1982. Að öðru leyti vil ég segja það, að við höfum fylgst nokkuð náið með breytingum á íslenska haf- svæðinu undanfarin ár, en við erum fáliðuð og getum ekki gert allt það sem þyrfti að gera. Við höfum fyrst og fremst stefnt að því að kanna svörun plöntusvifs- ins við þeim öru breytingum sem ríkja á hafsvæðinu í kringum landið, auk þess að afla upplýs- inga um það hvað hafsvæðið gef- ur af sér. En við höfum aldrei litið fram hjá þætti samfélags- ins og reynt að kanna hann eftir því sem tími hefur unnist til,“ sagði Þórunn Þórðardóttir. Samningur borgarinnar, Samtaka aldraðra og Armannsfells á lokastigi: Á milli $0 og 90 söluíbúðir fyrir aldraða við Bólstaðarhlíð „A ÞESSU íri var hafin bygging á Seljahlíð, þar sem eru 60 leiguíbúðir fyrir 80 manns, en þar er jafnframt meiningin að byggja smáhýsi á lóð- inni, þannig að þar geti orðið mið- stöð fyrir 130—140 manns,“ sagði Páll Gíslason borgarfulltrúi í sam- tali við Morgunblaðið, en talsverðar umræður hafa orðið að undanfórnu um byggingar aldraðra, en nýlega var upplýst að á milli 1000 og 1100 manns eru á biðlista eftir húsnæði hjá Félagsmálastofnun Reykjavík- urborgar. Þá sagðt Páll að á þessu ári hefði verið gerður samningur við Verzlunarmannafélag Reykjavík- ur, vegna byggingar 55 til 58 sölu- íbúða fyrir aldraða, en vegna bygginganna mun borgin taka að sér að byggja og reka þjónustu- kjarna sem nýtast myndi íbúum Hendrik Berndsen formaður SAA HENDRIK Berndsen var kosinn formaður framkvæmdastjórnar Samtaka áhugafólks um áfengis- vandamálið, SAÁ, á fundi á fimmtu- dagskvöld. Að öðru leyti mun stjórn- in skipta með sér verkum á næsta fundi sínum, sem verður nk. þriðju- dag. Þrír nýir men voru kosnir í stjórnina, en þeir eru: Othar Örn Petersen, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson og Ingólfur Margeirs- son. í stjórninni sitja alls átta menn, en þeir eru auk Hendriks Berndsen og hinna þriggja nýju stjórnarmanna: Ragnheiður B. Guðnadóttir, Gísli Lárusson, Ragnar Aðalsteinsson og Eggert Magnússon. Ur stjórninni gengu þeir Björg- ólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður, Jón Steinar Gunn- laugsson og Magnús Bjarnfreðs- son. og öðrum sem koma vildu og nýta sér þjónustuna. Þá sagði Páll að verið væri að ganga frá samningi við Samtök aldraðra og Ármanns- fell, um byggingu 80—90 íbúða við Bólstaðarhlíð, en að því er stefnt að hafa þar samskonar þjónustu- kjarna og borgin sér um í bygg- ingarframkvæmdum VR, þ.e. þjónustu sem borgin rekur. Páll sagði að með þeim hætti að borgin tæki þátt í byggingar- framkvæmdum frjálsra félaga- samtaka, nýttist fjármagnið mun betur en ella. Til dæmis væri reiknað með því að Seljahlíð 1 Breiðholti II myndi kosta 128 milljónir, en þar eru íbúðir fyrir 80 manns. Hins vegar þyrfti borg- arsjóður að leggja 32—33 milljón- ir í byggingar VR og Samtaka aldraðra, en þar yrðu íbúðir fyrir um 200 manns alls. Með þessum hætti nýttist fjármagn borgarinn- ar miklu betur en ella. Af öðrum framkvæmdum á þessu ári í þágu aldraðra nefndi Páll opnun B-álmu Borgarspítal- ans og nú yrði fljótlega opnuð ný deild innan B-álmunnar, B-5, langlegudeild fyrir aldraða. Þá gat Páll þess að nú ynnu um 500 manns á vegum Félagsmála- stofnunarinnar við heimilishjálp, en einkum væri þar um að ræða aðstoð við eldra fólk og einnig nefndi Páll að dagvistun fyrir aldraða hefði verið aukin á þessu ári. Kínakál íssalat Stóraukin rækt- un á salati RÆKTIJN salats hefur aukist mik- ið hér á landi á undanförnum ár- um og á aukin notkun hverskonar hrásalata mestan þátt í því. Mest er notað af hinu venjulega höfuð- salati en notkun íssalats og kína- káls hefur aukist mikið á síðustu árum. Þetta kom fram í samtali við Axel Magnússon ylræktarráðu- naut. Á árinu 1976 voru til dæmis borðuð hér á landi 102 þúsund salathöfuð, en árið 1982 var neyslan komin í 340 þúsund stykki, þar af voru 80 þúsund stykki flutt inn. Árið 1979 voru ræktuð hér 700 kíló af íssalati en árið 1982 voru ræktuð 4.500 kíló. Sama er að segja um kínakálið, ræktun þess hefur aukist mikið á síðustu árum. Það er forrækt- að inni í gróðurhúsum og fram- ræktað undir plasti úti. Ræktun þess gekk ágætlega í sumar þrátt fyrir óhagstætt veðurfar. Árið 1980 voru ræktuð hér 200 kíló af kínakáli, árið 1981 950 kíló, árið 1982 4.500 kíló og lík- lega um 6.000 kíló í ár. Axel sagði að notkun kínakáls ætti örugglega eftir að vaxa mikið á næstu árum en innflutningur á því hefur stóraukist þrátt fyrir aukna ræktun hér heima. Sem dæmi um breyttar neysluvenjur sem garðyrkju- menn væru að reyna að full- nægja, sagði Axel, að aukist hefði ræktun á sérstakri gerð tómata, svokölluðum bufftómöt- um. Það væri viss hópur neyt- enda sem sæktist eftir þessari tegund tómata. Bufftómatarnir væru stærri og fylltari og fynd- ist sumum þeir betri á bragðið en venjulegu tómatarnir. Sagði Axel að þeir væru mest notaðir til steikingar og sem álegg. opiðtilsjöíkvöldlící ] Yörumarkaöurinnhl. eiðistorgih mánudaga — þriðjudaga — miðvikudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.