Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984 Nýir samningar auð- velda töku skamm- tíma gjaldeyris- lána erlendis NÚ UM áramótin taka gildi samn- ingar, sem auka verulega heimildir Seðlabankans til þess að taka skammtíma gjaldeyrislán erlendis sé þess þörf vegna óhagstæðs greiðslujafnaðar. Annars vegar hækkar kvóti íslands hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum um 16 millj. SDR eða að jafnvirði 480 millj. kr. og hins vegar hækka heimildir til töku gjald- eyrislána hjá seðlabönkum Norður- landa um 20 millj. SDR eða að jafn- virði um 600 millj. kr. segir m.a. í fréttatilkynningu frá Seðlabanka ís- lands. Þar segir ennfremur: „Kvóti íslands hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum hækkar nú úr 43,5 millj. SDR í 59,6 millj. SDR og aukast möguleikar íslands á því að fá yfirdráttarlán hjá sjóðn- um í samræmi við það, en lög um þetta efni voru samþykkt af Al- þingi í lok nóvember sl. Lán Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins eru veitt til þess að auðvelda aðildarríkjum að komast fram úr aðsteðjandi greiðslujafnaðarerfiðleikum. Frá því á árinu 1960 hefur ísland fjór- um sinnum tekið slík yfirdráttar- lán, nú siðast 21,5 millj. SDR í lok ársins 1982, auk þess sem þá var dregið á gjaldeyrisinnistæðu Seðlabankans hjá sjóðnum sem nemur 9 millj. SDR. Seðlabankar Norðurlanda hafa gert með sér samkomulag um að auka við heimildir um skammtíma gjaldeyrislán sín í milli frá og með Listvinafélag Hallgrímskirkju: Dagskrá um Kaj Munk frestað áramótum, en samningur um slík gjaldeyrislán hefur verið í gildi allt frá árinu 1962. Hefur Seðla- banki Islands getað tekið að láni allt að 30 milljónir SDR hjá seðla- bönkum hinna Norðurlandanna, sé þess þörf vegna óhagstæðrar gjaldeyrisstöðu. Sömuleiðis tekur Seðlabanki íslands á sig þá skyldu að lána seðlabönkum hinna Norð- urlandanna samtals allt að 20 milljónum SDR, ef þörf krefur. Samningur þessi var síðast endur- skoðaður 1976, en samkvæmt hon- um voru lántökuréttur og lánveit- ingarskylda íslands takmörkuð við 10 milljónir SDR. Er því um þreföldun á lántökuréttindum og tvöföldun á lánveitingarskyldunni að ræða. Fyrir seðlabanka hinna Norður- landanna gildir það jafnframt frá áramótum, að lántökuréttur hvers þeirra verður hækkaður í allt að 150 milljónir SDR og lánveit- ingarskyldan í 100 milljónir SDR, en hvort tveggja nam áður allt að 60 milljónum SDR. Pólsku skipin: Fyrsta skipið afhent í lok janú- armánaðar FYRSTA PÓLSKA skipið af þrem- ur sem verið hafa í smíðum í Pól- landi verður afhent í lok janúar- mánaðar. Er það Gideon, annað af tveimur skipum Samtogs í Vest- mannaeyjum. Skip Hróa hf. í Olafsvík, sem einnig er í smíðum í l'óllandi, verður sjósett 6. janúar nk. Hitt skip Samtogs, Halkion, verður afhent í febrúar, en skip Hróa í marzmánuði. pm ms s Þau Ragnheiður Ragnarsdóttir og Ólafur Bjarnason hampa hér nýfæddri dóttur sinni sem fæddist í sjúkrahús- inu í Keflavík laust fyrir kl. 10.00 á nýirsdagsmorgun. Er litla stúlkan fyrsti íslendingurinn sem fæðist á árinu 1984. Ljósm. Mbl./Heimir Stígsson Fyrsta barn ársins 1984 Þessar myndir eru af fyrstu fs- lendingunum sem litu dagsins Ijós á nýja árinu. Sá fyrsti fæddist í Keflavík kl. 09.45 á nýársdags- morgun, var það fimmtán marka stúlka, dóttir Ragnheiðar Ragn- arsdóttur og og Ólafs Bjarnasonar. Næstur kom Akureyringur sem fæddist kl. 12.22 á nýársdag. Það var einnig stúlka og vó hún tæpar fjórtán merkur. Litli Akureyringur- inn er dóttir Agnesar Eyfjörð og Elíasar Oskarssonar. Fyrsti Reyk- víkingurinn kom síðan í heiminn á sjötta tímanum sama dag. Það var einnig fyrsti drengurinn á árinu, sonur Stellu Olsen og Birgis Olafssonar, og vó hann tæpar tólf merkur. Á Akureyri fæddist annað barn ársins. Var það stúlkubarn sem sést hér í fangi móður sinnar, Agn- esar Eyfjörð. Ljósm. Mbl./GBerg Dagskránni um Kaj Munk, sem fyrirhuguð var á dánardegi hans á morgun 4. janúar hefur verið frestað. Guðrún Ásmundsdóttir leikari undirbýr þessa dagskrá um hinn mikla, danska predikara og skáld, sem myrtur var af nasistum fyrir 40 árum. Guðrún mun flytja hana ásamt fleiri listamönnum í Hallgríinskirkju við fyrsta tæki- færi. Þetta er einn liður í fjölbreyttu listalífi á vegum Listvinafélags- ins, en í byrjun aðventu hófst 2. starfsár þess. Enn er hægt að ger- ast styrktarfélagi, gíróseðlar liggja frammi í kirkjunni og þá er hægt að fá heimsenda. Náttsöngur verður að vanda sunginn annað kvöld í Hallgríms- kirkju og hefst klukkan 22.00. Frétutilkynninf; Leiðrétting í frétt sem birtist í Morgunblað- inu á gamlársdag var sagt frá ljósmyndasýningu frá Seyðisfirði sem Ljósmyndasafnið stendur fyrir. Ranglega var sagt að sýn- ingin yrði í Ljósmyndasafninu við Flókagötu, því að sýningin verður sett upp á Seyðisfirði. Auk þeirrar sýningar verður á sama stað sýn- ing sem ljósmyndsafnið hefur unnið fyrir tilstuðlan mennta- málaráðuneytisins og fjallar sú sýning um sögu ljósmyndunar. Teikningin sem birtist með frétt- inni á gamlársdag verður ekki á sýningunni, en sú mynd er eigi að síður ein gamalla teikninga frá Seyðisfirði. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Atvinnumálanefnd Stykkishólms um skelfiskveiðar á Breiðafirði: Breytingar á núverandi skipu- lagi munu leiða til atvinnuleysis VEGNA endurtekinna ályktana um skelveiðar og vinnslu og vegna aug- lýsingar sjávarútvegsráðuneytisins um skelveiðar, gerði atvinnumála- nefnd Stykkishólms eftirfarandi at- hugasemdir á fundi sínum 29.12. Þar kemur meðal annars fram að í heilan áratug 1969—79 sáu einungis útvegsmenn í Ntykkishólmi ástæðu til að nýta hörpudisk í Breiðafirði og það þrátt fyrir að alla opinbera fyrir- greiðslu skorti. Þar segir ennfremur að á þess- um fyrstu árum hafi fyrirtæki í Stykkishólmi og sveitarfélagið orðið að færa verulegar fórnir á meðan verið var að þróa vinnsluna og markaðir voru ótryggir og megi rekja gjaldþrot tveggja fyrirtækja til þess. Á meðan á þessu hafi staðið hafi önnur sveitarfélög í nágrenninu fjárfest í skuttogurum og bolfiskvinnslu og hafi það verið óskráð samkomulag milli sveitar- félagana að skelin væri nýtt frá Stykkishólmi, en skuttogaraút- gerð rekin frá þeim stöðum sem byggt hafi upp bolfiskvinnslu. Segir að svo virðist sem Stykkis- hólmur hafi veðjað á rangan hest, ef að skuttogarabyggðalögin eigi að fá að sölsa undir sig skelveið- arnar, en erfitt sé að stunda hefðbundinn bátaútveg frá Stykk- ishólmi vegna fjarlægðar á miðin. Þá segir að uppbygging og fjár- festing í skelfiskvinnslu hafi byggst á lögum um samræmdar veiðar og vinnslu sjávarafla frá 1975 og hafi þau verið talin trygg- ing fyrir því að þessi atvinnufyr- irtæki yrðu ekki svipt rekstrar- grundvelli. Segir að gera verði þá kröfu til stjórnvalda að hún geri ekki þessa grein sjávarútvegs arð- lausa með því að fjölga veiði- og vinnsluaðilum og offjárfesta með því í greininni. Ennfremur segir í athugasemd- um atvinnumálanefndar, að fram komi í skýrslu Fiskveiðifélags fs- lands 1982, að verðmæti sjávaraf- urða á hvern íbúa í Stykkishólmi sé einungis 57% þess sem sé í öðr- um verstöðvum á Snæfellsnesi og skatttekjur 8—14% yfir tekjum í Stykkishólmi. Greiddar atvinnu- leysisbætur á tímabilinu 1981-83 hafi í Stykkishólmi numið 52% þeirra sem greiddar voru á Snæ- fellsnesi og hafi þar eingöngu ver- ið um að ræða sjómenn og fisk- vinnslufólk. Að lokum segir: „Atvinnumála- nefnd Stykkishólms hvetur sjáv- arútvegsráðherra og þingmenn kjördæmisins til að kynna sér rækilega allar hliðar þessa máls. Allar breytingar á núverandi skip- an skelveiða munu leiða til aukins atvinnuleysis í Stykkishólmi og óhagkvæmni í nýtingu á takmark- aðri auðlind." Úrslit tilkynnt í skoðana- könnun Karnabæjar Á gamlársdag voru kynnt úrslit í skoðanakönnun Karnabæjar um viðmót og þjónustu. Þá voru jafn- framt dregin út nöfn 5 viðskipta- vina, sem þátt tóku í skoðana- könnuninni og unnu 5 þúsund króna fata- eða hljómplötuúttekt. Þátttakan í skoðanakönnun- inni var geysimikil og þraut skoðanakönnunarmjða fyrir jól í sumum verzlunum. Hlut- skarpasta verzlunin var ungl- inga- og barnadeild Karna- bæjar, Austurstræti 22 eftir mjög harða keppni við aðrar verzlanir fyrirtækisins. Flest stig einstaklinga fékk Svanhvít Kristjánsdóttir, verzluninni Garbo. Svanhvít og starfsfólk unglinga- og barnadeildarinnar voru verðlaunuð sérstaklega. Sem fyrr segir hljóta 5 þátt- takendur verðlaun, 5 þúsund króna úttekt á fötum eða hljómplötum. Hin heppnu eru: Freydís Jónsdóttir, Hraunbæ 82, Reykjavík, Guðrún Gunn- arsdóttir, Hraunbæ 48, Reykja- vík, Rut Agnarsdóttir, Grettis- götu 31, Reykjavík, Jóhann P. Jóhannsson, Hólabraut 2, Hrís- ey, og Ásthildur Erlingsdóttir, Holtsgötu 19, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.