Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984 Nauðsynlegt að ná traust- um tökum á grundvallarfor- sendum heilbrigðs þjóðlífs íslendingar. Árið sem er að líða hefur verið viðburðaríkt, bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Innanlands hefur verið gripið til róttækra aðgerða til þess að rétta við þjóðarskútuna eftir vaxandi slagsíðu undanfarinna ára. Það veit ég að allir íslendingar vilja að takist, þótt skiptar skoðanir muni vera um leiðir. Á erlendum vettvangi hafa þeir hlutir gerst, sem geta ráðið örlög- um mannkyns. Við stöndum því ekki aðeins á venjulegum áramótum, heldur á óvenju alvarlegum tímamótum. Rík ástæða er því til að staldra við, líta yfir farinn veg og athuga vel hvar við erum stödd og hvert við stefnum. En það er ekki nóg að líta á eitt ár eða jafnvel tvö, því; „Án fræðslu þess liðna sést ei hvað er nýtt.“ Það er ævintýri líkast, hve ís- lenska þjóðin hefur á skömmum tíma byggt upp velferðarþjóðfélag með einhverjum bestu lífskjörum, sem þekkjast í víðri veröld. Þessi þróun hefur verið stórstígust síð- ustu áratugina. Framfarasóknin til lands og sjávar hófst þó af tölu- verðum krafti um og eftir alda- mótin. Einnig er ákaflega athyglisvert, hve miklu var afrek- að í fátæktinni fyrir síðustu heimsstyrjöld, þegar kreppan mikla gekk yfir heiminn. Þá var mörgu Grettistakinu lyft. Vegir voru lagðir, skólar byggðir, grund- völlur lagður að stóriðju í sjávar- útvegi, svo fátt eitt sé nefnt. Þess njótum við nú. Það er á þeim grunni, sem efnahagur þjóðarinn- ar hefur tekið gífurlegum fram- förum undanfarna fjóra áratugi. Á þeim tíma hefur auður þjóðfé- lagsins líklega um það bil þrefald- ast.. Síðasta áratug jókst þjóðar- framleiðslan jafn mikið á ári að meðaltali og í Japan, og í engu öðru landi meira. Um þetta bera ljósan vott eignir og lífskjör ein- staklinga og fjölskyldna, og ekki síður sameiginleg þjónusta í heilsugæslu, menntun, samgöng- um, og þannig mætti lengi telja. í raun er þetta allt afrakstur af auðæfum til lands og sjávar og at- orku einstaklinganna. En þessu lífskjarakapphlaupi hafa fylgt ýmsir alvarlegir vaxt- arverkir. Sannast hefur, að mikið vill meira. Flest undanfarin ár höfum við íslendingar eytt um- fram efni. Það hefur þó ekki kom- * Aramótaávarp Steingríms Hermannsson- ar forsætis- ráðherra ið mjög að sök, því að þjóðar- framíeiðslan, einkum sjávarafl- inn, hefur jafnt og þétt aukist og því unnt að greiða skuldirnar. Að þessu leyti stöndum við nú áreiðanlega á krossgötum. Auð- lindunum eru takmörk sett og þær auðlindir, sem við höfum fyrst og fremst nýtt til lands og sjávar, eru að öllum líkindum fullnýttar. Lífskjarakapphlaupið hefur einnig haft mikil og oft skaðleg áhrif á mannlífið sjálft. Nokkur atriði vil ég nefna. Ég er ekki í nokkrum vafa um, að aukna notkun fíkniefna og eit- urlyfja má rekja til þeirrar streitu og þreytu, sem fylgir kapphlaup- inu við verðbólguna og eftir stöð- ugt auknum veraldlegum gæðum. Það er mikið rétt í því, sem Einar Benediktsson segir í hinu mikla kvæði Einræður Starkaðar: „Geðið ber ugg, þegar gengið er hátt, gleðin er heilust ogdýpst við það smáa' Með fleiri tómstundum þurfa menn betri aðstöðu til heilbrigðra athafna. Ég er sannfærður um, að fátt er betri fjárfesting fyrir framtíðina en að skapa æsku þessa lands og reyndar öllum körl- um og konum aðstöðu til þess að fá útrás fyrir sína orku í íþróttum, útivist og öðrum heilnæmum leikjum og athöfnum. Vafalaust má einnig rekja mikla cyðslu til áhrifa frá verð- bólgunni. Raunar er það skiljan- legt, að menn vildu nota fé sitt sem fyrst, þegar verðbólga var mikil og fjármagnið fékkst ekki tryggt gegn rýrnun. Sá tími er hins vegar sem betur fer liðinn. Verðbólga er orðin brot af því sem var, og sparifé er vel verðtryggt. Mikil eyðsla enn veldur því undr- un og áhyggjum. Er hagur almennings þrátt fyrir allt svo góður, það færi betur, eða er verðbólguhugsunarhátturinn enn um of ráðandi? Því miður er líkiega hið síðara rétt. Umsvifamikill kaupmaður sagði mér nýlega, að ekkert lát væri á sölu, en flest væri keypt á láns- kjörum. Hann kvað hins vegar vanskil viðskiptavina hafa marg- faldast og skiptu nú milljónum hjá honum einum. Þetta er illt og dregur dilk á eftir sér. Væntan- lega mun reynslan kenna mönnum ráðdeild á ný, en sá skóli er oft erfiður. Ég get heldur ekki vafist þeirri hugsun, að spennan í þjóðfélaginu hafi aukið deilur á milli þéttbýlis og dreifbýlis. Menn, sem gera verður kröfu til að tali af ábyrgð, virðast t.d. telja það leysa efna- hagsvanda þjóðarinnar að hætta sem mest framleiðslu landbúnað- arafurða í okkar eigin landi. Ef- laust má fá landbúnaðarafurðir, sem eru stórlega niðurgreiddar og offramleiddar erlendis, á lægra verði en hér, a.m.k. tímabundið. En það er aðeins falskur stund- argróði. Aðrar þjóðir leggja á það áherslu að vernda framleiðslu sína á grundvallarþörfum þjóðfé- lagsins. Hollar og góðar landbún- aðarafurðir eru þar fremstar í flokki. Sú þjóð er ekki sjálfstæð, síst af öllu eyþjóð, sem ekki nýtir gróðurlendi sitt til framleiðslu. Auk þess hafa þúsundir manna at- vinnu af landbúnaði og hann skap- ar jafnvægi bæði í búsetu og mannlífi. Bændamenningin hefur og verið einn hornsteinn íslenskr- ar menningar. Án landbúnaðar væri þjóðin fátæk. Hitt er svo annað mál, að gera verður þær kröfur til landbúnað- arins sem annarra atvinnugreina, að gætt sé hagsýni og framleiðsl- an aðlöguð þörfum þjóðarinnar. Á því sviði hefur reyndar mikið áunnist, fyrst og fremst fyrir að- gerðir bænda sjálfra. Af sama toga virðist mér hávær mótmæli við aðstoð við fámenn byggðarlög, þegar um tímabundna erfiðleika, t.d. í útgerð, er að ræða, jafnvel þótt atvinnuleysi og flótti blasi að öðrum kosti við íbúum staðarins. Það gleymist fljótt hve mikinn auð fjölmargir slíkir stað- ir hafa fært í þjóðarbúið, þótt smáir séu. Staðreyndin er einnig sú, að þau eru orðin æði mörg sjávarþorpin, sem fengið hafa að- stoð vegna tímabundinna erfið- leika en mala nú á ný gull fyrir þjóðarheildina. Með þessum orðum á ég ekki við, að illa rekin fyrirtæki, hvort sem er til lands eða sjávar, megi ekki stöðvast. Þau hijóta að stöðv- ast og aðrir að taka við rekstrin- um, sem betur geta gert. Slík Nteingrímur Hermannsson fyrirtæki verða ekki rekin á kostn- að heildarinnar. En þjóðina má ekki kljúfa í fylkingar. Á því höfum við Islend- ingar ekki efni. Hver hlekkurinn er öðrum ómissandi. Við erum ein þjóð og höfum miklar skyldur hvert gagnvart öðru. Ef til vill má rekja slíkar deilur til þess að þjóðerniskenndin er ekki eins sterk nú og áður var, og þjóðleg fræði ekki eins í hávegum höfð m.a. í skólum landsins. Ég efast um að annað hlutverk skól- anna sé mikilvægara en að tengja nemendur sem best landi sínu og þjóð. Þjóðerniskenndin er ekki í tísku nú, eins og fyrr. Þó er það líklega sú tilfinning, sem tengir þjóðina best saman og tryggir sjálfstæði hennar því eins og Grímur Thom- sen segir: „Sá er bestur sálargróður, sem að vex í skauti móður, en rótarslitinn visnar vísir, þó vökvist hlýrri morgundögg”. Allt ber þetta að sama brunni. Bæði af efnahagslegum og mann- legum ástæðum er nauðsynlegt að ná traustum tökum á grundvallar- forsendum heilbrigðs þjóðlífs. Þessi vandamál eru innlend. Lausn þeirra er í okkar eigin hendi og I raun óafsakanlegt, ef við fáum ekki við þau ráðið. Þó er ekki sama hvernig það er gert. í þeim tímabundnu erfiðleikum, sem við eigum við að stríða nú, hljóta kjör einstaklinga að skerð- ast og ýmiss konar sameiginleg þjónusta að dragast saman um skeið. Annað er blekking. Mikil- vægast er, að þessum byrðum sé dreift þannig, að þeir beri, sem borið geta. Mér er ljóst, að þetta er ekki í fyrsta sinn, sem minnst er á breiðu bökin. Eflaust er það einnig rétt, að oft hefur mistekist að dreifa byrðunum réttlátlega. Engu að síður er krafan réttmæt og að því verður að stefna. í þessu sambandi vil ég minna á grundvallarforsendu okkar þjóð- félags um öryggi öllum til handa. Við viljum ekki, að menn líði skort eða þurfi af efnahagsástæðum að kvíða elli eða sjúkleika. Sjálfsagt er að leita leiða til að veita sömu eða betri þjónustu með minni til- kostnaði, en aldrei má missa sjón- ar af þessu grundvallaratriði. Á alþjóðlegum vettvangi hafa hins vegar hrannast upp óveð- ursský, sem ekki er á okkar valdi einna að stöðva. Eftir tuttugu ára kjarnorkuvopnakapphlaup virðist svo sem stórveldin hafi misst taumhald á framleiðslu gjöreyð- ingarvopna. Friðurinn byggist á hræðslu við tortímingu. Friður í skjóli ótta er ekki góður friður. Mannkynið þarf frið og frelsi frá ótta og ánauð. Stöðug umræða um gjöreyðingu veldur vonleysi um framtíðina, ekki síst hjá þeim yngri, sem sjá fram á fleiri ár í skjóli óttans. Rótleysi og kæruleysi fylgir. Við íslendingar leyfum hvorki kjarnorkuvopn né eldflaugar á ís- lensku landi. Við höfum á alþjóð- legum vettvangi lagt áherslu á gagnkvæma afvopnun. En við þurfum þó enn að herða róðurinn og leggja þyngra lóð á vogarskál friðar án ótta. Við krefjumst þess að viðræður hefjist á ný án tafar, stórveldin komi sér saman um ör- uggt eftirlit, stöðvi jafnframt framleiðslu gjöreyðingarvopna og eyði þeim, sem nú eru til. Um slíka stefnu, án öfga en með festu, get- um við íslendingar sameinast. Þá mun verða eftir okkar rödd tekið, þótt smáir séum. Þótt skuggi kjarnorkunnar hvíli stærstur yfir heimsbyggðinni nú, eru aðrir daglegir erfiðleikar mannkyns margir. Stöðugt berast fréttir af styrjöldum, hryðjuverkj- um, náttúruhamförum og hungri. Okkar erfiðleikar eru litlir í sam- anburði við það. Á þessu hafa ís- lendingar skilning, eins og glöggt kom fram í söfnun kirkjunnar nú fyrir jólin, en ótrúlegt er það, að á þessum tíma tækninnar, þegar við á norðurhveli jarðar búum við allsnægtir, líður stór hluti íbúa heimsins af vaxandi hungursneyð. Um þessa öfugþróun virðast þjóðirnar furðu skeytingarlausar. Fræðimenn spá því þó, að fram- undan séu stórum meiri erfiðleik- ar vegna mikillar fólksfjölgunar, þverrandi auðlinda og enn vax- andi hungurs hinna fátækari, ef ekki er þegar snúið við blaði, lifn- aðarháttum breytt og horfið af braut eyðslu og sóunar. Hver er staða okkar íslendinga í slíkri heimsmynd? Hvernig getum Svívirtir áhorfendur Sýning á vegum stúdenta- leikhússins í Tjarnarbæ Leiklist Ólafur M. Jóhannesson Ég hrökk við er mér barst her- kvaðning þess efnis að ég a‘tti að sjá leiksýningu hjá Stúdentaleik- húsinu er nefndist Svívirtir áhorf- endur. Gagnrýnendur eru varir um sig og því létti mér óumræði- lega er vingjarnleg stúlka skipti um sæti við mig og ég færðist af öðrum bekk yfir á þann seytj- ánda. Ég hafði á tilfinningunni að ég væri óhultari fyrir svívirðing- unurn aftast í salnum en rétt við sviðið. Auðvitað hefði ég átt að setjast út við dyr en allt fór þó vel að lokum. Það gleymdist nefni- lega að svívirða áhorfendur, nema svona rétt undir lokin, þegar leik- húsgestir gengu á rauðum dregli útaf sýningunni þvert yfir Tjarn- argötuna við lúðrablástur og í fylgd logandi kyndla og prúðbú- inna lögregluþjóna. Ég er sam- mála vinkonu minni er ég bauð á sýninguna að svona nokkuð mætti endurvekja í henni Reykjavík. Af hverju fara menntaskóla- nemar ekki í blysfarir, í kjól og hvítt og síðkjól á dansleiki þar sem er dansaður menúet og menn upphefjast um stund í þann heim sem aðeins rætist í draumi. Þá fengju menn for- smekk af lífinu í höllu álfakon- ungsins í stað þess að húka í klettaskoru í fylgd útilegu- manna svælandi skít. En hér er víst um tómt mál að tala meðan þeir sem skapa vímumenning- una ráða yfir digrum sjóðum. Ég veit ekki af hverju ég fer hér út í þessa sálma. En ég get ekki að því gert að í hvert sinn sem ég geng framhjá Tjörninni, þessum eðalsteini Reykjavíkur, þá setur að mér trega og ég óska þess að hinir hjartahreinu í heimi listarinnar hverfi aftur til náttúrunnar, þessarar frum- uppsprettu allrar listar. Sú hugsun sækir æ fastar á að listskapendur sæki ekki lengur styrk sinn til lífgjafans mikla. Þannig fannst mér textinn í Svívirtum áhorfendum ekki sækja styrk í gróður jarðar heldur þær lífvana lendur er eiturgufur skilja eftir sig. Ég ætla ekki að eyða frekari orðum að þessum texta sem minnti einna helst á orðaflækjur Zen- presta, nema stöku sinnum þeg- ar lúmskt grín var gert að áhorfendum. Ég vil bara taka undir með Má Jónssyni er gaf eftirfarandi yfirlýsingu í leikskrá að lokinni vélritun handrits: Hrefna — aldrei hef- ur mér liðið jafn vel að ljúka nokkru verki og þessu. Þetta er leiðinlegasta leikrit sem ég hef lesið og vonandi ber verkefna- valsnefnd gæfu til að velja betra verk en þetta og skemmti- legri. Áþján, kvöl og pína. Ég kem ekki nálægt þessu meir og þvæ hendur mínar. Svo mörg voru þau orð Más vélritara enda sá hann aðeins textann en ég upplifði orðin af munni leikaranna. Það er nú annar handleggur eins og mað- urinn sagði. Tel ég að leikstjór- anum, Kristínu Jóhannesdóttur, hafi tekist stórvel að magna hið sjónræna í leiknum. Held ég að leiksýningin hefði náð í hæðir hefðu leikararnir bara haldið kjafti, slíkt er vald Kristínar yf- ir sjónsviðinu. Leikararnir léku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.