Morgunblaðið - 03.01.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984
23
Mikið tjón í
jarðskjálfta
í Pakistan
Islamahad, Tókýó, 2. janúar. AP.
AÐ MINNSTA kosti 14 manns
týndu lífi og mikið tjón varð á
mannvirkjum í öfiugum jarð-
skjálfta á landamærum Pakistan
og Afganistan. Annar öfiugur jarð-
skjálfti skók háhýsi í Tókýó, en
ekkert tjón hlaust af.
Jarðskjálftinn í norðvestur-
hluta Pakistan mældist 7,0 stig
á Richter-kvarða og kom hann
fram á mælum í rúmlega 100
mælistöðvum í Japan. Upptök
voru í Hindu Kush-fjöllunum
250 km norður af Peshawar.
Hundruð íbúðarhúsa og annarra
bygginga hrundu.
Útvarpið í Kabúl sagði að tug-
ir manna þeim megin landa-
mæranna hefðu slasast og millj-
ónatjón orðið á mannvirkjum,
150 hús eyðilagst og rúmlega
1100 stórlaskast.
Jarðskjálftinn sem fannst um
allar Japanseyjar mældist 7,5
stig, en upptök hans voru í
Kyrrahafi 340 kílómetra frá
Japan, og skýrir hvers vegna
ekki hlaust af stórtjón í Japan.
Mældist skjálftinn 4 stig í Tókýó
miðað við að miðja hans væri
þar.
Rocco Dinubilo, vínræktarbóndi frá Kaliforníu, hefur heldur betur
ástæðu til að vera kampakátur. Hann vann stærsta vinning sem unnist
hefur á spilakassa í Bandaríkjunum, rúmar 70 milijónir ísl. króna.
Vann l\xh milljón
á spilakassa
SUteline, Nevada, 2. janúar. AP.
VÍNRÆKTARBÓNDI nokkur
frá Kaliforníu, Rocco Dinubilo
að nafni, datt heldur betur í
lukkupottinn á gamlársdag
þegar veðmálayfirvöld í Nev-
ada afhentu honum stærsta
vinning, sem unnist hefur á
spilakassa (slot machine) í
Bandaríkjunum, 2.478.716,-
dollara (kr. 71.461.382,-).
Fyrra vinningsmetið var
1,2 milljónir dollara, sem
heppinn leikmaður vann í
Atlantic City í nóvember
1982. Dinubilo hafði frétt að í
Harrah’s Tahoe í Casino í
Nevada hefði einn spilakassi
.lítið gefið af sér í vinninga,
og væri þar því mikill auður í
boði, ef heppnin væri með.
Hann tilkynnti vinum sínum
að hann væri farinn til að ná
í þann stóra, og það tókst.
Kuldakastið vestra:
Vetur konungur
tekinn að lýjast
New York, 1. janúar. AP.
KULDAKASTIÐ sem fryst hefur
meginhluta Norður Ameríku illilega
síðustu vikurnar hefur verið að gefa
sig hægt og bítandi á sama tíma og
hlýviðrisskeið í Vestur-Evrópu hefur
fjarað út og tekið hefur að kólna.
Alls létu 450 manns lífið af völdum
kuldanna í Norður-Ameríku, á sama
tíma og fólk spókaði sig í sól og
sæmilega heitu veðri á Bretlandseyj-
um.
Enn er þó víða kalt, til dæmis
létust tveir Hong Kong-búar úr
kulda í fyrrinótt, er kuldinn þar
varð sá mesti í 5 ár. Var um úti-
gangsmenn að ræða. í norðurhér-
uðum Mexíkó létust fimm manns
sem vitað var um af sömu sökum,
en á báðum stöðum var 6 til 8
stiga gaddur að nóttu.
I Suður Ameríku, þar sem
sumar ríkir, hafa ýmist verið
óvenjulega miklir hitar, eða
óvanalega miklar rigningar.
Þannig hafa komið slíkar dembur
í Ríó og Sao Polo í Brasilíu, að
allar samgöngur hafa legið niðri
meðan vatninu skolaði burt. Þetta
hafa verið klukkustundarlangir
skúrir og inn á milli hefur hitinn
iðulega náð 40 stigum og fólk hef-
ur þust á baðstrendurnar.
Það hefur sannarlega verið lítil
glóra í veðurmálum, hitar í Israel
hafa valdið uppskerubresti, en
kuldar í suðurríkjum Bandaríkj-
anna valdið tjóni sem talið er
nema 400 milljónum dollara. Hita-
bylgja hefur verið á Spáni en er nú
á undanhaldi.
Páfi óttast að heimsend-
ir sé á næstu grösum
PáfagarAur, I. janúar. AP.
JÓHANNES PÁLL páfi annar
flutti áramótaboðskap sinn í Páfa-
garði á nýársdag og hlýddu þús-
undir á páfa lýsa vofu styrjalda og
hungursneyðar eins og hesta-
mönnum heimsendis. Hinir tákn-
rænu fjórir hestamenn heimsendis
eru fulltrúar styrjalda, hungurs,
dauða og drepsótta.
Páfi sagði í ræðu sinni að horf-
ur í heimsmálum væru uggvæn-
legar og finna yrði lausnir á ýms-
um stórkostlegum hættum sem
steðjuðu að heiminum í dag,
einkum í formi styrjaldarhættu
og hungurs. „Sovétmenn og
Bandaríkjamenn verða að hefja
aftur viðræður um afvopnun og
það strax, það má ekki dragast,"
sagði trúarleiðtoginn. Hann
sagði jafnframt, að gjáin milli
ríkra og fátækra þjóða væri að
dýpka og breikka og ástæðurnar
fyrir því væru sumar hverjar
flóknar og síður en svo auðleyst-
ar. Þær myndu hins vegar ekki
leysast nema með góðum vilja og
alls ekki ef ekki væri tekist á við
þær.
Talsmaður páfa sagði skömmu
eftir ávarp hans, að páfi hefði
boðist til að vera milliliður í að
koma af stað á ný viðræðum um
afvopnun milli stórveldanna í
austri og vestri. Ekkert bendir til
að boðinu hafi verið sinnt, að
minnsta kosti ekki enn sem kom-
ið er.
Nýtt ríki
Kandar Seri Begawan, Brunei. 1. janúar. AP.
ARABARÍKIÐ litla Brunei, varð tveggja annarra ráðuneyta.
á nýársdag sjálfstætt ríki, eftir Tveir bræður hans fara og með
96 ára hlutskipti sem bresk ný- mikilvæg ráðherraembætti og
lenda. Þjóðarleiðtoginn er hinn faðir hans eitt. Ráða þeir lög-
37 ára gamli Hassanal Bolikiah. um og lofum. Bolikiah lýsti yf-
Bolikiah tilkynnti ráðherra- ir, að Brunei myndi um aldur
lista sinn í útvarpssendingu í og ævi verða sjálfstætt lýð-
gær, en sjálfur fer hann með ræðisríki byggt á grundvallar-
embætti forsætisráðherra auk kenningum Islams.
WRIGLEY'S
FLYTUR
Með hækkandl sól og nýju
ári flytjum við okkur um set.
Opnum þaxm 3. jan.úai’
í nýju husnæði að
AUSTURSTRÖND 3
SELTJARNARNESI
Wrigleýs umboðið
Ólafiir Guðnason hf.
Hagstæð
kaup!
Við eigum til nokkra gulllallega notada MAZDA
626 og 929 bíla í sýningarsal okkar. Bílamir em yl-
iríamir á verkstœði okkar í 1. flokks ástandi og
fylgir þeim 6 mánaða ábyrgð írá söludegi.
Sýnishom úr söluskrd
Gerð árg. ekinn
929 LTD 4 dyra vökvast. '82 35000
323 1300 5 dyra sjsk. '82 16 000
626 2000 4 dyra vökvast. '82 39 000
626 2000 4 dyra '81 24 000
626 2000 4 dyra sj.sk. '81 26 000
929 HT 4 dyra sj.sk ‘81 46.000
323 1400 station '80 73 000
626 2000 4 dyra sj.sk. '80 31.000
626 1600 2 dyra '80 43.000
626 1600 4 dyra '79 51 000
Athugiö. Vegna mikillar eítirspumar bráö-
vantar okktu allar árgerðir al MAZDA 323 á
söluskrá.
Takið ekki óþaría áhœttu — kaupið not-
aðan MAZDA bíl með ó mánaða
ábyrgð.
mazoa
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99