Morgunblaðið - 03.01.1984, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÍJAR 1984
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið.
Áminning
og hvatning
Ræður forseta íslands og
forsætisráðherra nú um
þessi áramót einkenndust í
senn af alvöru þeirra þreng-
inga sem nú eru í efnahagslífi
þjóðarinnar, áminningu um að
ekki sé til lengdar unnt að lifa
um efni fram og hvatningu til
frekari dáða á þeim trausta
grunni sem þjóðin hefur þó
lagt.
„I þeim tímabundnu erfið-
leikum, sem við eigum við að
stríða nú,“ sagði Steingrímur
Hermannsson, forsætisráð-
herra, „hljóta kjör einstaklinga
að skerðast og ýmiss konar
sameiginleg þjónusta að drag-
ast saman um skeið. Annað er
blekking. Mikilvægast er, að
þessum byrðum sé dreift þann-
ig, að þeir beri, sem borið geta.
Mér er ljóst að þetta er ekki í
fyrsta sinn, sem minnst er á
breiðu bökin. Eflaust er það
einnig rétt, að oft hefur mis-
tekist að dreifa byrðunum
réttlátlega. Engu að síður er
krafan réttmæt og að því verð-
ur að stefna."
í þessum orðum forsætis-
ráðherra kemur fram rétt mat
á þeim staðreyndum sem við
blasa. Hvorki einstaklingar né
opinberir aðilar geta leyft sér
hið sama og áður. Vísan ráð-
herrans til „breiðu bakanna"
gefur til kynna að enn verði
einstaklingar að leggja meira
af mörkum. Breiðustu bökin
hérlendis eins og svo víða ann-
ars staðar eru þó á opinberum
aðilum, ríki og sveitarfélögum.
Sú spurning vaknar hvort þeim
sé ekki hlíft meira en góðu hófi
gegnir, hvort beitt hafi verið
nægilega róttækum aðgerðum
miðað við aðstæður til að draga
úr eyðslu opinberra aðila. Spár
um úrslit kosninga í Danmörku
eftir viku sýna að í velferðar-
þjóðfélögunum eiga þeir nú
miklum vinsældum að fagna
sem vilja hiklaust draga úr
ríkisútgjöldum og þar með
opinberri þjónustu.
„Við eigum allt íslendingar,
sem'velmegunarþjóðir erlendis
hafa skapað sér — ef ekki
nokkuð meira," sagði frú Vig-
dís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, í áramótaávarpi sínu.
„Fámenni okkar gerir það að
við þekkjum svo til öll hvert til
annars, vitum um ættir hvers
annars og vitum um kjör ná-
grannans. Kjör okkar allra sem
heildar er okkur sameiginlegt
hagsmunamál. Við búum við
þau gæði umfram flestar þjóð-
ir, að samstaða okkar er slík að
á íslandi fær helst enginn að
deyja einn, né heldur að fæðast
til þjóðfélagsins aleinn og um-
komulaus. Við erum stundum
ósköp gleymin á þennan mun-
að, sem þó gerir okkur að þeirri
þjóð sem við erum á líðandi
stundu."
Undir þessi orð forseta ís-
lands skal tekið um leið og þess
er minnst að það er rangt að
leggja fjárhagslega stiku á
þessa samkennd Islendinga.
Það er rangt sem oft heyrist að
það sé til marks um mannúð og
gæði þjóðfélaga hve miklum
fjármunum er varið til svokall-
aðra „félagslegra þátta". Það
er gegn þessum peningalega
þætti velmegunarinnar sem
margir rísa nú víða um lönd —
hann hefur aldrei verið drif-
krafturinn í samstöðu íslend-
inga og einmitt þess vegna eig-
um við ef til vilí nokkuð meira
en aðrar velmegunarþjóðir.
Ekki boðið
til veislu
orsteinn Pálsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins,
gekk ekki fram fyrir skjöldu
með fagurgala í áramótagrein
sinni hér í Morgunblaðinu.
Þvert á móti var hann ómyrkur
í máli um þá erfiðleika sem
framundan eru. Hann sagði
meðal annars:
„Að baki eru umfangsmestu
og róttækustu aðgerðir gegn
verðbólgu, sem gripið hefur
verið til, en við blasa verkefni
varðandi uppbyggingu at-
vinnulífsins, stjórnun pen-
ingamála og opinberan rekstur.
Þær ráðstafanir, sem nú eru að
baki eru barnaleikur í saman-
burði við þau vandamál, sem
úrlausnar bíða. Það verður
ekki boðið til veisluhalda í
þjóðarbúskapnum á næsta ári.“
Morgunblaðið telur að með
því að kveða jafn fast að orði
og raun ber vitni sýni formað-
ur Sjálfstæðisflokksins það
raunsæi sem er forsenda þess
að gripið verði á þjóðarvandan-
um þeim tökum sem duga.
„Forystuskyldan hvílir á Al-
þingi og ríkisstjórn," sagði
Þorsteinn Pálsson einnig rétti-
lega og bætti við: „Sjálfstæðis-
flokkurinn er fyrir sitt leyti
reiðubúinn til þess að takast á
við þessi verkefni. Ríkisstjórn-
in í heild hefur einnig sýnt, að
hún getur áorkað miklu. Við"’
svo búið er ekki ástæða til að
óttast, að hin pólitíska forysta
bregðist."
Boeing 727-100-þota Flugleiða í litum Kabo Air í Reykjavíkurflugvelli, en hún kom hingað til lands sl. haust í mikla
skoðun, sem flugvirkjar Flugleiða framkvæmdu.
Óvfst um áframhald samninga
Flugleiða og Arnarflugs í
Nígeríu eftir byltinguna
EKKERT er vitað hvort stjórnarbylt-
ingin í Nígeríu muni hafa áhrif á þá
samninga, sem íslenzku flugfélögin
Flugleiðir og Arnarflug hafa við að-
ila þar í landi, samkvæmt uppiýsing-
um Morgunblaðsins. Flugleiðir hafa
sinnt innanlandsflugi í Nígeríu frá
aprflmánuði 1981. Amarflug hafði
hins vegar nýverið gert samning við
aðila í Nígeríu um flug innanlands,
en þota frá félaginu átti að fara inn í
rekstur nú í byrjun árs.
Sæmundur Guðvinsson, frétta-
fulltrúi Flugleiða, sagði i samtali
við Mbl., að félagið hefði enn ekki
náð neinu sambandi við starfs-
menn félagsins í Nígeríu, en þeir
eru tólf talsins. „Við reiknum hins
vegar með að ná sambandi á
næstu dögum og teljum ekki
ástæðu til að óttast um fólkið."
„Félagið gerði samning við Níg-
eríumann að nafni Adamo í apr-
ílmánuði 1981 og var samningur-
inn gerður til fjögurra ára, eða til
apríl 1985. Félagið notar Boeing
727-100-þotu til flugsins, en flogið
er þrisvar á dag á flugleiðinni
Kano-Lagos-Kano, mánudaga til
föstudaga, en ekkert flug er um
helgar," sagði Sæmundur enn-
fremur.
Það kom fram í samtalinu við
Sæmund, að tvær áhafnir eru að
jafnaði staðsettar í Nígerú, tveir
flugstjórar, tveir flugmenn og
tveir flugvélstjórar, en auk þeirra
eru nú í Nígeríu ein flugfreyja,
einn flugþjónn og fjórir flugvirkj-
ar. Fólkið, sem er í Nígeríu á veg-
um Flugleiða, fór þangað 13. des-
ember sl. og var væntanlegt heim
7. janúar nk. Nýjar áhafnir verða
ekki sendar af stað fyrr en málin
skýrast syðra.
Agnar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs, sagði
að félagið hefði nýverið gert
samning við aðila í Nígeríu um
innanlandsflug út úr Lagos, en
samningurinn væri til eins árs. Til
flugsins á að nóta Boeing
727-100-þotu, en það átti að hefj-
ast nú í ársbyrjun. Agnar kvaðst
vongóður um að bvltingin myndi
ekki breyta neinu varðandi samn-
ing félagsins, en hann hefði þó
ekki fengið neinar áreiðanlegar
fréttir af málum til þessa.
Við þurfum varla að
óttast að ekki verði
staðið við greiðslur
— segir Davfð Ólafsson
„MAÐUR veit náttúrlega allt of lítið
um það, hvað þarna hefur gerzt til
þess að geta látið í Ijósi skoðun á því
hvaða afleiðingar þetta hefur. Eftir
þeim yfirlýsingum, sem gefnar hafa
verið af hálfu þeirra, sem hafa tekið
völdin, virðist mér að við þurfum
ekki að óttast það neitt, að ekki
verði staðið við þær skuldbindingar,
sem þegar hafa verið gefnar um
greiðslu á skreið," sagði Davíð
Olafsson, seðlabankastjóri í samtali
við Morgunblaöið, en skreiðarskuld-
ir Nígeríumanna við okkur nema nú
um 770 milljónum króna.
„Maður veit svo ekkert hver
verður framtíðarstefna þessarar
nýju stjórnar. Um það hefur ekk-
ert verið sagt, en þeir segjast hafa
gert þessa byltingu til að koma
efnahagsmálum landsins í betra
horf. Þá er frekar von á því, að
útflutningur okkar gæti notið góðs
af því líka. Við verðum bara að
bíða og sjá hvað setur. Það getur
verið að fyrst um sinn verði ein-
hver tregða á því að þeir kaupi
skreið, ef innflutningur verður
skorinn niður, sem væntanlega
verður, hver sem stjórnar þarna.
Ný stórn þarf alltaf tíma til að
koma sér fyrir og undir þessum
kringumstæðum er það trúlega
með þeim hætti, að undirbúa sig
fyrir einhvern samdrátt og niður-
„ÉG HEF látið þá skoðun í Ijós að
þetta eigi að heyra undir landbúnaö-
arráðuneytið," sagði Jón Helgason,
landbúnaðarráðherra, þegar hann
var spurður álits á þeirri skoðun
sjávarútvegsráðherra að Veiðimála-
stofnun ætti að færa undir sjávarút-
vegsráðuneytið, en nú heyrir stofn-
uninundirlandbúnaðarráðuneytið.
„Ég býst við því að ummæli
sjávarútvegsráðherra séu að ein-
skurð til þess að reyna að grynnka
á skuldunum. Við verðum bara að
bíða og sjá hvað verður, treysta
því, að gefnar yfirlýsingar þýði
það, að við fáum greitt það, sem
við eigum þarna útistandandi,"
sagði Davíð Olafsson.
hverju leyti í sambandi við um-
ræður um uppstokkun í stjórnar-
ráðinu, en ein þeirra hugmynda
sem þar hefur komið fram er að
setja saman landbúnaðar- og sjáv-
arútvegsráðuneytið í eitt, og þá
myndi þetta leiða af sjálfu sér. Eg
dreg í efa að það sé heppilegt og á
meðan ráðuneytin eru hvort í llnu
lagi, sé ég ekki ástæðu til að
hreyfa þetta neitt," sagði Jón
Helgason.
Veiðimálastofnim undir sjávarútvegsráðuneytið:
Dreg í efa að
það sé heppilegt
— segir Jón Helgason landbúnaðarráðherra