Morgunblaðið - 03.01.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984
27
Flugeldur fór í
gegn um glugga
ELDUR kom upp í þvottaherbergi
eftir að flugeldur sveigði af braut
sinni og fór í gegn um glugga á 4.
hsð í fjölbýlishúsi að Seljabraut 38 í
Breiðholti. Atvikið átti sér stað þeg-
ar menn voru að fagna nýju ári. Sá
er flugeldinum skaut, brá þegar hart
við og gerði íbúum viðvart og var
kailað á slökkviliðið. Greiðlega gekk
aö slökkva eldinn, en talsverðar
skemmdir urðu í herberginu af völd-
um sóts, reyks og hita.
Að öðru leyti var rólegt hjá
slökkviliðinu í Reykjavík þegar
menn fögnuðu nýju ári. Þó varð að
slökkva í brennu á mótum Sörla-
skjóls og Faxaskjóls þar sem
neistaflug lagði yfir nærliggjandi
íbúðarhús.
Eggjadreifingarstöðin:
Menn verða að ræða
málin upp á nýtt
— segir landbúnaðarráðherra
„ÉG ÞARF að sjá hvernig málið
stendur og hef ekkert heyrt um það
síðan þetta gerðist. Það hefur ekki
verið haft samband við mig og ég
verð að fá að skoða málið á næst-
unni,“ sagði Jón Helgason, landbún-
aðarráðherra í samtali við Mbl., en
hann var spurður að því hvort hann
muni veita leyfi til að fé verði veitt
úr kjarnfóðursjóði til byggingar á
eggjadreifingarstöð.
Sem kunnugt er klofnaði Sam-
band eggjaframleiðenda nýlega,
vegna ágreinings um hvort byggja
ætti stöðina, en framleiðsluráð
landbúnaðarins hefur samþykkt
að veita fé til byggingar eggja-
dreifingarstöðvar.
Jón sagði aðspurður, að það
samþykki fyrir stöðinni, sem hann
hefði gefið, hefði byggst á því að
allir yrðu sammála um byggingu
stöðvarinnar. Þar sem samkomu-
lag hefði ekki orðið, yrðu menn að
ræða málin betur. „Það sem að
mér snýr, er stuðningur við málið
úr kjarnfóðursjóði og samþykki
fyrir því,“ sagði Jón og kvaðst
hann myndu kynna sér á næstunni
hvernig málin stæðu.
Séra Emil Björnsson setur Baldur Kristjánsson inn í embætti forstöðumanns Óháða safnaðarins.
Morgunblaðið/Fridþjófur.
Prestsskipti í Óháða söfnuðinum
PRESTS- og forstöðumannskipti
urðu í Óháða söfnuðinum nú um
áramótin. Baldur Kristjánsson,
sem lýkur guðfræðiprófi frá Há-
skóla íslands í vor, tók við starfi
séra Emils Björnssonar, sem gegnt
hefur starfínu frá stofnun safnað-
arins.
Baldur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann myndi
gegna öllum störfum við söfnuð-
inn öðrum en að viðhafa skírnar-
og altarissakramentið, þar til
hann lyki prófi. Hann sagði að
starfið legðist vel í sig. „Ég er
mjög bjartsýnn á að þessi söfn-
uður eigi framtíðina fyrir sér.
Ég vona að mér takist í sam-
vinnu við safnaðarstjórn og
organista að halda þarna uppi
lifandi starfi," sagði Baldur
Kristjánsson.
Tilraunabúið á Reykhólum:
Eðlilegt að hefja þar
jarðræktarrannsóknir
— segir Jón Helgason, landbúnaðarráðherra
Fulltrúar iðnfyrirtækja og samtaka þeirra:
Fara í kynnisferð til SA-Asíu
„SAMKVÆMT lögum á þetta að
vera tilraunastöð í jarðrækt, en það
hefur verið dregið mjög úr þeirri
starfsemi á undanförnum árum,
þannig að hún hefur ekki þjónað
þeim tilgangi síðustu árin sem lögin
ákveða,“ sagði Jón Helgason land-
búnaðarráðherra í samtali við Mbl.
Tilefni samtalsins var það að til
stendur að leggja niður tilrauna-
búið á Reykhólum í núverandi
mynd, en þar hafa farið fram
sauðfjárræktarrannsóknir. Er
sérstakur sauðfjárstofn við stöð-
ina kenndur og hafa ýmsir aðilar
lýst andstöðu sinni við að leggja
eigi starfsemina niður.
Jón sagðist sammála því að
haga málum þannig að sem mest
Helgarskák-
mót á Ólafs-
vík
Helgarskákmótið, það 22. í röð-
inni, verður haldið í Ólafsvík dag-
ana 6.—8. janúar á vegum tíma-
ritsins Skákar og Skáksambands
íslands. Tefldar verða 7 umferðir
eftir hinu svonefnda Sviss-
skákkerfí og verða um það bil 100
þúsund krónur í verðlaun alls. 1.
verðlaun verða 15 þúsund krónur,
2. verðlaun 10 þúsund og 3. verð-
laun 7 þúsund. Þá verða mörg
önnur verðlaun veitt, meðal ann-
ars öldungaverðlaun, kvennaverð-
laun og unglingaverðlaun. Fyrir
bestan árangur á næstu fímm
mótum verða veitt sérstök auka-
verðlaun að upphæð 40 þúsund
krónur.
væri úr stöðinni að hafa, miðað
við það fjármagn sem í starfsem-
ina væri lagt. Sagði hann að það
væri eðlileg ákvörðun að fara að
lögunum og hefja á tilraunabúinu
jarðræktarrannsóknir, en hætta
núverandi starfsemi.
Leiðrétting
í aðfangadagsblaði Morgun-
blaðsins var greint frá unglingum
sem settu íslandsmet í maraþon-
dansi. Þeirra á meðal var Karólína
Hreiðarsdóttir, en hún var sögð
Friðjónsdóttir í fréttinni. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
IÐNTÆKNISTOFNUN fslands hef-
ur skipulagt kynnisferð til Singa-
pore, Hong Kong og Japan dagana
13.—29. janúar næstkomandi með
um það bil 20 fulltrúum íslenskra
iðnfyrirtækja og samtaka og stofn-
ana iðnaðarins. Tilgangurinn með
ferðinni er að kynnast aðferðum
bæði á sviði tækni og stjórnunar
sem hafa gert það kleift að ná háu
framleiðslustigi og miklum gæðum í
iðnaði.
í fréttatilkynningu vegna kynn-
isferðarinnar segir meðal annars:
„Tækniþróun víða um heim hef-
ur á síðustu árum orðið fyrir mikl-
um áhrifum frá Japan og öðrum
löndum SA-Asíu. Framleiðni-
aukning er meiri i Japan en
nokkru öðru landi og gæði jap-
anskrar iðnaðarvöru eru heims-
þekkt. Efnahagsleg staða Japans
er nú alger andhverfa ástandsins
þar fyrir 20 árum, þegar fram-
leiðsluvörur Japana nálguðust að
vera rusl. Þrátt fyrir takmarkaðar
auðlindir og lítið landrými hafa
Japanir sannað, að unnt er að
auka bæði framleiðni og gæði
stórkostlega á tiltölulega stuttum
tíma ef beitt er virkum aðferðum
við stjórnun. Þetta hefur bætt
samkeppnishæfni iðnaðarins
þannig, að Japanir eru nú meðal
fremstu iðnaðarþjóða heims.
Hong Kong og Singapore byggja
einnig hratt upp nýtískulegan iðn-
að og stefna að gæðum og hárri
framleiðni á sama hátt og Japan-
MYNDBANDA-
LEIGUR
Nýkomnar úrvalsmyndir frá CIC VIDEO meö ísl. texta:
Nighthawhs (Silvester Stallone). North sea hyash (Roger
Moore), The Killers (Lee Marvin og Ronald Regan),
Hinderburg, Gray today down, The Sting, Animal
House, Frenzy o.fl., o.fl. Vinsamlega hafiö samband viö
skrifstofu Laugarásbíós s. 38150 eöa Myndbandaleigu
kvikmyndahúsanna s. 23700. laugarásbíó
THAtlAMD -8ANGK0K
09 badstrwKtarlxeriiii) PATTAVá
Ævintýraheimur Austurlanda loksins á viðráðanlegu veröi.
19 dagar. Brottfarardagar: 20. jan. og 18. febr. Kr. 39.480.
íslenskur fararstjóri. Framhaldsferöir til Hong Kong og Kína.
Draumaterðln kostar nú litið meira en venjuleg sólarlandaferð vegna hagstseðra samnlnga okkar um
tlug og gistingu á lúxushótelum í Bangkok. borg feguröar og ævtntyra Austurlanda og baöstrandar-
bsenum heimsfrœga Pattaya viö Slamsflóann, þar sem sólskinið, mjúk baöströndin, sllfurtœr sjórinn
°g skemmtanalítlö er alveg elns og fólk vlll hafa þaö. F|ölbrey1tar skemmtl- og skoöunarterölr meö
íslenskum fararstjóra.
Hægt aö framlengja ferólr í Thailandl og stansa í London á heimleiö án aukakostnaöar.
Aðrar ferðir okkar:
Kanarieyjar — Tenerife — fögur sólsklnsparadis. Brottför flesta föstudaga, 10. 17, 24 eöa 31 dagur
Tveir dagar i London í heimleiöinni í kaupbsatl.
Karnival i Rfó — Braailíusavintýri 18 eöa 25 dagar. Brottför 2. mara.
Flugferöir — Sólarflug
Vesturgata 17, símar 10661, 15331 og 22100.