Morgunblaðið - 03.01.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984
35
En við mér blasir sveit, ei sjónum víð
því sólarlag er þar í miðri hlíð.
St.G.St.
Það e hlutskipti þeirra, sem lifa
fram yfir miðjan aldur að sjá vini
sína hverfa af sjónarsviðinu, einn
af öðrum.
Á Þorláksmessu barst mér sú
fregn, að einn af mínum beztu vin-
um, starfsbróðir minn og félagi
um margra ára skeið, Hrafnkell
Stefánsson, hefði látizt þá um
daginn. Á slíkum stundum hverf-
ur hugurinn aftur í tímann og
minningar sækja að, misjafnlega
sundurlausar. Smám saman skýr-
ist þó mynd hins látna, og svo get-
ur jafnvel farið, að við komum
auga á eitt og annað í fari hans,
sem við höfðum tæpast tekið eftir
áður.
Ekki þurftu menn að líta Hrafn-
kel Stefánsson augum nema einu
sinni, til þess að sjá að þar fór
Islendingur sem ekki voru svik í,
og þeir sem kynntust honum nán-
ar, komust að raun um að hann
hafði eiginleika, sem sjaldgæfur
er nú á dögum; hann var fullkom-
lega heiðarlegur í stóru sem smáu.
Þrátt fyrir háleit stefnumið
Hrafnkels og gott veganesti úr
heimahúsum, er mér nær að
halda, að þetta sérkenni hafi verið
honum áskapað, líkt og sumir
menn eru bláeygðir og aðrir brún-
eygðir. Ekki fer hjá því, að slíkur
grunntónn í skaphöfn leggi
mönnum á herðar bagga, sem geta
sigið í á lífsgöngunni, og það þeim
mun frekar, sem þeim er heitara
um hjarta.
Fyrstu kynni okkar Hrafnkels
voru á þeim árum þegar við geng-
um báðir í Austurbæjarbarna-
skólann. Hann átti þá heima á
Mánagötu, en ég á Barónsstíg. All
löngu síðar urðum við aftur skóla-
bræður, og nú í lyfjafræðiháskól-
anum danska. Áttum við þar náið
félag saman, og fjölskyldur okkar
bundust sterkum böndum.
Eitt atvik er mér sérstaklega
minnisstætt frá þessum árum.
Þannig var, að í vinnustofu fyrir
samtengingu lífrænna efna, vor-
um við Hrafnkell borðfélagar og
höfðum sama vaskinn. í þessari
vinnustofu var nemendum ætlað
að samtengja lífræn efni. Þeim
var fengin formúlan, og áttu síðan
að framleiða efnið með beztu
hugsanlegri aðferð, og skila því
fullhreinsuðu til kennarans. Dag
nokkurn stend ég við vaskinn og er
að hreinsa ílát mín, tek ég þar
m.a. keiluflösku nokkra með ein-
hverju glundri í, og helli úr henni
í vaskinn. Nær samstundis átta ég
mig á því, að Hrafnkell átti flösk-
una — og það sem verra var, í
henni var efnið, sem Hrafnkell
hafði verið að bjástra við undan-
farnar vikur. Hrafnkell sá til mín
og áttaði sig undireis á því hvað
gerst hafði. Hann varð mjög al-
varlegur á svip og skipti litum, en
þegar ég ætlaði að fara að stama
upp einhverri afsökun, brosti
hann og sagði, „þetta verður allt í
lagi, ég byrja bara aftur".
Eftir að heim kom til íslands
höfðum við mikið saman að sælda,
t.a.m. rákum við saman fyrirtæki,
sem framleiddi snyrtivörur, og var
til húsa í kjallaranum hjá foreldr-
um hans. Aldrei var fyrirtæki
þessu gefið nafn, aftur á móti
hafði það á sínum snærum bíl,
sem nefndur var Flóki, eftir flóka-
teppi sem í hann var límt. Fjöl-
skyldur okkar nutu góðs af þessari
bíleign, og skiptust á um að hafa
Flóka sína vikuna hvor. Aldrei
verð út af því neinn ágreiningur,
og hélzt þessi skipan þó á annað
ár.
Já, það er bjart yfir þessum
minningum, en þó svo sé, verður
harmurinn ástvinum Hrafnkels
eigi að síður þungur að bera, jafnt
fyrir það þótt við, hinir fjölmörgu
vinir hans, berum hann vissulega
með þeim.
Þess vegna verðum við öll að
biðja þann sem öllu ræður að bera
með okkur þessa byrði.
Stefán Sigurkarlsson.
Þegar sú harmafregn barst
vestan frá Isafirði þann 23. des. sl.
að Hrafnkell Stefánsson apótekari
væri látinn, var stórt skarð höggv-
ið í hóp apótekara á íslandi.
Hrafnkell Stefánsson var fæddur í
Reykjavík 30. apríl 1930 og því að-
eins 53 ára þegar hann lést. Hann
lauk lyfafræðinámi frá lyfjafræði-
háskólanum í Kaupmannahöfn í
okt. 1956 og fram til ársin 1973, er
honum var veitt lyfsöluleyfið á ís-
afirði, vann hann sem lyfjafræð-
ingur í Reykjavík. Það voru hin
margvíslegustu störf, hjá Lyfja-
verslun ríkisins, í lyfjabúri Land-
spítalans, hjá Ríkisspítölunum og
við Rannsóknastofu í lyfjafræði
við Háskóla íslands. Öllum þess-
um störfum skilaði Hrafnkell með
ágætum svo sem vænta mátti af
slíkum manni sem hann var.
Þegar honum var veitt lyfsölu-
leyfið á ísafirði 21. júlí 1973 bætt-
ist í hóp apótekara maður, sem við
hinir væntum mikils af er fram
liðu stundir. Eins og oft vill verða
um þá sem setjast að úti á landi,
nýtist ekki starfsorka þeirra, gáf-
ur og dugnaður í þágu kollega
sinna eins og efni standa til, en sl.
vor var Hrafnkeli veitt lyfsölu-
leyfi fyrir nýju apóteki í Breið-
holti í Reykjavík, og þá sáum við
fram á breytingu í þessu efni. Þeg-
ar Hrafnkell féll frá var hann
kominn töluvert áleiðis í undir-
búningi og byggingu hins nýja
apóteks.
En rás atburðanna verður ekki
alltaf eins og mennirnir ætla.
Margir okkar kynntumst Hrafn-
keli og unnu með honum í Lyfja-
fræðingafélaginu áður en hann
varð félagi í Apótekarafélaginu og
að leiðarlokum þökkum við honum
samstarfið. Eftirlifandi eiginkonu
hans, Guðbjörgu Jónsdóttur,
börnum hans, barnabörnum og
svo og aldraðri móður og bræðr-
um, sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðj ur.
f.h. Apótekarafélags íslandr
Benedikt Sigurðsson.
Hvað er meðferð?
í bókinni Furðuheimar alkóhólismans, er hulunni svipt af starfsháttum AA.
Höfundurinn, Steinar Guömundsson fer á kostum i umfjöllun sinni um meóferö
og I hverju hún sé fólgin. Bókin kostar aðeins 500 kr. og er hægt aö fá hana senda
gegn póstkröfu (ekkert kröfugjald). Hringió í slma 33370 eða fyllió út meö-
fylgjandi miöa og sendið okkur.
Vetrarnámskeiðin
hefjast 16. janúar og standa yfir til 6. apríl. Mikið er
um nýjungar hjá Mími í vetur. Fjöldi samtalsflokka hjá
Englendingum. Síödegistímar og kvöldtímar fyrir full-
oröna. Franska og spánska. Létt námsefni í þýzku.
Noröurlandamálin. íslenzka fyrir útlendinga. Nýr byrj-
endaflokkur barna í ensku.
Mimir, •ími 10004 og 11109 (kl. 1—5 e.h.).
**%X&’*'
ATHUGIÐ!
Skúlatúni 4
Ný námskeið hefjast mánudaginn 9. janúar
Frúarleikfimi
Morgun-, dag- og kvöldtímar
Jazzballet fyrir stráka og stelpur frá 12 ára aldri.
Innritun og upplýsingar í síma 25620 kl. 16—18.
Afhending skírteina laugardaginn 7. janúar kl.
14—18.
LíkamKþjál f 11 n
Bal lettftikola
I^Ulu Kelicviitju;
SKÚLATÚNI 4 — SÍMAR 25620 og 76350
Ljósastofa JSB
Bolholti 6, 4. hæð, sími 36645
Hjá okkur skín sólin allan daginn — alla daga
Við bjóðum uppá:
Hina viöurkenndu þýzku Sontegra-ljósabekki. Góöa
baöaóstöóu með nuddsturtum frá Grohe. Saunabaó.
Setustofu. Af hverju stundum viö Sontegra-ljósaböö?
Til þess að hjálpa okkur aö:
★ Losna viö gigt og vöðvabólgu.
★ Fá vítamín í kroppinn.
★ Losna viö auma fituhnúöa undir húöinni.
★ Laga bólótta húð.
★ Frá brúnan lit.
Morgun-, dag- og kvöldtímar %
Tímapantanir í síma 36645. ^