Morgunblaðið - 03.01.1984, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984
39
Stefanía Guðbjörg
Gestsdóttir - Minning
Fædd 16. október 1903
Dáin 27. desember 1983 ’• ■*;
„Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu’ og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.“
(H. Andrésdóttir.)
Þessar ljóðlínur koma upp í
huga okkar systkinanna er við
kveðjum ömmu okkar í dag.
Amma fæddist að Miðdalskoti í
Kjós 16. október 1903. Hún var
elzt af átta börnum hjónanna
Guðrúnar Stefánsdóttur og Gests
Bjarnasonar sem síðar bjuggu að
Hjarðarholti í sömu sveit. Af
þessum stóra systkinahópi eru nú
þrír bræður á lífi. Amma giftist
10. október 1936 afa okkar, Helga
N. Guðvarðarsyni. Hann lést um
aldur fram 26. maí 1956. Þau eign-
uðust þrjú börn. Þau eru: Erna,
móðir okkar, fædd 1937, Sævar,
fæddur 1938, og Hjördís, fædd
1946, hana misstu þau aðeins viku
gamla.
Beztar minningar eigum við um
ömmu á heimili hennar, Eiríks-
götu 33, sem var henni svo kært.
Þar bjó hún í tuttugu og sex ár
með góðu sambýlisfólki, þar til
1980 er hún fluttist til dóttur sinn-
ar og tengdasonar á Víðivangi 4 í
Hafnarfirði. Allt var þar gert til
að gera henni ævikvöldið ánægju-
legt. Vart er hægt að hugsa sér
betri umönnun dóttur fyrir móður
sinni.
Þann 16. október síðastliðinn
varð amma áttræð. Naut hún sín
vel í hópi ættingja og vina. Haft
var á orði hve ungleg hún væri
þót't líkamlegt og andlegt þrek
hennar færi þverrandi. A hjúkr-
unarheimilinu Sólvangi dvaldist
hún í tvo mánuði. Þar fékk hún
góða aðhlynningu unz yfir lauk.
Nú er dagsverk elsku ömmu
okkar á enda. Alltaf munum við
minnast hennar sem ömmu á Ei-
ríksgötunni, þar sem hún undi sér
svo vel á sínu fallega heimili. Til
hennar var ávallt gott að koma.
Hafi húri þökk fyrir allt. Við
kveðjum að sinni.
Helga, Halla og Stefán.
Þórður Jónsson
- Minningarorð
Fæddur 28. desember 1963
Dáinn 23. desember 1983
Þórður var sonur hjónanna Jóns
Nielssonar, skipstjóra, og Jódísar
Þorsteinsdóttur, er bjuggu fyrstu
ár sín að Melabraut 63 á Seltjarn-
arnesi. Þar fæddist Þórður og síð-
an yngri bróðir hans, Bent. Fyrstu
árin liðu í leik með frændum og
vinum, sem síðan eiga ljúfar
minningar um Dodda og Benna,
eins og þeir voru jafnan kallaðir.
Fjölskyldan flutti svo til Eski-
fjarðar árið 1969. Þar var Doddi
svo sín fyrstu skóla- og unglingsár
og fór ungur á sjó með föður sín-
um. Á sumrin skildi þá vík milli
vina syðra um sinn uns fjölskyld-
an flutti suður aftur og bjó sér
heimili að Fífuseli 7 hér í Reykja-
vík. Að loknu unglinganámi hóf
Doddi nám í rafvirkjun við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti og hafi
nýlokið því er hann lést. Hann var
góður námsmaður og mun hafa
stefnt að framhaldsnámi í sinni
iðngrein. íþróttir tóku mikið af
tíma Dodda á uppvaxtarárunum,
aðallega knattspyrna og frjáls-
íþróttir, og var hann mikill áhuga-
maður um íþróttir alla tíð.
í námsfríum sínum var Doddi
oftast til sjós á togurum og hafði
drukkið í sig þann þrótt er þeir fá
sem ungir fara í þann starfa, enda
harðduglegur.
Hár og þrekinn á velli, rólyndur
en frekar dulur í skapi var hann,
en dagíarsprúður, glaður og reifur
í góðra vina hópi.
Dodda er sárt saknað af frænd-
fólki og vinum að Melabraut 57.
En sárari er söknuðurinn hjá for-
eldrum hans og systkinunurr
Benna og Helgu. Mesti styrkurinri
er í endurminningunum og þær
eru allar góðar.
Ég kveð Dodda með kærum
þökkum fyrir allt.
Oskar Jónsson.
fluttumst í sama stigagang hér í
Fífuseli. Kynni okkar urðu meiri
er hann starfaði hjá mér í tvö
sumur, þá fjórtán og fimmtán ára.
Öðrum eins dugnaði og samvisku-
semi hef ég aldrei kynnst hjá
unglingi. Þórður hafði, er hann
lést, nýlokið stúdentsprófi við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti
með góðum vitnisburði eins og
hans var von og vísa.
Með þessum fátæklegu orðum,
viljum við, Dóri, Didda og Steini
þakka Þórði goða kynningu og
megi minningin um heilan og góð-
an dreng styrkja foreldra hans og
systkin í þeirra miklu sorg.
„í hendi Guðs er hver ein tíð,
í hendi Guðs er allt vort stríð,
hið minnsta happ, og hið mesta fár,
hið mikla djúp, hið litla tár.“
(Matth. Joch.)
Blessuð sé minning Þórðar.
Halldór H. Halldórsson
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
EINAR ÁGÚSTSSON,
stórkaupmaöur,
Safamýri 65,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju kt. 15.00 þriöjudaginn 3.
janúar.
Sigríður Einarsdóttir,
María Á. Einarsdóttir, Trausti Ólafsson,
Einar S. Einarsson,
Guöbjörg Einarsdóttir, Valdimar Valdimarsson,
Ágúst Einarsson, Hanna Valdís Guðmundsd.
og barnabörn.
1 Alúöarþakkir til allra þeirra er hlýhug vegna andláts og útfarar \ auösýnt hafa okkur samúö og
GRÉTARS KRISTINSSONAR,
Hraunbrún 53,
Hafnarfiröi.
Nanna Snasdal,
Jakob Bjarnar Grátarsson, María Anna Þorsteinsdóttir,
Atli Geir Grétarsson, Þorsteinn Antonsson,
Stefán Snssr Grétarsson, Guðlaug Elísa Kristinsdóttir, Kristinn Helgason.
Ég var á heimleið norðan úr
landi ásamt fjölskyldu minni þann
27. desember sl. er ég heyrði and-
látsfregn Þórðar. Okkur setti
hljóð. Áð hann Doddi væri dáinn,
það gat ekki verið satt, þessi ljúfi
og efnilegi piltur í blóma lífsins.
En engu að síður, það var stað-
reynd.
Þórði og fjölskyldu hans kynnt-
umst við fyrst sumarið 1976 er við
t
Innilega þökkum vlö öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinar-
hug vegna andláts
GUÐNA A. JÓNSSONAR,
úrsmiös.
Ólaffa Jóhannesdóttir,
Anna Guönadóttir, Páll Stefánsson,
Sunna Guönadóttir, Jón Björnsson,
Jóhanna Guönadóttir, Björn Ólafsson
og barnabörn.
Laugardagur eða
sunnudagur?
Hvers vegna eru guðsþjónustur í flestum kirkjum haldnar á
sunnudögum? Var laugardagurinn, sjöundi dagur vikunnar,
ekki hvfldardagur í upphafi?
Fáein kristin samfélög halda guðsþjónustur sínar á
laugardögum, sjöunda degi vikunnar. En í flestum
kirkjum er sunnudagurinn, fyrsti dagur vikunnar,
tilbeiðsludagur.
Rætur þessa liggja langt aftur í aldir, og í raun
réttri benda gild rök til þess, að kristnir menn á
dögum Nýja testamentisins hafi komið saman á
sunnudögum.
Þegar Páll hitti söfnuðinn í Tróas, segir Biblían:
„Vér vorum saman komnir fyrsta dag vikunnar til
þess að brjóta brauðið,“ þ.e. til að tilbiðja Guð og
neyta heilagrar kvöldmáltíðar (Post. 20,7). Páll
hvatti líka söfnuðinn í Korintu til að taka samskot
handa fátækum kristnum mönnum „hvern fyrsta
dag vikunnar" (1. Kor. 16,2).
Höfuðröksemd flestra kristinna kirkna fyrir því,
að þær halda guðsþjónustur á sunnudögum, er sú, að
þær eru að minnast upprisu Jesú Krists og upphafs
nýrrar aldar, sem hófst við þann atburð. (Það var á
fyrsta degi vikunnar, sunnudegi, sem Jesús reis upp
frá dauðum og birtist lærisveinunum). í Kristi rætt-
ust spádómar Gamla testamentisins, og hann hefur
líka „fullnað" lögmál Gamla testamentisins með því
að halda það út í yztu æsar. Sú grundvallarregla að
ætla einn dag í viku til þess að tilbiðja Guð er skýr í
ritningunni, og henni er fullnægt með því að hafa
sunnudaginn drottinsdag.
En það er líka annað, sem vert er að hafa í huga og
skiptir miklu máli. Það er að sönnu mikilvægt að
ákveða einn dag í vikunni til guðsþjónustu, en í
vissum skilningi eigum við að helga Guði alla daga
vikunnar. Lifið þér dag hvern í samfélagi við Krist?
Gerið það að venju að snúa huganum til hans í
byrjun hvers dags. Gangið síðan með honum í trú og
hlýðni allan daginn.
t
Innilegar þakklr fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur,
ÁRNA JÓNSSONAR.
Sigurlaug Jónsdóttir, Jón Þór Árnason,
Páll Árnason, Ragnar Árnason,
Ásdís Árnadóttir, Jón Bergsveinsson.
t
Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúö og hlýhug viö
andlát og jaröarför
HANNESAR ARNÓRSSONAR,
fyrrum símstöövarstjóra í Sandgerði.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Sjúkrahúss Keflavíkur.
Anna H. S'
Magnús Hannesson,
Erna Hannesdóttir,
Arnór Hannesson,
Sigríöur Hannesdóttir,
Jóhann Hannesson,
Matthías Hannesson,
Snorri
barnabörn o
reinbjörnsdóttir,
Erla Eyjólfsdóttir,
Helgi Arnlaugsson,
Þuríöur Kristinsdóttir,
Einar Júliusson,
Sigurrós Magnúsdóttir,
Ingveldur Magnúsdóttir,
Haraldsson,
g barnabarnabörn.
Lokað
í dag 3. janúar vegna jaröarfarar
EINARS ÁGÚSTSSONAR.
Einar Ágústsson & Co. st.
Heildverslun, Ðrautarholti 4,
Reykjavík.