Morgunblaðið - 10.01.1984, Síða 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
7. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984 Prentsmiöja Morgunblaösins
Sýrlenzkar
kröfur í vegi
samkomulags
Jerúsalem, Beirút, 9. janúar. AP.
tltanríkisráðherrum Saudi Arabíu,
Sýrlands og Líbanon mistókst á
fundum sínum um helgina að sam-
ræma afstöðu sína til friðaráætlunar
fyrir Líbanon og semja um nokkur
sraáatriði er standa í vegi fyrir því að
áætluninni verði hrint í framkvæmd,
en samkomulag þeirra er forsenda
þess að stríðandi fylkingar hefji að
nýju viðræður um þjóðarsátt.
Ráðherrarnir munu eiga við-
ræður að nýju í næstu viku á leið-
togafundi Arabaríkja í Marokkó.
Viðræður strönduðu á kröfu Sýr-
lendinga um að rift yrði
samkomulagi Líbana og ísraela
frá 17. maí sl. um brottflutning
ísraelska herliðsins frá Líbanon.
Mergð
nýrra
stjarna
finnst
Tucson, Arizona. 9. janúar. AP.
GERVIHNÖTTUR sem þaut
um himingeiminn á síðasta
ári á vegum Geimferðastofn-
unar Bandaríkjanna, og sem
búinn var forláta sjónauka
með infrarauðum geisla, fann
eigi færri en 200.000 nýjar
stjörnur og 20.000 ný stjarn-
kerfi áður en rafbúnaður
sjónaukans dofnaði.
Vísindamaður hjá stofnun-
inni sagði í gær, að árangur-
inn af ferð gervitunglsins
hefði verið ótrúlegur og miklu
meiri en vonast hafði verið til.
„Við eigum eftir að sitja með
gögnin og vinna úr þeim um
ókomin ár,“ sagði hann við
fréttamenn.
Franskur gæzluliði féll og tveir
særðust alvarlega í árás á höfuð-
stöðvar franska gæzluliðsins í
morgun og hafa þá 83 franskir
gæzluliðar fallið í Líbanon. Einnig
féll bandarískur gæzluliði í Beirút
um helgina, sá 283. frá því banda-
ríska gæzluliðið sté á land í Líban-
on.
Kristnir hægrimenn og drúsar
tókust á um helgina í Beirút og
nágrenni og einnig í dag, sjö
manns féllu a.m.k. og átta særð-
ust. Síðar hvöttu leiðtogar drúsa
hægrimenn til að láta af áreitni
við drúsa því ella kynni allsherj-
arstríð trúfylkinganna að brjótast
út.
Ytzhak Shamir forsætisráð-
herra sagði auknar skæruaðgerðir
gagnvart ísraelska herliðinu i Líb-
anon fresta brottflutningi her-
manna frá Líbanon. Árásir hafa
verið gerðar á ísraelska herliðið
nánast daglega frá 4. nóvember.
Foringjar dönsku stjórnmálaflokkanna leiddu saman hesta sína í sjónvarpsumræðum á sunnudagskvöld. Mynd þessi
var tekin í þann mund, sem þær voru að hefjast og sýnir þá tvo stjórnmálaleiðtoga, sem sett hafa mestan svip á
kosningabaráttuna, þá Anker Jörgensen, leiðtoga jafnaðarmanna og Poul Schliiter, forsætisráðherra og leiðtoga
íhaldsflokksins.
Síðasta skoðanakönnunin í Danmörku:
íhaldsflokkurinn bætir
við sig 20 þingsætum
Kaupmannahöfn, 9. janúar. Frá fréttaritara Morgunblaösins, Sveini Sigurðssyni
BLAÐIÐ Börsen birti í dag úrslit síð-
ustu skoðanakönnunarinnar fyrir
þingkosningarnar á morgun, þriðju-
dag. Hún er nokkuð frábrugðin fyrri
spám. Samkvæmt henni er íhalds-
flokknum spáð heldur minni fylgis-
aukningu en áður og á það að koma
samstarfsflokkum hans í ríkisstjórn
einkum til góða. Haldist þær tilfærsl-
ur, sem líklegt er að veröi milli
dönsku stjórnmálaflokkanna, bendir
flest til að í raun veröi staðan sú sama
Karl og Díana í vetrarorlofi
Fátt er mikilvægara konungbornu fólki en að taka sér öðru hverju svolitla
hvíld frá önnum og amstri dagsins, og það hafa þau gert Karl Bretaprins og
Díana prinsessa. I>au eru í vetrarorlofi í smáríkinu Liechtenstein, og stunda
þar skíðaíþróttir. I>essi mynd var tekin þegar þau voru að leggja af stað upp
á Hocheck-fjall nálægt Malbun-þorpi í gær, en það var fyrsti dagur í orlofi
þeirra þar suður frá. Símamynd AP.
og nú varðandi stjórnarmyndunar-
mögulcika.
Samkvæmt skoðanakönnuninni,
sem Börsen birti í dag, mun Ihalds-
flokkur Poul Schlúters fá 46 þing-
sæti og bæta við sig 20, en sam-
kvæmt fyrri spám hefur hann átt að
fá ailt að 53 þingsæti. Samstarfs-
flokkarnir Venstre, Miðdemókratar
og Kristilegi þjóðarflokkurinn hafa
rétt sinn hlut nokkuð og virðist nú
ekki lengur hætta á, að síðastnefndi
flokkurinn detti út af þingi. Jafnað-
armönnum er spáð 55 þingmönnum
eða fjórum færri en áður, en sá
flokkur, sem líklega mun tapa
mestu, er Framfaraflokkurinn, sem
er spáð 7 þingmönnum, en fékk 16 í
síðustu kosningum. Samtals ættu
stjórnarflokkarnir að fá 80 þing-
menn, en höfðu 65 áður.
Foringjar stjórnmálaflokkanna
leiddu saman hesta sína í sjónvarp-
inu í gærkvöldi. Ekki er hægt að
segja, að einhver einn hafi farið með
sigur af hólmi. Setti það sinn svip á
þáttinn, að þeir eru 13 flokkarnir
sem bjóða fram, og var því lítill tími
fyrir hvern og einn að koma boðskap
sínum á framfæri.
í kosningabaráttunni hafa efna-
hagsmálin verið efst á baugi og hef-
ur það vakið athygli, að málflutning-
ur friðarhreyfingarinnar og eld-
flaugamálin virðast skipta litlu sem
engu máli hjá kjósendum, eins og
vinstri flokkarnir höfðu þó gert sér
vonir um. Talsmenn borgaraflokka-
stjórnarinnar leggja áherzlu á, að á
þeim 16 mánuðum, sem stjórnin hef-
ur setið, hafi orðið alger umbylting i
dönsku efnahagslífi. Hallinn á fjár-
lögum hafi minnkað mikið, vextirnir
lækkað meira en í öðrum löndum,
útflutningur aukizt og almenn bjart-
sýni sé ríkjandi varðandi framtíðina
hjá fólki. Til marks um það megi
benda á, að flestar atvinnugreinar
búi sig undir það að fjölga starfs-
fólki.
Mótrök Anker Jörgensens og jafn-
aðarmanna eru þau, að vissulega
blási nú byrlegar í efnahagslífinu, en
það sé að þakka því, að ástandið hafi
batnað á erlendum mörkuðum og
olíuverð lækkað. Stjórnin hafi ekki
gert annað en að auka atvinnuleysið.
Sjá „Afturforinni snúið upp í endur-
reisn" á bls. 18, og „Gldflaugar ekki
aðalmál í dönsku kosningabaráttunni"
á bls. 19.
Nýtt metverð á
dollar í Evrópu
London, 9. janúar. AP.
Bandaríkjadollar setti ný met gagnvart
frönsku, brezku, ítölsku og dönsku
gjaldmiölunum í dag er hann hélt
áfram að hækka í verði á evrópskum
peningamörkuðum. (lullúnsan lækkaði
af þessum sökum um næstum 10 doll-
ara.
í London hækkaði dollar gagnvart
sterlingspundinu og kostaði pundið
1,3997 dollara og er það í fyrsta sinn
sem það kostar innan við 1,40 doll-
ara. Þá fengust 10,254 danskar krón-
ur fyrir dollarann í Kaupmannahöfn
í dag, en dollar setti met gagnvart
sterlingspundinu og dönsku krón-
unni á föstudag.
Þýzki seðlabankinn reyndi að
sporna við hækkun dollarans þar í
landi með því að losa sig við nærri
300 milljónir dollara, en það var
gagnslaust, því doliarinn hækkaði
gagnvart markinu og var nærri því
að slá metverð síðustu 10 ára. Sama
sagan var uppi á teningnum gagn-
vart hollenzka gyllininu.
Kauphallarmenn t Frankfurt
segja verðhækkun á dollar ekki vera
í neinu sambandi við pólitiska eða
efnahagslega atburði og sé „algjör-
lega órökrétt". Að hluta sé hækkun-
in vegna spámennsku um hversu
hátt dollarinn geti komist, en
spákaupmenn hafi þó fyrst og
fremst keypt dollarann vegna átak-
anna í Miðausturlöndum og vegna
hárra vaxta í Bandaríkjunum.