Morgunblaðið - 10.01.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
31
íslandsmet í akstri traktorsgröfu á íscross-braut sett. Case 4x4 frá Dalverk
undir stjórn Svavars Svavarssonar kemur á fullri ferð að Jóni Hólm, starfs-
íslandsmet á
traktorsgröfu
„1.16 mínútur og áttatíu sek-
úndubrot," tilkynnti þulur í ís-
cross-keppni á Leirtjörn eftir að
íslandsmet í akstri traktorsgröfu
á íscross-braut hafði verið sett.
Það var tíminn sem Svavar
Svavarsson notaði til að aka Case
4x4 gröfu sinni frá Dalverki hf.
hlykkjóttan hringinn. Ekki er
ljóst hvort fyrirhugað er að halda
stórmót með þessum farartækj-
um, en hins vegar viðurkenndi
Landssamband íslenskra aksturs-
íþróttafélaga þetta einstaka
met...
manni BIKR, sem flaggaði metið.
Svavar í stýrishúsinu. Hann kvað
gröfuna fjórhjóladrifna, með keðjur
á öllum og því væri lítill vandi að
leggja aðrar gröfur að velli á ísn-
um...
Morgunb I a ð i d / Gunnlaugur
Hæstiréttur dæmdi
í 246 málum f fyrra
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í 246
málum á síðastliðnu ári. Dómar
féllu í 186 áfrýjuðum málum til
Hæstaréttar, 126 einkamálum og
60 opinberum málum. Kærumáí
voru 42, þar af 21 kæra vegna
einkamála og 21 kæra vegna
opinberra mála. Útivistardómar
voru 18.
Alls var 238 málum skotið til
Hæstaréttar á árinu 1983, þar af
voru áfrýjuð mál 175 og kærur
42. Af áfrýjuðum málum voru
123 einkamál og 52 opinber mál.
í árslok 1983 biðu flutnings
130 einkamál og 5 opinber mál
eða alls 135 mál. Þessar upplýs-
ingar koma fram í yfirliti frá
Hæstarétti íslands.
voru: 6 ára, 8 ára, 10 ára og 12 ára
börn svo og 8. og 9. bekkir og ör-
fáir nemendur úr 7. bekk. Sérstök
áhersla var lögð á, að yngstu nem-
endurnir færu ekki heim nema í
fylgd með fullorðnum.
Nokkru fyrir hádegi kom til-
kynning um það í hljóðvarpi að
kennsla í grunnskólum Reykjavík-
ur yrði felld niður eftir hádegi.
Foreldrar margra barna komu
strax í skólann þegar séð varð
hvernig veðri var komið og sóttu
sín börn og annarra. Reynt var að
leyfa börnum að hringja heim til
sín, eftir því sem við varð komið,
en álagið á síma skólans var slíkt,
að um tíma var ekki hægt að
hringja úr skólanum. Foreldrar
voru beðnir að sækja börn sín yrði
því við komið en annars dveldu
þau í skólanum. Börnunum var
safnað saman á bókasafni skólans,
þar sem þau voru við lestur og
spil, léku borðtennis í samkomusal
eða tefldu og fengu þau smurt
brauð meðan það entist og mjólk
eða ávaxtasafa á kennarastofu.
Lengst af voru í skólanum á bilinu
25 til 30 börn og fóru þau síðustu
heim laust fyrir kl. 17.00.
Elstu nemendurnir fengu heim-
ild til þess að fara heim og komu
sumir þeirra aftur í skólann vel
búnir til þess að bjóða fram aðstoð
sína.
í nokkrum tilvikum fylgdu
kennarar börnum heim og tel ég
að í Hólabrekkuskóla hafi vel ver-
ið staðið að málum þó að vafalaust
sé ætíð hægt að bæta það sem gert
er.
Ég vil benda foreldrum á að
gera ætíð upp við sig, þegar veður-
útlit er slæmt, hvort forsvaranlegt
sé að senda börn í skóla.
Lokaorð
Það vill oft hrenna við þegar
óveður geisar að þá skapist mikil
spenna hjá fólki.
Foreldrar óttast um börn sín
sem von er og ef eitthvað fer úr-
skeiðis er það vatn á myllu ein-
staka fólks, því þá finnst suraum
kjörið tækifæri til þess að klekkja
á skólanum. Sem betur fer hugsa
fáir svo lágt, en reyna þess í stað
að benda á hvað betur hefði mátt
fara og bjóða fram aðstoð sína.
Kennarar og annað starfsfólk
skólans ásamt yfirkennara og
skólastjóra telja fréttaflutning
sem þennan varhugaverðan og
ósanngjarnan og líta svo á að rétt
hefði verið að fá umsögn einhvers
nafngreinds starfsmanns skólans
til þess að lýsa ástandinu um-
ræddan dag.
Vonandi verður þessi umfjöllun
til þess að allir leggist á eitt og
komi í veg fyrir mistök, hafi þau
þá á annað borð orðið, því að
áfram verða veður válynd eins og
þau hafa ætíð verið.
Sigurjón Fjeldsted er skólastjóri
Hólabrekkuskóla.
einu sinni var.
•a
svona
byrja mörg ævintýri,
en okkar ævintyri
byrjará:
Fyrir aðeins 415,000 kr. bjóðum við þér
PEUGEOT 505 GR 83.
• innifalið i verði er ma:
• Vökvastýri • Læst mismunadrif (sjalfvirkt)
• 5 gira kassi • 6 ára ryðvarnarábyrgö
Ef gamli billinn þinn er i goðu ásigkomulagi
tökum við hann upp i nýjan PEUGEOT
HAFRAFELL
VAGNHOFOA 7o 85-2-11
[PUQJJCeiEECDfiT
Þegar þessi ord eru sögd er undirbúningi fundarins lokið og sjálf
fundarstörfin framundan.
Eigiþau að ganga fyrirsig á fljótan og árangursríkan hátt, verðuraðstaðan að
vera fyrsta flokks.
Á Hótel Loftleiðum eru funda-og samkomusaliraf öllum gerðum og stærðum.
Og öll þau tæki sem nútima fundatækni krefst, myndvarpar, sýningarvélar,
töflur- aðstaða til að vélrita og fjölrita, jafnvel túlka yfir á ólík tungumál.
Veitingar eftir því sem óskað er.
Leitió upplýsinga þar sem reynslan er mest og aðstaðan best.
FUNDURER
SETTUR!