Morgunblaðið - 10.01.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
Arnarflug
að fljúga í
ARNARFLUGSMENN fengu skeyti
frá Nígeríu í síðustu viku, þar sem
þeim var skýrt frá því, að stjórnar-
byltingin í landinu um áramótin
hefði engin áhrif á samning félags-
ins við aðila í Nígeríu, en samkvæmt
honum mun Arnarflug sinna innan-
landsflugi milli Lagos og nokkurra
borga í Nígeríu.
Samningurinn gerir ráð fyrir,
að flug félagsins hefjist í kringum
næstu helgi, en til verkefnisins
hefur Arnarflug leigt þotu af
gerðinni Boeing 727-100 frá
Bandaríkjunum. í fyrstu munu
erlendar áhafnir sinna fluginu, en
byrjar
Nígeríu
þjálfun flugliða Arnarflugs stend-
ur yfir um þessar mundir og munu
þeir koma til starfa að henni lok-
inni.
Samningurinn er gerður til eins
árs, en alla jafna munu verða tvær
flugáhafnir í Nígeríu, þ.e. flug-
stjórar, flugmenn og flugvélstjór-
ar. Þá verða flugvirkjar félagsins
syðra, flugfreyja og stjórnandi
verkefnisins. Samtals munu starfa
við þetta verkefni Arnarflugs í
Nígeríu 16—18 starfsmenn, að
sögn Agnars Friðrikssonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins.
Fasteignagjöld í Reykjavík 580 milljónir:
Fyrsti gjalddagi fasteigna-
gjalda er á sunnudaginn
Bókleg þjálfun flugliða Arnarflugs, sem sinna munu leiguflugi félagsins í Nígeríu, stendur yfir um þessar mundir, en
alls munu fjórar áhafnir ganga í gegnum þjálfunina. Það eru fjórir flugstjórar, fjórir flugmenn og fjórir flugvélstjórar.
Morgunblaðid/RAX.
Samingurinn styrkir
stöðu Coldwater og SH
— segir Jón Ingvarsson, varaformaöur stjórnar SH
„UPPSÖGNINA bar að með svo
skjótum hætti að mínu mati og kom
hún mér að því leyti á óvart,“ sagði
Jón Ingvarsson, varaformaður stjórn-
ar SH, er Morgunblaðið spurði hann
hvort uppsögn Þorsteins Gíslasonar,
framkvæmdastjóra Coldwater, hefði
komið stjórnarmönnum SH á óvart.
Hverja skýringu telur þú líklegasta
á uppsögn Þorsteins og hvaða áhrif
getur hún haft á stöðu ('oldwater og
SH?
„Þorsteinn Gíslason hefur þegar
Hvöss vestan-
átt og él
Spáð er hvassri vestanátt með élj-
um í dag og svipuðu veðri og ríkti í
gær. Kitthvað mun þó draga úr vindi
eftir því sem á daginn líður. Elin
verða fyrst og fremst vestanlands, en
um austanvert landið verður úrkomu-
laust.
Búist er við að á miðvikudag
dragi enn úr vindi og síðan snýr
hann sér til sunnanáttar og þar á
eftir er gert ráð fyrir norðaustan-
átt, þegar lítil lægð fer hér fyrir
sunnan landið. Frostið verður þetta
3—4 stig.
Fíkniefnadeild
lögreglunnar:
Símar hleraðir
í um 10 tilvikum
á tveimur árum
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar
hefur á undanfiirnum tveimur ár-
um fengið heimild dómstóla til
þess að hlera síma manna, sem
grunaðir eru um að brjóta í bága
við fíkniefnalöggjönna. Ásgeir
Friðjónsson, dómari í Sakadómi í
ávana- og fíkniefnamálum, stað-
festi þetta í samtali við Mbl. í gær.
Ekki kvaðst Ásgeir hafa nákvæm-
ar tölur, sagði þetta um 10 tilvik á
tveimur árum.
í lögum um meðferð opinberra
mála er ákvæði sem kveður á um
hleranir síma. Þar segir: „Dóm-
ari getur, þegar öryggi ríkisins
krefst þess eða um mikilsverð
sakamál er að ræða, úrskurðað
hlustanir í síma, sem sökur.aut-
ur hefur eða ætla má hann
nota.“
Að sögn Hallvarðs Einvarðs-
sonar, rannsóknarlögreglustjóra
ríkisins, hefur það ekki í tíð RLR
komið upp að stofnunin hafi lát-
ið hlera síma.
skýrt sínar ástæður fyrir uppsögn-
inni í Morgunblaðinu síðastliðinn
laugardag og hef ég engu þar við að
bæta. Samningur um sölu á 25
miiljónum punda af þorskflökum á
næstu 15 mánuðum til þessa
stærsta kaupanda mun að sjálf-
sögðu styrkja enn frekar stöðu
Coldwater og SH. Að sjálfsögðu
hefur enginn tími verið til að fjalla
um eftirmann Þorsteins, þar sem
svo skammur tími er liðinn frá upp-
sögn hans,“ sagði Jón Ingvarsson.
Aðspurður sagði Jón um störf
Þorsteins Gíslasonar, að hann hafi
starfað hjá félaginu í tæp 22 ár og
hafi árssala Coldwater á þessu
tímabili aukizt úr 17 milljónum
dollara í um og yfir 200 milljónir
dollara. Coldwater er talið meðal
traustustu fyrirtækja sinnar teg-
undar í Bandaríkjunum og jafn-
framt það stærsta. Félagið hefur
haft forystu um ýmsar nýjungar í
framleiðslu og sölu frystra sjávar-
afurða í Bandaríkjunum. Frysti-
húsamenn innan SH hljóta að
standa í þakkarskuld við Þorstein
Gíslason fyrir mikið og gott starf.
Ekkja aðalræð-
ismanns látin
ALINE Juuranto, ekkja Erik
Juurantos, sem lengi var aðalræð-
ismaður íslands í Helsinki, lést 3.
janúar síðastliðinn.
(Frétíalilkynning frá uUmríkisráduneytinu.)
FYRSTI gjalddagi fasteignagjalda
fyrir árið 1984 er á sunnudaginn,
15. janúar. Innheimtuseðlar verða
sendir út í þessari viku og munu
fyrstu seðlarnir hafa farið í póst
eftir hádegi í gær, skv. upplýsing-
um sem Mbl. fékk hjá Gjald-
heimtunni í Reykjavík.
Alls verða sendir út um 35
þúsund seðlar að þessu sinni.
Þeim er pakkað af starfsfólki
Póstgíróstofunnar og mun það
væntanlega taka bróðurpart
vikunnar að búa gíróseðlana til
útsendingar.
Gjalddagar fasteignagjalda í
Reykjavík eru þrír: 15. janúar, 1.
mars og 15. apríl. Álögð gjöld
nema samtals um 580 milljónum
króna en ásamt fasteignaskatti
eru innheimtir sjö aðrir gjald-
stofnar. Það eru lóðaleiga,
tunnuleiga, vatnsskattur, auka-
vatnsskattur, brunabótagjald,
viðlagatrygging og söluskattur,
en hann er greiddur af bruna-
bótagjaldi og viðlagatryggingu,
skv. upplýsingum brunabóta-
mats borgarinnar. Um er að
ræða um það bil 54% hækkun á
fasteignagjöldum á milli ára.
Ögri RE fékk 40 kr.
fyrir kg af þorski
SKUTTOGARINN Ögri RE fékk í gær
un. 40 króna meðalveró fyrir þorsk-
kflóið I Grimsby í Englandi. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins er
þetta með hæsta meðalverði, sem feng-
izt hefur á þessum markaði. Þá fékk
Karlsefni RE tæpar 30 krónur fyrir
kflóið af karfa í Þýzkalandi.
Ögri seldi alls 161,2 lestir, mest
þorsk, en einnig karfa og grálúðu, í
Grimsby í gær. Heildarverð var
5.534.500 krónur, meðalverð 34,33.
Meðalverð fyrir þorskinn var hins
vegar 39,75 krónur og meðalverð
fyrir milliþorsk reyndist 40,05 krón-
ur.
Ágreiningur innan Kvennaframboðs f Reykjavík:
Fluttu tillögur án samráðs við mig
og andstæðar ákvörðunum mínum
— segir Lára Júlíusdóttir sem óskað hefur lausnar úr heilbrigðisráði
FULLTRÚI Kvennaframboðs í
heilbrigðisráði Reykjavíkurborgar,
l,ára Júlíusdóttir, hefur ritað borg-
arráði bréf og óskað eftir lausn úr
þeim nefndum borgarinnar sem
hún á sæti í fyrir Kvennaframboð-
ið. Lára sagði í viðtali við Mbl., að
ástæða þessa væri málefnaágrein-
ingur innan Kvennaframboðsins.
Borgarfulltrúar þess hefðu ekki
borið undir hana tillögur sem þær
lögðu fram í borgarráði varðandi
heilbrigðismál og hefði efni til-
lagnanna verið andstætt ákvörðun-
um hcnnar í heilbrigðisráði.
Lára skipaði 8. sæti á fram-
boðslista Kvennaframboðsins
fyrir síðustu borgarstjórnar-
kosningar. Auk setu í heilbrigð-
isráði er hún varamaður í stjórn
sjúkrastofnunar Reykjavíkur-
borgar. Lára sagði aðspurð að
ágreiningur hefði komið upp
innan Kvennaframboðsins varð-
andi þessi mál, sem ekki hefði
verið leystur beint á lýðræðisleg-
an hátt, eins og hún orðaði það.
Hún sagði ennfremur: „Það er
eiginlega ekkert eitt mál öðru
fremur sem olli þessu, en það
sauð upp úr í sambandi við til-
lögur að fjárhagsáætlun. Þær
komu með tillögu í borgarráði
varðandi heilbrigðismál, sem
þær báru ekki undir mig og efni
tillagnanna var í rauninni and-
stætt þeim ákvörðunum sem ég
hafði tekið í heilbrigðisráði."
Lára sagði aðspurð í lokin að
hún ætlaði ekki að segja sig úr
samtökunum um kvennafram-
boð, hún yrði þar áfram félags-
maður.
Guðrún Jónsdóttir borgarfulltrúi Kvennaframboðs:
Hún vissi um þessa tillögu
— en það er engin launung á að hún var ekki sammála henni
„ÞAÐ ER meira en ég veit, að
þetta hafi valdið þvflíkum ágrein-
ingi, en við fluttum tillögur um
það, að horgin hætti að borga
rekstur læknastofa við Þórsgötu
og í Domus Medica. Við fluttum
sams konar tillögu í fyrra og við í
Kvennaframboðinu erum sammála
um að það sé röng stefna að borgin
borgi rekstrarkostnaðinn fyrir
læknana, án þess að þeir séu ráðn-
ir sem heilsugæzlulæknar. Hins
vegar mun heilbrigðisráð hafa
samþykkt að borgin greiddi rekst-
urinn á lækningastofum í Dorr.us
og á Þórsgötu, en læknarnir eru
ráðnir á númerasamning hjá
Sjúkrasamlaginu og fa þar greidd-
an kostnað af rekstri lækninga-
stofu,“ sagði Guðrún Jónsdóttir
borgarfulltrúi Kvennaframboðs-
ins, er Mbl. spurði hana hvað vald-
ið hefði þeim málefnaágreiningi,
sem varð til þess að Lára Júlíus-
dóttir, fulltrúi Kvennaframboðsins
í heilbrigðisráði borgarinnar, hefur
beðist lausnar frá öllum nefndar-
störfum.
Guðrún var spurð, hvort ekki
hefði verið haft samráð við Láru
sem fulltrúa í heilbrigðisráði áð-
ur en þær lögðu fram tillögur
varðandi heilbrigðismál í borg-
arráði. Hún svaraði: „Jú, hún
vissi að við myndum flytja þessa
tillögu, en það er engin launung
á að hún var ekki sammála
henni, enda hafði hún samþykkt
í heilbrigðisráði að bæta Þórs-
götunni við. En það var nú mat
okkar hinna, að þarna væri
borgin eiginlega að taka á sig
tvöfaldan kostnað vegna þessara
lækna, án þess að þarna sé um
heilsugæzluþjónustu að ræða
samkvæmt lögum."
Lára þá ein um þessa
innan Kvennaframboðs-
- Er
skoðun
ins?
„Ég þori ekki að segja um það,
en þegar þetta var rætt á borg-
armálaráðsfundi hjá okkur þá
vorum við allar almennt á þeirri
skoðun. Mat Láru var að þetta
myndi flýta því að koma upp al-
mennri heilsugæzlu í borginni."
Aðspurð um hvort ágreiningur
væri um fleiri borgarmálefni
innan Kvennaframboðsins
kvaðst Guðrún ekki hafa orðið
vör við slíkt.
Guðrún sagðist reikna með að
ákvörðun um nýjan fulltrúa yrði
tekin fljótlega. Hún sagðist í
lokin harma að Lára skyldi taka
þessa ákvörðun, því hún hefði
verið mjög góður fulltrúi
Kvennaframboðsins í heilbrigð-
isráði.