Morgunblaðið - 10.01.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
3
Morgunblaðið/Júlíus
Unnu framundir morgun við að opna niðurföll
Mikill vatnselgur myndaðist víða á götum á höfuðborgarsvæðinu þegar hlýnaði í veðri. Miklar umferðartafir
urðu vegna þessa þegar blotnaði á kertum bifreiða í vatnselgnum. Starfsmenn Reykjavíkurborgar höfðu í nógu
að snúast við að opna niðurföll. Starfsmenn unnu linnulítið fram til klukkan 5 í gærmorgun við að opna niðurföll
og þurftu til þess stórvirk vinnutæki vegna mikilla snjóa.
„Hélt að ég heföi
ein sloppið lifandi“
—segir Helga Björnsdóttir, sem slasaðist við Fnjóskárbrú
Akureyri, 9. janúar.
Fáskrúðsfjörður:
Skemma fauk á
íbúðarhús og
stórskemmdi það
janúar.
Fáskrúðsnrdi, 9.
„ÞAÐ VAR mikið hvassviðri þarna
þegar ég keyrði suður Fnjóskadal-
inn eftir að hafa farið Víkurskarðs-
veginn nýja. Veðrið var beint í fang-
ið þegar keyrt var suðureftir og þeg-
ar ég beygði á afleggjaranum að
Fnjóskárbrú skipti engum togum aö
ég fann að bfllinn feyktist til á veg-
inum. Ég gerði tilraun til þess að
aka suður af veginum, þar sem veg-
arkantur er lágur, en það tókst ekki.
Bfllinn rann til aö aftan, afturhjólin
fóru útaf og síðan rann bfllinn niður
vegarkantinn, sem þarna er um
15—20 metra hár og skall síðan á
hliðina þegar niður kom,“ sagði
Björn Sigurösson, sérleyfishafi á
Húsavík, þegar Morgunblaöið
ræddi við hann í dag.
Björn var á leið til Húsavíkur í
41 farþega fjórhjóladrifnum bíl,
sem hann notar á þessari leið.
Bíllinn, sem er aðeins l'/i árs
gamall, er töluvert skemmdur og
ljóst að hann verður ekki í notkun
alveg á næstunni.
„Það var lán f óláni að farþegar
voru aðeins sex að þessu sinni
austur, en ég hafði fyrr um dag-
inn farið með fullan bíl af fólki
inn til Akureyrar. Sem betur fer
urðu ekki alvarleg slys á fólki við
þetta atvik, en mikil mildi var að
Helga Björnsdóttir skildi ekki
stórslasast þegar hún hentist út
úr bílnum á leiðinni niður, senni-
lega í gegnum rúðu. Fljótlega eft-
ir veltuna komu ábúendur í Nesi á
slysstað á snjóbíl og aðstoðuðu við
að hlynna að íólki uns sjúkrabíll
kom frá Akureyri og flutti Helgu
á sjúkrahúsið þar. Aðrir farþegar
fóru svo áfram með mér austur,"
sagði Björn Sigurðsson að lokum.
Á fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri hitti fréttamaður Helgu
Björnsdóttur, sem liggur þar nú
og er í rannsókn, sennilega líf-
beinsbrotin, með brákuð rif og
auk þess dálítið skorin við vinstra
eyra. Helga býr á Uppsalavegi 24
á Húsavík ásamt eiginmanni sín-
um og þremur börnum.
„Ég varð svo sem ekki mikið vör
við rokið áður en óhappið gerðist.
Kann að vera vegna þess að ég er
alltaf ákaflega bílhrædd og var
því í óðaönn að reyna að sannfæra
sjálfa mig um að ekkert gæti
gerst á þessum bíl, hann væri svo
vel útbúinn, en skyndilega fann ég
að bíllinn rann út á hlið. Mér
fannst allt vera að koma yfir mig,
beygði mig niður og síðan vissi ég
ekki af mér fyrr en ég lá út í
snjóskafli og leit niður á bílinn,
þar sem hann lá í snjóskafli. Ég
man að ég veitti því sérstaka at-
hygli að ljósin voru enn á bílnum.
Á meðan ósköpin gengu yfir
hvarflaði ekki að mér að ég kæm-
ist lifandi frá þessu og þegar ég
raknaði við í skaflinum hélt ég að
ég ein hefði sloppið lifandi, en
brátt heyrði ég til Björns bíl-
stjóra, sem kallaði til einhvers að
ég lægi þarna og væri á lífi. Ég
fann strax fyrir miklum doða í
mjöðminni og í höfði, en áreiðan-
lega hefur miklu bjargað að ég
var ákaflega vel klædd. Það kom
sér líka vel því ég held að ég hafi
legið þarna í skaflinum á aðra
klukkustund á meðan beðið var
eftir sjúkrabíl frá Akureyri. Ég
man að ég var ákaflega hrædd á
leiðinni í sjúkrabílnum, auk þess
sem ég hafði ofboðslegar kvalir
um ailan líkamann. Nú líður mér
betur og ég vona bara að ég kom-
ist heim sem fyrst og geti byrjað
að vinna aftur á elliheimilinu,"
sagði Helga Björnsdóttir að lok-
HÉR gekk yfir hið versta veður í
nótt, sunnanrok, en í þessari átt
geta oft orðið hér snarpar vindhvið-
ur og stendur vindurjnn þvert yfir
fjörðinn og á þorpiö. í veðrinu sem
gekk yfir í nótt voru mjög skarpar
hryðjur á tímabilinu frá því klukk-
an 12 til 2 og um eittleytið voru
björgunarleitarmenn kallaðir út
vegna foks í bænum. Fljótlega upp
úr því var Almannavarnanefnd
kölluð saman til að stjórna aðgerð-
um.
Allmiklar skemmdir urðu af
völdum foks og mestar urðu þær
á skemmu í eign Pólarsíldar hf.,
en þar fauk viðbygging við
skemmuna algjörlega, um það bil
250 fermetra bárujárnshús, og
fór brakið yfir innsta hluta bæj-
arins með þeim afleiðingum að
hluti braksins fauk á íbúðarhúsið
á Búðarvegi 53, sem er einlyft
timburhús með risi, og klippti af
um helming rissins. Afgangurinn
hafnaði svo hinum megin göt-
unnar.
Þegar þetta gerðist var í hús-
inu ein kona og slapp hún
ómeidd, sem þó má kannski telj-
ast mildi, vegna þess að þegar
atburðurinn átti sér stað, var
hún stödd í þeim hluta hússins
sem slapp, en auk þess að rífa
hluta rissins, brotnaði stór rúða í
glugga í eldhúsinu.
Víða fuku plötur af húsum og
eins brotnaði nokkuð af rúðum,
en ekkert annað stórt tjón varð.
Rétt innan við skemmuna sem
fauk, stóð í nausti sex tonna opin
trilla. Urðu á henni töluverðar
skemmdir, en stykki úr skemm-
unni lenti á henni.
Starf björgunarsveitarmanna
var aðallega í því fólgið að tína
saman lausar plötur sem voru að
fjúka og hefta fok á þeim og huga
að skemmdum og veita þá aðstoð
sem þurfti.
í óveðrinu varð rafmagnslaust
í hluta innbæjar og hefur verið í
allan dag, en unnið er að viðgerð-
um. Eins verður unnið að því 4
dag að flytja húsgögn og hús-
muni úr Búðarvegi 53.
Albert
Ólafsvík:
Ófært vegna
ofsahláku
Olafsvík, 9. janúar.
AFAR ÖNUGT veðurlag hefur verið
hér síðustu daga. Grimmi bylurinn
kom hér eins og annars staðar og
var með hörðustu veðrum. Kkkert
varð þó að, annað en símasam-
bandsleysið sem reyndar er að verða
daglegt brauð hér. Allir vegir eru
kyrfilega ófærir og voru vegagerð-
armenn allan föstudaginn að opna
hér norðanfjalls. Fróðárheiðin var
ekki mokuð enda þótt augljóslega
hefði kostað minni vinnu að opna
hana. Kinhver góð rök hljóta þó að
finnast fyrir þessari ákvörðun.
í gær var svo rok úr suðri og
varð allt ófært vegna ofsahálku og
snjóflóðahættu í Búlandshöfða.
Áætlunarbíllinn frestaði suður-
ferð í gærkvöld og sömuleiðis hef-
ur orðið að fella niður kvöldferðir
úr Reykjavík á föstudag og sunnu-
dag. Það er þó ekki gert fyrr en í
síðustu lög og er aðdáunarvert
hvað sérleyfisbílar Helga P. leggja
á sig til að halda áætlun. Sama er
að segja um þá sem flytja vörur að
sunnan og mjólk úr Búðardal.
Hér á Snæfellsnesi fæst mokað
á þriðjudögum og föstudögum.
Mér er ekki kunnugt um hvort
reglur þessar eru svo túlkaðar að
tvær hreinsanir megi fara fram í
viku hverri eða hvort að einungis
má moka á dögum sem heita
þriðjudagar og föstudagar. Gott
væri að fá það upplýst á þann hátt
að öllum megi kunnugt verða.
Helgi
G.Berg.
Flugleiðamenn komnir frá Nígeríu:
Urðum lítið varir við byltinguna
— segir Henning Á. Bjarnason flugstjóri
„VIÐ URÐUM ekki varir við byltinguna að öðru leyti en því að
flugvellinum var að sjálfsögðu lokað og okkur var meinað að fara
um borð í vélina,“ sagði Henning Á. Bjarnason, flugstjóri, einn
þeirra tólf starfsmanna Flugleiða, sem voru í landinu þegar
byltingin var gerð að morgni gamlársdags. Sjö komu heim í
fyrrinótt, en fyrst fréttist af þeim þann 4. janúar þegar þeim var
leyft að fara aftur um borð í flugvélina og hafa samband heim.
„Það var bagalegt að geta ekki þrisvar á ári síðan 1981 og að-
látið vita af sér heima strax,"
sagði Henning. „Við óttuðumst
að aðstandendur á fslandi hefðu
af okkur óþarfa áhyggjur, en
róuðumst þegar við heyrðum í
BBC að þetta hefði gengið fyrir
sig án blóðsúthellinga. En eigi að
síður kom það á daginn að menn
höfðu af okkur áhyggjur hér
heima."
Flugleiðir hafa frá árinu 1981
stundað áætlunarflug á milli
Kano og Lagos, þrjár ferðir á
dag og flutt um 600 farþega á
degi hverjum. Þeir voru í Kano
þegar herinn tók völdin, en í
þeirri borg, eins og raunar öllum
borgum Nígeríu að Lagos undan-
skilinni, er ekkert símasamband
á milli borga, hvað þá milli
landa.
„Ég hef verið í Nígeríu tvisvar,
eins einu sinni séð sírna," sagði
Henning. „Eina leiðin til að ná
sambandi til fslands var að nota
fjarskiptatækin í vélinni, gamla
góða Gullfaxa, sem hefur verið
notaður til þessa flugs frá upp-
hafi.“
Reglulegt áætlunarflug hófst
aftur 5. janúar og sagði Henning
að það hefði verið fyrr en þeir
bjuggust við. „Ég held ég fari
rétt með að þetta hafi verið
fimmta valdataka hersins frá
því að landið fékk sjálfstæði og
það sögðu okkur Bretar, sem
höfðu reynslu af slíkri valda-
töku, að sennilega færi lífið ekki
að ganga sinn vanagang fyrr en
hálfum mánuði eftir byltinguna.
En það fór á annan veg, sem sýn-
ir kannski betur en annað hve
friðsamlega valdatakan fór
fram.
Morgunblaðið KKK.
Henning Á. Bjarnason nugstjóri.
Við urðum ekki varir við neina
hræðslu hjá almenningi í land-
inu og þeir sem á annað borð
létu skoðun sína í ljós virtust
sáttir við byltinguna. Enda er
hún gerð undir því yfirskini að
spilling, stjórnleysi og hækkandi
verðlag hafi verið að sliga þjóð-
félagið og því hefði verið nauð-
synlegt að grípa í taumana. Og
reyndar var það eitt fyrsta verk
herstjórnarinnar að krefjast
þess af verslunareigendum að
þeir lækkuðu vöruverð. Þeir voru
auðvitað misjafnlega ánægðir
með það og sumir brugðust
þannig við að loka hreinlega
búðum sínum.
Annars er fátækt mjög áber-
andi í Nígeríu og stéttaskipting-
in mikil. Þá virðist mútuþægni
vera landlæg í álfunni, ekki að-
eins í Nígeríu, heldur meira og
minna um alla Afríku. Það er
litið á mútuþægni sem sjálfsagð-
an hlut. Það þarf til dæmis að
múta tollurunum, eftirlits-
mönnum útlendinga og fleirum í
hvert skipti við komuna til
landsins. Við finnum ekki fyrir
þessu sjálfir, það eru starfsmenn
Kabo Air-flugfélagsins, sem
leigir vélina, sem sjá um þessa
hlið. Þetta er nauðsynlegt til að
hlutirnir gangi eðlilega fyrir sig,
annars geta menn átt það á
hættu að þurfa að bíða langtím-
um saman, opna sömu töskuna
mörgum sinnum og þar fram
eftir götunum. Mútugjafir gegna
því hlutverki að smyrja hjólin, ef
svo má segja, og það gildir um
öll viðskipti í landinu, meira og
minna."