Morgunblaðið - 10.01.1984, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
13
Innheimta
gjalda með
bezta móti
Vo.stmannaeyjum, 3. janúar.
INNHEIMTA gjalda hjá bæjarsjóði
Vcstmannaeyja var mjög góð og
raunar betri en mörg undanfarin ár.
Af öllum bæjargjöldum innheimtust
84,1%, sem er besta innheimtuhlut-
fall hjá bæjarsjóði í 10 ár. Á síðasta
ári var innheimtuhlutfallið 81,2%.
Innheimta opinberra gjalda hjá bæj-
arfógetaembættinu gekk einnig vel
fyrir sig, en prósentutala lá þar ekki
fyrir í dag.
Á fundi bæjarráðs 28. desember
sl. voru teknar ákvarðanir varð-
andi álagningu útsvara, aðstöðu-
gjalda og fasteignagjalda fyrir ár-
ið 1984. Útsvarsálagning verður í
ár 11%, en var 11,55% á síðasta
ári. Aðstöðugjöld verða 0,33% af
rekstri fiskiskipa og flugvéla,
0,65% af fiskiðnaði og rekstri
verslunarskipa, 1% af ölium iðn-
rekstri og 1,30% af öðrum at-
vinnurekstri. Fasteignaskattur
verður 0,5% af fasteignamati
ibúðarhúsa og 1% af fasteigna-
mati annarra fasteigna. Gjalddag-
ar fasteignagjalda verða fjórir.
Fasteignagjöld ellilífeyrisþega,
sem eingöngu njóta tekjutrygg-
ingar, eru felld niður af eigin íbúð
sem þeir búa í. Ennfremur verður
felldur niður ákveðinn hundr-
aðshluti fasteignaskatts ellilífeyr-
isþega af eigin íbúð sem þeir búa í.
Miðað við brúttótekjur allt að 186
þús. kr. fyrir einstakling er niður-
fellingin 100%, en tekjumarkið er
235 þús. kr. fyrir hjón svo niður-
fellingin sé 100%. Niðurfell-
ingarprósentan lækkar svo við
hærri brúttótekjur og er 30% við
250 þús. kr. hjá einstaklingi og 300
þús. kr. hjá hjónum.
Fulltrúi Alþýðuflokksins í bæj-
arráði sat hjá við ákvörðunina um
útsvarsálagninguna og áskildi sér
rétt til tillöguflutnings við af-
greiðslu málsins á síðara stigi.
_______ t (_______ hkj.
Endurbætur gerð-
ar á hinni 118
ára Hrunakirkju
Syftra-Langholti, 6. janúar.
I>Á ER þrettándi dagur jóla runninn
upp og jólin kveðja um leiö og daginn
tekur að lengja um eitt „hænufet á
dag“, eins og meistari Þórbergur
orðaði það. Jólin eru okkur íslending-
um kærkomin tilbreyting í skamm-
deginu norður við Dumbshaf, þó
sveitafólkið verði raunar að ganga til
sinna starfa við hirðingu búfjár, án
tillits til þess hvort dagatalið sýni
rauða daga eða ekki.
Séra Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
prófastur í Hruna, átti einnig anna-
sama daga og messaði í fjórum
kirkjum, heimakirkju sinni, Hruna,
Hrepphólum og að auki í Stóra-
Núpsprestakalli, sem hann þjónar
nú í ársleyfi séra Sigfinns Þor-
leifssonar. Kirkjusókn var alls stað-
ar góð um jólin, enda var færð þá
enn góð á öllum vegum.
Séra Sveinbjörn messaði svo aft-
ur á nýársdag í hinu veglega 118
ára gamla guðshúsi, Hrunakirkju.
Þar hafa nú verið gerðar nokkrar
breytingar á kirkjubekkjunum og
þeir bólstraðir, auk þess sem nýtt
teppi hefur verið lagt á kirkjugólf-
ið. Þá er einnig í bígerð hjá söfnuð-
inum að kaupa á næstunni nýtt
kirkjuorgel.
Margir nota hátíðarnar, jól og
áramót, til að skíra börn sín, og að
þessu sinni skírði séra Sveinbjörn
fimm börn. — Sig. Sigm.
Þetta er ykkar
HLUTIAF KÖKUNNI
HANNI :r
LA NGSEERSTUR
H appdrætti Hájkólans heldur upp á 50
ára afmæli með glæsilegri vinningaskrá. Vinnings-
upphæðin er tvöfalt hærri en á liðnu ári, og mögu-
leiki er á 9 milljón króna vinningi á eitt númer.
Ævintýralegt. En það eru líka 5000 aukavinningar á
15.000 krónur hver, auk fjölda annarra vinninga.
HHÍ heldur enn hæsta vinningshlutfalli í hcimi,
7/10 „kökunnar“ kemur í hlut ykkar, sem spilið
með og hljótið vinning.
Líttu inn hjá umboðsmanninum. Þar
færðu miða - og möguleika á vinningi.
VINNINGASKRÁ
9 @ 1.000.000 9.000.000
9 200.000 1.800.000
207 100.000 20.700.000
2.682 20.000 53.640.000
21.735 4.000 86.940.000
109.908 2.500 274.770.000
134.550 446.850.000
450 aukav. 15.000 6.750.000
135.000 453.600.000
OpíðtilkU9
mánudaga
þriöjudaga
miövikudaga
fimmtudaga
TTAritr A TTT> Skeifunni 15
nAVlIiAUl Reykjavík