Morgunblaðið - 10.01.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
19
Eldflaugarnar ekki aðalmál
í dönsku kosningabaráttunni
Kaupmannahöfn. 9. janúar. Frá fréttaritara
Morgunblaðsins, Sveini Sigurðssvni.
I*ÓTT efnahagsmálin og at-
vinnuleysið séu fyrirferðarmest
í kosningabaráttunni í Dan-
mörku, ber að sjálfsögðu margt
annað þar á góma. Eldflaugarn-
ar og friðarhreyfingin eru mál,
sem vinstri flokkarnir hafa
reynt að gera sér mat úr en
með litlum árangri. Svo verða
alltaf einhverjar uppákomur,
sem athygli vekja. Má í því
sambandi nefna útvarps- og
sjónvarpsguðsþjónustu á jólum
og ásakanir um pólitíska
hlutdrægni ríkisfjölmiölanna.
Eftir alla þá umræðu, sem verið
hefur í Danmörku um friðarmál
og áætlanir Atlantshafsbanda-
lagsins um að setja upp varnar-
eldflaugar í Vestur-Evrópu, mót-
mælagöngur og aðra athafnasemi
hjá friðarhreyfingunni, þá bjugg-
ust margir við, að þessi mál kynnu
að hafa nokkur áhrif á kosninga-
baráttuna. Það er hins vegar kom-
ið í Ijós, að danskir kjósendur hafa
mestan áhuga á efnahagslegri
Frá danska þjóðþinginu í Kristjánsborgarhöll.
endurreisn og mörgum finnst
áróður vinstri flokkanna einkenn-
ast af tvískinnungi og atkvæða-
veiðum.
Danskir jafnaðarmenn hafa
þannig ekki hagnazt á afstöðu
sinni til eldflaugaáætlunar NATO.
Þeir voru sjálfir við stjórnvölinn,
þegar hún var samþykkt og voru
þá fylgjandi henni en snerust síð-
an í afstöðu sinni af ótta við áróð-
ur friðarhreyfingarinnar. Útskýr-
ingar þeirra á þessum sinnaskipt-
um hafa hins vegar ekki þótt mjög
sannfærandi.
Annað mál, sem jafnaðarmenn
hafa lagt áherzlu á, er krafan um
35 stunda vinnuviku, en eftir því
sem nær hefur dregið kjördegi,
hefur minna farið fyrir henni.
Hugmyndin var upphaflega sú, að
með styttri vinnutíma væri unnt
að fjölga störfum og fækka at-
vinnuleysingjum verulega, en að
flestra dómi er það út í hött.
Rannsóknir í öðrum löndum benda
til þess og auk þess myndu launin
skerðast, en fyrir því er ekki
grundvöllur í dönsku verkalýðs-
hreyfingunni.
Sviss:
Jafnaðar-
menn úr
stjórninni?
Bern, 9. janúar. AP.
FORYSTUMENN Jafnaðarmanna
flokksins í Sviss, sem beið mikinn
ósigur í þingkosningunum í október
sL, lögðu um helgina síðustu hönd á
undirbúning að því að draga flokk-
inn út úr samsteypustjórn þeirri sem
farið hefur með völd í landinu frá
1959.
Framkvæmdastjórn flokksins hef-
ur samið álitsgerð sem rædd verður
á þingi flokksins 11,—12. febrúar nk.
og er búist við að þar verði lagt til að
flokkurinn dragi sig út úr stjórninni.
í odda skarst milli jafnaðarmanna
og samstarfsflokka þeirra þegar
kona úr flokki þeirra fékk ekki
stuðning á þingi til aö taka við ráð-
herraembætti.
Sáttafund-
urinn fór út
um þúfur
Addis Ababa, Eþíópíu. 9. janúar. Al'.
EKKERT VARÐ ur því ad Hissine
Habre forseti ('had og Goukouni
Ouddei skæruiiðaleiðtogi hittust til
að ræða varanlegan frið í landinu í
Addis Ababa ■ gær þó að það hafi
staðið til. Þegar til kastanna kom,
mætti Habre ekki, þótti óviðeigandi
að Ouddei fékk móttöku að hætti
þjóðhöfðingja. Sendi Habre innanrík-
isráðherra sinn, en Ouddei hefur
þvertekið fyrir að ræða við annan en
Habre sjálfan.
Innanríkisráðherra Chad, Taher
Guinnasou, er kominn til Addis
Ababa með 26 manna lið embættis-
og aðstoðarmanna. Ráðamenn í
Eþíópíu gengu milli manna í gær
og reyndu að koma á fundi Ouddei
og Guinnasou, en það hafði ekki
tekist síðast er fréttist og Ouddei
hinn harðasti í afstöðu sinni. Vildi
hann ekki líta á Guinnasou sem
jafningja sinn. Hins vegar ræddu
þeir Guinnasou og Mengistu Haile
Mariam saman, en Mariam þessi er
hægri hönd Ouddeis.
EinkarádnTafi ritarans
Með Silver Reed EX 55 hefur sjálfvirknin verið kórónuð á skrif-
stofunni. Hraðari prentun, villulaus og áferðarfalleg verður leikur einn
með
• sjálfvirku lírmminni
• sjálfvirkri leiðréttingu á tveimur línum í fullri lengd
• sjálfvirkri endurprentun á leiðréttum línum___________
• sjálfvirkri línufcerslu_______________________________
• sjálfvirkri undirstrikun og stritun
• sjálfvirkum miðjuleitara og
• sjálfvirkum dálkastilli
Yfirburðimir eru síðan undirstrikaðir með hljóðlátri prentun, mörgum
tegundum leturhjóla og hönnun sem hæfir nútímalegustu skrifstofum.
y.Mlf#/.
KRIFSTOFU
Hverfisgötu 33 — Simi 20560 — Pósthölf 377
*r*t53ír
Sitnu* siálfvirkninnar
SILVER-R ^
EX
55
ÞÝSK
KJÓL
FÖT
Sértilboð í dag.
Glæsileg þýsk kjólföt,
kjólvesti, kjólskyrtur.
Sígildur klæðnaður á
hátíðarstundum.
frA
sævari
SÉRTILBOÐ
Vandaðar kjólskyrtur
með 50% afslætti í dag.