Morgunblaðið - 10.01.1984, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 20 kr. eintakið.
Sölusamningur
Coldwater
Síðla sumars 1983 var
augsýnilegt að íslensku
fisksölufyrirtækin í Banda-
ríkjunum voru farin að
keppa sín á milli. Iceland
Seafood Corporation, fyrir-
tæki Sambands ísl. sam-
vinnufélaga (SÍS), lækkaði
verðið á 5 punda þorsk-
flakapakkningum um 10 sent
og hóf að selja stórkaupand-
anum Long John Silver’s,
sem hafði verið einn helsti
viðskiptavinur Coldwater,
fyrirtækis Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna (SH).
Hlutur Kandamanna í við-
skiptum við Long John Silv-
er’s hefur aukist jafnt og
þétt á undanförnum árum.
Töldu forsvarsmenn SÍS-
fyrirtækisins skynsamlegast
að stemma stigu við fram- í
sókn Kandamanna með því
að lækka verðið, en Coldwat-
er vildi ekki sætta sig við það
og lagði Þorsteinn Gíslason,
forstjóri fyrirtækisins, til að
breyttum aðstæðum yrði |
svarað með nýjum pakkning-
um á þorskflökum fyrir nýja j
kaupendur.
Nú í ár, 1984, eru 15 ár
síðan viðskipti Long John
Silver’s og Coldwater hófust
og lengst af þennan tíma
hefur Coldwater svo til eitt
setið að því að sjá þessum
stóra veitingahúsahring
fyrir hráefni í fiskrétti. Það
er ekki fyrr en hin síðari ár
sem hlutur Coldwater hefur
minnkað. Tengslin milli aðil-
anna hafa því þróast á löng- j
um tíma og orðið mjög sterk
eins og best verður séð af því
við hvaða aðstæður sá sölu-
samningur var gerður sem
frá var skýrt á laugardag, en
samkvæmt honum ætlar
Long John Silver’s að kaupa
um 11.320 lestir af Coldwater
á næstu 15 mánuðum, eða 20
milljónir punda á árinu 1984
í stað 15,5 milljóna punda á
árinu 1983 að sögn SH.
Samningurinn náðist þegar
Coldwater lækkaði verðið á 5
punda þorskflakapakkning-
unni um 10 sent. Samningur-
inn var gerður af sérstakri
nefnd sem send var frá SH í
Reykjavík og stjórnar-
mönnum í Coldwater eftir að
haröort kvörtunarbréf hafði
borist frá Long John Silver’s
um að Þorsteinn Gíslason,
forstjóri Coldwater, ræki of
harða verðstefnu. Hefur Þor-
steinn síðan ákveðið að segja
af sér.
Á þeim óvissutímum sem
nú eru í íslenskum sjávar-
útvegi er mikils virði að tek-
ist hefur samkomulag um
sölu á umtalsverðu magni
fyrir fast verð til eins besta
fiskkaupanda á Bandaríkja-
markaði, þar sem samkeppni
er mest í veröldinni og tekist
á um hæstu fjárhæðirnar.
Um þessar mundir á sér stað
bylting í kanadískum fisk-
veiðum og er ætlan stjórn-
valda, sem fyrir henni
standa, að hún hafi það í för
með sér að aðstaða Kanada-
manna í samkeppninni við
íslendinga batni. Með sölu-
samningi Coldwater hefur
verið skapaður 15 mánaða
umþóttunartími í samskipt-
um stærsta íslenska fiskselj-
endans og stærsta banda-
ríska kaupandans. Þennan
tíma þarf að nýta vel til að
leggja grunn að nýrri sókn á
Bandaríkjamarkaði. Fyrsta
verkefnið hjá Coldwater
verður að finna nýjan for-
stjóra í stað Þorsteins Gísla-
sonar.
Þorsteinn Gíslason hefur
um áratugaskeið verið í eld-
línu íslenskra fiskseljenda á
Bandaríkjamarkaði. Hann
hefur verið ódeigur baráttu-
maður og ekki hikað við að
sækja á brattann í hvert
| sinn sem það hefur verið
nauðsynlegt. Hann hefur
ekki heldur vílað fyrir sér að
fara eigin leiðir og sérstaða
íslendinga á þessum mikil-
vægasta fiskmarkaði verald-
ar, sem litin er öfundaraug-
um af keppinautunum, er
i ekki síst hans verk, en þar
| byggði hann á traustum
grunni sem Jón Gunnarsson,
forveri hans, lagði. Með þeim
ákvörðunum sem Þorsteinn
tók í verðlags- og fram-
leiðslumálum í haust lagði
hann framtíð sína hjá
Coldwater að veði. Það verð-
ur vandasamt að ráða nýjan
forstjóra hjá Coldwater.
Opinberar umræður um
fisksölu til Bandaríkjanna
síðan dótturfyrirtæki SÍS
lækkaði verðið hafa borið
þess nokkur merki að SH
ætti undir högg að sækja. Er
ekki að efa að skipan mála
með hinum nýja sölusamn-
ingi eigi eftir að hafa víð-
.tækari áhrif innan Sölu-
'miðstöðvarinnar en hjá dótt-
urfyrirtækinu Coldwater í
Bandaríkjunum.
íslenskir stóðhestar erlendis:
Folatollar aðeins 3.500 til
5.000 krónur og hafa ekki
áhrif á hrossamarkaðinn
— segir Gunnar Bjarnason og telur að lágmarksverð á
útflutt hross eyðileggi markaðsmöguleika Islendinga
„ÞES8I ummæli eru svo yfirgengileg
og lýsa svo ótrúlegri vanþekkingu á
hestauppeldi og hestaverslun að öll-
um, sem til þekkja, hlýtur að
blöskra," sagði Gunnar Bjarnason,
ráðunautur um útflutning hrossa í
samtali við blaðamann Morgunblaðs-
ins, þegar borin voru undir hann um-
mæli Steinþórs Kunólfssonar á Hellu
í blaðinu í vikunni. Þar segir Steinþór,
sem er formaður nefndar, sem nýlega
setti lágmarksverð á undaneldishross,
að lágmarksverðið sé síst of hátt.
Miðar hann þar meðal annars við
folatolla af íslenskum stóðhestum í
Þýskalandi, sem hann segir vera 10 til
15 þúsund krónur.
„Sannleikurinn er sá,“ sagði
Gunnar Bjarnason, „að folatollar af
íslenskum stóðhestum í Þýskalandi
eru mun lægri en Steinþór segir,
eða milli 350 til 500 mörk, sem sam-
svarar 3.500 til 5.000 íslenskum
krónum. Auðvelt er að komast að
hinu rétta í þessu máli, því eigend-
ur stóðhestanna auglýsa verðið
gjarna þegar kemur á útmánuði ár
hvert. í eitt skipti hef ég frétt af því
að folatollur hafi verið sex þúsund
krónur, en það var á stóðhestinn
Vörð 615 frá Kýrholti, í eigu Walt-
ers Feldmann. Það er það hæsta
sem ég hef haft spurnir af og því
eru tölur þær er Steinþór nefnir út
í hött.
Hitt er svo annað mál og skiptir
meira máli, að það er ekkert sam-
band á milli folatolla og verðs á
sölumarkaði. Ég get nefnt sem
dæmi, að það er algengt að folatoll-
ar af kunnum arabískum veð-
hlaupahestum séu 100 til 150 þús-
und krónur. Hross undan þessum
sömu hestum eru síðan seld á að-
eins tvöföldu eða þreföldu afslátt-
arverði, nema þau hafi getið sér
sérstakt orð á kappreiðabrautum.
Þessir hestar eru iðulega seldir á 30
til 50 þúsund krónur til almenn-
ingsnota. — Til samanburðar get ég
svo nefnt það, til að fólk hér heima
átti sig á því við hvað við erum að
keppa, að hross sem hér á Islandi er
keypt á 25 þúsund krónur af bónd-
anum, er selt ytra á allt að 75 þús-
und krónur. Þá hafa bæst við verðið
ýmsir liðir, svo sem flutningsgjöld
hér heima og milli landa, vottorð-
akostnaður, læknisskoðun, inn-
flutningstollar og þóknun hins er-
lenda sölumanns, svo dæmi sé tekið.
Þetta verður að hafa í huga, við
erum svo fjarri mörkuðunum og
það hækkar verðið, og fari svo að
hér verði ofaná eitthvert óraunsætt
lágmarksverð, þá er hrossasala
okkar úr landi einfaldlega úr sög-
unni,“ sagði Gunnar Bjarnason að
lokum.
Ásmundur Ásmundsson, formaður skipulagsnefndar, opnar sýninguna á aðalskipulagi Kópavogs á föstudaginn.
MorgunblaðiðKEE
Sýning á aðalskipulagi Kópavogs:
Stefiit að 42 þús-
und íbúa byggð
SÝNING á drögum að aðalskipulagi
Kópavogs, vestan Elliðavatns, var
opnuð á föstudaginn í Félagsheimili
Kópavogs. Markmið sýningarinnar
er að kynna almenningi ýmis frum-
atriði skipulagsáætlunar, sem unnið
hefur verið að um nokkurt skeið og
er að hluta til endurskoðun á skipu-
lagsáætlun frá 1970, svonefndu aðal-
skipulagi Kópavogskaupstaðar.
Landnýting
Heildarstærð bæjarlandsins,
sem skipulagsáætlunin nær til, er
um 1400 hektarar, sem deilist
þannig niður: 819 hektarar fara
undir íbúðabyggð (aukning um 295
ha), 180 hektarar undir athafna-
svæði (aukning um 120 ha) og 401
hektari er áætlaður undir óbyggt
land og útivistarsvæði. Þessi
skipting byggist á því að í Kópa-
vogi fullbyggðum vestan Elliða-
vatns, verði 42 þúsund íbúar,
þ.e.a.s. 30 íbúar á hektara að með-
altali, en í árslok 1982 bjuggu í
Kópavogi 14.259 íbúar á um 517
hektara landsvæði, sem er um 28
íbúar á hektara.
í grófum dráttum mun íbúa-
fjöldinn í bænum skiptast þannig
á milli bæjarhluta: Vestan Hafn-
arfjarðarvegar 45 þúsund íbúar,
milli Hafnarfjarðarvegar og
Reykjanesbrautar 17 þúsund íbú-
ar, milli Reykjanesbrautar og
Ofanbyggðarvegar 8 þúsund íbúar
og austan Ofanbyggðarvegar 12
þúsund og 5 hundruð íbúar.
Atvinnumál
í árslok 1981 var skipting bæj-
arbúa eftir þátttöku í atvinnulíf-
inu og ýmsum greinum þess sem
hér segir: Heildarfjöldi launafólks
var 53% íbúafjöldans, í frum-
vinnslu voru 5,2%, í iðnaði 29,81%
(þar af 8,35% í byggingariðnaði)
og í þjónustu 63,65%, mest í
opinberri þjónustu, eða 26,79%.
Það er gert ráð fyrir að þessi
hlutföll raskist ekki að því marki
að það hafi áhrif á áætlanir, en
106 hektara landrými þarf þá und-
ir iðnaðarstarfsemi miðað við bæ-
inn fullbyggðan. En með hliðsjón
af legu Kópavogsbyggðar á höfuð-
borgarsvæðinu er reiknað með 120
hektara landi fyrir iðnað og at-
hafnasvæði til viðbótar þeim 62
hektörum sem þegar eru fyrir
hendi, eða samtals 182 hekturum.
Nýr þjónustukjarni
Stefnt er að byggingu verslun-
ar- og þjónustukjarna við Reykja-
nesbraut í Fífuhvammslandi, til
að mæta þeim þörfum, sem ekki er
séð fyrir annars staðar í bænum
miðað við að íbúafjöldi verði 42
þúsund. Þjónustukjarni þessi yrði
á mótum iðnaðar- og íbúðahverf-
isins, á um 7 hektara svæði, sem
vaxi saman við og blandist að
hluta báðum þessum hverfum eft-
ir þörfum.
Fjölmargt fleira er kynnt á sýn-
ingunni í Félagsheimili Kópavogs,
en sýningin stendur í hálfan mán-
uð.