Morgunblaðið - 10.01.1984, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 10.01.1984, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984 IÉr 4. UMFERÐ ENSKU BIKARKEPPNINNAR: Brighton mætir Liverpool heima Sjá nánar bls./28. íþróttamaður ársins 1983 • Einar Vilhjálmsson fagnar sigri sínum og nýju ís- landsmeti í spjótkasti í Stokkhólmi síöastliöiö sumar, en þá sigraöi hann sjálfan heimsmethafann í greininni, Tom Petranoff, þegar úrvalslið Noróurlandanna í frjálsum íþróttum keppti viö landsliö Bandaríkjanna. Einar sigr- aöi örugglega í sinni grein, spjótkastinu. Þessi mikli afreksmaður svarar spurningum lesenda Morgunblaös- ins í kvöld á milli 18 og 20. Hringiö í síma 10100 og 10108. Leik FH og Tatabanya sjónvarpað beint ÁKVEOID hefur verið að leikur FH og ungverska liðsins Tata- banja í Evrópukeppninni í hand- knattleik veröur sendur út í beinni útsendingu á laugardag- inn klukkan 14.30 frá íþróttahús- inu í Hafnarfiröi. Nær uppselt er á leikinn og komast færri aö en vilja. Þaö var því brugöiö á þaö ráö aö semja viö sjónvarpið um beina útsendingu og brugöu þeir skjótt viö og veröur leikurinn sýndur beint. Handknatt- leiksáhugamenn um allt land veröa því ekki snuðaðir um þennan leik. Veröa þeir eflaust margir sem sitja viö tækiö næstkomandi laugardag og fylgjast meö leiknum. Fyrri leik liöanna lauk meö mikl- um yfirburöasigri Tatabanja, 35—27, þannig aö leikmenn FH veröa aö ná stórleik ætli þeir sér aö eiga nokkra möguleika á aö komast áfram í Evrópukeppninni aö þessu sinni. En heimavöllur þeirra í Hafnarfiröi ætti aö auka líkurnar á því aö þeir sigri ung- verska liöiö og jafnvel er möguleiki á stórum sigri, hver veit. — ÞR. Geir Hallsteinsson: „Stríðum þeim hér“ — NÚ ER annar hálfleikurinn bú- inn og við erum átta mörkum undir. En síöari hálfleikurinn er eftir og ég er ekki í nokkrum vafa um að viö komum til meö að Getraunir: 500 þúsund til Húsavíkur í 18. leikviku Getrauna kom að- eins fram einn seðill með 12 rótt- um og var vinningur fyrir röðina kr. 383.755.-, en alls voru 6 raðir með 11 rátta og var vinningur fyrir hverja röð kr. 27.411.-. Eins og oft vill koma fyrir í bik- arkeppninni ensku, uröu úrslit leikjanna á laugardag mörg mjög óvænt, jafnt í þeim leikjum sem voru á getraunaseölinum sem í þeim 20, sem sleppt var. Nægir aö benda á, aö bæöi stórveldin, Manschester City og United, voru slegin út. Eigandi vinningsseöilsins er Húsvíkingur, sem auk raöarinnar með 12 réttum var einnig meö 11 rétta í 4 rööum og heildarvinningur fyrir seöilinn því kr. 493.399,00. stríða þeim mjög verulega hér heima, þessum ungversku köpp- um. Og ef lukkan er meö okkur og áhorfendur verða kröftugir þá getur allt gerst í síöari leiknum, sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari FH, í spjalli viö Mbl. seint í gærkvöldi, nýkominn heim frá Ungverjalandi. — Þeir eru ekki sterkir á úti- velli, það hefur sýnt sig, og fyrst sænska liöiö Ystad gat sigraö þá meö átta mörkum á sínum heima- • Geir Hallsteínsson þjálfari FH | velli þá eigum viö að geta gert þaö líka. Þeir eru þrælsterkir. Þaö fengum viö aö finna, en viö getum j gert enn betur. Sóknarleikur okkar var mjög góöur, en þaö sem réöi úrslitum var aö varnarleikurinn gekk ekki upp hjá okkur. Viö skor- uöum 27 mörk sem er mjög gott enda sóknarnýting okkar vel yfir [ 60%. En svo brást vörnin, sagöi Geir. — ÞR Bjarni Felixson: „Tæknilegir öróugleikar" „LÍKUR eru á að leikur FH og Tat- abanja veröi sýndur beint á laug- ardaginn, en þaö eru ýmsir tæknilegir öröugleikar í veginum sem við verðum aö leysa til þess að svo verði. Ég er vongóöur um að það takist," sagði Bjarni Felix- son, íþróttafréttamaður sjón- varpsins. Veröi leikurinn sýndur beint þá er þetta í fyrsta skipti sem Evrópuleikur í handknattleik verður sendur út í beinni útsend- ingu af íslenska sjónvarpinu. — ÞR. Símatími íþróttasíðunnar: Einar svarar spurningum lesenda í KVÖLD á milli klukkan 18 og 20 veröur annar símatími íþróttasíöu Morgunblaðsins. Aö þessu sinni er Einar Vilhjálmsson gestur okkar. Einar Vilhjálmsson er óþarft aö kynna nánar fyrir lesendum blaösins svo rækilega hefur það veriö gert á undanförnum dögum. Hann var kjörinn íþróttamaöur ársins 1983, hlaut 60 atkvæöi af 60 mögulegum. Deginum áöur haföi Eimskipafélag íslands veitt þessum mikla afreksmanni 100 þúsund krónur í styrk svo aö hann gæti undirbúiö sig sem best fyrir stærstu keppni ársins, Ólympíuleikana í Los Angeles. Einar hefur undanfarin ár stund- aö nám í læknisfræöi viö háskól- ann í Austin í Texas og er nú heima í jólaleyfi. Hann mun halda utan til Texas síöar í vikunni. Því gefst nú ákjósanlegt tækifæri fyrir lesendur blaösins svo og alla íþróttaáhuga- menn aö hringja í Einar og spyrja hann spjörunum úr. Einar mun ekki koma til íslands aftur fyrr en Ólympiuleikunum lýkur í ágúst. Hann mun stunda æfingar ytra frá því að háskólanum lýkur og þar til leikarnir hefjast. Lesendur blaðsins svo og allir íþróttaáhugamenn eru hvattir til þess aö hringja í Einar í kvöld og leggja fyrir hann spurningar varö- andi Ólympíuleikana, æfingar hans og undirbúning og reyndar allt sem þeim liggur á hjarta. Hringiö í síma 10100 eöa 10108 á milli kl. 18 og 20 og biðjið um íþróttasíöu. — ÞR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.