Morgunblaðið - 10.01.1984, Qupperneq 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
Ná leikmenn Liver-
pool að hefna sín?
— Liðið mætir Brighton í bikarkeppninni
BRIGHTON, sem lék til úrslíta í
ensku bikarkeppninni í fyrravor
gegn Manchester United, mœtir
Liverpool — sem talið er sigur-
stranglegast í keppnínni í ár — i
heimavelli sínum, Goldstone
Ground í Hove, í fjórðu umferð
bikarkeppninnar, en dregið var í
keppninni í gær.
Liðin mættust einmitt í bikar-
keppninni í fyrra og þá sigraði
• Jimmy Case var sínum gömlu
félögum í Liverpool erfiður í fyrra.
Skoraöi þé sigurmark Brighton á
Anfield.
BIRMINGHAM
Stofnað áriö 1875, framkvæmdastjóri Ron Saunders. Leikvöllur
St. Andrews, tekur 44.500 áhorfendur. Gælunafn: Hinir bláu. Stærsti
sigur 12—0 á móti Walsall í 2. deild áriö 1892. Og á móti Doncaster
Rovers ári 1903 12—0. Stærsta tap gegn Sheffield Wednesday 1—9
13. des. árið 1930. Dýrasti leikmaður keyptur til félagsins var David
Langan 350 þús. pund áriö 1980 í júní. Langan kom frá Derby.
Metsala var þegar Trevor Francis var seldur fyrir 950 þús. pund til
N.-Forest árið 1979. Flesta leiki meö félaginu hefur Gil Merrick
spilað á árunum 1946—60 486 leiki. Markahæsti maður síöasta
keppnistímabils var Mick Fergusson, skoraöi 8 mörk. Heimilisfang
St. Andrews Birmingham B-9 4NH.
• Kevin Broadhurst fyrirliöi Birmingham City leikur sem miðvall-
arspilari.
Leikmenn: Fæðingardagur og ataöur: Kaupverð: Leikir:
Tony Coton 19.5.61 Mile Oak 46
Jeff Wealands 26.8.51 Hull City 30.000E 112
Jim Blyth 28.7.44 Coventry City 30.000E Skotl. 16
Mark Dennis 2.5.61 130
Pat van den Hauwe 16.12.60 Dendermonde (Belgíu) 75
Kevan Broadhurst 3.6.59 131
David Langan 15.2.57 Derby Country 350.000E irland 92
Billy Wright 28.4.58 Everton 10.000E 0
Noel Blake 12.1.62 Walsall 4
Jim Hagan 10.8.56 Coventry City 25.000E 31
Mike Halsall 21.7.61 Liverpool 12
Robert Hopkins 25.10.61 Aston Villa 11
Carl Francis 21.8.62 5
lan Handysides 14.12.62 57
Frank Carrodus 31.5.49 Wrexham 8
Les Philips 7.1.63 24
Byron Stevenson 7.9.56 Leeds United Wales 43
Tony Evans 11.1.54 Cardiff City 175.000E 66
Mick Harford 12.2.59 Bristol City 100.000 41
Mick Ferguson 3.10.54 Everton 60.000E 20
Brighton meistarana 2:1 á Anfield
öllum á óvart. Leikmönnum Liv-
erpool gefst nú tækifæri til að
hefna. Bournemouth sem sló bik-
armeistarana Manchester United
út á laugardaginn var ekki heppið í
drættinum — liðiö fer noröur til
Middlesbrough og mætir liöi Mal-
colm Allison á Ayersome Park.
Drátturinn var annars þannig:
Fulham/Tottenham — Aston Villa/Norwich
Sheffield Wednesday — Coventry/Wolves
Sunderland — Sheff. Utd./Birmingham
Burnley/Oxford — Blackpool
Shrewsbury — Ipswich
Portsmouth — Southampton
Crystal Palace — West Ham
Plymouth/Newport — Darlington
Rotherham/WBA — Leeds/Scunthorpe
Middlesbrough — Bournemouth
Derby — Telford
Carlisle/Swindon — Blackburn
Everton — Gillingham
Huddersfíeld — Notts County/Bristol City
Brighton — Liverpool
Charlton — Watford/Luton.
Þessir leikir fara fram nú 28.
janúar. Það er Ijóst aö í hæsta lagi
geta oröiö tveir leikir þar sem 1.
deildarliö mætast. Til þess þarf
Tottenham aö sigra Fulham, og
mætir þá Aston Villa eöa Norwich,
og Birmingham þarf aö sigra
Sheffield United. Sigurliöiö úr
þeim leik mætir Sunderland á úti-
velli.
• Knattspyrnumaður Evrópu, Frakkinn Platíni, þykir leika betur en
nokkru sinni fyrr. Hann skoraöi tvö mörk fyrir Juventus um helgina og
er núna markahæsti leikmaöurinn á Ítalíu ásamt Zico, báðir hafa
skoraö 11 mörk.
ítalska knattspyrnan:
Platini og Zico
eru markahæstir
ÞEGAR keppnin í ítölsku 1. deild-
inni er hálfnuð hefur Juventus
forystu í deildinni meö 22 stig.
Keppnin er mjög jöfn og hörö
milli efstu liöanna. Torino er í
ööru sæti meö 20 stig, Roma í
þriöja sæti meö 19 stig, síöan
koma Fiorentina og Verona með
18 stig. Sampdoria er meö 17. Um
helgina uröu úrslit þessi: Verona
sigraði Roma 1—0, Juventus sigr-
aöi Genoa 4—2, Napoli og Torino
geröu markalaust jafntefli, Milan
og Udinese geröu jafntefli í
hörkuleik 3—3, Sampdoria tapaöi
fyrir Ascoli 1—2, Catania og Inter
Milan skildu jöfn 0—0. Fiorentina
sigraði Avellino 1—0 og Lazio frá
Róm tapaöi 0—1 fyrir Pisa.
Þaö var knattspyrnumaöur Evr-
ópu, Michel Platini, sem var maö-
urinn á bak viö sigur Juventus.
Hann skoraöi tvö mörk sjálfur og
lagði upp hin tvö fyrir Paolo Rossi.
Þetta var sjöundi leikurinn í röð
sem Platini skorar í og er hann nú
markahæstur í ítölsku deildinni
ásamt Zico, báöir hafa skoraö 11
mörk. Sigur Juventus var mjög ör-
Chinaglia
með Lazio?
GIORGIO Chinaglia, markaskor-
arinn mikli, sem síðast lék meö
New York Cosmos í Bandaríkjun-
um, íhugar nú aö taka fram skóna
á ný og fara aö leika meö Lazio á
Ítalíu. Hann er forseti félagsins,
og því hefur gengiö mjög illa í
vetur — hann er nú í næstneösta
sæti 1. deildarinnar.
Liöið tapaöi um helgina fyrir
Pisa og var þaö níunda tap þess í
deildinni í vetur. Framherjinn,
Bruno Giordano, hefur veriö
meiddur í nokkuö langan tíma og
hyggst Chinaglia hressa upp á
framlínu liðsins meö því aö taka
stööu Giordano a.m.k. þar til hann
verður fær um aö leika á ný.
• Gífurleg stemmning er aö öllu jöfnu á áhorfendapöllunum
knattspyrnunni.
ítölsku
—
frfá V _
í fá v g
v n
•*
• ítalskir blsðamenn eru sammála
um að mörkin hans Zico séu engu lík.
Þau sýna anilli hans og hún ar engu
lík, segja þeir. Um helgina skoraði
Zico óvenju glæsilegt mark með
hjólhestaspyrnu.
uggur um helgina og spá flestir liö-
inu sigri, í deildarkeppninni í ár.
Zico skoraöi tvö mörk um helgina
fyrir lið sitt og hefur skoraö þrjú
mörk í síöustu tveimur leikjum.
Zico skoraði síðara mark sitt um
helgina meö glæsilegri hjólhesta-
spyrnu viö mikinn fögnuö allra
áhorfenda og aö sögn ítalskra
blaöa var þetta eitt glæsilegasta
mark sem skoraö hefur verið í
deildarkeppninni í vetur. „Svona
mark sést ekki á hverjum sunnu-
degi,“ sagöi Zico viö fréttamenn
eftir leikinn. Juventus hefur skoraö
34 mörk þegar keppnistímabiliö er
hálfnaö en fengið á sig 16 mörk.
Liö Torino sem er í ööru sæti hefur
aöeins tapaö einum leik á keppn-
istímabilinu en gert átta jafntefli.
Liöið hefur skoraö aöeins 16 mörk
og fengiö á sig 8, enda taliö vera
meö sterkustu vörnina af öllum liö-
unum. Englendingurinn Trevor
Francis lék nú í fyrsta sinn í marga
mánuöi meö liöi sínu Sampdoria
og stóö sig vel þrátt fyrir aö
liö hans tapaöi á heimavelli. Trevor
Francis hefur átt viö mjög slæm
meiðsl aö stríöa í langan tíma en er
nú búinn aö ná sér.