Morgunblaðið - 10.01.1984, Side 22
30
Sól hf.:
10 ára Borg-
firðingur vann
Floridaferðina
TÍU ÁRA drengur, Björn H. Ein-
arsson á Neðra-Hreppi í Andakfl í
Borgarfirði, sonur hjónanna þar,
Jóhönnu Hauksdóttur og Einars
Jónssonar, hiaut Flórídaferð í
vinning frá Sól hf. er dregið var úr
ábyrgðarkortum Soda Stream-
tækjanna.
I frétt frá Sól hf. segir að
dóttursonur Davíðs Sch. Thor-
steinssonar, Davíð að nafni, hafi
dregið út nafn verðlaunahafans,
en Soda Stream-tækið höfðu
þeir feðgar, Björn og Einar,
keypt í Kaupfélagi Borgfirðinga
hinn 6. október sl. — Fylgdi það
jafnframt fréttinni, að þótt allt
væri nú ófært í Borgarfirði
vegna snjóalaga, væri nóg til af
gosi á Neðra-Hreppi!
I)avíð yngri og Davíð eldri draga
út nafn vinningshafans, sem hlaut
Flórídaferð frá Soda Stream.
Fyrst var dregið úr kössum með
röðum miða og síðan eitt nafn
dregið úr þeim kassa, sem valinn
hafði verið.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
Borgardómur í Reykjavík:
Þingfrestum málum
fjölgaði um helming
ÞINGFESTUM málum hjá Borg-
ardómi Reykjavíkur fjölgaði mjög
árið 1983 miðað við árið á undan
— eða úr 8.611 í 12.744. Alls voru
afgreidd mál frá Borgardómi
11.842 miðað við 8.611 árið á und-
an. Þar af voru skriflega flutt mál
11.411. Dómur féll í 876 málum
miðað við 818 árið á undan.
Áskorunarmál hjá embættinu voru
8.623 miðað við 5.929 árið á und-
an. Sættir tókust í 681 máli og
hafin mál eru 1231.
Af munnlega fluttum málum
var dæmt í 187, sættir tókust í
98 og hafin mál eru 74. Hjóna-
vígslum fjölgaði heldur á síð-
astliðnu ári miðað við árið á
undan. Alls voru framkvæmdar
182 hjónavígslur hjá embættinu
í fyrra miðað við 168 árið á und-
an. Leyfi til skilnaðar að borði
og sæng voru 193 miðað við 173
og skilnaðarmál 577 miðað við
521 árið á undan. Sifjamál
vegna slita á óvígðri sambúð
voru 99. Sjóferðapróf voru 23
miðað við 39 árið á undan.
Þá er rétt að geta þess, að
málum áfrýjuðum til Hæsta-
réttar fækkaði á síðastliðnu ári.
f fyrra var 45 málum áfrýjað til
Hæstaréttar miðað við 65 árið á
undan.
Kvikmyndaklúbbur Alliance
Francaise sýnir Les Zotos
Kvikmyndaklúbbur Alliance
Francaise í Reykjavík sýnir á morg-
un, miðvikudag, og miðvikudaginn
18. janúar frönsku kvikmyndina Les
Zozos.
Myndina gerði Pascal Thomas
árið 1972 og fjallar hún um ýmsar
hliðar á uppvexti unglinga úti á
landsbyggðinni. Fréderic og
Francois eru tveir sautján ára
piltar í menntaskóla sem ekki
skipar æðstan sess í hugum þeirra
— þar kemur kvenþjóðin númer
eitt. En draumar og veruleiki eru
ekki eitt og það sama og í þeim
tilgangi að láta draumana rætast
halda þeir til Svíþjóðar sem að
þeirra áliti er paradís frjálsra
ásta.
I
Slökkviliðið í Reykjavík:
Ikveikjur í fyrra 74
FJÓRIR stórbrunar urðu á síð-
astliðnu ári hér á landi. Þar af
varð stórtjón í tveimur fisk-
Frakki tapast
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið
beðið að auglýsa eftir frakka, sem
hvarf í veitingastaðnum Holly-
wood á nýársnótt. Þetta var stór
karlmannsfrakki, dökkur, með
svokölluðu fiskibeinamunstri. í
öðrum vasa hans var Seiko
quarts-silfurúr. Finnandi er beð-
inn að láta vita um flíkina í síma
71375.
vinnsluhúsum, í Hraðfrystihúsi
Keflavíkur og á Hellissandi. Þá
varð mikið eignatjón þegar eldur
kom upp í verksmiðju Álafoss í
Mosfellssveit. Þrír biðu bana
þegar eldur kom upp í nótaskip-
inu Gunnjóni, þegar skipið var
statt út af Vestfjörðum.
Slökkviliðið í Reykjavík var
kallað út 328 sinnum á síðast-
liðnu ári og síðastliðna tvo ára-
tugi hafa aðeins einu sinni orð-
ið færri útköll, en það var árið
1969, en þá var slökkviliðið
kallað út 313 sinnum. Árið 1982
var Slökkviliðið í Reykjavík
kallað út 360 sinnum.
Tvö ungmenni létust í
Reykjavík í eldsvoðum á síð-
astliðnu ári, en enginn beið
bana vegna eldsvoða árið á
undan.
Það er athyglisvert að
íkveikja var algengasta
brunaorsökin á síðastliðnu ári.
Alls reyndust íkveikjur 74. Þar
af var Slökkviliðið kallað 31
sinni út í apríl og maí og í
flestum tilvikum var um sinu-
bruna að ræða. í fyrra kviknaði
eldur 32 sinnum út frá raf-
magnstækjum og í 10 tilvikum
út frá raflögnum.
Eldur í Valhöll
Laust eftir klukkan 14 á laugardag kom upp eldur í auglýsingastofu Ólafs
Stephensens að Háaleitisbraut 1. Slökkviliðið kom fljótt á staðinn og tókst
að slökkva eldinn á skömmum tíma. Skemmdir urðu litlar.
Morgunhlaúiú/Júlíus
Skólabörnin og
— eftir Sigurjón
Fjeldsted
í kvöldfréttatíma hljóðvarps
þann 5. janúar sl. var sagt frá
óveðrinu sem skall á deginum áð-
ur og m.a. rætt við mann á vinnu-
stað í Breiðholti (afgreiðslumaður
hjá Olís í Breiðholti I) um hvernig
skólarnir senda börnin miskunn-
arlaust út í óveðrið. í þessu viðtali,
sem tekur sérstaklega til Hóla-
brekkuskóla, tel ég afar frjálslega
farið með staðreyndir og réttu
máli hallað og ófært að starfsfólk
Hólabrekkuskóla og 6 ára deild-
anna í Gerðubergi sitji undir slík-
um ummælum án athugasemda.
Þar sem ég, skólastjóri Hóla-
brekkuskóla, sat á borgarstjórnar-
fundi umrætt kvöld og fram á
næsta dag, hlustaði ég ekki á
kvöldfréttir og hafði ekki tækifæri
til að hlýða á fréttina fyrr en síðla
föstudags á fréttastofu hljóð-
varps. Eg hafði óskað eftir því að
koma athugasemdum á framfæri
vegna fyrrgreindrar fréttar, en
því miður fengu stuttar athuga-
semdir mínar ekki inni í kvöld-
fréttatíma hljóðvarpsins á föstu-
deginum og taldi ég þá alveg eins
gott eða betra að skrifa nokkur
orð um þetta mál í stað þess að fá
þetta stutta innskot mitt í frétta-
tíma síðar, sem mér var boðið upp
á.
Mikið upp í sig tekið
Fréttamaður hljóðvarpsins seg-
ir eftirfarandi: „Svo virðist sem
mikió hafi verið um að börn hafi
verið send heim til sín úr skólum á
höfuðborgarsvæðinu í óveðrinu í
gær til þess eins að hrekjast við ill-
an leik heim.“
Sá sem vill trúa því að skólarnir
sendi börn út í óveður til þess eins
að hrekjast við illan leik heim,
getur vissulega gert það ef hann
vill, en svona tilgátur í ásökun-
arstíl eru vart svaraverðar, enda
trúi ég því ekki að fyrrum kennari
sem þetta sagði ætli í raun göml-
um kollegum sínum slíka mann-
vonsku.
Þegar óveður skellur á er starfs-
fólki skóla vissulega mikill vandi á
höndum og allt gert til þess að
tryggja börnunum örugga fylgd
heim eða láta þau bíða í skólanum
þar til veðri slotar.
Vegna óveðursins 4. janúar 1983
sem skall óvæntar á en nokkurn
óraði fyrir, setti fræðsluráð
Reykjavíkur reglur fyrir skólana
um hvernig skuli bregðast við í
slíkum tilfellum og veit ég ekki
betur en þær hafi verið haldnar,
þó að deila megi um ágæti þeirra.
óveðrið
„Maður sagði mér ... “
Viðmælandi fréttamanns segir,
að þrjú börn hafi komið úr stræt-
isvagni, sem þau höfðu tekið úr
efra Breiðholti og dvalið á vinnu-
stað í góðu yfirlæti langt fram eft-
ir degi. Ekki efast ég um að þeir
ágætu menn sem hjá Olís starfa á
Álfabakka hafi gert vel við þessi
börn, því að þar hef ég verslað í
áraraðir og aðeins kynnst starfs-
mönnum að góðu einu.
Þeir nemendur sem sækja Hóla-
brekkuskóla koma úr nyrðri hluta
efra Breiðholts eins og þeir vita
sem til þekkja. Örfáir elstu nem-
endur skóians, sem eru að ljúka
grunnskólanámi, en hafa flust úr
skólahverfinu, hafa fengið að
halda áfram skólagöngu í sínum
gamla skóla. Hugsanlegt er að
þessir þrír umræddu nemendur, ef
þeir hafa þá verið úr skólanum,
hafi fengið leyfi til þess að fara
heim á meðan strætisvagnar
gengu. En ótrúlegt finnst mér að
nemendur fari úr strætisvagnin-
um á meðan hann kemst áfram til
þess eins að leita skjóls í bensín-
afgreiðslu Olís, en vissulega getur
allt gerst.
Viðmælandi er spurður hvort
þetta gerist oft. Er skemmst frá
því að segja að hann telur þetta
árvisst, „ekki bara þarna" eins og
Sigurjón Fjeldsted
hann segir, en þar mun vera átt
við Hólabrekkuskóla, heldur í öllu
Breiðholtinu. Viðmælandinn virð-
ist hafa dæmin á takteinum, enda
hefur hann átt börn í Hólabrekku-
skóla um árabil, og ræðir daglega
við fjölda manns á sínum vinnu-
stað, þó að starfsfólk Hólabrekku-
skóla sé á öðru máli.
6 ára börnin í Gerðubergi
Þyngsta tel ég ásökunina í garð
þeirra kennara sem kenna 6 ára
börnum í Gerðubergi.
Fullyrt er að 6 ára barn hafi
verið sent eitt út í veðurofsann kl.
11.30 og hafi móðir þess þurft að
fara á móti því.
Ég óska eindregið eftir því að
foreldrar þessa barns gefi sig
fram og ræði við mig, því að ef hér
er um staðreynd að ræða þá er
alvarlegt mál á ferðinni. Kennar-
ar 6 ára barna, sem voru í Gerðu-
bergi umræddan morgun, fullyrða
allir sem einn að slíkt sé óhugs-
andi.
Þó að erfitt kunni að vera að
sannreyna svona fullyrðingar telj-
um við í Hólabrekkuskóla óþol-
andi, verði þetta mál ekki upplýst
að fullu.
Hvað gerðist í
skólanum 4. janúar?
Nemendur Hólabrekkuskóla
áttu ekki að mæta í skólann þenn-
an fyrsta skóladag á nýbyrjuðu ári
fyrr en kl. 9.40.
Veðurspá dagsins var slæm og
mátti búast við illviðri um eða
fyrir hádegi.
Áður en kennsla hófst ræddi
skólastjóri við kennara skólans og
minnti þá á þær reglur sem settar
höfðu verið og hvernig standa ætti
að málum. Skólastjóri hafði
ennfremur samband við kennara í
Gerðubergi og ræddi sömu atriði
við þá.
Þeir aldursflokkar sem voru í
skólanum umræddan morgun