Morgunblaðið - 10.01.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
35
Neskaupstaður:
Tvö fiskiskip
bættust í
flotann
NeskaupstaA, 28. desember.
ÁRIÐ 1983 heilsaði okkur Norðfirð-
ingum með blíðviðri, og snjólaust
var hér með öllu um síðustu áramót.
Veturinn var óvenju snjóléttur en þó
voraði seint hjá okkur en sumarið
var með eindæmum gott, þurrt og
sólríkt. Mjög góð berjaspretta var
hér í nágrenninu í sumar, og voru
hlíðarnar fyrir ofan bæinn svartar af
berjum. Nýtt og glæsilegt safnaðar-
heimili var vígt hér í blíðskaparveð-
ri. Biskup íslands, herra Pétur Sig-
urgeirsson, vígði og var bæjarbúum
boðið til kaffiveitinga á eftir í hinu
nýja safnaðarheimili. Sundlaug Nes-
kaupstaðar átti 40 ára áfmæli í
suraar og var þess meðal annars
minnst með maraþonsundi sem stóð
í sólarhring.
Einnig var haldið hér Austur-
landsmót í sundi. íþróttafélagið
Þróttur varð 60 ára á árinu. Þess-
ara tímamóta var minnst með
margvíslegum hætti. Allmikil
gróska var í starfsemi félagsins á
árinu, en innan félagsins starfa
nokkrar deildir og hefur víða
náðst góður árangur, þó held ég að
á engan sé hallað þó minnst sé á
athyglisverðan árangur meistara-
flokks karla í blaki. Tvö fiskiskip
bættust í skipastól Norðfirðinga á
árinu, Már VS, 26 lesta stálbátur,
sem gerður hefur verið út á drag-
nót og net og Fylkir Nk, 278 lesta
stálbátur sem gerður verður út á
rækju og fiskitroll, en sem kunn-
ugt er hafa fundist allgóð rækju-
mið út af Austfjörðum, og á tím-
um minnkandi þorskveiði á rækj-
an vafalaust eftir að koma meira
inn í dæmið hér eystra á komandi
árum. Afli trillubáta var allgóður
í sumar en afli togaranna var
heldur tregur. Einn bátur var
gerður út héðan á síld, Börkur Nk.
Saltað var hjá Síldarvinnslunni
hf. og hjá Mána hf. var nú saltað
aftur eftir 15 ára hlé. Fjórir togar-
ar voru gerðir út héðan á árinu og
einn þeirra, Bjartur Nk. er í vél-
arskiptum í Bretlandi. Börkur Nk.
sigldi í sumar með ferskan fisk á
fiskmarkaði í Bretlandi og Fær-
eyjum og gafst það vel. í sumar
var lagður nýr vegspotti inn í bæ-
inn og bætir það innkeyrsluna í
bæinn tii muna. Allmikil endur-
nýjun var hjá Nesprenti, en þar
var véla- og tækjabúnaður endur-
nýjaður og er nú af fullkomnustu
gerð, og fóru elstu vélarnar á
tækniminjasafn á Seyðisfirði.
Sá óvenjulegi atburður átti sér
stað í nóvember að ung kona frá
Dalatanga ól barn á dekki vb.
Anný frá Mjóafirði, rétt fyrir utan
höfnina í Neskaupstað, og gekk
fæðingin vel. Jöfn atvinna hefur
verið hér á Neskaupstað á árinu,
þó minni yfirvinna hafi verið en
oft áður. Af hinu pólitíska sviði
má hiklaust telja markverðast
myndun nýrrar ríkisstjórnar og
lækkun óðaverðbólgu og vaxta í
kjölfarið, sem allir voru farnir að
halda að væri óviðráðanlegt.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
vakti að vonum mikla athygli hér
og glæsilegt kjör Þorsteins Páls-
sonar sem formanns flokksins.
Síðast en ekki síst má nefna hina
svörtu skýrslu fiskifræðinga og
kvótaskiptingu á þorskveiðum í
kjölfarið. Við hér í Neskaupstað
byggjum nær allt okkar á þorskin-
um, og má því með sanni segja að
hinn ungi sjávarútvegsráðherra
hafi fjöregg okkar í höndum sér.
— Gleðilegt ár!
Sigurbjörg
AQKIN HONUSIA
Alþýðubankinn opnar í dag gjaldeyrisafgreiðslu, sem annast al-
menna þjónustu á sviði erlendra viðskipta. Við bjóðum velkomna
ferðamenn, námsmenn og aðra þá sem vilja kaupa eða selja
erlendan gjaldeyri, eða stofna innlendan gialdeyrisreikning.
VISA greiðslukort
til notkunar innanlands
og erlendis
Víð gerum vel vió okkar fólk -
Alþýðubankinn hf.
Laugavegi31 sími 28700 Útibú Suöurlandsbraut 30 sími 82911