Morgunblaðið - 10.01.1984, Qupperneq 40
Tölvupappír
IIII FORMPRENT
Hverfisgolu 70. simar 25960 25566
STAÐFESTIÁNSTRAUST
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Royal Iceland f Bandaríkjunum:
Haftyrðlar hrekjast
hingað undan vindum
SÍÐUSTU daga hafa nokkrir haf-
tyrðlar fundist í Reykjavík og ná-
grenni og munu fuglarnir hafa bor-
ist með vestanvindum frá Græn-
landi, að því er talið er. Haftyrðill
er heimskautafugl af svartfuglaætt,
og algengur á Grænlandi.
Einn slíkan fann Þorvarður
Ólafsson í skipasmíðastöðinni í
Stálvík og kom honum til Mbl.
Fuglinn hafði leitað skjóls undan
vetrarhörkunni. Björn Guð-
brandsson, formaður Fugla-
verndunarfélags íslands, sagði í
samtali við Mbl. að haftyrðlar
bærust hingað ávallt af og til.
Nokkrir slíkir hefðu fundist síð-
ustu daga og ráðlagði Björn að
fuglinum skyldi sleppt við sjó,
hann myndi bjarga sér. Fuglinum
var því sleppt siðdegis í gær.
Lækkar verð á hörpu-
diski um 25 til 30%
ROYAL Iceland í Bandaríkj-
unum, sölufyrirtæki Sigurðar
Ágústssonar hf. í Stykkis-
hólnii, lækkaði verð á hörpu-
diski um 25 til 30% fyrir
skömmu. Aðalástæða þess er
Mjöl og lysiskaup:
óróleiki á markaðnum þar
vestra vegna mikils og
óvænts framboðs á hörpu-
diski frá Perú.
Magnús Þ. Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Royal Iceland, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að
markaðurinn væri nú í hálfgerðu
uppnámi eins og vanalega, hann
væri sveiflukenndur og sveiflaðist
hratt. Mikið af hörpudiski hefði að
undanförnu borizt frá Perú og
væri það meðal annars orsök verð-
lækkunarinnar. Hefði þetta komið
mönnum nokkuð á óvart, en þar
hefðu í haust fundizt ný mið og
teldu menn þetta hugsanlega geta
staðið í sambandi við breytingu á
sjávarstraumum. Hörpudiskurinn
frá Perú væri þokkaleg vara, en
verðstefna þeirra og veiðar frem-
ur frumstæðar. Til dæmis væri
mjög mismunandi verð á hörpU-
diskinum þaðan og veiðarnar
stunduðu þeir með köfurum líkt og
um perluköfun væri að ræða.
Hækkun dollara
dregur úr áhuga
Haftyrðillinn er heimskautafugl af svartfuglsætt. Morpmbi»ai«/RAX.
Einar
í síma-
tíma
í DAG verður annar símatími
íþróttasíðu Morgunblaðsins. Að
þessu sinni er það íþróttamaður
ársins 1983, Einar Vilhjálmsson,
sem svarar spurningum lesenda.
Einar stundar nám við há-
skólann í Austin Texas og fer
utan síðari hluta vikunnar.
Hann mun dvelja ytra fram yf-
ir Ólympíuleikana í Los Angel-
es í lok ágúst. Þetta er því ein-
stakt tækifæri til að spjalla við
hann um íþróttir og afrek
hans.
Eru lesendur hvattir til að
hringja í síma 10100 eða 10108
á milli klukkan 18 og 20 í kvöld
og ræða við Einar. Sjá nánar á
íþróttasíðu.
„Verð á lýsislestinni var komið
upp í 470 dollara og verð á prótein-
einingu á mjöli var um 7,60 dollar-
ar fyrir jólin, en ég held að ekkert
hafi verið selt á þessu ári. Þetta
hefur verið fremur erfitt að und-
anförnu, sérstaklega hvað mjölið
varðar. Kaupendur hafa átt nægar
birgðir í desember og nú í janúar
og við vorum ekki búnir að gera
neina samninga um fyrirfram
sölu, þegar vertíðin hófst og hefur
það ekki gerzt áður. Það hefur þó
kannski tæpur helmingur fram-
leiðslunnar það sem af er verið
seldur.
Það hefur ennfremur gert okkur
erfitt fyrir, að til dæmis Norð-
Bein útsend-
„STÖÐUG hækkun dollarsins hefur
valdið okkur erfiðleikum. Hann hef-
ur líklega aldrei verið eins hár og nú
og hefur það dregið úr áhuga á kaup-
um á lýsi og loðnumjöli, sérstaklega
héðan. Við seljum allt í dollurum, en
dollarinn er ekki gjaidmiðill þeirra,
sem af okkur kaupa. Því verða þeir
að kaupa dollara dýrum dómum til
þess að geta keypt af okkur,“ sagði
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
ríkisins, í samtali við Morgunblaðið.
menn og Danir selja framleiðslu
sína í eigin gjaldmiðlum, sem þýð-
ir einfaldlega lægra verð frá þeim
miðað við dollarinn. Við seljum
ekkert til Bandaríkjanna, þar sem
dollarinn er gjaldmiðill. Þetta fer
aðallega til Bretlands, Finnlands
og meginlandsins og þar er dollar-
inn dýr,“ sagði Jón Reynir Magn-
ússon.
Magnús sagði ennfremur, að
salan, síðan fyrirtækið hefði verið
stofnað um mitt ár í fyrra, hefði
gengið vel. Royal Iceland sæi um
sölu á öllum hörpudiski frá Sig-
urði Ágústssyni hf., er ársfram-
leiðslan þar væri um 500 lestir.
Vonir stæðu til að markaðurinn
jafnaði sig og hægt væri að halda
stöðugu verðlagi í framtíðinni.
ing frá leik
FH-inga og
Tatabanja
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
leikur FH og ungverska liðs-
ins Tatabanja sem leikinn
verður næstkomandi laugar-
dag klukkan 14.30 verði
sýndur í beinni útsendingu í
sjónvarpinu.
Þetta er síðari leikur liðanna
í Evrópukeppninni í hand-
knattleik (IHF-keppninni).
Fyrri leik liðanna lauk með
stórsigri Tatabanja, 35—27.
Forsala aðgöngumiða á leik-
inn hófst síðastliðinn föstudag
og seldust þá um 1100 miðar.
Þeir 150 miðar sem eftir eru
verða seldir í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði í dag á milli klukk-
an 17 og 18.
Sjá nánar á íþróttasíðu.
Þrettándagleði Fáksmanna
Ljósm. Mbl./KÖE.
Það er ekki amalegt að skreppa á bak með jólasveininum áður en hann kveður í bili og hverfur úr bænum. Þessi
jólasveinn mætti á þrettándagleði Fáksmanna að Fáksheimilinu við Bústaðaveg og var hann meðal annarra í fríðu
fylgdarliði álfakóngs og -drottningar sem tendruðu stórann bálköst á þrettándagleðinni, sungu og dönsuðu.
Fésektir vegna hunda:
Gengið verður að fólki
verði sekt ekki greidd
„Dómsmálaráðuneytið lýsti
þeirri skoðun sinni varðandi fé-
sektir vegna brots á banni við
hundahaldi í Reykjavík, að látið
yrði reyna á innheimtu sektarinn-
ar, fremur en að gripið yrði til
vararefsingar, það er fangelsisvist-
ar. En jafnframt að ef ekki tækist
að innheimta sekt, þá yrði Ieitað
fullnustu í eignum — það er geng-
ið yrði að viðkomandi," sagði
William Th. Möller, aðalfulltrúi
lögreglustjórans í Reykjavík, í
samtali við Mbl.
Svo sem fram kom í Mbl. síð-
astliðinn laugardag, var ung
kona sett í hegningarhúsið á
Skólavörðustíg. Henni var gert
að greiða 6.500 króna sekt fyrir
að halda hund, en vararefsing
var 8 daga varðhald. Eftir aðeins
tveggja daga varðhald komu boð
frá dómsmálaráðuneytinu til
lögreglustjóra um að konunni
skyldi sleppt úr haldi og sagði
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri,
að um mistök hefði verið að
ræða.
Það kom fram í máli Williams,
að fólki væri ekki í sjálfsvald
sett hvort það greiddi sekt eða
sæti af sér refsingu í fangaklefa.