Morgunblaðið - 15.01.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.01.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANtJAR 1984 Slippstöðin á Akureyri: Starfsmenn neita að vinna eftirvinnu Akureyri, 13. janúar. ALVARLEG deila er komin upp í Slippstöðinni hf. á Akureyri á milli stjórnenda stöðvarinnar og um 120 manns, sem vinna í járnsmíðadeild fyrirtækisins. Deilan snýst um það, að starfsmenn neita að vinna auka- Sverrir Hermannsson um verkfall í álverinu: Myndi valda erfiðleikum í viðræðum „í BYRJIJN næsta mánaðar hefjast formlegar samningaviðræður við Alu- suisse um framtíð ISAL. Vinnustöðvun hjá því fyrirtæki einu saman myndi valda okkur stórkostlegum erfiðleik- um í þeim samningaviðræðum og stefna málum í mikla óvissu," sagði Sverrir Hermannsson iðnaðarráð- herra, er Mbl. ræddi við hann í gær. Sverrir var spurður álits á boðuðu verkfalli starfsmanna við ÍSAL, en þeir hafa boðað verkfall frá mið- nætti 27. janúar nk. vinnu nema þeir fái fyrstu tvo tím- ana greidda með 80% álagi líkt og næturvinnu, en ekki á eftirvinnu- kaupi eins og samningar kveða á um, en þá er um 40% álag á dag- vinnu að ræða. Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar, er í Reykjavík og ekki reyndist unnt að ná sam- bandi við hann í dag. Svo var einn- ig um Örn Einarsson, aðaltals- mann starfsmanna, og aðrir sem til náðist, vildu ekki tjá sig um þetta deilumál. En eftir því sem Mbl. hefur fregnað, er mikið kergja komin upp í stöðinni og málið allt hið alvarlegasta, þar sem ákveðin verkefni stöðvarinn- ar krefjast þess ávallt að unnt sé að vinna verkin á sem skemmstum tíma. Er jafnvel útlit fyrir að Slippstöðin verði af einhverjum verkefnum vegna þessara aðgerða starfsmanna, og virðist mönnum sem á öllu öðru hafi fyrirtækið þörf á þessum tímum en deilum innbyrðis. Fyrir liggur að eftir einn og hálfan mánuð koma til framkvæmda uppsagnir þær sem boðaðar voru i byrjun desember. G. Berg Björn Björnsson skipaður póstmeistari í Reykjavík Samgönguráðherra, Matthías Bjarnason, skipaði í gær Björn Björnsson póstmeistara í Reykjavík. Björn hefur starfað hjá Póst- stofunni í Reykjavík frá árinu 1946, þar af verið útibússtjóri sl. 20 ár. Þá hefur Björn gegnt fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir póstmenn og m.a. verið formaður Póstmannafélagsins sl. átta ár. Er það í annað sinn sem hann gegnir formennsku í stéttarfélagi sínu, auk þess sem hann hefur gegnt fjölmörgum öðrum trúnaðarstörf- um. Björn er 55 ára að aldri. Hann er gagnfræðingur frá Austurbæj- arskólanum í Reykjavík, auk þess sem hann hefur setið fjölmörg námskeið varðandi starfsgrein sína. Hann er kvæntur Jónu Finnbogadóttur og eiga þau fjögur börn. Skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts brátt verkefnalaus — Vonandi kemur ekki til uppsagna, enda örþrifaráð segir framkvæmdastjórinn Akranesi, 11. janúar. HJÁ SKIPASMÍÐASTÖÐ Þorgeirs & Ellerts hf. á Akranesi, er verið að Ijúka við síðara raðsmíðaverkefnið svokallaða sem stöðinni var úthlutað að tilhlutan síðustu ríkisstjórnar. Standa vonir til að skipið verði afhent í marsmánuði nk. Ekki hefur enn verið gengið frá kaupsamningi á þessu skipi, en um tíma leit út fyrir að aðilar á Akranesi keyptu þaö. Þegar þessu verkefni er lokið bendir ekkert til þess að skipa- smíðastöðin fái nýsmíðaverkefni og er því atvinnuástand í skipa- smíðaiðnaðinum á Akranesi mjög ótryggt. „Við höfum miklar áhyggjur af útlitinu eins og nú stendur," sagði Jósef H. Þor- geirsson, framkvæmdastjóri Þorgeirs & Ellerts hf., í samtali við Morgunblaðið. „Þegar þessu raðsmíðaverk- efni lýkur nú í mars, sjáum við fram á verkefnaskort, því við höfum engin stærri verkefni, að- eins nokkur lítil viðgerðarverk- efni. f raun mun þá ríkja neyðar- ástand hjá fyrirtækinu. Upp- sagnir hafa ekki komið til um- ræðu hjá okkur og koma vonandi ekki, enda eru þær algjört ör- þrifaráð. Hjá okkur vinna mjög góðir starfsmenn. Sumir þeirra hafa unnið hjá okkur áratugum saman, gegnum þykkt og þunnt. Stór hluti starfsmannanna eru menn á besta aldri sem kunna orðið til allra verka við skipa- smíðar. f þriðja lagi erum við með töluvert marga nema og eitthvað verðum við að hafa fyrir þá. í raun má segja að við séum dauðhræddir við þetta ástand en við neitum að trúa því að fiskveiðiþjóðin geti ekki hald- ið gangandi nokkrum velbúnum skipasmíðastöðvum," sagði Jósef að lokum. J.G. Hófu afbrot á ný eftir að félagi losnaði úr fangelsi Björn Björnsson Mbl./ Kristján Einarsson. ÁTJÁN ára piltur hefur verið úrskurð- aður í gæsluvarðhald og tveir 14 ára piltar voru yfirheyrðir af Rannsókna- lögreglu ríkisins vegna innbrotsins í Vilja hluta af ágóða erlends fyrirtækis — segir Gudmundur J. Guðmundsson um kröfur starfsmanna ÍSALs „ÉG HELD þeir hugsi bara sem svo að um rífandi góða útkomu sé að ræða hjá fyrirtækinu og þetta sé erlent fyrir- tæki og þeir vilji fá hluta af þessum ágóða. Þó einhverjir erfileikar séu hjá öðrum líta þeir bara á ÍSAL,“ sagði Um og yfir 20 stiga frost VÍÐA um land er um eða yfir 20 stiga frost nú um helgina, að sögn Þórönnu Pálsdóttur veður- fræðings. Þóranna sagði mest frost vera inn til sveita fyrir norðan og upp til fjalla, en öllu minna út við sjóinn. Annars væri hæglætisveður, austankaldi og smáél á stöku stað. Hún sagði þetta veður væntanlega standa yfir helgi, en útlit væri fyrir að áttin yrði norðlægari í dag, sunnudag. Guðmundur J. Guðmundsson er hann var spurður álits á verkafallsboðun og kröfum starfsmanna ÍSAL. Guðmundur sagði að það ynnu þarna margir Dagsbrúnarmenn, en Dagsbrún væri ekki samningsaðili heldur verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði. Þarna væri í gildi sér- samningur sem væri að mörgu leyti hagstæður fyrir verkamenn. Aðspurður hvort fólk liti til þess- ara krafna til viðmiðunar sagði Guðmundur að hann byggist fremur við því, en hann héldi að starfsmenn ÍSAL litu svo á að þótt aðrir þyrftu að ganga með skertan hlut frá borði væri ástæðulaust að þeir gerðu það líka. „Það er greinilegt að þessar kröf- ur skera sig úr, en mér skilst að röksemdin sé sú sem ég hef nefnt. ÍSAL hefur oft verið sér í samning- um og þeir líta á þetta ákaflega mikið sér, það hefur gerst áður," sagði Guðmundur. — Áttu von á því að kröfugerð Alþýðusamtakanna verði í líkingu við þetta eða meira í lfkingu við kröfur BSRB? „Ég skal ekkert um það segja, en ég get sagt fyrir mig að ég mun berjast hatramlega gegn því, að það verði einhver jöfn prósenta, sem muni leggjast jafnt á öll laun. Það kemur ekki til greina. Það verður að vera meiri hækkun á lægri laun, hæst á lægstu laun og tempra það eftir því sem ofar dregur, hvar sem stoppað verður. Jöfn prósenta er stórháskalegur hlutur," sagði Guð- mundur. Miðbæjarmarkaðinn skömmu fyrir áramót og innbrot 1 Bókabúð Snæ- bjarnar aðfaranótt þriðjudagsins. Piltarnir földu sig í húsakynnum Miðbæjarmarkaðarins að kvöldi 28. desember síðastliðins. Þegar allt fólk var farið úr húsinu, þá hófust þeir handa. Þeir fóru inn í öll fyrir- tæki í Miðbæjarmarkaðnum og stálu allri skiptimynt sem þeir komust yfir. Þeir stálu tékkhefti úr Ferðamiðstöðinni og vantaði 30 eyðublöð þegar RLR komst yfir það. Þá stálu þeir 30 úrum. í verslun SS á götuhæð stálu þeir tóbaki og skiptimynt en létu þar ekki staðar numið. Þeir köstuðu eggjum í veggi og gerðu sér far um að ganga sem sóðalegast um verslunina. Aðfaranótt þriðjudags fóru pilt- arnir inn í Bókabúð Snæbjarnar. Brutu þeir rúðu og komust þannig inn í verslunina og stálu 60 þúsund krónum auk þess að þeir brutu upp hurðir og unnu skemmdarverk. Yngri piltarnir hittu þann eldri í fyrsta sinn í haust og hefur hann síðan verið með þá í „námi", ef svo má að orði komast. Þeir voru hand- teknir fyrir innbrot og var sá elsti sendur í afplánun fyrir eldri brot. Hann losnaði síðan úr fangelsi þann 15. desember síðastliðinn. Yngri piltarnir höfðu haldið sig frá innbrotum á meðan, en það var eins og við manninn mælt — um leið og þeir komu saman hófst afbrotasaga þeirra að nýju. Síðan 15. desember hefur elsti pilturinn orðið uppvís að 7 innbrotum og þeir yngri gerst sekir um alvarleg afbrot. Fannborg, ekki Hamraborg í DAGBÓK Morgunblaðsins í blaðinu í gær er skýrt frá því að á morgun, mánudag, verði á vegum félagsstarfs aldraðra félagsvist í Hamraborg 1 og hefst hún klukk- an 16. Þetta er rangt. Hið rétta er, að félagsvistin er í Fannborg og hefst á áðurnefndum tíma. Skákmótið í Gausdal: Margeir og Jóhann í 2.-4. sæti MARGEIR Pétursson og Jóhann Hjartarson eru í 2.-4. sæti á alþjóðlegu skákmóti í Gausdal í Noregi að loknum fimm umferðum. Þeir hafa hlotið 3'/z vinning ásamt Östermayer frá V-Þýzkalandi en Finninn Valkesalmi hefur forustu með 4 vinninga. en tapaði fremur slysalega fyrir Velkesalmi í 4. umferð. Hafði betri stöðu og peð yfir, en lék slysalega af sér í tímahraki og Finninn náði að knýja fram sigur. Stefán Þórisson hefur 1 vinning að loknum fimm umferðum. Hann gerði jafntefli við Bjerke í 4. um- ferð en tapaði fyrir Brekke í 5. um- ferð. Margeir gerði jafntefli í þremur fyrstu skákum sínum en hefur unnið tvær síðustu. í 3. umferð lagði hann Finnann Yrjola eftir að skákin hafði farið í bið, en Yrjola hefur 2515 Elo-stig. í 5. umferð vann Margeir svo Norðmanninn Leif Ögaard í 45 leikjum. Jóhann Hjartarson vann Hart- mann frá V-Þýzkalandi í 5. umferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.