Morgunblaðið - 15.01.1984, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1984
VERÐ I LAUSASÖLU 20 KR.
Sjómenn á skelfiskveidum. Myndin er tekin nú í vikunni.
Ljósm. RAX.
30—40% af skelinni flutt frá Stykkishólmi?
(■rundarrírdi, 13. janúar.frá Helga Bjarnasyni, bladamanni Mbl.
Á ATVINNUMÁLAFUNDI á Grundarfirði í dag þar sem m.a. var rætt um
hörpuskelveiðarnar á Breiðafirði voru alþingismenn Vesturlandskjör-
dæmis spurðir, hvað þeir hefðu lagt til varöandi veitingu veiði- og vinnslu-
leyfa á hörpuskel. Afstaöa Friðjóns Uórðarsonar kom ekki fram, en hinir
þingmennirnir lýstu því yfir, að þeir teldu að gefa ætti Deiri bátum kost á
að stunda veiðarnar, en ekki ætti að fjölga vinnslustöðvum.
Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, sagði, er hann ræddi
þetta mál, að sjálfsagt yrðu þingmennirnir engir aufúsugestir í Stykk-
ishólmi, ef þeir styddu að 30—40% af skelinni yrðu flutt frá Stykkis-
hólmi, en það væri hlutur sem þeir yrðu að líta framhjá. Á sl. ári var
84% af hörpuskelinni unnin f Stykkishólmi, en þá var heimilt að
veiða 11 þúsund tonn af hörpuskel. Fram til ársins 1981 var öll skelin
unnin í Stykkishólmi, en þá var vinnslustöð í Grundarfirði veitt leyfi
til vinnslu og síðan annarri á Brjánslæk. Búist er við að sjávarút-
vegsráðherra tilkynni um úthlutun skelfiskveiðileyfanna um næstu
mánaðamót, en meira en helmingi fleiri Breiðafjarðarbátar sóttu nú
um veiðileyfi en stunduðu veiðarnar á síðasta ári.
7% aukning erlendra ferða-
manna til Islands árið 1983
Bræðsla
um borð í
• •
Orvar?
Hagnaður af því gæti veg-
ið upp á móti olíukostnaði
ÚTGERÐ frystitogarans Örvars frá
Skagaströnd hefur gengið vel síð-
astliöið ár og nú er verið að huga
að því að setja litla bræðslu um
borð í skipið.
Að sögn Karl Berndsen,
stjórnarformanns Skagstrend-
ings, er tilgangurinn með þessu
að nýta að fullu allan fiskúrgang,
en aðeins eru um 30% fiskjarins
nýtt um borð nú. Reiknaði hann
með því að verð fyrir mjöl og
lýsi, sem með þessum hætti feng-
ist, dygði fyrir olíukostnaði
skipsins og væri þá mikið fengið.
Bæði mætti þurrka mjölið eða
frysta það og selja i loðdýrafóð-
ur.
Þetta væri mun skynsamlegra
en að verka úrganginn í meltu.
Það væri reyndar enginn vandi
að verka úrganginn í meltu, en
það væri nánast ómögulegt að
selja hana. Því væri það tómt
mál um að tala, að skamma út-
gerðarmenn fyrir að sóa verð-
mætum í stað þess að verka úr-
gang í óseljanlega meltu.
Slys um
borð í
Grund-
arfossi
ALVARLEGT slys varð um borð í
Grundarfossi, skipi Eimskipafé-
lags íslands, í Lubeck í V-Þýzka-
landi á fimmtudagskvöldið þegar
2. stýrimaður féll niður í lest
skipsins. Verið var að loka lestum
skipsins þegar manninum skrik-
aði fótur. Fallið er á milli 5 og 6
metrar. Hann liggur nú þungt
haldinn í sjúkrahúsi í Lubeck og
mun höfuðkúpubrotinn og hafa
hlotið innvortis meiðsli.
ALDREI hafa jafnmargir erlendir
ferðamenn lagt leið sína til fslands
og á síðasta ári, en þá komu um það
bil 77.300 manns til landsins. Er það
tæplega 5 þúsund fleiri en árið áður,
sem jafngildir 7% aukningu, en árið
1982 komu 72.600 manns til lands-
ins. Áður höfðu flestir ferðamenn
komið til landsins 1978, 75.700.
Varlega áætlað má gera ráð
fyrir að aukningin þýði um 2l/z
milljón dollara í gjaldeyristekjur
eða um 75 milljónir íslenskra
króna að sögn Birgis Þorgilssonar,
markaðsstjóra hjá Ferðamálaráði,
og er þá gert ráð fyrir að hver
ferðamaður dveljist hér að meðal-
tali i 6 nætur og eyði 40 dollurum
á dag. Samtals eru þetta 30 þús-
und gistinætur og auk þess kemur
til ferðakostnaður til landsins,
sem að miklum meirihluta til
kemur í hlut íslenskra aðila.
Mest er aukningin á ferðamönn-
um frá Bandaríkjunum og Bret-
landi, en einnig er um mikla hlut-
fallslega aukningu að ræða frá
Austurríki. Flestir ferðamenn
koma hingað frá Bandaríkjunum,
25.250, þá frá Bretlandi, 8.950, og
eru þeir nú fleiri en Þjóðverjar,
sem eru 8.800, en um það bil 25%
aukning hefur orðið á ferðamönn-
um frá Bretlandi á árinu. Samtals
frá Norðurlöndunum komu 19.350
ferðamenn, flestir frá Danmörku,
6.650, og rúmlega 5.500 frá Svíþjóð
og Noregi. Fækkun varð á ferða-
mönnum frá Hollandi og Sviss.
Birgir kvað þessa aukningu vera
í samræmi við spá sem gerð hefði
verið 1982 fyrir næstu 10 ár. Spáin
gerir ráð fyrir að á næstu árum
muni farþegum fjölga að meðal-
tali um 3'/i% á næstu árum. Birg-
ir hvað ýmsar orsakir fyrir þess-
ari aukningu, þ.á m. nýjar skipa-
ferðir til landsins og fleiri við-
komustaði flugvéla erlendis, sem
og aukna kynningu.
15.000 króna lágmarkslaun tryggð af almannatryggingum?
Enginn áhugi að tryggja
hag hinna lægst launuðu
— segja Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og
Bjarni Jakobsson í viðtali við Morgunblaðið
VERKALÝÐSHREYFINGIN hefur engan áhuga á að bæta kjör hinna lægst
launuðu. Nú er svo komið hjá fjölda fólks, að það hefur varla til hnífs og
skeiðar, botnlaus örvænting er að grípa um sig meðal fátæks fólks á íslandi
og engum virðist liggja á að leysa vanda þess. Ekki verkalýðshreyfingunni,
ekki atvinnurekendum og ekki ríkisvaldinu. Þetta er meðal þess, sem fram
kemur í viðtali við þau Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur, formann Sóknar, og
Bjarna Jakobsson, formann Iðju, í Morgunblaöinu í dag.
I viðtalinu setja þau Aðalheiður
og Bjarni fram hugmynd um að 15
þúsund króna lágmarkslaun verði
tryggð í gegnum almannatrygg-
ingakerfið, þar sem vonlaust 3é að
það gerist í almennum og frjálsum
kjarasamningum. Þau leggja til,
að launþegar, sem hafa undir 15
þúsund krónum í mánaðarlaun,
njóti „afkomutryggingar" frá
Tryggingastofnun ríkisins, þ.e. fái
mismun milli tekna og 15 þúsund
krónanna. Þau leggja einnig til, að
afkomutryggingin verði fjármögn-
uð að hluta til með núverandi
söluskatti og að hluta með því, að
barnabætur verði takmarkaðar
við þá, sem þurfa á þeim að halda.
„Við horfum daglega framan í
fólk, sem er í algjörum vandræð-
um. Við neitum einfaldlega að
horfa upp á ungt fólk í blóma lífs-
ins niðurbrotið af örvæntingu,"
segja þau í viðtalinu. „Við viljum
ekki trúa því, að þjóðfélagið sé svo
illa statt, að við getum ekki leyst
vanda þessa fólks. Hvað verður
um fjölskyldur, sem ekki eiga að
borða? Við verðum að hugsa um
hvað við erum að gera þessu fólki
og hvar það lendir,“ segja Bjarni
og Aðalheiður.
Sjá nánar á bls. 40 I Mbl.
ídag.