Morgunblaðið - 15.01.1984, Page 7

Morgunblaðið - 15.01.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1984 7 HUGVEKJA_ eftir • • _ sr. Hannes Orn Blandon Hvað er það ágæti lesandi sem vekur þér mestrar gleði., Eru það gamanmyndirnar, sem þú sérð stundum í sjónvarpinu, myndirnar um Steina og Olla eða Áfram þetta og hitt? Eru það kannski ófarir náungans, slys hans og fótaskortur í hálli tilverunni, í framhjáhaldinu, fylliríinu, timburmönnunum, eða er það fegurðin, sem þú sérð í tónlistinni, myndlistinni, náttúrunni. Langar þig til að hverfa á vit orðsnilldarinnar, skáldskaparins, ljóðsins? Svör- in verða eins mörg og mennirn- ir eru margir. 011 á mann- skepnan það sameiginlegt að á hana sækir leiði og þunglyndi á stundum. Þar er ég engin und- antekning. f því ástandi tek ég ýmist þann kostinn að leita á vit Tolkiens, á vit ævintýra, burt úr mennskum heimi hversdagsins, inní furðuheima hins dularfulla, óljósa, myrka og torræða og ímynda mér að ég sé á ferð með þeim Fróða og Pípin í baráttu Ijóssins gegn myrkrinu og við eigum hul- iðshringinn, sem gerir okkur ósýnilega, eða ég leita á vit fagnaðarerindisins. Alltaf eruð þið við sama heygarðshornið, prestarnir, sagði félagi minn einn ágætur, er við settumst niður eftir messu og fengum okkur kaffi. Þarna sitjum við undir þung- lyndislegri fornaldarmúsík hlustandi á þig og kórinn og getum ekki einu sinni tekið undir og þú predikar yfir okkur um eitthvert fagnaðarerindi og brosir ekki einu sinni. Geturðu ekki einhvern tíma sagt okkur einhvern ærlegan brandara, svo við að minnsta kosti bros- um útí annað ef ekki hlæjum hressilega. Það getur verð gott einstöku sinnum að koma niður á jörðina í predikun sinni, jafn- vel þó það kosti magalendingu. Og félaginn lauk úr bollanum, þakkaði fyrir sig og kvaddi og yfir mig þyrmdi enn eitt þung- lyndiskastið. Og ég játaði fyrir sjálfum mér, þó ég vilji ekki viðurkenna það fyrir öðrum, að stundum langar mig ekkert til að heyra mig predika, miklu fremur langar mig að fara suð- ur í Fíladelfíu og hlusta á hann Einar, hann hefir andagift, hann hefir húmor, hann hefir fagnaðarerindi. Ein sú mætasta minning, sem ég á úr guðfræðideild og þær eru margar, átti upptök sín í tíma hjá einum ágætum pró- fessor. Við vorum að fjalla um eitthvað gríðarlega erfitt túlk- unarvandamál, sennilega ein- hverja dæmisögu Jesú Krists „Látum oss hlæja“ og hengdu menn haus um hríð. Og svona til að örva umræður kvað stúdent uppúr með það hve alvarlegur Jesús hefði ávallt verið, hann hefði stund- um tárfellt, en engin dæmi væru um það, að hann hefði nokkru sinni brosað. Enn var þögn um stund. Þá segir allt i einu annar stúdent sem svo: Já, mér finnst alveg vanta í biblí- una setningu sem þessa: Þá fór Jesús að skellihlæja. Og skyndilega voru öll túlkunar- vandamál úr sögunni og menn grétu blátt áfram úr hlátri. Nú var þetta alls ekki meint sem neitt guðlast, síður en svo, heldur sett fram af mestu ein- lægni. Er þá nokkuð gaman í guð- spjöllunum, er ekki einungis fengist við háalvarlega hluti um lífið og tilveruna, drama þessa heims og annars? Ekki ætla ég að fara nánar út í þá sálma hér, aðeins benda á ágætt rit dr. Jakobs Jónssonar »Um Nýja testamentið", þar sem hann á bls. 164 og áfr. fjallar um brosið í Nýja testa- mentinu. Þar leiðir hann getum að því, að stundum hafi Jesús séð hið broslega í fari manna og jafnvel notað líkingar í þeim dúr. Eit hið dýrlegasta í fari manna er húmorinn, gaman- semin. Og hún getur verið hið beittasta vopn og kannski hið eina vopn í baráttunni við ein- ræðisstjórnir víða um heim eins og dæmin sanna. Það er gott að geta hlegið og gamanið nær jafnvel út yfir gröf og dauða ef marka má orð hennar móður minnar, sem á tímabili fékkst við kulk og sær- ingar þær er miðilsfundir nefn- ast. Einu sinni kom hún blað- skellandi heim frá slíkum fundi og ku hafa náð sambandi við löngu látinn föður sinn. Hann var á sinni tíð glæsimenni hið mesta svo að amma sáluga var dauðhrædd um hann. Eitthvað fór afi að spyrjast fyrir um kvenpersónu eina, sem bæði könnuðust við. Og þá gat hún móðir mín ekki á sér setið og segir: Heyrðu pabbi, ertu ekki löngu hættur að hugsa um þess háttar hluti? Ég hættur, hróp- aði afi, þá væri ég eitthvað öðru vísi heldur en ég var. Ekki þori ég að garantera hvar hann afi minn er staddur núna eða hver þetta hafi verið sem lék hans hlutverk í rökkur- óperunni og víst er um það, að nógsamlega er varað við anda- fundum í biblíunni. En hitt veit ég að það er gott að geta hlegið, líka að sjálfum sér. Því vil ég eindregið taka undir þann boðskap, sem barst okkur um jólin frá bókaútgáfunni Salt: Látum oss hlæja. I Guðs friði. Hannes Örn Blandon Barnahúfur: S—M—L kr. 480.- Fulloröinshúfur kr. 542-610.- Lambhúshettur smelltar og bundnar. Póstsendum samdægurs. útiuf Glæsibæ, sími 82922. 1_______ esid reglulega af öllum fjöldanum! HÚFUR Hvernig ávaxtar þú sparifé þitt 0,1,2,3..eða 11 %? Verðtryggður s parnaður — samanburöur á ávöxtun Verötrygging m.v.lánskjaraviBÍtölu Raun- ávöxtun Fjöldl ára tll að tvöf. raungildl höfuðatóla Raunauknlng höfuðat. eftlr 7 ár Veðskuldabréf 10% 7'/» ár 95% Sparisk.ríkissj. 5 ’/i % 13 ár 45.5% Sparisjóðsreikn. 1 y*% 47 ár 11% ENN BATNA KJÖR SPARIFJÁREIGENDA Getum nú boöiö sparifjáreigendum áhættulausa skammtímafjárfestingu frá 45 dögum til allt aö fjögurra ára meö 5% til 5,50% ávöxtun umfram verðtryggingu — án óvissu um endurheimtutíma fjársins. Kynnið ykkur nýjustu ávöxtunarkjörin á Verö- bréfamarkaði Fjárfestingarfélagsins. SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 16. janúar 1984 Spariskírteini og happdrætislán ríkissjóðs Veðskuldabréf — verðtryggð Ár-flokkur Söluqenai Ávöxtun- Dagafjöldi pr. kr. 100 arkrafa ' til nnl.d. 1970-2 17.415,64 Innlv. i Se iðlab. 5.02.84 1971-1 14.711,28 5,00% 1 ár 239 d. 1972-1 13.437,88 5,00% 2 ár 9 d. 1972-2 10.974,74 5,00% 2 ár 239 d. 1973-1 8.369,06 5,00% 3 ár 239 d. 1973-2 8.050,05 5,00% 4 ár 9 d. 1974-1 5.270,44 5,00% 4 ár 239 d. 1975-1 4.002,39 Innlv. í Seðlab 10.01.84 1975-2 3.021,25 Innlv. i Seölab. 25.01.84 1976-1 2.744,72 4,75% \ 54 d. 1976-2 2.273,74 Innlv. í Seðlab. 25.01.84 1977-1 2.001,10 5,00% 69 d. 1977-2 1.676,99 5,00% 234 d. 1978-1 1.356,80 5,00% 69 d. 1978-2 1.071,35 5,00% 234 d. 1979-1 917,74 5,00% 39 d. 1979-2 695,82 5,00% 239 d. 1980-1 596,86 5,00% 1 ár 89 d. 1980-2 461,62 5,00% 1 ár 279 d. 1981-1 395,37 5,00% 2 ár 9d 1981-2 293,73 5,00% 2 ár 269 1982-1 276,05 5,00% 1 ár 45 1982-2 204,88 5,00% 1 ár 255 1983-1 158,14 5,00% 2 ár 45. | 1974-D 5.060,51 5,50% 64 1974-E 3.478,72 5,50% 315 1974-F 3.478,72 5,50% 315 1975-G 2.282,13 5,50% 1 ár 315 r 1976-H 2.113,27 5,50% 2 ár 74 d , 1976-1 1.648.46 5,50% 2 ár 314 1977-J 1.487,50 5,50% 3 ár 75 1981-1.fl 314,20 5,50% 2 ár 105 ö j Sölugengi m.v. 2 afb. á ári Nafnvextir (HLV) Avöxtun umfram verótr. 1 ár 9í>,34 2% 8,75% 2 ár 92,30 2% 8,88% 3 ár 91,66 3%% 9,00% 4 ár 89.36 3V4% 9,12% 5 ár 88,22 4% 9,25% 6 ár 86.17 4% 9,37% 7 ár 84,15 4% 9,50% 8 ár 82,18 4% 9,62% 9 ár 80.24 4% 9,75% 10 ár 78.37 4% 9,87% 11 ár 76,52 4% 10,00% 12 ár 74,75 4% 10,12% 13 ár 73,00 4% 10,25% 14 ár 71,33 4% 10,37% 15 ár 69,72 4% 10,49% 16 ár 68,12 4% 10,62% 17 ár 66,61 4% 10,74% 18 ár 65,12 4% 10,87% 19 ár 63,71 4% 10,99% 20 ár 62,31 4% 11,12% Veðskuldabréf óverðtryggð Sðiimengj m/v \ afb. á ári 18% 20% 25% |HLV| 27% I 1 ár 83 84 87 84, 2 ár 70 72 76 75 I 3 ár 59 61 66 66 i 4 ár 52 54 59 60 5 ár 47 49 54 54 | Hlutabréf Hampiöjan 10% hlutafjár Kauplilboö óskast Daglegur gengisútreikningur Vcrðbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lönaóarbankahúsinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.