Morgunblaðið - 15.01.1984, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1984
1
L O „ m 'l Svipmynd á sunnudegl ■\X . 1
Hafex al Assad,
Sýrlandsforseti
„ASSAD forseti virðir samninga,“ sagði Menachem Begin, forsæt-
isráðherra Israels í Knesset, skömmu eftir að ísraelar gerðu innrás
í Líbanon 1982. Vera kann, að ísraelski forsætisráðherrann hafi
mælt þessi orð af yfirvegun. Hvað sem því líður; fáir drógu í efa að
hann sagði þau af heilum hug. Gnda þótt Assad Sýrlandsforseti sé
hataður í ísrael, hafa margir málsmetandi menn á síðari árum gert
sér grein fyrir því að friður verður ekki tryggður í þessum heims-
hluta, án hans aðildar. Og eins og Moshe Maoz, prófessor við
Hebrew University í Jerúsalem og einn mestur sérfræðinga í ísrael
um sögu múhameðstrúarríkja sagði í viðtali við Mbl. í fyrra: „Assad
forseti er verðugur andstæðingur. I»að er óhjákvæmilegt að við
tölum saman.“
Samantekt: Jóhanna
Kristjónsdóttir
Hafez al Assad er fæddur 1928.
Hann gekk í Baathflokkinn í Sýr-
landi átján ára gamall og varð þar
virkur félagi. Hann nam við
herskóla í Damaskus og síðar í
Egyptalandi. Hann var rekinn úr
hernum meðan hann var þar við
nám, en tekinn í sátt 1963. Hann
komst þá skjótt til metorða og
varð æðsti maður flughers lands-
ins 1964. Hann gegndi fyrsta
skipti ráðherraembætti á árunum
1966—70 er hann var varnarmála-
ráðherra. Á árunum milli
1968—71 kom upp mikil valda-
streita innan Baathflokksins og
var hann í reynd klofinn í tvær
fylkingar. Fram til ársins 1968
hafði forysta flokksins verið í
höndum dr. Atassi og dr. Makhous
og þeir hneigðust æ meir að marx-
isma og juku mjög samskipti við
Sovétríkin. Þegar kom fram á
þetta ár, 1968 var ríkisstjórnin
orðin völt í sessi, meðal annars
vegna hatrammra deilna við nyja
stjórnarherra Baathflokksins í Ir-
ak. Lyktir urðu að ný ríkisstjórn
var mynduð og í henni áttu sæti
ýmsir úr þeim hópi, sem höfðu
gagnrýnt fyrri stjórnvöld. Þessi
hópur gerði minna með hug-
myndafræðilega afstöðu Baath-
flokksins, en hafði á stefnuskrá
sinni bætt samskipti við Araba-
ríkin og útrýmingu Ísraelsríkis.
Forsprakki þessa hóps var Hafez
al Assad. Hann var gagnrýninn á
sovézk áhrif og lagði kapp á að
uppræta þau og hamraði á ara-
biskri þjóðernisstefnu án íhlutun-
ar og afskipta stórveldanna.
Assad reyndi að taka völdin í
febrúar 1969. Þá höfðu orðið ýms-
ar hreinsanir innan forystu
flokksins, fjöldi yfirlýstra komm-
únista hafði flúið land, og leiðtogi
þeirra hélt til Moskvu og settist
þar að. Valdarán Assads mistókst
vegna hótana Sovétríkjanna um
að hætta allri aðstoð við Sýrlend-
inga á sviði hermála og efnahags-
aðstoðar. Þetta hefði orðið sýr-
lenzku þjóðinni dýrkeypt. Leið svo
fram í nóvember 1970, er leyni-
þjónustu landsins bárust fregnir
um að valdarán væri í undirbún-
ingi með stuðningi íraka. Assad
hafði þá engar vöflur á, stuðning-
ur hersins var honum tryggður og
hann tók völdin. Hann var síðan
kjörinn forseti árið 1971 og endur-
kjörinn að kjörtímabili hans
loknu, 1978.
Það sem Assad hafði á stefnu
sinni fyrstu stjórnarárin var eins
og áður segir að efla samstarf
Arabaríkjanna og vinna að því að
koma Gyðingum frá ísrael. Fyrstu
árin reyndi hann nokkuð að tak-
landi, en hefur eftir því sem tímar
hafa liðið hallað sér æ meira að
Sovétmönnum.
Assad forseti er í þeirri sér-
stæðu stöðu að vera af ættflokki
alawita sem er minnihlutahópur í
Sýrlandi og alawitar hafa sætt
vaxandi ofsóknum síðustu ár. Hef-
ur þar yfirleitt verið kennt um
ofstækismönnum úr samtökum
Múslímabræðra. Assad hefur látið
refsa grimmilega fyrir þessi ódæði
og hefur þá að sögn sérfróðra ekki
alltaf verið hugað að því, hvort
það væru hinir raunverulega seku
aðilar sem refsingin bitnaði á.
Fyrstu ár Assads var unnið mikið
umbótastarf í Sýrlandi, hvað
varðar félagsmál, menntunarmál
og heilbrigðismál. Staða konunnar
í Sýrlandi hefur breytzt mjög til
hins betri vegar, einkum í stór-
borgunum í landinu. í sveitunum
er flest með frumstæðari brag,
hvort sem um er að ræða heilsu-
gæzlu eða kvennastöðu. Assad
hefur, þrátt fyrir íhaldssama af-
stöðu múhameðstrúarmannsins til
framfara, sýnt mikla og skörulega
viðleitni til að bæta hag Sýrlend-
inga og stjórn hans hefur þar á
ýmsum sviðum unnið ákaflega
merkilegt verk. En hann hefur
verið sakaður um harðstjórn og
grimmd gagnvart þeim sem ekki
fella sig við skoðanir hans og lífs-
viðhorf og sýnir fjandmönnum
sínum ekki miskunn. Hann hefur
verið tvistígandi í afstöðu til mál-
efna Palestínumanna og sam-
skipti Sýrlendinga við önnur Ar-
abalönd hafa gengið afar brösug
lega. Hann reyndi um skeið að
vingast bæði við Hussein Jórd-
aníukonung, prinsa og kónga
Saudi Arabíu og Sadat Egypta-
landsforseta, en lítið mátti síðan
út af bera til að sambúðin tæki
ekki að kólna og það snarlega.
Fullur fjandskapur er nú með
Sýrlendingum og Egyptum; eftir
að Sadat fór í Jerúsalemferð sína
1977 var hann eins og alkunna er
nánast útlægur ger úr Araba-
heiminum. Assad mælti Sadat
ekki máli og síðan reiddist Assad
Byrjendanámskeið fyrir stúlkur er aö
hefjast
Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka
daga frá kl. 13—22.
JUDÓDEILD ÁRMANNS
ÁRMÚLA 32.
Eigendur og
vélstjórar
Caterpillar
bátavéla
LátiÖ skrá ykkur
strax í dag
á námskeið 18.—20.
janúar 1984
CATERPILLAR
SALA S LUÓNUSTA
Caterpillar, Cat ogEeru skrásett vörumerki
Njarðvík:
Innheimta
góð 1983
Vogum, 13. janúar.
INNHEIMTA Bæjarsjóðs Njarðvík-
ur var góð á síðasta ári miðað við
árið á undan. Alls innheimtust 78,9%
af gjöldum til bæjarins 1983, sem er
12,1% aukning frá fyrra ári, en þá
varð innheimtan 66,8%. Árið 1981
varð innheimtan 71,6%.
1 Njarðvík er prósentutalan
reiknuð af álögðum gjöldum árs-
ins og útistandandi gjöldum fyrri
ára.
Skv. upplýsingum er Mbl. fékk á
skrifstofu Njarðvíkurbæjar var
innheimta jöfn allt árið, enda at-
vinnuástand stöðugt þar til í árs-
lok. Á árinu var ráðinn sérstakur
innheimtustjóri.
EG.
Kvöldsölu-
leyfi 18.300 kr.
Á FUNDI borgarstjórnar á
fimmtudag var samþykkt að
kvöldsöluleyfi vegna verslana í
Reykjavík skuli vera 18.300 krónur
á ári. Gjalddagar eru 15. janúar og
15. júlí ár hvert.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans!