Morgunblaðið - 15.01.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1984
37
Um klæðaburð karlmanna í
Þeir verst
klæddu:
Bandaríkjamenn hafa það fyrir sið að fylgjast grannt með frægu fólki og
fjalla rækilega um hegðan þess í fjölmiðlum. Beinist athygli þessi ekki
síst að leikurum og fólki úr skemmtiiðnaðinum og er fátt í fari þess sem
ekki er dregið fram í dagsljósið. Klæðaburður þessa fólks er að sjálfsögðu
ofarlega á blaði og hinar ýmsu stofnanir og tískufrömuðir velja árlega þá
best klæddu og verst klæddu í „bransanum“. John Tudor heitir stjórnar-
formaður stofnunar sem ber heitið „Tískustofnun Ameríku“ (Fashion
Foundation of America), og nýlega kvað hann upp úrskurð sinn um fimm
best klæddu og fimm verst klæddu karlmenn í bandaríska skemmtiiðnað-
inum.
Þeir best
klæddu:
„Paul Newman hneppir aldrei að sér
jakkanum og er oftast hálfróna-
legur."
Burt Reynolds hefur engan stfl og
gengur oftast í gallabuxum.
Sly Stallone er mjög gamaldags og
ekkert fer honum vel.
Hinir verst klæddu
Efstur á blaði yfir þá verst
klæddu er Tom Selleck (sjón-
varpsstjarna úr „Magnum P.I.“),
en um hann segir Tudor m.a.: —
„Hann hefur rétta limaburðinn til
að bera föt, en smekkur hans er
hræðilegur. Það er engu líkara en
hann kaupi fötin sín í skransölu.
Hann á það til að klæðast teinótt-
um fötum og strigaskóm og það er
bókstaflega engin samræming í
neinu sem hann klæðist. Auk þess
virðist hann gjörsamlega áhuga-
laus um útlit sitt.“
Sylvester Stallone var næstur í
röðinni yfir þá verst klæddu: —
„Hann er óskaplega gamaldags,
fyrir utan að það er eins og ekkert
Tom Selleck hefur hræöilegan fata-
smekk og ekkert samræmi er í
klæðaburði hans.
Woody Allen lítur alltaf út eins og
betlari.
fari honum vel. Fötin hans eru
undantekningarlaust illa sniðin.
KJlæðaburður hans minnir stund-
um á klæðaburð snobbaðra
breskra karlmanna fyrir fimmtíu
árum. Þetta var kannski í tísku
þá, en er bara hallærislegt í dag.“
Woody Allen fær einnig sinn
skammt: — „Gjörsamlega vonlaus
hvað klæðaburð snertir. Hann er
eins og lifandi auglýsing fyrir
„Notað og nýtt“. Það er eins og
allt sem hann klæðist komi frá
„Fátækrahjálpinni“.“ Ef ég sæi
hann á götu myndi ég sennilega
taka hann fyrir betlara og gefa
honum aura. Hann er eins og evr-
ópskur götusópari."
Paul Newman fær þessa um-
sögn: — „Klæðnaður hans lítur út
fyrir að vera mjög óvandaður og
ódýr. Newman er það sem við köll-
um „cheap-looking". Hann hnepp-
ir aldrei að sér jakkanum, sem er
yfirleitt krumpaður, og maðurinn
er allur fremur rónalegur á að
líta.“
Burt Reynolds er síðastur á list-
anum yfir fimm þá verst klæddu
og hann fær þessa umsögn hjá
Tudor: — „Það er allt í ruglingi
hjá honum, hann hefur engan ^
„stíl“. Hann er næstum því alltaf í
gallabuxum og gildir þá einu
hvernig jakka hann er í við galla-
buxurnar. Maður, sem er að verða
sköllóttur eins og hann, ætti að
klæðast fallegum fötum til að
draga athygli manna frá höfðinu."
Snyrtimennin
Bob Hope var sá skemmtikraft-
ur sem Tudor nefndi fyrst í hópi
hinna best klæddu: — „Þú þarft
ekki að líta nema einu sinni á
hann til að sjá að þar fer sannkall-
að snyrtimenni. Hann veit ná-
kvæmlega hverju hann á að klæð-
ast við hin ólíklegustu tækifæri og
er alltaf akkúrat eins og hann á að
vera.“
John Forsythe (sjónvarps-
stjarna úr „Dynasty") var í öðru
sæti yfir þá best klæddu: —
„Hann hefur á sér höfðinglegt yf-
irbragð og er alltaf mjög snyrti-
lega og nánast ríkmannlega
klæddur. Það er fullkomin sam-
ræming í klæðnaði hans, t.d. eru
bindið, klúturinn og skórnir alltaf
í stíl við fötin og skyrtuna."
James Stewart fékk þennan
vitnisburð: — „Hann er hinn full-
komni herramaður um leið og
hann er frjálslegur í klæðaburði.
Það er sjaldgæft að menn geti
sameinað slíkt en James Stewart
er einn þeirra fáu sem tekst það.
Og þó hann sé ekki uppáklæddur
er hann aldrei druslulega til fara,
ekki einu sinni í garðinum heima
hjá sér.“
Um Cary Grant segir Tudor
m.a.: — „Grant er alltaf afar vel
til hafður, í fötum sem fara hon-
um vei. Hann er sönn ímynd
bandaríska herramannsins. Það
gerist oft að ungir menn koma til
mín (Tudor rekur virta sauma-
stofu í New York) og biðja um
„Cary Grant-snið“ á fötin sín. Það
segir meira um Grant og klæða-
burð hans en mörg orð.“
Roger Moore er einnig tilnefnd-
ur í hópi hinna fimm best klæddu.
Tudor segir að „James Bond-
stjarnan sé óvenju næm á smekk-
legan klæðnað. Jakkinn, buxurn-
ar, bindið, skyrtan, skórnir og
klúturinn, allt sé þetta valið af
einstakri nákvæmni og smekkvísi.
Hann er alltaf eins og klipptur út
úr tískublaði," — segir þessi höf-
uðpostuli bandarískra tískufröm-
uða.
(Lauslega þýtt.)
Roger Moore er einstaklega næmur
á smekklegan klæðnað.
Bob Hope er alltaf óaðfinnanlega
klæddur við hvaöa tækifæri sem er.
TEAM
John Forsythe er oftast höfðinglegur
og ríkmannlegur í klæðaburði.
Margir ungir menn vilja fá fotin sín
með „Cary Grant-sniði“.
James Stewart er hinn fullkomni
„herramaður“.