Morgunblaðið - 15.01.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 15.01.1984, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1984 Svavar ttjörnsson á skrifstofu sinni. Segist sakna harð- fisksins allra mest Viðtal við Dalvfkinginn Svavar Björnsson í Finnmarken ,,l*art var hrein og klár tilviljun að ég settist að í Noregi," sagði Svavar Björnsson, 34 ára Dalvíkingur, í viðtali við norska dagblaðið Finnmarken fyrir skemmstu. Svavar tók í ársbyrjun sæti í bæjarstjórn- inni í Vardö eftir að hafa hlotið kosningu sem fulltrúi Verkamanna- flokksins. Svavar hefur látið stjórnmál til sín taka í byggðarlaginu allt frá því hann flutti þangað 1977. Reyndar hafa stjórnmál að eigin sögn verið Svavari hugleikin allt frá því hann var 17—18 ára gam- all. Sagði Svavar við Finnmark- en, að smituðust menn á annað borð af pólitíkinni gengju menn með þann „sjúkdóm" ævilangt. „Mér hefur ætíð fundist ég vera heima hjá mér eftfr að ég kom fyrst til Vardö," sagði hann við blaðið. „Hérna hef ég að hluta til upplifað svipað um- hverfi og heima á Dalvík. Vafa- lítið á sjávarútvegurinn sinn þátt í því að skapa þetta um- hverfi. { viðtaiinu við Finnmarken segist hann tvítugur hafa orðið þingfréttaritari næststærsta dagblaðs landsins og síðar gerst fréttaritari Morgunblaðsins í Stavangri og skrifað um fisk- veiði- og olíumál. Svavar hefur búið í Noregi allt frá árinu 1971 er hann sótti lýðháskóla í Stavangri. Eftir að hann lauk náminu vann hann í Kristiansand og Bergen fram til árins 1977, en hélt þá norður á bóginn og hefur búið í Vardö síð- an. Til íslands hefur Svavar að eigin sögn ekki komið síðan 1979 og segist sannast sagna hafa skammarlega lítil tengsl við ættjörðina. „Ég sakna harðfisks- ins hins vegar hræðilega og fæ sendingu af og til að heiman. Á íslandi nota menn harðfisk sem skyndibita," sagði hann við Finnmarken. Þótt ekki segðist Svavar hafa heimsótt fósturjörðina í meira en 4 ár kvað hann sér ljúft að mæla með landinu fyrir ferða- menn. Þótt vegakerfið væri lé- legt væru flugsamgöngur góðar og landið sannkölluð paradís þeirra, sem áhuga hafa á t.d. laxveiði. Tónskóli Emils Kennslugreinar: Píanó gítar, harmonikka, rafmagnsorgei, munnharpa. Innritun daglega í síma 16239 og 66909 Tónskóli Emils Brautarholti 4. Magadans og rokk í Þórscafé VEITINGAHÚSIÐ Þórscafé hefur nú í undirbúningi skemmtikvöld með nýju sniði fyrir gesti sína og munu danskir skemmtikraftar ríða á vaðið föstudaginn 20. janúar nk., en fostudaginn þar á eftir munu átta íslenskir rokksöngvarar frá „gull- aldarárunum" koma fram á „Rokk- festival ’55—’62“. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem veitingahúsið boðaði til í vikunni sem leið. „Louise Frev- ert, danska magadansmærin, er væntanleg til landsins nú um helgina, en hún skemmtir hér í fyrsta sinn föstudaginn 20. des- ember,“ sagði Pétur Hjálmarsson, skemmtanastjóri Þórscafé. „Hún er lærður dansari og virtur skemmtikraftur hvarvetna á Norðurlöndum. Ég vil taka það fram að hér er ekki um að ræða nektardans, enda höfum við ekki áhuga á að hafa slíkt á boðstólum hér.“ Að sögn Péturs munu tveir karldansarar koma með Louise Frevert til landsins, þeir Arthur Lindhard og Michael Brochorff. „Þeir eru báðir þekktir jazz- og modern-balletdansarar og hófu að dansa með Louise síðastliðið vor, en hún hafði þá komið fram sem sólódansari í fimm ár.“ „Rokkfestival ’55—’62“ er dagskrá sem átta rokksöngvarar standa að. Undirleik annast hljómsveit hússins, Dansbandið, undir stjórn Þorleifs Gislasonar saxófónleikara, en auk hans mun Rúnar Georgsson einnig blása í saxófón. Aðspurðir um, hvort hér væri um að ræða endurtekningu á Rokkhátíðinni í fyrra, sögðu söngvararnir að svo væri ekki, hinsvegar mætti líta á þetta sem einskonar framhald, enda hefðu Rokksöngvararnir átU, sem standa að „rokkfestival '55—’62“. f efri röð eru talið frá vinstri: Stefán Jónsson, Þorsteinn Eggertsson, Garðar Guðmunds- son, Sigurdór Sigurdórsson og Berti Möller. I neðri röð talið frá vinstri eru: Astrid Jensdóttir, Mjöll Hólm og Anna Vilhjálms. Lj6sm Mb, Friðþj6fur HUGSAÐU þig tvisvar um áður en þú kaupir gufugleypi. Flestir gufugleypar eru eins, en Blomberg E 601 gufugleypirinn getur sparað þér mikla orku á köldum vetrarmánuðum Með einu handtaki er hægt að breyta loftblæs- trinum frá útblæstri í hringrás um kolasíu. Hafðu þetta hugfast, þegar þú kaupir gufugleypi. Og það er 2ja ára ábyrgð á Blomberg, taktu eftir því. Blomberq EINAR FARESTVEIT &< CO. HF. þau haft mjög mikla ánægju af þátttöku í hátíðinni i fyrra og hefðu ákveðið að halda áfram. „Okkur finnst vel við hæfi að það eigi sér stað í Þórscafé, því það var í rauninni hérna, sem þetta allt saman byrjaði," sagði Berti Möller og bætti því við að allir söngvar- arnir hefðu einhverntíma á sinum ferli sungið í Þórscafé, en auk Berta koma fram Stefán Jónsson, Þorsteinn Eggertsson, Garðar Guðmundsson, Anna Vilhjálms, Mjöll Hólm, Astrid Jensdóttir og Sigurdór Sigurdórsson. Auk þess munu dansarar frá Dansskóla Eddu Scheving sýna dansa frá gömlu rokkárunum. Á fundinum kom fram að um- talsverðar breytingar hafa verið gerðar á ljósabúnaði í efri sal veit- ingahússins og ennfremur að fyrir hendi væri útbúnaður til að sjón- varpa skemmtiatriðum í diskóteki á neðri hæð. af meginþorra þjóöarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80 BERGSTAÐASTRÆTI I0A Sími 16995

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.