Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984
t
Móöir okkar.
SIGURVEIG ÓLADÓTTIR,
Hátúni 4,
Reykjavík,
andaöist aö Sólvangi Hafnarfiröi 20. þessa mánaöar.
Jón Þorláksson,
Ólafur Þorláksson,
Anna Þóra Þorláksdóttir.
t
Móöir okkar,
INGUNN ÞORLEIFSDÓTTIR,
frá Eskifíröi,
Tómasarhaga 41, Reykjavík,
lést 21. febrúar á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Börnin.
t
Móöir okkar,
RANNVEIG Þ. ARNAR,
Stórholti 17,
lézt 14. febrúar.
Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Erna Arnar,
Örn Arnar,
Björn Arnar.
t
Útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu,
AUÐAR STEINSDÓTTUR,
Selvogsgrunni 25, Reykjavík,
fer fram frá Áskirkju viö Vesturbrún, Reykjavík, föstudaginn 24.
febrúar kl. 15.00.
Þorateinn Bernharösson,
Halla K. Þorsteinsdóttir, Þorgeir Einarsson
og barnabörn.
Móöir okkar. t
SIGURJÓNA ANNA SÓFUSDÓTTIR, Fossheiói 58, Selfossi, áóur Brekkuhrauni 18, Hafnarfiröi, veröur jarösungin frá Hafnarfjaröarkirkju fimmtudaginn 23. febrú-
ar kl. 15.00. Kristín Ingólfsdóttir, Ásgeir Sigurósson, Már Ingólfsson, Bryndís Tryggvadóttir, Magnús Nordgulen, Aldís Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginmaöur minn,
KRISTJÁN SCHRAM,
fyrrverandi skipstjóri,
Vesturgötu 38B,
verður jarösunginn frá Dómkirkjunni í dag, miövikudaginn 22.
febrúar, kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Lára Schram.
t
Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
GUÐMUNDAR H. JÓNSSONAR,
Furugeröi 1,
fer fram fimmtudaginn 23. febrúar kl. 15.00 frá Langholtskirkju.
Blóm og kransar afþakkaö en þeim sem vildu minnast hans er
vinsamlega bent á líknarstofnanir.
Sólborg K. Jónsdóttir,
Jónína M. Guömundsdóttir, Björgvin H. Kristinsson,
Valgeir Ó. Guömundsson, Kristín Kragh,
María Guðmundsdóttir, Jón Ó. Jónsson,
Sigrún E. Guömundsdóttir,
barnabörn og langafabarn.
t
Hjartanlegar þakkir fyrir auösýnda samúö og mikla vinsemd viö
andlát og jaröarför sonar mins, fööur okkar, afa míns og bróöur,
OLE NORDMAN OLSEN,
forstjóra,
ísafiröi.
Magnúsína Olsen, Selma Olsen,
Kristbjörg Olsen, Martha Ruth
og Inga Rut Olsen.
Minning:
Grétar Þór Karlsson
yfirskoðunarmaður
Fæddur 19. júní 1932.
Dáinn 14. febrúar 1984.
Félagi okkar og vinur, Grétar
Þór Karlsson, kvaddi á besta aldri
eftir mjög stranga sjúkdómslegu.
Við söknum hans úr hópnum,
sem hefur haldið saman allt frá
því við vorum unglingar og átt
samverustundir í skíðaferðum áð-
ur fyrr en ekki síst mörg siðustu
árin á heimilum hvers annars. Við
vorum 24 í hópnum en nú eru þrír
horfnir heim í himin Guðs.
í nóvember síðastliðnum hittum
við Grétar síðast í hópnum á
heimili eins félagans. Við hlýdd-
um saman á erindi læknis og
rannsóknarmanns, sem við höfð-
um fengið þetta kvöld til þess að
fræða okkur um áhugavert efni.
Við áttum samræður á undan og
eftir og mér er minnisstætt það,
sem Grétar lagði til samræðnanna
í hógværð sinni og yfirlætisleysi.
Kvöldinu lauk síðan eins og öllum
okkar samverustundum í hópnum
með því að hlýða á lestur úr Ritn-
ingunni og með bæn fyrir ástvin-
um okkar og útbreiðslu ríkis Guðs
á jörðinni. Það stóð til að næsta
samverustund yrði á heimiii Grét-
ars og Sigrúnar, en þegar að deg-
inum kom hafði hann verið fluttur
á sjúkrahús og mikil alvara blasti
við. Nú er hann leystur frá öllum
þrautum, kominn yfir á land frið-
arins að eilífu.
Grétar Þór var sonur hjónanna
Elínar og Karls Bender, verslun-
armanns. Þau syrgja nú einka-
barn sitt, Guð styrki þau og huggi.
Hann var alinn upp í Vesturbæn-
um og eignaðist í hæglátri gleði
sinni góða vini á bernskuárunum.
Á þeim tímum voru ekki eins mik-
il almenn umsvif, tíminn leið hæg-
ar. Þá var hægt að taka eftir svo
mörgu í umhverfinu og margt,
sem gat orðið að leik og starfi.
Bekkjarsystkinin í Landakotsskól-
anum bundust tryggðarböndum,
þau unnu saman að námi sínu og
framförum. Þau sameinuðust líka
um verkefni, sem tengdust ekki
beint sjálfu náminu en færðu þeim
þrótt og þroska. Þau vildu leggja
mikið á sig til þess að fyrirætlanir
tækjust, þau tóku sig saman og
komu á leiksýningum til ágóða
fyrir skólann sinn, sagði mér
bekkjarsystir hans, og nutu þá til-
styrks hinna fullorðnu. Þá átti
hópurinn góða að þar sem voru
foreldrar Grétars, þaðan kom oft
stuðningur, sem þeim þótti muna
mikið um.
Grétar varð á unglingsárum
sínum virkur félagi í KFÚM og
trúfastur í sínum hópi. Þar var
líka tekist á við verkefni til þess
að styrkja félagsstarfið og vin-
áttubönd voru tengd. I þessum fé-
lagsskap fann hann konuefni sitt,
Sigrúnu Haraldsdóttur, og gengu
þau í hjónaband 23. júní 1962,
eignuðust indælt heimili og tvö
börn, Harald, iðnnema, 20 ára, og
Elínu, 10 ára.
Grétar var umhyggjusamur
heimilisfaðir og heimakær. Marg-
ar unaðsstundir átti hann í garð-
inum við heimili sitt. Þar ræktaði
hann af stakri alúð fjölmargar
tegundir skrúðjurta, hlúði að þeim
sem best hann mátti. Umhyggja
hans náði víðar. Foreldrum sínum
sýndi hann sérstaka ræktarsemi
sem góður sonur og hlýr.
Grétar lærði loftskeytafræði og
útskrifaðist sem loftskeytamaður
og vann um árabil á Lóranstöðinni
á Reynisfjalli í Mýrdal, en fjar-
skiptatæknin náði frekari tökum á
honum og hann bætti við sig í
námi og varð símvirkjameistari.
Hann starfaði sem yfirmaður við
radíóeftirlit Póst- og símamála-
stjórnar mörg síðustu árin.
Við félagarnir í gamla skíðafé-
laginu okkar kveðjum Grétar í dag
og þökkum honum samveruna og
vottum öllum ástvinum hans inni-
lega hluttekningu okkar og biðjum
góðan Guð að styrkja þau öll og
blessa.
S.H.H.
í dag verður gerð útför Grétars
Þórs Karlssonar, yfirskoðunar-
manns, sem andaðist 14. febrúar
1984 eftir stutta en erfiða sjúkra-
legu. Grétar heitinn fæddist í
Reykjavík 19. júní 1932, sonur
hjónanna Elínar Valdimarsdóttur
Bender og Karls Bender, verslun-
armanns.
Að loknu venjulegu skólanámi
innritaðist Grétar í Loftskeyta-
skólann og lauk prófi í lok ársins
1954. Fyrsta starf flestra loft-
skeytamanna er á sjónum og
Grétar var þar engin undantekn-
ing, en 1. janúar 1956 réðst hann
til Pósts og síma og átti þar síðan
sitt ævistarf. Fyrstu árin vann
hann á lóranstöðinni á Reynis-
fjalli en 1961 fluttist hann á ný til
Reykjavíkur og vann hjá radió-
verkstæði símans að viðgerðum á
tækjum í skipum. Á þessum tíma
fann Gretar hjá sér þörf fyrir
frekari menntun og hóf nám í sím-
virkjun, sem hann lauk 1963.
Fleira var á döfinni hjá Grétari á
þessum árum og á miðju ári 1962
kvæntist hann eftirlifandi konu
sinni, Sigrúnu J. Haraidsdóttur.
Eignuðust þau tvö börn, Harald
Þór og Elínu Klöru.
í ársbyrjun 1968 verða enn
nokkur þáttaskil í starfsferli
Grétars, þegar hann flytur sig um
set í radíóeftirlitið þar sem hann
fór að vinna við tækjaskoðun og
eftirlitsstörf undir handleiðslu
Jóns Eiríkssonar, þáverandi yfir-
manns radíóeftirlitsins. Hinn 1.
febrúar 1977 var Grétar skipaður
yfirskoðunarmaður í radíóeftirlit-
inu og gegndi því starfi til ævi-
loka.
Eins og framangreind upptaln-
ing gefur til kynna var ákveðin
uppbygging í starfsferli Grétars
hjá Pósti og síma og sýnir hún vel,
hvernig hann gekk til verks. Það
var ekki í hans eðli að flana að
hlutunum en þess ákveðnari var
hann í afstöðu sinni eftir á. Þessi
vinnumáti átti vel við í starfi hans
í radíóeftirlitinu og reyndist það
starf stofnuninni farsælt. Ekki
dró það úr að vinnuafköstin voru
mikil og kom það sér oft í góðar
þarfir, þegar skoða þurfti radíó-
tæki fiskiflotans áður en vertíð
hófst. Þess mun ég þó lengst
minnast, hversu áreiðanlegur
Grétar var í starfi.
Það var fátítt að Grétar kenndi
veikinda. Á síðastliðnu hausti
fann hann fyrst til þess meins,
sem nú hefur lagt hann í valinn á
besta aldri. f hinum erfiðu veik-
indum sínum naut hann mikils
styrks frá eiginkonu sinni. Um
leið og við samstarfsmenn Grétars
þökkum honum góða viðkynningu
og góðar stundir, sendum við konu
hans, börnum og foreldrum inni-
legar samúðarkveðjur og vonum
að minning um góðan dreng megi
styrkja þau.
Gústav Arnar
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaöur. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaösins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
.
t
Innilegar þakkir tyrir auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og
útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og lang-
ömmu,
JÓNÍNU PÁLSDÓTTUR,
Hrafnistu, Laugarási.
Þakklæti færum viö meölimum Filadelfíusafnaöarins, einnig færum
viö starfsfólki Hrafnistu þakkir fyrir góöa umönnun og hjúkrun.
Páll Júlíus Einarsson,
Margrét Pálsdóttir, Súsanna Pálsdóttir,
Andrés Pálsson, Anna P. Bernburg,
Hanna Pálsdóttir, Emil Ólafsson,
Marie Therese Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir til allra nær og fjær fyrir auösýnda samúö og
vinarhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, afa og
langafa,
HALLDÓRS GUNNARSSONAR,
skipstjóra,
Austurvegi 13, ísafirói.
Sigrún Halldórsdóttir, Hringur Hjörleifsson,
Guðfínna Halldórsdóttir, Árni Ragnarsson,
Ragna S. Halldórsdóttir, Elvar Ingason,
Báröur G. Halldórsson, Álfhildur Pálsdóttir,
Guórún Halldórsdóttir, Árni Sigurðsson,
Asgeróur Halldórsdóttir, Jóhann Alexandersson,
Kolbrún Halldórsdóttir, Pétur Jónason,
barnabörn og barnabarnabörn.