Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984 23 ferð sigraði hann Lobron í sérlega sannfærandi skák og í fyrrakvöld fékk Jón svipaða meðferð. Jóhann einfaldaði taflið snemma í báðum skákunum og dró þar með víg- tennurnar úr mótspili andstæð- inganna. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Jón L. Árnason Benoni-byrjun I. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 — c5, 4. d5 — exd5, 5. cxd5 — d6, 6. Rc3 — g6, 7. Bf4 — a6 Guðmundur Sigurjónsson lék 7. — Bg7 gegn Jóhanni á Búnaðar- bankamótinu, sem svarað var með 8. Da4+ — Bd7, 9. Db3. 8. a4 — Bg7, 9. e4 — Bg4,10. Be2 — Rh5!? 10. — 0-0 er að sjálfsögðu mun algengari og eðlilegri leikur. II. Bg5! — Bf6, 12. Bh6 — Rd7, 13. Rd2 — Bxe2, 14. Dxe2 — Bg5, 15. Bxg5 — Dxg5, 16. g3 — 0-0, 17. f4 — De7, 18. 04) — f5? Hindrar 19. e5 — dxe5, 20. f5, sem er þekkt peðsfórn í slíkum stöðum. 18. — f6 var betra, en of hægfara fyrir Jón. 19. Hael — Hae8, 20. Rc4 Svartur á nú í miklum erfiðleik- um vegna hótunarinnar 21. e5 — b5, 21. axb5 — axb5, 22. Rxb5 — Dxe4 23. Dd2!! - Dxc4, 24. Rxd6 Svartur tapar nú a.m.k. skipta- mun. 24. — Hxel, 25. Rxc4 — He4, 26. Rd6 — Hd4, 27. De2 — Rhf6, 28. De6+ — Kg7, 29. Hal — Hb8, 30. De7+ — Kg8, 31. Df7+ — Kh8, 32. Rb5 — He4, 33. Rc7 — Hf8, 34. Ha8 — Hxa8, 35. Rxa8 — Hel+, 36. Kf2 — Hbl, 37. Rc7 — Hxb2+, 38. Kel — Hb8, 39, Re6 — Hg8, 40. d6 — h6, 41. Kdl — g5, 42. De7 — gxf4, 43. Rxf4 — Hg7, 44. De6 — Hg8, 45. Rh5, 46. Dxh6 mát. Þjónustuíbúðir Sjó- mannadags í Garðabæ: Hamarinn hf. átti lægsta tilboðið ÞANN 14. febrúar sl. voru opnuð til- boð í að gera 28 verndaðar þjónustu- íbúðir aldraðra, sem Sjómannadagur- inn byggir í Garðabæ, fokheldar. Með opnun þessara tilboða má segja að 75% heildarkostnaðar sé þekktur. Að þessu sinni bárust 11 tilboð. Helztu niðurstöður: kr. 1. Hamarinn hf. 18.712.600 75,9% 2. Bergverk hf. 19.604.606 79,4% 3. Sköfur 19.952.657 80,8% 4. Fjarðarmót 19.998.350 81,0% Hæsta tilboð 23.242.677 94,1% Kostn.áætl. 24.692.974 100,0% (Frétt frá Sjómannadagsráði.) Alþýðuleik- húsið í MH í KVÖLD, miðvikudag, sýnir Alþýðu- leikhúsið einþáttunginn Kynórar á Lagningardögum Menntaskólans við Hamrahlíð. Kynórar eru annar einþáttungur- inn af tveim sem Alþýðuleikhúsið hefur undanfarið sýnt á Hótel Loft- leiðum undir samheitinu Andar- dráttur, og hafa undirtektir verið mjög góðar. Meðan á Reykjavíkurskákmótinu stendur hefur Alþýðuleikhúsið orðið að gera hlé á sýningum en byrjar af fullum krafti þegar skákmótinu lýk- ur. Stjórnarfrumvarp: Nýr vísitölugnindvöllur Matvorur M )ol. gr)óf», bakaðar vórur Kjðt. kjötvörur Fiskur. ftskvörur Mjólk. rjómi. ostar, cgg Fcitmeti, olíur Grrnmeti. ávextir.ber o n Kartoflur. vörur úr þeim Sykur Kaffi. le. kakaó. súkkulaoi Aðrar matvorur Drvkk)arvorur. tóbak Gosdrykkirogól Áfengi Tóbak Fót. skófatnaður e">. W*vi»«eri)ito H Skófatnaður Húsnacði. rafmagn. hiti Húsiueðiskostnaður Rafmagns- og hitunarkostnaður Húsgögn. heimilisbúnaður Húsgógn. gólfteppi o. fl. • • Vefnaðarmunir til heimilishalds Kæbskápar. ónnur rafmagnsbusáhold Borðbúruðu.. •«***““ ”. !' Vmsa. vðni. og þjónusta til heim.tishaUl. Bamaham..liiKöld.hú.h|álpo fl Hetlsuvernd Flulh.ng.lrti. Ia.ð.1. P*«“' °* Eigm flutmngstæki Notkun almennra flutmngst*k)a Póstur og sími Tómstundaiðkun og menntun T*k)abúnaður Opinbcrar sýmngar. þjónusta o fl B*kur.blóð.timarito fl Skólaganga Aðrar vörur og þjónusta Snyrtivörur. snyrting • Ferðavörur, úr, skartgnpir o n Veitingahúsa og hótelþ)6nusta. orlol Tryggingaro 0 pjónustaót a Félagsgjöld Útgjaldaupph*ðir. kr Nýt N“8,,d grunnur grunmu_ Hlutfallslcg skipting Nýr Núgild grunnur grunnur 125 634 15 931 26 952 5 486 24 547 6 605 16 225 2 221 1 159 3 811 22 697 26 481 7 294 6 756 12 431 113 399 13 756 28 268 11 212 24 662 7 157 15 198 3 232 2 059 4 035 3 820 17 969 3 012 5 821 9 136 50 265 35 732 4 723 9 810 97 112 65 000 32 112 51 917 18 363 9 672 5 171 4 407 8 243 6 061 9 963 110 870 94 515 9 553 6802 59 604 20 337 20 654 15 914 2699 40 936 28 749 3 445 8 742 45 137 26 350 18 787 53 189 39 135 9 101 4 953 27 610 5 709 8 935 11 210 l 756 19 963 6 858 4 165 8 601 339 0.9 0,8 1.7 10.1 3.5 3.5 2,7 2 937 588 789 351 719 100.0 3.2 0.8 .ooTo Eins og frá var sagt í frétt á bak- síðu Mbl. í gær hefur Matthías A. Mathiesen, sem er ráðherra Hag- stofu íslands, lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um vísitölu fram- færslukostnaðar og skipan kauplags- nefndar. Samkvæmt frumvarpinu skal kauplagsnefnd reikna vísitölu framfærslukostnaðar eftir nýjum vísitölugrundvelli, byggðum á niður- stöðum neyzlukönnunar árin 1978 og 1979, sem kauplagsnefnd og Hag- stofan hafa gert. Grunntala þessarar vísitölu skal miðuð við 100 í febrú- arbyrjun 1984, og skal reikna hana fjórum sinnum á ári, í febrúar, maí, ágúst og nóvember, eftir grund- vallarreglum, sem kauplagsnefnd setur. Hér fer á eftir niðurlag greinar- gerðar, sem frumvarpinu fylgir, sem og tafla yfir skiptingu út- gjalda í væntanlegum nýjum vísi- tölugrundvelli og samanburður við núgildandi grundvöll. „Útgjaldaskipting samkvæmt neyslukönnun 1978/79 og sam- kvæmt gildandi vísitölugrundvelli borin saman. Hér með fylgir yfirlit um skiptingu útgjalda i væntan- legum nýjum vísitölugrundvelli, miðað við verðlag í febrúarbyrjun 1984. Til samanburðar eru í yfir- litinu útgjaldafjárhæðir gildandi vísitölu á sama tíma. Hér hafa all- margir liðir í henni verið færðir milli flokka til þess að gera þá sambærilega við neyslukönnun 1978/79 að því er varðar greiningu vöru og þjónustu á flokka. Þetta yfirlit segir margt um áorðnar breytingar á neysluvenjum laun- þega á tímabilinu frá 1964/65 til 1978/79, er neyslukönnun var gerð á ný. En þess er að gæta, að sam- anburður á vægi útgjalda sam- kvæmt yfirlitinu leiðir oft til vill- andi niðurstöðu vegna mismikilla verðhækkana á umræddu tímabili. Hér á eftir er því, að því er varðar sum útgjöld, annars vegar gerður samanburður á vægi þeirra í 1968-grundvelli á grunntíma hans, og hins vegar á vægi þeirra í Væntanlegum nýjum grundvelli miðað við verðlag í febrúarbyrjun 1984. Ef litið er á matvöruflokkinn í heild er vægi hans samkvæmt niðurstöðum 1978/79-könnunar 21,4%, en hlutdeild matvöru i nú- gildandi vísitölu á grunntíma hennar 1968 var 27,9%. Sú tiltölu- lega mikla hlutdeild er 1. febrúar 1984 komin upp í 32,2%, vegna verulega meiri verðhækkunar matvöru en orðið hefur á öðrum vísitöluliðum. Vægi útgjalda til búvörukaupa í 1968-vísitölu var á grunntíma hennar 13,7%, og 15,5% í febrú- arbyrjun 1984, en í væntanlegum nýjum grunni er vægi þeirra um 8% miðað við verðlag í febrúar- byrjun 1984. Mjög veruleg minnk- un hefur orðið á neyslumagni eft- irtalinna matvörutegunda frá því, sem er í gildandi vísitölugrunni: Nýmjólk úr 940 lítrum í 598 lítra, kartöflur úr 250 kg í 98 kg, strá- sykur úr 79 kg í 49 kg. Hér verður að hafa í huga, að nýja „vísitölu- fjölskyldan" er minni, eða 3,66 einstaklingar á móti 3,98 í gild- andi vísitölu. Ennfremur verður að taka tillit til þess, að hér er um að ræða bein heimilisútgjöld til kaupa á þessum vörutegundum — neysla á þessum vörum í mötu- neytum og á veitingahúsum, sem hefur aukist stórlega, er utan við þessar neyslumagnstölur og hún liggur ekki fyrir sundurgreind. Þrátt fyrir þetta er um að ræða verulega raunverulega minnkun á neyslu þessara vörutegunda. Geta má þess, að neyslumagn gos- drykkja og sælgætis hefur sam- kvæmt neyslukönnun 1978/79 stóraukist frá því, sem það var 1964/65. Mjög veruleg aukning hefur og orðið á neyslu nauta- kjöts, svínakjöts og fuglakjöts. Útgjöld vegna eigin bifreiðar námu 11,1% af heildarútgjöldum á grunntíma 1968-vísitölu, en í væntanlegum nýjum grundvelli nemaþau 16,1%. 55% af fjölskyld- um núgildandi vísitölu eru með eigin bifreið, en í nýja grundvell- inum eru allar fjölskyldurnar með eigin bifreið. Veruleg aukning hefur orðið á vægi útgjalda til tómstundaiðkun- ar og þess háttar. Má þar nefna útgjöld til kaupa á sjónvarpstækj- um, hljómtækjum, myndavélum og alls kyns íþróttabúnaði, svo og útgjöld vegna tækja, sem hafa komið til á seinni árum (video- tæki, kassettur, vasatölvur). Þá má nefna stóraukið vægi útgjalda vegna hestamennsku, viðleguút- búnaðar, skrúðgarðsræktunar, sundiðkunar, lax- og silungsveiða, dansnámskeiða, nudds og gufu- baða, sólarlampa, o.m.fl. Liðurinn orlofsferðir til út- landa, sem er með útgjöldum til veitingahúsa- og hótelþjónustu neðarlega í yfirlitinu, er ekki til í gildandi vísitölu, en vægi hans í væntanlegum nýjum grundvelli er 3,3%. Þá má að lokum nefna stóraukið vægi útgjalda til barnagæslu, á dagvistarheimilum, í leikskólum og hjá svonefndum dagmömm- um.“ Afleiðingar bankaránanna: Skriða af beiðnum um verð- mætaflutninga til okkar — segir Jóhann Guómundsson, framkvæmdastjóri Securitas „ÞVÍ ER ekki að neita að þetta hefur hleypt af stað skriðu af beiðnum um verðmætaflutninga hjá okkur,“ sagði Jóhann Guð- mundsson, framkvæmdastjóri öryggisgæslufyrirtækisins Secur- itas, í samtali við blm. Mbl., en hann var spurður hvort aukning hefði orðið á beiðnum um að fyrirtækið sjái um verðmæta- (lutninga, í kjölfar bankarán- anna tveggja á dögunum. Jóhann sagði aðspurður að hér væri bæði um að ræða banka og fyrirtæki. „Vegna þess að við tökum fulla ábyrgð á flutningunum, þá erum við ábyrgir fyrir öllum leiðakerfunum, sem eru sí- breytileg, og er þessu öllu fjar- stýrt með aðstoð tölvu Securit- as á kvótum sem ekki er mögu- legt að hafa upp á. Jafnvel þó að við tækjum að okkur verð- mætaflutninga fyrir einhvern banka, þá fær bankinn ekki að vita hvaða prógramm er í gangi hverju sinni, enda er þetta á ábyrgð okkar, og gefum við ekki neinum slíkar upplýs- ingar. Við erum með verð- mætaflutningadeild hjá okkur og höfum þjálfað menn til að grípa inn í svona aðstæður," sagði Jóhann. Jóhann var spurður hvort Securitas flytti nú fé fyrir banka. Hann svaraði: „Af ör- yggisástæðum og með tilliti til þess sem gerst hefur síðustu daga, þá tel ég ekki tímabært að gefa það upp.“ SigurÖur Hafstein, framkvæmdastjóri Sambands sparisjóda: Meiri kröfur um peningaflutninga Jóhann Óli sagði að hver banki fyrir sig leitaði eftir ör- yggisþjónustu, en ekki allir saman, enda væri óvarlegt að fara út í samstarf um þessi at- riði, því gæsla af þessu tagi hlyti að vera leyndarmál hvers aðila fyrir sig. Enda tæki fyrir- tækið fulla ábyrgð á öllum verðmætum sem það flytti og slíka ábyrgð tækju engir á sig nema atvinnumenn. „Verð- mætaflutningar í dag eru ekki lengur fyrir áhugamenn, held- ur krefst þetta faglegrar skipu- lagningar og framkvæmdar," sagði Jóhann. GERÐAR verða meiri kröfur um peningaflutninga í kjölfar rán- anna tveggja fyrir nokkru, sam- kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Sigurði Hafstein, fram- kvæmdastjóra Sambands spari- sjóða í gær, en ekki vildi Sigurð- ur tjá sig um með hvaða hætti það yrði. „Það þjónar ekki hagsmun- um neinna að fara út í það sér- staklega," sagði Sigurður, þeg- ar hann var spurður á hvern hátt kröfurnar yrðu auknar, en sagði að málin yrðu tekin fastari tökum en áður og það hefði raunar verið gert. „Þetta er eitt af þessum mál- um sem ekki er hægt að ræða við fjölmiðla," sagði Björgvin Vilmundarson, bankastjóri Landsbankans, í samtali við Mbl. Sagði hann að bankinn gæti ekki gefið upp hvað gert yrði eða hvort breyting yrði á peningaflutningum á vegum bankans í kjölfar ránanna tveggja að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.