Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 32
EUROCARD V___________/ TIL DAGLEGRA NOTA MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Guðmundur J. Guðmundsson formaður VMSI og Dagsbrúnar um samkomulag ASI og VSI: „Mun mæla gegn þessum samningiu Á fundi formanna að- ildarfélaga Alþýðu- sambands íslands í gær, þar sem samþykkt var að skora á félögin að ganga að samkomu- lagi ASÍ við Vinnuveit- endasambandið. Morgunblaöið/KÖE. „ÉG MUN mæla gegn þessum samningi á félagsfundi í Dagsbrún á fimmtudaginn,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og Verkamannasambands ís- lands, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að loknum for- mannafundi Alþýðusambands íslands í gærkvöld. I»ar var kynntur samningur sá milli ASÍ og Vinnuveitendasambands íslands, sem tókst í fyrradag og var undirritaður í gær með venjulegum fyrirvara. Grunnur nýrrar vísitölu: Hlutfall húsnæðis- kostnaðar hækkar Hlutfall matvöru lækkar Guðmundur var einn fimm fundarmanna, sem greiddu at- kvæði gegn samningunum fyrir hönd stjórna félaga sinna. Hinir voru fulltrúar Rafiðnaðarsam- bandsins, Félags íslenskra raf- virkja, Félags íslenskra skrift- vélavirkja og Sveinafélags raf- eindavirkja. Guðmundur J. Guðmundsson sagði aö höfuðkostur samnings- ins væri að dagvinnutekjutrygg- ing hinna lægst launuðu hækkaði hlutfallslega mest og einnig yrðu hækkanir á trygginga- og lífeyr- isgreiðslum. „En það er mikil bjartsýni, að launahækkanirnar í samkomulaginu tryggi óskert kaup á þessu ári. Það er mikil bjartsýni að ætla, að ekki verði nema 10% hækkun á verðlagi á árinu. Ég efast mjög um að þessi spá standist og óttast að kaup- máttur ráðstöfunartekna haldi áfram að rýrna," sagði Guðmund- ur. Hann sagði að yfirvinna yrði ekki miðuð við dagvinnutekju- trygginguna. heldur launataxta, sem væru margir mun lægri en tekjutryggingin. Það myndi lækka yfirvinnuálag á ákveðnum Dagsbrúnartaxta úr 40% í 17% og næturvinnuálag myndi lækka úr 80% í 50%. Hann sagði einnig, að sér þætti súrt í broti að ekki hefði tekist að fá leiðréttingu á töxtum Dagsbrúnar til samræmis við taxta ýmissa annarra félaga, þar sem menn væru oft á tíðum við sömu vinnu á sama stað en á mismunandi launum. „Við vildum fá verulegar flokkatilfærslur og lægstu taxtana vildum við klippa alveg af,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði í samtali um afstöðu Guðmundar, að hann teldi samn- ingana „skynsamlega með tilliti til þeirrar stöðu, sem við erum i í dag. Við teljum að þeir séu skyn- samlegri kostur en að stefna í átök. Það er á valdi hvers félags að taka þá afstöðu, sem það kýs. Alþýðusambandið hefur ekkert samningsforræði fyrir einstök aðildarfélög, þau verða hvert fyrir sig að meta hvernig þau taka á þessum málum." Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins, lýsti í gærkvöld furðu sinni á afstöðu Guðmundar J. Guðmundssonar. „Þegar ASÍ og VSÍ hafa gert samning, sem felur í sér raunhæfari kjarabæt- ur fyrir hina lægst launuðu en flestir samningar, sem gerðir hafa verið á undanförnum árum, lýsir hann sig í andstöðu við niðurstöðurnar," sagði Magnús. „Ég trúi því ekki fyrr en á reynir, að hann komi til með að stofna þessum heildarsamningi í hættu og komi þannig í veg fyrir að þær kjarabætur, sem hann hefur í för með sér fyrir lágtekju- fólk, nái fram að ganga með þvi að fella samninginn," sagði fram- kvæmdastjóri VSÍ. Sjá nánar á miðsídu Hlutdeild matvöru í heildarút- gjöldum vísitölufjölskyldunnar hef- ur lækkað nokkuð, samkvæmt neyzlukönnun sem framkvæmd var 1978/1979, og vísitölugrundvöllur nýs stjórnarfrumvarps um vísitölu framfærslukostnaðar er byggður á. Samkvæmt hinum nýja grunni fer 21,4% heildarútgjalda í matvæli í stað 32,2%, sem eldri grunnur reikn- ar með. Hinsvegar hækkar hlutfall húsnæðiskostnaðar, heimilisbúnað- ar, og rekstrar bifreiðar, tómstunda og ýmissar þjónustu. Útgjöld vegna eigin bifreiðar hækka úr 11,1% í 16,1%. Orlofsferðir til útlanda, sem ekki eru til í gildandi grunni, eru talin 3,3% í frumvarpsgrunninum. Sjá nánar töflu á þingsíðu Mbl. í dag. Neyzlukönnunin, sem hinn nýi vísitölugrunnur er reistur á, náði til höfuðborgarsvæðisins alls og fimm staða utan þess. Meðalstærð fjölskyldu er talin 3,66 einstakl- ingar, sem kemur heim við fjöl- skyldustærð samkvæmt þjóðskrá, og starfsstéttaskipting þátttak- enda á höfuðborgarsvæði í neyzlu- könnun 1978/1979 kemur heim við skiptingu í atvinnugreinar þar tekjuárið 1978. Opinberum starfs- mönnum og fólki við þjónustustörf og vörudreifingu hefur fjölgað verulega frá fyrri könnun, 1964—1965, en hlutdeild verka- manna og iðnaðarmanna minnk- að. Könnunin 1978/1979 var byggð á allnákvæmum upplýsingum um heimilishagi og búreikningum sem viðkomendur færðu um fjögurra vikna skeið. Steingrímur hittir Motzfeldt Þingsályktunartillaga um sam- eiginleg hagsmunamál Grænlend- inga og fslendinga var til umræðu á Alþingi í gær og kom fram við umræðurnar að menn hörmuðu samning Grænlendinga við EBE um veiðiheimildir í lögsögu Græn- lands. Tillagan var ekki borin undir atkvæði í gær, en það verður gert í dag, miðvikudag. Við umræðurnar kom það m.a. fram hjá Steingrími Her- mannssyni, forsætisráðherra, að hann hefði rætt við Jonathan Motzfeldt, formann grænlensku landsstjórnarinnar, í gær, þriðjudag, vegna samningsins, og hefðu þeir ákveðið að hittast á Norðurlandaráðsþingi í næstu viku og ræða máiið. f framhaldi þess fundar yrðu væntanlega teknar upp formlegar viðræður um þessi mál. Sjá þingsíðu bls. 19. Til fyrirmyndar að semja beint — segir ríkissáttasemjari „ENGINN V/ERI FEGNARI en ég ef í Ijós kæmi, að embætti ríkissátta- semjara væri óþarft. Ég tel það vera til mikillar fyrirmyndar, að samning- ar skuli hafa tekist beint á milli aðila,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari, í samtali við blaðamann Mbl. er Ijóst var að samkomu- lag hafði tekist milli ASÍ og VSÍ um heildarkjarasamning. „Heildarsamkomulag hefur ekki tekist án atbeina ríkissátta- semjaraembættisins síðan samið var um 3,25% kauphækkun og óbreytta samninga að öðru leyti 1979,“ sagði Guðlaugur. „Það mætti að skaðlausu vera meira af þessu. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar, að þetta hjá okkur hér eigi ekki að vera bein samningastofnun — aðilar vinnumarkaðarins eiga ekki að leita hingað nema ekki gangi saman með þeim eftir ítarlegar viðræður," sagði Guðlaugur Þor- valdsson. Þótt samningar hafi tekist milli ASÍ og VSÍ eiga fjölmörg félög og sambönd eftir að ganga frá sínum samningum. Má þar nefna BSRB, starfsmannafélög ÍSAL, bókagerðarmenn, sjó- menn, farmenn, starfsfólk ríkis- verksmiðjanna, allt starfslið flugfélaganna, blaðamenn og fleiri. Gert er ráð fyrir, að samn- ingar BSRB takist á næstu dögum, jafnvel á morgun, og að samningar annarra félaga fylgi fljótlega í kjölfarið á sömu nót- um og samkomulag tókst milli ASÍ og VSÍ. Samningafundur í deilu ÍSAL og starfsmanna álversins stóð enn klukkan eitt í nótt þegar Mbl. fór í prentvinnslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.