Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984 HVAÐ SEGJA ÞAU UM KJARASAMNINGANA? Jón Sigurðsson forstj. Þjóðhagsstofnunar: Kauplag verður 6V2 til 7% hærra á árinu 1984 en það var í árslok 1983 „ÞAÐ hefur auðvitað ekki gefist tími til þess enn að meta vandlega niðurstöður þessa kjarasamnings eða áhrif hans í heild. En nokkur atriði má nefna eftir skjóta skoðun og er þá jafnan reiknað með því að alraennar launabreytingar verði innan þeirra marka sem ákveðin eru með samningum næstu 15 mánuðina,“ sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, í sam- tali við Mbl. er leitað var álits hans á áhrifum samkomulags ASÍ og VSÍ. „Fyrsta atriðið sem ég vil nefna,“ sagði Jón, „er að samn- ingurinn felur í sér að kauplag verði að meðaltali um 6V4 til 7% hærra á árinu 1984 en það var í árslok 1983. Þetta er svipað kauplag og reiknað var með í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1984 og fjárlagafrumvarpi á síðast- liðnu hausti, en 2% til 3% hærra en fólst í fjárlögum. Frá upphafi til loka árs 1984 munu launa- taxtar hækka samkvæmt samn- ingnum um nálægt 10'/i til 11%. Annað atriðið varðar lágtekju- hópinn en samningarnir fela í sér sérstaka hækkun á lág- markstekjutryggingu fyrir dag- vinnu sem hækkar um 10% sér- staklega. Þá tengjast þessari samningagerð, eins og kunnugt er, áform af hálfu ríkisins um úrbætur fyrir þá sem búa við lökust kjör, meðal annars veru- leg hækkun barnabóta til lág- tekjufólks, hækkun mæðralauna og meðlaga og hækkun tekju- tryggingar almannatrygginga. Þessi þáttur málsins er ekki full- mótaður og þess vegna ekki unnt að meta hann til hlítar að svo stöddu. En hér er um verulega lagfæringu á kjörum hinna tekjulægstu að ræða. Þriðja at- riðið varðar verðbólgu. Að gerð- um þessum samningum og mið- að við horfur á þróun innflutn- ingsverðs og verðlags almennt að undanförnu má ætla að verð- hækkun frá byrjun til loka árs 1984 geti orðið 10% til 11%. Margt er þó óvissu háð í þessari spá. Fjórða atriðið varðar kaup- mátt. Segja má að samningarnir feli það í sér að kaupmáttur launa verði svipaður á árinu 1984 og hann var á síðasta fjórð- ungi ársins 1983, en það er um 1 % % hærra kaupmáttarstig en reiknað er með í fjárlögum. Fimmta og síðasta atriðið varð- ar heildareftirspurn og við- skiptajöfnuð. Af þessum samn- ingum leiðir að eftirspurn í land- inu verður heldur meiri en í síð- ustu þjóðhagsspá en það veldur því að innflutningur verður eitthvað meiri en einnig umsvif innanlands. í heild kynni þetta að auka nokkuð viðskiptahalla en á móti vegur að vonir eru nú bundnar við aukna loðnuveiði þannig að viðskiptahalli gæti haldist innan við 1—1%% af þjóðarframleiðslu. Hér skiptir auðvitað miklu máli hver verður þróun viðskiptakjara á árinu,“ sagði Jón Sigurðsson. Þorsteinn Pálsson: Spenntir til hins ýtrasta og teflt á tæpasta vað „ÉG FAGNA því aö samningar hafa náðst sem eiga að geta tryggt vinnufrið að minnsta kosti fram á næsta ár. Það er Ijóst að samning- arnir eru spenntir til hins ýtrasta og teflt er á tæpasta vað, en við treystum því að aðilar gangi að samningunum með fullri ábyrgð," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er hann var spurður álits á samningum ASÍ og VSf sem undirritaðir voru í gær. Varðandi loforð stjórnvalda um kjarabætur til þeirra lægst launuöu sagði Þorsteinn: „Þarna verður um tilfærslur á fjárlög- um að ræða til þeirra verst settu. Ríkisstjórnin var tilbúin til viðræðna um slíkar tilfærsl- ur, ef samningsaðilar kæmu sér saman um þær ráðstafanir. Það var síðan staðfest í morgun, þeg- ar fulltrúar þeirra komu til fundar við formenn stjórnar- flokkanna með tillögur þar að lútandi." Þorsteinn sagði að fjár- muna þessara, sem nema munu um 330 millj. kr., yrði aflað með tilfærslum á fjárlögum eftir við- ræður og með samkomulagi við þá aðila sem að samningum stæðu. „Þetta er þáttur ríkis- valdsins í lausn heildarkjara- samninganna," sagði Þorsteinn „og því hvílir mikil ábyrgð á ein- stökum félögum innan Alþýðu- sambandsins og Vinnuveitenda- sambandsins að standa að þessu í heild sinni, þannig að það tefji ekki framgang ráðstafana í þágu lágtekjufólksins." — Nú er þarna um að ræða hærri prósentuhækkanir en rammi fjárlaganna gerði ráð fyrir, en þar var reiknað með 4%. Er þessi umræddi rammi þá sprunginn? „Það er reiknað með að þessar launabreytingar þýði að meðal- tali frá í desember sl. 6—7% hækkun launa á árinu. Auðvitað gengur þetta lengra en fjárlögin gerðu ráð fyrir og gengið er fram á ystu nöf. Það er þó ekkert sem bendir til að ríkisstjórnin geti ekki, þrátt fyrir þetta, staðið við yfirlýst markmið sín varðandi verðbólguna. Þetta gæti kannski þýtt 1—2% í því tilefni. Aðalat- riðið er að tryggja vinnufrið og við vonumst til að það hafi tekist með þessum ráðstöfunum," sagði Þorsteinn að lokum. Steingrímur Hermannsson Strekkja bönd- in til hins ýtrasta „ÉG TEL þetta mjög jákvætt og fagna því að samningar virðast ætla að nást, og vonandi verða það heildarsamningar. Ég tel það einn- ig mikilvægt að þarna er stefnt að samningum til 15 mánaða og með þessu tel ég að fáist nauðsynlegur vinnufriður, bæði fyrir ríkisstjórn og aðila vinnumarkaðarins," sagði Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra aðspurður um nýgert samkomulag um kjarasamninga. Forsætisráðherra sagði enn- fremur: „Ég tel að með þessu megi ná tökum á því sem unnist hefur og undirbúa framtíðina. Um samningana sem slíka er enginn vafi á því að þeir strekkja böndin til hins ýtrasta, en hins vegar eru átök á vinnu- markaðinum einnig kostnaðar- söm fyrir þjóðarheildina." — Nú hefur margsinnis verið yfirlýst að rammi fjárlaganna þoli aðeins 4% meðalhækkun launa á árinu og einn ráðherr- anna jafnvel hótað að segja af sér ef út fyrir þann ramma verði farið. Hvað viltu segja um það? „Já, það er alveg rétt með þennan ramma. Ég vann ekki síst að þessu með Þorsteini Pálssyni og við og ríkisstjórnin, þ.e. þeir sem til staðar eru, vor- um allir sammála um, að það væri óhjákvæmilegt annað en að stuðla að því að þessir samning- ar gætu náðst fram. Það sem að okkur snýr er fyrst og fremst varðandi fjárlögin. Þetta eru frjálsir samningar að öðru leyti, á það vil ég leggja áherslu. Við erum tilbúnir til þessara til- færslna, hins vegar eru það allt lagaatriði og þarf að skoða betur útfærslu, hvernig fjármagns verður aflað og annað í því sam- bandi. Það er þegar komið í gang.“ — Hvar munuð þið helst draga saman í fjárlögunum til að fjármagna umrædda til- færslu? „Það hefur verið nefnt að það komi til greina að færa af niður- greiðslum til landbúnaðar. Ég útiloka það ekki en það þarf að skoða fleiri möguleika." Vilborg Harðardóttir: Verkalýðsfor- ystan hefur ekki látið á það reyna hvort fólk er tilbúið í harðar aðgerðir „ÉG HEF EKKI haft tök á að kynna mér þetta samkomulag ná- kvæmlega, en það scm ég veit um þetta veldur mér miklum vonbrigð- um og er ég algerlega á móti þessu,“ sagði Vilborg Harðardótt- ir, varaformaður Alþýðubandalags- ins, í samtali við Mbl. í gærkvöldi, er leitað var álits hennar á sam- komulagi ASÍ og VSÍ. Ég er bæði óánægð með þá litlu kauphækkun sem samið var um og hvað samið er til langs tíma. í mesta lagi hefði verið hægt að semja til þriggja mán- aða miðað við svona smánarlega lága prósentuhækkun. Mér finnst verkalýðsforystan alls ekki hafa látið reyna á það hvort fólk væri tilbúið í harðari að- gerðir til að knýja fram hærra kaup. Ég get ekki séð að fólk í lægst launuðu stéttunum, þar sem konur eru í meirihluta, muni neitt um hvorum megin þessi 500 kall sem samið hefur verið um liggur. Þá er það hneykslanlegt að fólki skuli vera mismunað eftir aldri,“ sagði Vilborg Harðardóttir. Jóhann Hjartarson einn í efsta sæti JÓHANN Hjartarson tók forustu á Reykjavíkurskákmótinu í gærkvöldi þegar hann sigraði Bandaríkjamann- inn DeFirmian í 7. umferð. Skák Jó- hanns var sérlega glæsileg og vakti óskipta athygli fjölmargra áhorf- enda. Jóhann var hinn rólegasti eftir sigur sinn. „Byrjunin tók mikinn tíma og ég fékk lakari stöðu. Lenti í stöðu, sem DcFirmian þekkti mjög vel, en ég ekki jafnvel. Miðtaflið tók mjög á eh einnig mikinn tíma. Mér var farið að líða ansi illa í lokin þegar tímahrakið var í algleymingi. Atti eitthvað rúmar 10 mínútur á síð- ustu 15 leikina, en í lokin var þetta í lagi. Hann náði engum hótunum fram og sigurinn var í höfn,“ sagði Jóhann lljartarson eftir sigur sinn yfir DeFirmian í gærkvöldi. Úrslit skáka í 7. umfcM urðu: Jóhann Hjartarson — DeFirmian 1—0 Helgi Ólafsson — Wedberg V4 —V4 Reshevsky — Ree 'A —'A Margeir Pétursson — Ornstein V4 — V4 King — Jón L. Árnason bið Zaltsman — Schneider 'A — V4 Christiansen — Ostermeyer bið Knezevic — Balashov bið Byrne — Shamkovich 'A — 'A Lobron — Schussler bið Alburt — Karl Þorsteins V4 — Vt Höi — Chandler 0—1 Pia Cramling — Guðm. Sigurjónsson V4 — V4 Elvar Guðmundsson — Gutman 0—1 Friðrik ólafsson — Geller 0—1 Dan Hansson — McCambridge 0—1 Halldór G. Einarsson — Hector 0—1 Thielemann — Bragi Kristjánsson 'A — 'A Hilmar Karlsson — G. Taylor 'A —V4 Burger — Róbert Harðarson bið Magnús Sólmundarson — Meyer bið Pálmi Pétursson — Nykopp bið Þröstur Bergmann — Haukur Angantýs. 0—1 Sævar Bjarnason — Guðm. Halldórsson 0—1 Benedikt Jónasson — Ágúst Karlsson V4—V4 Lárus Jóhannesson — Leifur Jósteinsson 1 —0 Björgvin Jónsson — Ásgeir Þ. Árnason 0—1 Gylfi Þórhalls. — Benóný Benedikts. 0—1 Arnór Björnsson — Bragi Halldórsson 0—1 Andri Áss Grétarsson — Har. Haraldsson bið Karl Þorsteins tefldi í sjötta sinn við stórmeistara og enn hélt hann hlut sínum fyllilega. „Ég er ákaflega ánægður með að fá svona sterka andstæðinga — það herðir mann,“ sagði Karl Þorsteins. Staða efstu manna er nú: 1. Jóhann Hjartarson 6 2. DeFirmian5% 3.-8. Wedberg 5 Ree Margeir Pétursson Reshevsky Helgi ólafsson Ornstein Frá blaðamannafundi í gærkveldi þar sem samningur ASÍ og VSÍ var kynntur. Talin frá vinstri: Ragna Bergmann, formaður verkakvennafélagsins Framsóknar, Björn Þórhallsson, varaforseti ASÍ, Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ, Hjalti Einarsson, varaformaður VSÍ, Davíð Sch. Thorsteinsson og Kristján Ragnarsson, sem sæti eiga í framkvæmdastjórn VSI, og Júlfus Kr. Valdimarsson, framkvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaganna. Morgunblaðið/ÓI.K.M.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.