Morgunblaðið - 22.02.1984, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1984
Brúðuheimilið leikið á
íslensku og færeysku
Rætt vid Svein Einarsson, fyrrum Þjóöleikhússtjóra, um uppsetn-
ingu hans á Brúðuheimilinu í Færeyjum og nýtt leikrit hans í Iðnó
„Þetta er mjög spennandi verk-
efni og að því ég best veit í fyrsta
sinn sem leikið er á íslensku og
færeysku í sama leikritinu," sagði
Sveinn Einarsson, fyrrum Þjóð-
leikhússtjóri í samtali við blm.
Mbl.. Sveinn heldur í lok vikunnar
til Færeyja þar sem hann leikstýrir
Brúðuheimiii Ibsens í Norður-
landahúsinu. Með honum fara þeir
Pétur Einarsson og Borgar Garð-
arsson, og leika þeir báðir í upp-
setningu Sveins. Aðrir leikarar eru
færeyskir, og meðal þeirra Elin
Mouritsen, sem fer með hlutverk
Noru í leiknum.
„Það má kalla þessa leiksýn-
ingu númer tvö af hálfu Norður-
landahússins," sagði Sveinn.
„Þegar húsið var opnað á sínum
tíma kom Konunglega leikhúsið
í Kaupmannahöfn og sýndi „Úr
lífi ánamaðkanna". Siðastliðið
haust frumsýndi Þjóðleikhúsið
síðan „Lokaæfingu" í Norður-
landahúsinu. Húsið stóð síðan
sjálft fyrir sýningu á tveimur
írskum einþáttungum eftir John
M. Synge, og nú á Brúðuheimili
Ibsens. Leikritið verður sýnt í
færeyskri þýðingu Jens Pauli
Heinesen rithöfundar, og ís-
lenski textinn er úr þýðingu sem
ég gerði fyrir Þjóðleikhúsið á
sínum tíma. Leikmyndina gerir
síðan einn kunnasti myndlistar-
maður Færeyinga, Trond Pat-
ursson."
— Hvernig hentar Norður-
landahúsið sem leikhús?
„Vel. Með tilkomu Norður-
landahússins hafa opnast miklir
möguleikar fyrir Færeyinga
hvað varðar nýja leikhústækni.
Til að mynda verður Brúðuheim-
ilið leikið á miðju gólfi með
áhorfendur* á báða vegu. Það
hefur ekki verið gert áður í Fær-
eyjum, enda aðstaða ekki verið
fyrir hendi, þeir hafa einungis
haft „gömlu" tegundina af leik-
húsi.“
— Hvenær verður Brúðu-
heimilið frumsýnt?
„Frumsýningin verður í byrj-
un apríl, væntanlega þann
sjöunda."
í apríllok verður síðan nýtt
leikrit Sveins frumsýnt hjá Leik-
félagi Reykjavíkur. Hann var
spurður um það.
„Jú það er rétt, leikritið verður
sett á fjalirnar í Iðnó í lok apríl,"
sagði Sveinn, „og samlestur
hefst á því nú í vikunni. Endan-
lega hefur ekki verið ákveðið
heiti á því, en annað hvort verð-
ur það „Fjöreggið" eða „Sagan af
krókódílnum". Ég hef verið að
skrifa þetta verk undanfarin tvö
ár, en eiginlega ekki haft tíma til
að sinna því almennilega fyrr en
ég hætti störfum hjá Þjóðleik-
húsinu. Ég lauk við það nú í
sumar."
— Um hvað fjallar „Fjöregg-
ið“ eða „Sagan af krókódílnum"?
„Þetta er algerlega hefðbundið
leikrit. Segja má að það sé lýsing
á þremur kynslóðum hér í
Reykjavík og ólíkum viðhorfum
þeirra til lífsins. Kannski er
réttara að hafa kynslóðirnar
Sveinn Einarsson
fjórar, því að sá yngsti er
þriggja-fjögurra ára og sá elsti
nálega áttræður. Ég reyni að
bregða upp raunsærri mynd af
fólki, eins og það gengur og ger-
ist hér í borg.“
— Hver leikstýrir verkinu?
„Haukur J. Gunnarsson leik-
stýrir því og Steindór Sigurðs-
son gerir leikmyndina. Þau Guð-
rún Ásmundsdóttir og Þorsteinn
Gunnarsson verða með stærstu
hlutverkin, auk Pálma Gestsson-
ar, en alls eru 15 hlutverk í
leiknum," sagði Sveinn Einars-
son að lokum.
Einn seldi ytra
FISKISKIPIÐ Ólafur Jónsson seldi
afla sinn í Bremerhaven í gær, sam-
tals 166,6 tonn. Fyrir aflann fékk
hann 3.539,9 þúsund krónur, en
meöalverö samkvæmt því er 21,25
krónur, en aflinn var einkum karfi.
Þá er búist við því að fiskiskipin
Arinbjörn og Erlingur selji ytra á
miðvikudag og einnig er búist við
að Ýmir selji ytra á fimmtudag-
inn.
Vitni vantar
EKIÐ var á bifreiðina G-6016, sem
er Mazda 626, árgerð 1980, brún að
lit, þar sem bifreiðin stóð á bif-
reiðastæðinu bak við verzlunina
Geysi í Reykjavík frá klukkan 8:30
til 17 í gær. Vitni vinsamlegast
gefi sig fram við lögregluna í
Reykjavík.
Hryssa týnd
AÐFARANÖTT 8. febrúar síðast-
liðinn hvarf veturgömul hryssa úr
girðingu frá Mosfelli 2 í Mos-
fellssveit. Hryssan er fremur stór,
tinnusvört, mörkuð gagnbitað
bæði. Þeir sem upplýsingar geta
gefið um hryssuna eftir þennan
tíma vinsamlega snúi sér til Aðal-
steins Þorgeirssonar, vörslu-
manns í Mosfellssveit, í síma
66460.
Amma þó —
Barnaleikrit Olgu Guðrúnar frumsýnt
Frá æfingu á Ommu þó. Frá vinstri: Herdís Þorvaldsdóttir, Árni Tryggva-
son, Gísli Guðmundsson og Edda Björgvinsdóttir.
ÞjóÖleikhúsið:
„AMMA ÞÓ er ekki alvarlegt leik-
rit heldur brjálaður farsi,“ sagöi
Olga Guörún Árnadóttir, rithöf-
undur, um barnaleikritiö Amma
þó, sem Þjóöleikhúsið frumsýnir í
kvöld. Er þaö fyrsta leiksviðsverk
Olgu Guörúnar, en hún hefur áöur
samiö barnabækur. „Leikritið
fjallar um svoiítiö óvenjulega fjöl-
skyldu sem er í miklum fjár-
hagskröggum og fínnur því upp á
nokkuð frumlegum fjáröfiunarleiö-
um sem gefast misjafnlega,“ sagöi
Olga Guörún. „Inn í sögu fjöl-
skyldunnar spinnst síðan önnur
saga sem leysist í lokin. Saga um
dálítið duiarfullan karl, sem er
mikill örlagavaldur í lífí fjölskyld-
unnar.“
Leikstjóri er Þórhallur Sig-
urðsson, en Olga Guðrún samdi
tónlistina, sem er flutt í útsetn-
ingu Hróðmars Sigurbjörnsson-
ar. Messíana Tómasdóttir gerði
leikmynd og búninga og lýsingu
annaðist Ásmundur Karlsson.
I hlutverkum fjölskyldunnar
eru þau Jón S. Gunnarsson, sem
leikur pabbann, Herdís Þor-
valdsdóttir í hlutverki ömmunn-
ar, stelpuna Fíu leikur Edda
Björgvinsdóttir, og Gísli Guð-
mundsson strákinn Fjódor. Aðr-
ir leikendur eru Pálmi Gestsson,
Örn Árnason, Sigurður Skúla-
son, Erlingur Gíslason, Helga E.
Jónasdóttir og Árni Tryggvason.
Árni Tryggvason
36 mál hafa verið
lögð fyrir Búnaðarþing
36 mál voru lögð fyrir Búnaðar-
þing á fyrsta degi þess, frá búnaðar-
þingsfulltrúum, stjórn Búnaöarfé-
íags íslands, búnaðarsamböndunum
landbúnaðarráðuneytinu og Alþingi.
Fyrstu tvö málin eru að venju reikn-
ingur Búnaðarfélags íslands fyrir
síðastliðið ár og fjárhagsáætlun fyrir
yfírstandandi ár. Önnur mál sem
lögð hafa verið fyrir eru þessi:
Mál nr. 3: Erindi Búnaðarsam-
bands Suður-Þingeyinga um
niðurfellingu stofnlánadeildar-
gjalds á afurðir loðdýra.
Mál nr. 4: Erindi Búnaðarsam-
bands Suður-Þingeyinga um
breytingu á starfsemi Bjargráða-
sjóðs gagnvart loðdýrabúum.
Mál nr. 5: Erindi Össurar Guð-
bjartssonar um snjómokstur á
þjóðvegum.
Mál nr. 6: Erindi Birkis Frið-
bertssonar og Össurar Guðbjarts-
sonar um eflingu Tilrauna-
stöðvarinnar á Reykhólum.
Mál nr. 7: Erindi Birkis Frið-
bertssonar og Össurar Guðbjarts-
sonar um lán til endurbóta á úti-
húsum.
Mál nr. 8: Erindi Birkis Frið-
bertssonar og Össurar Guðbjarts-
sonar um breytingu á reglum um
forfallaþjónustu.
Mál nr. 9: Erindi Búnaðarsam-
bands Suðurlands um votheys-
verkun.
Mál nr. 10: Drög að frumvarpi
til laga um atvinnuréttindi í land-
búnaði. Lagt fyrir af stjórn Bún-
aðarfélags Islands.
Mál nr. 11: Erindi Búnaðarsam-
bands Vestur-Húnavatnssýslu um
upplýsingastarfsemi bændasam-
takanna í landbúnaði.
Mál nr. 12: Erindi Búnaðarsam-
bands Vestur-Húnavatnssýslu um
viðhald girðinga meðfram vegum
landsins.
Mál nr. 13: Erindi Búnaðarsam-
bands Vestur-Húnavatnssýslu um
varnir gegn gæsum og álftum á
ræktuðu landi.
Mál nr. 14: Erindi Búnaðarsam-
bands Vestur-Húnavatnssýslu um
raforkuverð.
Mál nr. 15: Frumvarp til laga
um land í þjóðareign, 61. mál 106.
löggjafarþings. Lagt fyrir af
stjórn Búnaðarfélags íslands.
Mál nr. 16: Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 95/1981
um Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins, verðskráningu, verðmiðlun og
sölu á landbúnaðarvörum o.fl., 67.
mál 106. löggjafarþings. Lagt fyrir
af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Mál nr. 17: Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 95/1981
um Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins, verkskráningu, verðmiðlun og
sölu á landbúnaðarvörum o.fl. 71.
mál 106. löggjafarþings. Lagt fyrir
af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Mál nr. 18: Tillaga til þings-
ályktunar um nýtingu og rekstr-
argrundvöll sláturhúsa. 89. mál
106. löggjafarþings. Frá atvinnu-
málanefnd sameinaðs Alþingis.
Lagt fyrir af stjórn Búnaðarfélags
íslands.
Mál nr. 19: Tillaga til þings-
ályktunar um fiskeldi og rann-
sóknir á klaki og eldi sjávar- og
vatnadýra. 91. mál 106. löggjafar-
þings. Frá atvinnumálanefnd
sameinaðs Alþingis. Lagt fyrir af
stjórn Búnaðarfélags íslands.
Mál nr. 20: Tillaga til þings-
ályktunar um landnýtingaráætl-
un. 106. mál 106. löggjafarþings.
Lagt fyrir af stjórn Búnaðarfélags
íslands.
Mál nr. 21: Tillaga til þings-
ályktunar um könnun og nýtingu
bújarða (ríkisjarða) í þágu aldr-
aðra. 112. mál 106. löggjafarþings.
Lagt fyrir af stjórn Búnaðarfélags
íslands.
Mál nr. 22: Frumvarp til laga
um lífeyrissjóð bænda. 115. mál
106. löggjafarþings.. Lagt fyrir af
stjórn BúnaðarfélagSJsiands, —
Mál nr. 23: Tillaga til þings-
ályktunar um áætlun um búrekst-
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í frétt í Mbl.
síðastliðinn föstudag, að rangt var
farið með nafn eiginkonu Einars
Stefánssonar, rafvirkja í Kópa-
vogi, sem hefur verið í meðferð
vegna hvítblæðis. Hún heitir
Hrönn Antonsdóttir. Mbl. biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
ur með tilliti til landkosta,
markaðsaðstæðna og nýrra bú-
greina. 120. mál 106. löggjafar-
þings. Lagt fyrir af stjórn Búnað-
arfélags fslands.
Mál nr. 24: Erindi Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar um greiðslu
framlags vegna jarðarbóta.
Mál nr. 25. Erindi Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar um hag-
kvæmni mismunandi heyverkun-
araðferða.
Mál nr. 26: Erindi Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar um laxveiðar
í sjó.
Mál nr. 27: Erindi Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar um viðhald
girðinga sem Vegagerð ríkisins
lætur setja upp.
Mál nr. 28: Erindi Búnaðarsam-
bands Suðurlands um merkingu
kjarnfóðurs, sem selt er á almenn-
um markaði.
Mál nr. 29: Erindi Búnaðarsam-
bands Suðurlands um úrbætur á
gæðum íslenzku ullarinnar.
Mál nr. 30: Erindi Búnaðarsam-
bands Suðurlands um bætta verzl-
unarhætti við sölu á lambakjöti.
Mál nr. 31: Erindi Búnaðarsam-
bands Suðurlands um að styrkir
til skjólbeltaræktar verði teknir í
jarðræktarlögin við endurskoðun
þeirra.
Mál nr. 32: Erindi Egils Bjarna-
sonar um áburðarkalk.
Mál nr. 33: Frumvarp til laga
um breytingu á lausaskuldum
bænda í föst lán, 196. mál 106.
löggjafarþings. Lagt fyrir af
stjórn Búnaðarfélags íslands.
Mál nr. 34: Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skóg-
rækt nr. 3. 6. marz 1955. Frá land-
búnaðarráðuneytinu. Lagt fyrir af
stjórn Búnaðarfélags fslands.
Mál nr. 35: Frumvarp til laga
um breytingu á ábúðarlögum nr.
64 31. maí 1976. Frá landbúnað-
arráðuneytinu. Lagt fyrir af
stjórn Búnaðarfélags fslands.
Mál nr. 36: Frumvarp til laga
um breytingu á jarðalögum nr. 65
31. maí 1976 með síðari breyting-
um. Frá landbúnaðarráðuneytinu.
Lagt fyrir af stjórn Búnaðarfélags
íslands.