Morgunblaðið - 24.02.1984, Síða 1
56 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
45. tbl. 71. árg.
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Milljónatjón en mannbjörg í Ólafsvík
Bjarni V. Ólafsson, sem kom annar tveggja, fyrstur á
vettvang eftir snjóflóðið í Ólafsvík, bendir á staðinn
þar sem þeir félagar Kristján og Valgeir lentu undir
snjóflóðinu ásamt veghefli og steypubíl sem hnykl-
uðust saman undan þunga snjóflóðsins og brutu
steyptan gafl stöðvarhússins eftir að hafa kastast
Ljósmynd Mbl. Ragnar Axelsson
10—15 metra vegalengd. Snjódyngjan inni í húsinu
var um þriggja metra þykk.
Sjá viðtöl á miðopnu.
%
íranir rjúfa yegina
frá Bagdad að Basra
Paul Schliiter
Fjárlaga-
frumvarpið
samþykkt
Kaupmannihorn, 23. rebrúar. AP.
ENDIR VAK í kvöld bundinn á þá
0vis.su, scm ríkt hefur í dönskum
stjórnmálum undanfarna tvo mán-
uði, er fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnar Paul Schliiters var loks
samþykkt á danska þinginu.
Eins og fram hafði komið í
fréttum ákvað danski jafnað-
armannaflokkurinn að sitja hjá
við atkvæðagreiðsluna og þegar
upp var staðið var frumvarpið
samþykkt með góðum meiri-
hluta. Ekki var þó nákvæmlega
um það getið hvernig atkvæði
féllu.
Nikósfu, Kýpur, 23. febrúur. AP.
ÍRANIR kváðust í dag hafa unnið
stærsta sigur sinn til þessa í styrjöld-
inni við fraka um leið og tilkynnt var,
að herir þeirra hefðu náð um 40 km
lengju landsvæðis handan landamær-
anna. Hefði þeim tekist að rjúfa þjóð-
vegina á milli borganna Bagdad og
Basra á tveimur stöðum, auk þess að
ná 15 minni borgum og bæjum á sitt
vald. Basra er helsta olíuútflutn-
ingshöfn íraka.
Enn sem fyrr er þó erfitt að
henda reiður á hvað er rétt og hvað
rangt í frásögnum stríðsaðila af
gangi mála. Skömmu eftir ofan-
greinda tilkynningu Irana birtu Ir-
akar tilkynningu þess efnis, að her
óvinanna hefði verið „eytt“ í sókn-
inni. „Þúsundir líka lágu á vígvell-
inum eftir gagnsóknina," sagði í
tilkynningu Iraka.
í tilkynningu trana, sem trakar
segja aðeins vera til þess að beina
athyglinni heima fyrir frá stað-
reyndum, kváðust þeir hafa komið
andstæðingnum gersamlega í opna
skjöldu, þar sem beitt hefði verið
nýjum bardagaaðferðum.
Ekki var frá því skýrt í hverju
þær aðferðir fólust, en af sjón-
varpsfregnum í Bagdad, þar sem
sagt var að írakar hefðu eyðilagt
fjölda fallbyssubáta, er talið mega
ráða, að íranir hafi sótt að óvinin-
um yfir votlendið fyrir botni Persa-
flóa.
Eyrrum hertæknir í íranska
hernum, Ardeshir Sanati, sagði í
dag í viðtali við AP-fréttastofuna,
að ekki væri fjarri lagi að áætla að
ein milljón Irana hefði særst og
fallið í stríðinu við traka. Stóran
hluta fórnarlambanna sagði Sanati
vera unglinga, sem att væri út í
opinn dauðann í fremstu víglínu.
Vissu ekki um við-
bótarkvóta til EBE
Kaupmannahórn. 23. febrúar. Frá Niels Jörgen
DAGBLAÐIÐ Grönlandsposten
skýrir í dag frá því, að pólitískar
deilur fari nú vaxandi í kjölfar sam-
komulags Grænlendinga og EBE í
Briisscl um fiskvoiðiréttindi.
óeiningar gætir nú innan
stjórnarflokksins Siumut um fisk-
veiðisamkomulagið. Einn 12 þing-
manna flokksins, Hans Iversen,
sem jafnframt er varaformaður
Bruun, UrænlandsfrétUritara Mbl.
sambands grænlenskra fiski- og
veiðimanna, segist ekki munu
greiða atkvæði með samkomulag-
inu þegar það verður borið undir
atkvæði á landsþinginu i næsta
mánuði.
Auk Iversen hafa tveir þing-
menn stjórnarandstöðuflokksins
Atassut lýst því yfir að þeir muni
ekki greiða samkomulaginu at-
kvæði.
Ein skýring óánægjunnar með
samkomulagið virðist vera sú, að
ekki hafi verið skýrt rétt frá aðal-
atriðum samningsins í fyrstu
fréttum, sem bárust til Græn-
lands. T.d. kom í ljós öllum á óvart
daginn eftir að samkomulagið var
undirritað, að EBE hafði fengið
leyfi til að veiða 30.000 tonn af
lýsu og 10.000 tonn af loðnu.