Morgunblaðið - 24.02.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
15
ísraelar auka
loftárásir sínar
Beirút, 23. febrúar. AP.
ÍSRAKLSKAR herþotur gerðu í dag
árás á stöðvar Palestínumanna í fjalla-
héruðunum austur af Beirút. ísraelar
höfðu ítrekað varað drúsa við því að
slaka á klónni og hleypa Palestínu-
mönnum aftur inn í landið um svœði,
sem þeir réðu yfir. Þetta var sjötta
loftárás ísraela á þessu ári.
Árásir ísraela hafa farið vaxandi
að undanförnu eftir að Amin Gema-
yel sagðist mundu íhuga að rifta
samkomulaginu, sem gert var við
ísraela í maí í fyrra um brottflutn-
ing erlendra herja. Riftun sam-
komulagsins hefur verið helsta
krafa Sýrlendinga fyrir samþykki
vopnahlés í Líbanon.
A.m.k. 15 manns létu lífið og 58
særðust í bardögum í og við Beirút
sl. nótt á sama tíma og 1.300 banda-
rískir gæsluliðar voru að búa sig
undir að færa sig út á herskipin
fyrir utan strönd landsins.
Reagan Bandaríkjaforseti, varði á
fundi með fréttamönnum í nótt þá
ákvörðun sína að skipa bandarísku
gæsluliðunum um borð í herskipin.
„Við erum ekki að hörfa, heldur búa
okkur betur til varnar. Hlutverki
gæsluliöanna er í mínum huga ekki
lokið," sagði forsetinn.
Enginn árangur,
en leit enn aukin
Osló, 23. fehrúar. AP.
ÞRÁTT fyrir mikla leit norska um kafbáti, sem sást í Tysfirði
sjó- og flughersins að óþekkt- í Norður-Noregi, hefur ekkert
sést til hans frá því á þriðjudag
að sögn upplýsingafulltrúa
norska sjóhersins.
Níu djúpsprengjum hefur ver-
ið varpað á staði, þar sem talið
hefur verið að kafbáturinn
leyndist, en allar hafa misst
marks að því er best verður séð.
Þrátt fyrir að leitin hafi enn
ekki borið neinn árangur er eng-
an bilbug að finna á norska
hernum, sem hyggst enn bæta
við þriðja skipinu í leitinni. Tvö
skip og Orion-flugvél hafa leitað
stanslaust frá því fyrst varð vart
við kafbátinn á mánudagskvöld.
Tysfjörður er einn innfjarð-
anna í Vestfirði, sem er á milli
Lofóten og lands. Mikið dýpi er í
firðinum, allt að 700 m, og veld-
ur það erfiðleikum við leitina.
Sprengt hjá sendi-
nefnd Rússa hjá SÞ
Spánn:
Þingmað-
ur myrtur
San Seba»tian, 23. febrúar. AP.
ENRIQUE Casas Vila, 38 ára
gamall þingmaður sósíalista á
sjálfstæðu þingi Baska, var skot-
inn til bana af óþekktum byssu-
mönnum á heimili sínu í dag.
Vila var í forystu fyrir
framboði sósíalista í Guip-
uzcoa-héraði, en kosningar
fara fram á sunnudaginn.
Talið er að skæruliðar úr
ETA-samtökunum beri ábyrgð
á morðinu.
New York, 23. febrúar. AP.
SPRENGJUR tættu í sundur bifreið
á baklóð bústaðar sovézku sendi-
nefndarinnar hjá Sameinuðu þjóð-
unum árla á fimmtudag, en engan
sakaði. Samtök gyðinga hafa lýst á
hendur sér ábyrgð á verknaðinum.
Þau hafa það á stefnuskrá sinni að
skaða tengsl Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna.
Ljóst er að sprengjunum var
varpað yfir girðingu, sem er um-
hverfis bústaðinn, sem er í
Bronx-hverfinu. Samtals sprungu
þrjár sprengjur. Slökkviliðsmenn
réðu niðurlögum elds, sem upp
kom, á skömmum tíma, þótt þeim
væri meinaður aðgangur að lóð-
inni. Urðu þeir að berjast við eld-
inn utan girðingar og sprauta á
hann þaðan. Byggingin sjálf, þar
sem fleiri hundruð sovézkir sendi-
menn hjá SÞ búa, mun aldrei hafa
verið í hættu.
Dýrasti brúðarkjóll í heimi?
Brúðarkjóllinn sem við sjáum á þessari símamynd frá AP er metinn á
rúma milljón dollara, enda skreyttur gimsteinum og perlum. Hann var
ásamt fleiri kjólum á sýningu í Tókýó í gær og er hönnuður hans Yumi
nokkur Katsura. Hún sagði fréttamönnum að það hafði tekið sig fimm
mánuði að gera kjólinn, og væru á honum 63 gimsteinar og hvorki fleiri
né færri en 20 þúsund perlur. Slörið er 12 metra langt.
Austur-Þýskaland:
11 friðarsinnum
varpað í fangelsi
Bonn, 23. febrúar. AP.
SEX ungir Austur-Þjóðverjar, sem
mótmælt hafa staðsetningu sovéskra
kjarnorkueldflauga í heimalandi
sínu, eiga að koma fyrir rétt í Erfurt
á morgun, fóstudag, að því er friðar-
hópur í Köln í Vestur-Þýskalandi
segir.
Sexmenningarnir voru teknir
höndum í Weimar í október og
nóvember eftir að hafa komið
fyrir á almannafæri borðum sem á
var letrað „SS-20 — Nei takk“ og
„Samstaða".
Fimm aðrir ungir friðarsinnar í
Weimar voru handteknir í janúar
og eru í gæsluvarðhaldi „á meðan
verið er að rógbera þá í skólum og
á vinnustöðum", sagði í tilkynn-
ingu friðarhópsins í Köln.
Ellefumenningarnir eiga yfir
höfði sér nokkurra ára fangelsi ef
þeir verða sekir fundnir um starf-
semi sem stríðir gegn hagsmunum
ríkisins.
Fullyrðingar Kölnar-hópsins
hafa ekki verið staðfestar í
Austur-Þýskalandi.
Kúlupilt-
ur látinn
Houston, 23. febrúar. AP.
DAVÍÐ, 12 ára piltur, sem allt
sitt líf hefur dvalið í dauð-
hreinsuðum vistarverum, þar
sem hann hafði ekkert ónæmi
gegn sjúkdómum, lézt í dag á
Texas-barnasjúkrahúsinu.
Drengurinn var þekktur sem
„kúlupilturinn". Fjölskyldu-
nafni hans hefur jafnan verið
haldið leyndu. Hann lézt vegna
hjartagalla.
„Ástandið á þjóðvegunum
er óviðun
BrUssel, 23. febrúar. AP.
HOLLENDINGAR fóru í dag fram
á, að efnt yrði til sérstaks fundar
samgöngumálaráðherra aðildar-
þjóða Efnahagsbandalagsins
vegna aðgerða franskra vörubif-
reiðastjóra undanfarna viku.
„Það er ógerningur að una við
það ástand, sem nú ríkir á þjóð-
vegum Mið-Evrópu,“ sagði hátt-
settur hollenskur embættis-
maður. „Þjóðvegirnir eru ómiss-
andi hlekkur í flutningskeðjunni
innan sem á milli EBE-land-
anna.“
Að sögn eins framkvæmda-
nefndarmanns EBE er von á
nýjum tollalögum innan banda-
lagsins á næsta ári. Er þau taka
gildi styttist biðtími bifreiða-
stjóra við landamærahlið um
— segja Hollendingar og krefjast
fundar samgönguráðherra EBE
Hluti hinna 1300 vörubifreiða, sem sátu fastar við
mærum Austurríkis og Ítalíu í gær.
Brennerskarð á landa-
Símamynd AP.
allt að helming. Langur biðtír
og seinagangur tollvarða er e
helsta rót aðgerða franski
vörubifreiðastjóra.
Umferð um landamæri Frakl
lands og ftalíu hófst að nýju
morgun, en gekk afar hægt. Eii
hverjir úr röðum vörubifreii
astjóra hafa gefist upp á aðgen
unum, en meginþorrinn siti
enn fast við sinn keip. Langi
raðir bifreiða eru við öll landi
mærahliðin á milli landanna.
Þá bárust þær fregnir fi
Sviss og Austurríki, að öngþvei
hefði verið á landamærum rík
anna við Ítalíu. Við Brenne
skarð hafði t.d. myndast r<
1300 vöruflutningabifreii
vegna hægagangsverkfalls í
alskra tollvarða. Þeir hættu ai
gerðum sínum síðdegis.
mlMmig
m IgfUHEG
LL • )| aG3B
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
City of Hartlepool 1. mars
Bakkafoss 13.
mars
City of Hartlepool 23. mars
Bakkafoss 4. mars
NEW YORK
City of Hartlepool 29. mars
Bakkafoss 12. mars
City of Hartlepool 22. apríl
Bakkafoss 3. apríl
HALIFAX
Bakkafoss 16. mars
Bakkafoss 7. april
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 12. febr.
Alafoss 19. febr.
Eyrarfoss 26. febr.
Álafoss 4. mars
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 13. febr.
Álafoss 20. febr.
Eyrarfoss 27. febr.
Álafoss 5. mars
ANTVERPEN
Eyrarfoss 14. febr.
Álafoss 21. febr.
Eyrarfoss 28. febr.
Álafoss 6. mars
ROTTEROAM
Eyrarfoss 15. tebr.
Álafoss 22. febr.
Eyrarfoss 29. febr.
Álafoss 7. mars
HAMBORG
Eyrarfoss 16. febr.
Alafoss 23. febr.
Eyrarfoss 1. mars
Álafoss 8. mars
WESTON POINT
Helgey 29. febr.
LISSABON
Skip 21. mars
LEIXOES
Sklp 23. mars
BILBAO
Sklp 24. mars
NORÐURLÖND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 24. febr.
Dettifoss 2. mars
Mánafoss 9. mars
Dettifoss 16. mars
KRISTIANSAND
Mánafoss 27. febr.
Dettifoss 5. mars
Mánafoss 12. mars
Dettifoss 19. mars
MOSS
Mánafoss 28. febr.
Dettlfoss 2. mars
Mánafoss 13. mars
Dettifoss 15. mars
HORSENS
Dettifoss 7. mars
Dettifoss 21, mars
GAUTABORG
Mánafoss 29. febr.
Dettlfoss 7. mars
Mánafoss 14. mars
Dettifoss 21. mars
KAUPMANNAHÓFN
Mánafoss 1. mars
Dettifoss 8. mars
Mánafoss 15. mars
Dettifoss 22. mars
HELSINGJABORG
Mánafoss 2. mars
Dettifoss 9. mars
Mánafoss 16. mars
Dettlfoss 23. mars
HELSINKI
Irafoss 5. mars
GDYNIA
írafoss 9. mars
_ÞÓRSHÖFN
JJ Mánafoss 24. mars
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram og til baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP