Morgunblaðið - 24.02.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBROAR 1984
19
Djúpivogur:
Nýtt skip
Djúpavogi, 23. febrúar.
í GÆRKVÖLDI bættist nýtt skip í
flota okkar á Djúpavogi þegar
Stjörnutindur lagðist að bryggju
klukkan nímlega 12.00. Búlands-
tindur hf. keypti skipið frá Keflavík
og hét það áður Pétur Ingi.
Skipið er 214 tonn, smíðað árið
1966, en yfirbyggt og endurbyggt í
í flotann
Noregi 1982, með nýjum vélum.
Gert er ráð fyrir að skipið hefji
veiðar með þorskanet á næstunni.
Undanfarnar tvær vikur hefur
verið suðlæg átt og hláka og er
orðið marautt á láglendi, veturinn
hefur verið snjóléttur, en svellalög
voru talsverð, bæði fyrir og eftir
áramót. — FrétUritari.
Ráöstefna Varðar um sjávar-
útvegsmál í Valhöll á laugardag
MorKunblaðiö/ Heimir Stijssson.
Fiskurinn settur um borð í flugvélina á Keflavíkurflugvelli í gær.
RÁÐSTEFNA Landsmálafélagsins
Varðar um sjávarútvegsmál verður
í Valhöll við Háaleitisbraut á laug-
ardag kl. 14—18. Ber hún heitið
Gullkista þjóðarinnar, á krossgöt-
um. í upphafi ráðstefnunnar flytur
Matthías Bjarnason, fyrrv. sjávar-
útvegsráðherra, ávarp. Er fundur-
inn opinn öllum sem áhuga hafa á
að kynna sér málefni þessa mikil-
væga málaflokks.
Fimm fyrirlestrar verða flutt-
ir. Þorkell Helgason, dósent,
fjallar um spurninguna hvort
mat á afrakstursgetu fiskistofna
sé rétt, Björn Dagbjartsson, for-
stjóri, talar um stjórnunarleiðir
fiskveiða, kosti og galla, Guð-
mundur H. Garðarsson, við-
skiptafræðingur, um nýjar leiðir
og ný viðhorf í sjávarútvegi, Ein-
Kristilegt stúdentafélag:
Framtíð
íslensku
kirkjunnar
KRISTILEGT stúdentafélag gengst
fyrir umræðufundi í Félagsstofnun
Stúdenta í kvöld kl. 20.30. Yfirskrift
fundarins er „Framtíð íslensku
kirkjunnar" og hafa aðilar frá
Kristilegu stúdentafélagi, Félagi
guðfræðinema, ÆskulýðsstarH þjóð-
kirkjunnar og Ungu fólki með hlut-
verk stutt innlegg um málið. Að því
loknu verða pallborðsumræður.
Á fundinum verður einnig leikin
tónlist og veitt kaffi.
Arinbjörn
seldi
FISKISKIPIÐ Arinbjörn seldi afla
sinn í Bremerhaven í Vestur-Þýzka-
landi í gær, fimmtudag, en afli skips-
ins var 157,1 tonn. Heildarverð var
3.028,4 þúsund krónur, eða 19,27
krónur á hvert kíló.
Ekki féll brott
BROTTFALL orðsins ekki úr sam-
tali Mbl. við Sigurð E. Haraldsson,
formann Kaupmannasamtakanna,
í blaðinu í gær, þar sem hann lýsti
skoðun sinni á nýgerðum kjara-
samningum ASÍ og VSÍ, gjör-
breytti merkingu síðustu setn-
ingarinnar í viðtalinu.
Síðasta setningin er rétt svo-
hljóðandi: „Ég vona samt að þær
kjarabætur sem launþegar fá með
þessum samningum, velti ekki út í
verðlagið."
Biðst Morgunblaðið velvirð-
ingar á fyrrgreindu brottfalli.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
16 tonn af ferskum fiski til Bandaríkjanna
ar K. Guðfinnsson, stjórnmála-
fræðingur, um sjávarútveg og
einkaframtak, og Skúli Jónsson,
viðskiptafræðingur, um framtíð-
arsýn sjávarútvegs. Eftir hverju
erindi verða leyfðar stuttar
fyrirspurnir og að erindum lokn-
um verða almennar umræður.
FYRIRTÆKIÐ ístros sendi í gær til
Bandaríkjanna 16 tonn af ferskum
Fiski, en þetta er fyrsta sending
fyrirtækisins þangað.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá Eiríki Hjartarsyni,
framkvæmdastjóra ístros, er um
að ræða karfa og ýsu. Karfinn
vegur 11 tonn, en ýsan 5 tonn.
Sagði Eiríkur að verðmæti
farmsins væri rúmlega 1.200 þús-
und krónur, en fiskurinn fór með
leiguvél frá Flugleiðum til Boston.
HHI
VTÐKYNWUM,
NÆSTRMRL!
MS-SAMLOKUR
Loftskiptar umbúöir sem
varöveita ferskleika
innihaldsins.
Þrjú lög af
Samsölubrauöi.
íslenskt smjör og tvö lög
af gómsœtu áleggi.
Reyndu MS-samloku í nœsta mál !
H ó Mjólkursamsalan
AUK HF. Auglýsingastofa Kristlnar 3.123