Morgunblaðið - 24.02.1984, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐMUND GUÐJÓNSSON
Assad manna líklegastur
til að róa Líbanonstríðið
Þessa dagana og vikurnar er reynt til þrautar að finna ein-
hverja lausnarmynd á hinu blóðuga borgarastríði sem geisað
hefur í Líbanon. Drúsar og shitar, með aðstoð Sýrlendinga, hafa
unnið sigra gegn stjórnarher Gemayels forseta og kristnir falang-
istar hafa einnig látið undan síga. Friðargæslulið ítala, Breta,
Bandaríkjamanna og Frakka eru annaö hvort farin frá Beirut eða
á forum þaðan. Og ísraelsmenn hafa verið að hugsa sér til
hreyfings um langt skeið frá suðurhluta landsins, en vita varla í
stöðunni hvernig þeir eigi að koma brottför sinni um kring, því
ekki vilja þeir skilja suðurhlutann eftir óvarinn. Hin gerbreytta
bardagastaða hefur flækt málið enn meira en fyrr, hvað þá
leiðtogaskiptin í Kreml, en Sovétmenn eru styrkur Sýrlendinga
og stoð. Vegur Sýrlands/Sovétríkjanna hefur farið stigvaxandi á
sama tíma og áhrif Bandaríkjanna hafa farið þverrandi, að
margra viti vegna eigin mistaka.
Breytir nýi Kremlar-
foringinn einhverju?
Það er við hæfi að skoða málið
fyrst frá sjónarhóli hins
sterka í dag, sem sé Haffez
Assad Sýrlandsforseta. Talið er
að leiðtogaskiptin í Sovétríkjun-
um í kjölfarið á andláti Juri
Andropov hafi verið umtalsvert
áfall fyrir Assad. Ekki svo að
skilja að Sovétríkin muni hætta
stuðningi við Sýrland, fjarri því.
Hins vegar þarf að mörgu leyti
að byrja aftur frá grunni í sam-
skiptum landanna. Það stafar af
því að Assad var orðinn persónu-
lega nákunnur Andropov og veit
vel að það mun taka sinn tíma að
ná sama trúnaðartrausti með
nýjum leiðtoga, Konstantin
Chernenko.
Að það skuli vera Chernenko
er einnig áfall fyrir Assad, því
hann var náinn vinur, skoðana-
bróðir og vinur Leonids Breshn-
evs, fyrirrennara Andropovs og
Assad gat ekki státað af góðri
reynslu af Breshnev. Þannig var
nefnilega mál vexti, að veikindi
Breshnevs hófust einmitt um
svipað leyti og innrás ísraels-
manna í Líbanon 1982. Innan
fárra daga neyddust Sýrlend-
ingar til vopnahlés. Þá voru
Sýrlendingar hinir veiku, ísra-
elsmenn hinir sterku. ísra-
elsmenn undirrituðu síðan sam-
komulag um brottflutning herja
fsraels og Sýrlands frá Líbanon.
Bandaríkjamenn höfðu veg og
vanda af samkomulaginu. En
þeir treystu greinilega um of á
styrk Líbanonhers og Amins
Gemayels. Forsetinn berst nú
fyrir pólitísku lífi sínu og herinn
hefur tapað hverri orustunni á
fætur annarri. Fram hafa runn-
ið drúsar og shitar og með því að
tefla rétta leiki með þær fylk-
ingar hafa Sýrlendingar snúið
taflinu við sér í hag. Nú er
fyrrgreint samkomulag úr sög-
unni og Bandaríkjamenn sjálfir
hafa sagt að ef hægt sé að kom-
ast að annarri viðunandi lausn,
verði svo að vera. fsraels-
menn/Bandaríkjamenn eru nú í
sæti hins veikari í Miðaustur-
löndum.
Ástandið er tæpt, ekkert má
út af bregða ef ófriðurinn á ekki
að magnast mikið. En Assad
>ykir vera varkár og vaxandi
áhrif hans á ný munu ekki draga
úr varkárninni ef að líkum læt-
ur. Assad vill fyrir alla muni
vera laus við Bandaríkjamenn og
sraelsmenn frá Líbanon, en
hann vill ekki lima landið í sund-
ur. Á móti kemur að hann hefur
jafnvel enn minni áhuga á því að
missa taumhald á hinum her-
skáu bandamönnum sínum drús-
um og shitum. Leiðtogar þeirra,
Jumblatt og Berri, hafa að und-
anförnu átt tíða fundi með
Assad þar sem hann hefur búið
um hnútana eins vel og kostur
er. Helst er talið að Assad óski
sér að Líbanon geti orðið hið
sama og áður, friðsamleg sam-
/úð múhameðstrúarmanna og
kristinna manna, en þó undir
áhrifum Sýrlendinga. En tekst
Assad þetta?
Ýmislegt gerir hlutina erfiðari
viðureignar. Til dæmis skothríð
bandarísku herskipanna á drús-
ana í fjöllunum umhverfis Beir-
ut. Með hverri sprengikúlu sem
fellur, fjölgar ofstækismönnum
sem útkljá vilja málin með
hermdarverkum og ófriði. Þá má
einnig geta ósveigjanleika fal-
angistaflokksins, en það kann að
breytast eftir sigra múhameðs-
trúarmanna í orustum að undan-
förnu. Eins og staðan er, virðist
það besti kosturinn fyrir hina
kristnu falangista að halla sér
að Sýrlendingum. Ekki fara
fsraelsmenn aftur inn í Beirut
til að koma þeim til valda og
stuðningur Bandaríkjanna þykir
heldur veikur á þessum slóðum.
Falangistarnir hafa áður orðið
að reiða sig á Sýrlendinga. f
byrjun borgarastríðsins 1976
komu Sýrlendingar falangistum
til hjálpar gegn óvinum þeirra,
múhameðstrúarmönnum.
Sem fyrr segir eiga falangist-
ar ekki marga valkosti, sá besti
þeirra nú virðist vera að frið-
mælast við Assad. Fyrir falang-
ista er það þó slæmur kostur
einnig, því það þýðir að sam-
komulagið sem undirritað var
um brottflutning herja frá
Líbanon 17. maí síðastliðinn er
týnt og tröllum gefið sem orðið
hefur raunin. Það er súrt epli að
bíta í, þvi i 40 ár hefur falangista
dreymt um að drottna yfir
Líbanon og er ísraelsmenn gerðu
innrásina 1982 og Bashir Gema-
yel var kjörinn forseti virtist
ekkert að vanbúnaði. En Bashir,
bróðir Amins, var myrtur og
undir stjórn Amins hefur syrt í
álinn hjá falangistunum.
Það virðist sem sé sýnt að
Bandaríkin/fsrael muni ekki
ráða fram úr ófriðnum í Mið-
Austurlöndum í bráð að minnsta
kosti og ísraelsmenn eru þegar
farnir að velta öðrum möguleik-
um fyrir sér. Til dæmis hafa þeir
bæði leynt og ljóst biðlað til
shita, sem skotið hefur mjög
skyndilega upp sem hernaðar- og
pólitísku afli í Líbanon. Hafa
ýmsir embættismenn og hernað-
arsérfræðingar talað vel um
shita nýlega og hafa þeir reynt
að fá shita til að halda uppi því
eftirliti með Palestínuskærulið-
um sem ísraelsmenn telja nauð-
synlegt til þess að þeir geti kvatt
her sinn heim frá suðurhluta
Líbanon. Til þessa hafa shitar
ekki tekið undir þessa hugmynd.
íranir hinir raunveru-
legu sigurvegarar?
Það skelfir marga að hugsa
um hverjir kunni að standa upp
sem hinir raunverulegu sigur-
vegarar. Ayatollah Khomeini,
erkiklerkurinn herskái, hefur
boðað byltingu Islams allar göt-
ur síðan hann náði völdum í Iran
og mótbyr hefur verið lítill.
íranir eru lausir við keisara
sinn, þeir hafa auk þess leikið
Bandaríkin grátt og haft betur í
stríði sínu við írak. Ekki nóg
með það, fjöldi shita í Líbanon
lítur á Khomeini sem leiðtoga
sinn og hefur barist í anda
islömsku byltingarinnar á göt-
um Beirut.
Saudi-Arabar og arabísku
furstadæmin við Persaftóa hafa
vart trúað sínum eigin augum og
eyrum vegna stefnuleysis
Bandaríkjanna í Mið-Austur-
löndum, svo og getuleysi þeirra
til að vernda vini sína. Augu
þeirra beinast því fremur til
Sýrlendinga nú, þar virðist síð-
asta vonin vera. Og þá um leið í
Kreml. Hlutverk Chernenkos
aðalritara kann því að verða
stórt áður en yfir lýkur og bend-
ir margt til þess að áhrifaskeið
Sovétríkjanna í þessum heims-
hluta sé í þann mund að hefjast
fyrir alvöru.
Heimildir: Observer, AP o.fl.
Már
Magnússon
Tónlist
Egill Friöleifsson
Gamla Bíó 22. febrúar ’84.
Flytjendur:
Már Magnússon tenór
Ólafur Vignir Albertsson píanó
Efnisskrá:
Verkefni eftir ýmsa höfunda
Már Magnússon tenórsöngvari
kvaddi sér hljóðs á sviði Gamla
Bíós sl. miðvikudagskvöld og flutti
okkur fjölbreytta söngskrá við
undirleik Ólafs V. Albertssonar.
Már Magnússon á langt nám að
baki og hefur aflað sér víðtækrar
þekkingar á sönglistinni. Hann
hefur getið sér gott orð sem kenn-
ari undanfarin ár, og komið mörg-
um á sporið í völundarhúsi hins
hreina tóns. Gæti ég ímyndað mér
að hæfileikar hans og staðgóð
kunnátta njóti sín jafnvel betur í
hlutverki leiðbeinandans fremur
en sólóistans á konsertpallinum.
Rödd hans býr ekki yfir þeim
leiftrandi töfrum, sem hrífur
mann með sér frá fyrstu hend-
ingu, en hann fer laglega með þau
lög, sem henta honum best. Ljóðin
virðast eiga betur við rödd Más, en
hér voru það óperuaríurnar, sem
settu sterkastan blæ á efnis-
skrána, og þar var ekki verið að
ráðast á garðinn þar sem hann er
Hið nýja hús er formfagurt og þykir nýstárlegt.
Ljósm. Mbl. — G.Berg.
Akureyri:
Nýstárlegt
fjölbýlishús
Akureyri, 22. febrúar.
í SL. viku afhenti byggingarfélagið
Híbýli hf. stjórn verkamannabú-
staða fjölbýlishús með átta íbúð-
um, sem fyrirtækið hefur smíðað
fyrir verkamannabústaðakerfið. Þá
eru örfáir mánuðir í að fullgert
verði samskonar hús sem Híbýli
hefur einnig í smíðum og stjórn
verkamannabústaða hefur keypt
fjórar íbúðir í því húsi einnig. Hús-
in eru við Múlasíðu og eru stærðir
íbúðanna frá 84 til 132 fermetrar.
Hönnuðir húsanna eru Samhönn-
un, en það eru Haraldur V. Har-
aldsson arkitekt, Teiknistofan sf.,
Vinnustofan Klöpp hf. og Raftákn
sf.
Form þessa fjölbýlishúss er
allnýstárlegt, a.m.k. hér á Akur-
eyri, en þau eru byggð í vinkil og
er stigahús og aðalinngangur í
horni vinkilsins. Hver íbúð hefur
útsýni til þriggja átta. Þá er og
rúmgóður sólskáli í tengslum við
stofu 6 íbúðanna. Stigahúsið er
byggt utan á húsið þannig að um-
ferð þar um verður lítt vart inni
í íbúðunum og framan við íbúðir
á hverri hæð er lítil sameiginleg
forstofa sem tengist stigahúsinu,
þannig má segja að þetta fjölbýi-
ishús hafi ýmsa kosti raðhúsa og
fjölbýlishúsa í einu húsi.
Nýir eigendur, að meginhluta
ungt fólk, flutti inn í húsið þegar
á föstudag í síðustu viku.
G.Berg.
Hörður Tulinius, forstjóri Híbýlis,
afhendir Helga Guðmundssyni,
formanni stjórnar verkamanna-
bústaða, lykla að nýja húsinu.