Morgunblaðið - 11.03.1984, Side 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
SVIPMYND Á SUNNUDEGI
GARYHART
Stjórnmálaferill Gary Harts
öldungadeildarþingmanns
hófst fyrir þrjátíu árum þegar
hann bauð sig fram til forseta
skólafélagsins og tapaði. Skóla-
félagar hans rifja upp, að hann
hafi orðið gramur vegna ósigurs-
ins og átt erfitt með að sætta sig
við hann. Hart — sem þá hét
Gary Hartpence — ákvað að
bjóða sig fram aftur árið eftir.
Hann skipulagði, gerði áætlanir
og í það skiptið náði hann kjöri.
Og hann hefur ekki oft beðið
ósigur síðan.
Þeir sem þekkja hann segja að
hann sé einarður og afdráttar-
laus og hann hafi hæfileika til að
sjá málin í víðara samhengi og
af hærri sjónarhóli en flestir
aðrir. Hann sé sjálfum sér sam-
kvæmur og haldi sínu striki, ef
hann trúir á málstaðinn.
Ekki þarf að fjölyrða um
hversu mjög hefur komið á óvart
velgengni hans í þeim forkosn-
ingum sem hafa farið fram í
Bandaríkjunum þegar þetta er
skrifað. Þó að varla verði spáð
um framhaldið eru menn farnir
að taka framboð hans alvarlega
og ekki sízt hefur Walter Mond-
ale, sem flestir töldu sigur-
stranglegan sem frambjóðanda
demókrata á móti Ronald Reag-
an, orðið illilega hlessa.
Utan Bandaríkjanna var
Gary Hart lítt þekktur áð-
ur en sigurinn í New Hampshire
kom til. Því hafa menn keppzt
við að afla sér upplýsinga um
fortíð þessa spútniks, sem boðar
„nýtt lýðræði" og vitnar gjarnan
til þeirra Roosevelts og Kenne-
dys sem báðir hafi komið fram
með nýjar hugmyndir og nýjar
stefnur, þegar bandarískt þjóð-
félag hafi verið að staðna. Þess-
ar nýju hugmyndir hafi þá
hleypt nýju blóði í þjóðina og
vakið þjóðerniskennd og metnað.
Þessi málflutningur hefur ber-
sýnilega fengið hljómgrunn,
enda maðurinn gjörvilegur og
glænýr. Hart hefur hamrað á því
sjálfur að Mondale sé fulltrúi
„gamla tímans" þótt aldursmun-
ur þeirra sé ekki ýkja mikill.
Aðrir eru þeir sem segja að hug-
myndir Harts séu fjarri því að
vera nýjar, hvað þá frumlegar.
Og í raun og veru beri ekki ýkja
mikið á milli í skoðunum þeirra
Walter Mondales hvað varðar
afstöðu til ýmissa innanríkis- og
utanríkismála eins og vikið verð-
ur að síðar í þessari grein. Hins
vegar benda þeir á að það sé ekki
hægt annað en viðurkenna að
Gary hart hafi tekizt fram að
þessu að klæða gamlar hug-
myndir í nýjan búning og það sé
skýringin á sigurgöngu hans í
þeim forkosningum sem eru af-
staðnar.
Hvað sem gagnrýnisröddum
líður á Hart það til dæmis
sameiginlegt með John F. Kenn-
edy á sínum tíma, að hann hefur
náð til yngri kynslóðarinnar.
Hann er slyngur áróðursmaður
og margir trúa því að hann sé
eini frambjóðandinn sem gæti
hugsanlega borið sigurorð af
„gamla refnum" sem situr í
Hvíta húsinu nú. Hart kemur
þekkilega fyrir í sjónvarpi og á
þessum fjölmiðlatímum skiptir
það miklu. Mondale geldur þess
augsýnilega í þessari kosninga-
baráttu að honum er ekki jafn
sýnt að vekja hrifningu á per-
sónu sinni og málflutningi og
Hart. Og svo virðist sem gæti
löngunar hjá handarískum kjós-
endum að boðberi hins nýja lýð-
ræðis fái brautargengi og marg-
ir álíta að það gæti aukið veg
Bandaríkjanna ekki sízt á
alþjóðavettvangi. Bandaríkja-
menn hafa í forsetatíð Ronald
Reagans sætt vaxandi gagnrýni
og þetta fólk telur að það sé fyrir
æði mörgum forsetum síðan, að
Bandaríkjamenn hafi gegnt því
forystuhlutverki í samfélagi
vestrænna ríkja sem þau hafi
alla burði til. Þessu vilja yngri
menn snúa við. Reagan hefur
verið umdeildur vegna afskipta
af málum utan Bandaríkjanna,
hvort sem er í Mið-Ameríku eða
Miðausturlöndum.
Gary Hart er fæddur í
Ottawa í Kanada þann 28.
nóvember 1936. Foreldrar hans
fluttust síðan til heimaríkis síns,
Colorado. Hann hét Gary Hart-
pence fram eftir árum, en lét
breyta því í Hart fyrir æði
löngu. Hann hefur engar skýr-
ingar gefið á því og hann hefur
heldur ekki útlistað af hverju
hann er skráður fæddur 1937 í
uppsláttarritum. Hann segir að
allt slíkt sé þvílíkt smámál að
hann nenni ekki einu sinni að
ræða það. Raunar er það íhugun-
arefni, hversu einkalíf og ýmis
prívatmál Harts hafa verið lítið
til umræðu í fjölmiðlum, að
minnsta kosti fram að þessu.
Gary Hart giftist Olethu Lee
Ludwig, skólasystur sinni árið
1958 og þau hafa eignazt tvö
börn. Hart hafði byrjað nám í
guðfræði en sneri sér svo að lög-
um og lauk prófi í þeirri grein og
þau hjón fluttu til Denver, þar
sem Hart opnaði lögfræðiskrif-
stofu. Þegar George McGovern
reyndi að ná útnefningu demó-
krata í forsetakosningunum
1972, fylltist Hart ákefð á bar-
áttumálum hans, gekk til liðs við
hann og varð síðan aðalkosn-
ingastjóri hans. Eins og marga
rekur minni til tapaði McGovern
kosningunum á móti Nixon með
meiri atkvæðamun en áður hafði
þekkzt. En framganga Harts
þótti tápleg og hann gekk ei heill
þeirri hildi frá. Árið 1974 bauð
Hart sig fram til öldungadeild-
arinnar fyrir Colorado og vann
sigur á fulltrúa repúblikana,
Peter Dominick, sem var þing-
maður ríkisins. Hann vakti fljót-
lega á sér athygli í öldungadeild-
inni fyrir einarðan og skeleggan
málflutning. Hann barðist gegn
verðlagseftirliti á eldsneyti,
studdi að lækkaðir yrðu skattar
á einkarekstri og aukin heldur
þótti hann töluvert athafnasam-
ur „fyrirgreiðslupólitíkus" fyrir
Colorado. Hann var endurkjör-
inn sex árum síðar með innan
við tuttugu þúsund atkvæða
meirihluta. Samtímis því vann
Ronald Reagan forsetakosn-
ingarnar og yfirburðasigur í
vesturríkjunum. Hart fylgdist
þá með talningu í hópi
stuðningsmanna sinna og þegar
sýnt var að hann hefði náð kjöri
vitnaði hann í orð Churchills og
sagði: „Ekkert jafnast á við þá
æsilegu tilfinningu að verða
fyrir því að það sé skotið á mann
— og skotið geigi."
Hart hefur mikið yndi af
bókalestri og heimspeki höfðar
alveg sérstaklega til hans. Hann
er vel lesinn í Kirkegaard að
sögn fróðra og segist hafa til-
einkað sér aðskiljanlegar
kenningar hans. Hann hef-
ur dálæti á rússneskum
í bókmenntum 19. aldar og
fyrri hluta þeirrar tutt-
ugustu og sagður
kunna „Stríð og frið“
Tolstojs nánast eins
og faðirvorið.
Hann hefur fengizt
við skriftir sjálfur og
áður en hann fór á
fulla ferð í kosningabar-
áttu nú voru þeir William
S. Cohen öldungadeildar-
þingmaður byrjaðir að vinna
saman að bók. Efni hennar er
býsna fýsilegt: það er njósna-
Eins og áður segir hefur einkalíf
Harts ekki verið neitt aðal-
efni blaða eins og títt
hefur verið í slík-
um kosning-
um. Þó
hefur
hjónaband hans og Olethu Lee
ekki verið með öllu kyrrt. Þau
slitu samvistir fyrir fimm árum,
tóku upp sambúð meðan kosn-
ingabaráttan 1980 stóð yfir og
eftir að hann náði kjöri tilkynnti
talsmaður skrifstofu hans að
þau hjónin ætluðu að sækja um
skilnað. Hart flutti síðan inn til
vinar síns, blaðamannsins Bob
Woodward hjá Washington Post.
En ekki var sótt um skilnað og
þau hjón eru nú saman á ný og
kona hans fylgist af kappi með
ferðalögum hans og tekur þátt í
baráttu hans að því er sagt er af
hinum mesta fjálgleik.
Þegar menn nú velta fyrir
sér hver sé helztur stefnu-
munur hjá þeim keppinautum
Mondale og Hart kemur upp úr
dúrnum að í mörgum mikilvæg-
um málum er ekki ýkja mikill
skilsmunur þar á. Hart og Mon-
dale vilja báðir draga úr kostn-
aði við heilbrigðiskerfið, Mon-
dale vill hærri framlög til
menntamála, umhverfismála og
í matvæla- og næringarfræði-
rannsóknir þar sem Hart leggur
megináherzlu á að bæta vega-
kerfið, auka framlög til áveitna
og orkuvera og hann kveðst bera
mjög fyrir brjósti að staða ör-
yrkja og efnalítilla verði styrkt.
í varnarmálum hefur Mondale
talað um að auka þurfi framlög
til þeirra um 4% en Hart um ögn
meira eða 4,5—5%. Báðir eru
andvítir B-l-sprengjuvélinni og
MX-eldflaugakerfunum. Mon-
dale vill meiri afskipti ríkisins
af stefnunni í iðnaði en Hart vill
að markaðurinn ráði. Þeir eru
báðir talsmenn þess að draga úr
kjarnorkuvígbúnaði og styðja al-
gera frystingu kjarnorkubúnað-
ar ef hún yrði sannanlega gagn-
kvæm. Varðandi afstöðu til af-
skipta Bandaríkjanna erlendis
eru þeir báðir á móti hernaðar-
aðstoð við Nicaragua og E1
Salvador við óbreyttar aðstæður
og þeir eru sammála um að
bandarískar hersveitir eigi ekki
að vera í Hondúras. Báðir styðja
þeir Israel heils hugar. Hvað
varðar félgsleg mál myndu þeir
báðir teljast frjálslyndir og jafn-
réttislega sinnaðir og vilja
launajafnrétti kynja, almenn
mannréttindi og eru báðir
hlynntir því að fóstureyðingar
verði heimilaðar með ákveðnum
skilyrðum þó.
Af þessu má ráða að það er
kannski fleira sem þeir Mondale
og Hart eru sammála um en hitt.
Því spyrja ýmsir hvort ekki væri
þá öllu ráðlegra að veita Mon-
dale brautargengi vegna reynslu
hans. Stuðningsmenn Harts gefa
að sjálfsögðu lítið fyrir þá rök-
semd. „Valið stendur milli for-
tíðar og framtíðarinnar" er slag-
orð Harts. Og telur sig eiga þar
við þá báða Mondale og Reagan.
Hvað sem öðru líður verður
ákaflega forvitnilegt að fylgjast
með framvindunni í forkosning-
unum á næstu vikum og síðan
mánuðum. Hart hefur fengið
ótrúlegan byr í seglin og fjár-
magn og kosningavél Mondales
hefur alltjent fram að þessu ekki
dugað langt.
(Heimildir: Kconomisl, AP, Poliliken o.fl.)
Jóhanna
Kristjónsdóttir
Föstumessur
í Fríkirkjunni
ÞRJÁR fijstumessur verða sungnai í
Fríkirkjunni í Reykjavík fram til
páska. Hin fyrsta þriðjudagskvöldið
13. mars, næsta 27. mars og hin síð-
asta 10. aprfl, allar á þriöjudags-
kvöldum og hefjast kl. 20.30.
Kór og söfnuður syngja úr
Passíusálmum síra Hallgríms
Péturssonar, safnaðarprestur flyt-
ur hugleiðingu og tónar Lítaníu
síra Bjarna Þorsteinssonar og frú
Ágústa Ágústsdóttir syngur ein-
söng, í öll þrjú skiptin bænina
„Vertu Guð faðir, faðir minn“ við
mismunandi sálmalag hverju
sinni: fyrst gamalt danskt lag, þá
lag Þórarins Guðmundssonar og
loks lag Jóns Leifs. Organisti og
söngstjóri er Pavel Smíd.
í föstumessunum verður skart-
að hinum stórfallega kirkjuskrúða
frú Unnar Ólafsdóttur.
Föstumessa er alveg ómissandi
þáttur í guðsþjónustu og tilbeiðslu
hvers kristins safnaðar. Síðustu
jarðvistardögum Jesú, frelsara
okkar, eru gerð mjög ítarleg skil á
síðum guðspjallanna og ekki að
ófyrirsynju. Kristnir menn hafa
frá öndverðu lagt þá merkingu í
handtöku, réttarhöld, dauða og
upprisu Jesú Krists, að þar hafi
farið fram úrslitabarátta, þar sem
hátign Guðs bar sigurorð af öllum
illum öflum, mannkyni til eilífs
hjálpræðis. Þessa þýðingarmestu
frásögn allra tíma hefur snilling-
urinn Hallgrímur Pétursson
endursagt í Passíusálmum sínum,
einhverju dýrlegasta listaverki
heimsbókmenntanna samanlagð-
ra.
Finnumst í Fríkirkjunni þriðju-
dagskvöldið 13. mars kl. 20.30 og
eignumst saman kvöldstund,
borna uppi af íhugun og bæn og
þakkargjörð til Guðs fyrir frelsar-
ann eilífa.
Gunnar Björnsson,
fríkirkjuprestur.
Vann tvo bfla í bingói:
Kannað verði
hvort brögð
voru í tafli
íþróttafélagiö Leiknir í Reykjavík
hefur farið fram á við Rannsókna
lögreglu ríkisins, að rannsakað verði
hvort brögð hafi verið í tafli þegar
Reykvfkingur vann tvo bfla í bingói
á vegum félagsins.
Maðurinn vann bílana á sama
spjaldið með stuttu millibili.
Hann hefur verið ótrúlega hepp-
inn í bíngóum, sem haldin hafa
verið í Reykjavík og spunnust
miklar sögur um svindl í kjölfarið
á vinningunum í bingói Leiknis.
Arnar Guðmundsson, deildar-
stjóri í RLR, sagði í samtali við
Mbl., að enn sem komið væri benti
ekkert til að maðurinn hefði haft
rangt við.