Morgunblaðið - 11.03.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
53
sögur af lífseiglu álsins. Hún staf-
ar af ýmsu. Höfuðkúpan er smá og
eitilhörð, tálknopin eru agnarlítil
og tálknblöðin samsvarandi. Þar
af leiðandi tekst álnum að halda
þeim rökum óvenjulega lengi og
getur hann lifað á þurru landi
ótrúlega lengi. Slímugur búkur
hans hjálpar að sjálfsögðu til, því
hann þornar þá mun síður.
Til er frásögn af ungum veiði-
kappa sem setti í um 30 senti-
metra langan ál í lækjarsprænu á
suðvesturlandi. Það var annar áll-
inn hans það kvöldið og hafði
gengið greiðlega að eiga við þann
fyrri. En þessum ál var ekki fysjað
saman. Þetta er ekki falleg saga,
en sönn er hún og kemur nú: Áll-
inn hafði kokgleypt öngulinn og
varð ekki dreginn á land fyrr en
gömul ryðguð barnakerra á lækj-
arbotninum hafði verið krækt í
land með hrífu, enda hafði állinn
margvafið bæði sjálfum sér og lín-
unni utan um grindina. Er á land
kom hófst hreinasti eltingarleik-
ur, állinn smaug eins og snákur í
grasinu og það var allt annað en
hlaupið að því að handsama dýrið.
Það tókst annað slagið og var áln-
um þá slegið bylmingsfast við
nærliggjandi steina. Aldrei nema
eitt högg í einu, því hinn háli fisk-
ur smaug jafn harðan úr höndum
veiðimannsins. Eftir mikið þóf fór
að draga af álnum og fór sveinn-
inn þá að fálma eftir öngli sínum.
Enn spriklaði állinn og er veiði-
maðurinn sá að öngullinn var
djúpt í fiskinum, sleit hann línuna
og hnýtti nýjan öngul undir, enda
náði hann engu taki á álnum sem
spriklaði enn þrátt fyrir fjölmörg
feiknahögg í höfuðið.
Er veiðimanni þótti állinn vera
loks allur, stakk hann honum í
poka, rambaði síðan með læknum
um hríð og skimaði eftir meiri
bráð. Ekki voru fleiri álar á ferli
og arkaði strákur því heim á leið.
Hann hafði aldrei áður komið
heim með ál, en vogaði sér nú að
gera það. Ekki vildi heimilisfólkið
fá hina ófrýnilegu fiska inn fyrir
dyr, enda var veiðikappanum unga
bent á að einn þeirra „væri enn þá
lifandi". Um það var ekki að vill-
ast, állinn spriklaði enn, var þó
hálf klukkustund liðin frá því að
álnum var stungið í pokann. Miður
sín yfir móttökunum, dróst strák-
urinn aftur niður að læknum,
hann ætlaði að skila álunum til
síns heima þó þeir væru nú dauðir.
Hann ætlaði ekki að henda þeim i
ruslatunnuna eins og honum hafði
verið sagt að gera. Hann tók fyrst
þann minnj... og fyrri sem hann
hafði veitt og henti honum í læk-
inn. Hann sökk til botns og lá
kyrr. Hann tók síðan þann stærri
og nú hálfhauslausa, henti honum
í lækinn. Nú var tæp klukkustund
liðin frá því að állinn var dreginn
á land. Og sjá, fiskurinn synti
burt! Sem fyrr segir, þetta er
langt frá því að vera falleg saga,
en sönn er hún.
Önnur í svipuðum dúr, að vísu
ekki nándar nærri eins ógeðfelld,
er til um veiðimann sem var að
dorga í Elliðavatni. Það var
sumarkvöld fagurt þannig að
veiðimaðurinn gleymdi sér þrátt
fyrir að veiðin væri lítil eða engin.
Seint um kvöldið gerðist það hins
vegar, að hann dró á skömmum
tíma tvo væna ála. Hann náði
önglinum greiðlega úr báðum og
rotaði þá að hann taldi, stakk
þeim síðan í poka. Er heim kom,
var fjölskyldan í fasta svefni.
Hann setti þvi pokann með álun-
um í eldhúsvaskinn og skreið
sjálfur upp í rúm. Einhvern tíma
um nóttina vaknaði veiðimaðurinn
síðan við nístandi angistaróp.
Snaraðist hann fram úr rúminu og
fann eiginkonu sína miður sín af
hræðslu í eldhúsdyrunum. Hún
hafði vaknað og átt erindi í eld-
húsið, en er hún kveikti ljós, sá
hún hvar tveir dökkir snákar lið-
uðust eftir eldhúsgólfinu. Álarnir
höfðu raknað úr rotinu, komist
upp úr pokanum, upp úr vaskinu
og niður á gólf! Vildi enginn geta
sér til um hvert leiðin hefði legið
næst. En næturgöltri þeirra lauk
þarna á staðnum.
Heimildir: íslenskir fiskar eftir (iunnar
Jónsson, Fiskabók AB o.fl. — gg.
Bananar Del Monte — Appelaínur Jaffa — Appelsínur spánskar
FM — Blódappelsínur Marokko — Klementínur Jaffa Topas —
Klementínur spánskar — Epli rauö USA — Epli græn — Granny
Smith — Epli frönsk Golden — Epli frönsk rauö — Sitrónur
Jaffa 'A kassar — Sitrónur ítalskar — Grapefruit Jaffa — Grape-
fruit Ruby Read — Melónur — Vínber Cape græn — Vínber
Cape blá — Perur Ítalía — Avocado — Piómur — Kiwi —
Pomelos — Ugly Fruit — Ananas.
EGGERT KRISTJANSSOIM HF
Sundagörðum 4, sími 85300
3MILLJÓNIR
ATKVÆÐA
Það er engin tilviljun, að seldar hafa verið yfir 3 milljónir Ford Fiesta
síðan hann var settur á markað. Alveg frá 1976 hefur verið unnið að stöðugum
endurbótum bílsins. Hann er nú einn vinsælasti smábíll Evrópu. - Ford Fiesta 1984
er nú kominn á markað mikið endurbættur - betri bíll en fyrri árgerðir:
t Endurbætt útlit - minni loftmótstaða
t Sparneytnari
(eyðir aðeins 6.2 1/100 km í bæjarakstri)
t Nýjar endurbættar véiar
t Betri aksturseiginleikar
| Framhjóladrif með bættri fjöðrun
t Endurbætt innrétting
# Ódýrari rekstur
t Meiri aukabúnaður
t Aukið rými
í V-Þýskalandi hefur Ford Fiesta 4 sinnum fengið verðlaunin:
„Bíll skynseminnar“
Það er viðburður að sjá Fiesta á viðgerðarverkstæði
Verð aðeins 243.000 kr. Mjög gott endursöluverð
Sveinn Egilsson hf.
Skeifan 17-Sími: 85100