Morgunblaðið - 11.03.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
63
breiðskífa tríósins út og bar nafn-
ið Outlandos d’Amour. Hún vakti
heilmikla athygli og Regatta de
Blanc, sem kom út ári síðar, vakti
enn meiri athygli.
Á allra vörum
Það var þó ekki fyrr en með
plötunni Zenyatta Mondatta, sem
kom út 1981, að Police varð nafn á
allra vörum. Tvö laga plötunnar,
De Do Do Do, De Da Da Da og
Don ’t Stand So Close to Me, slógu
í gegn svo um munaði. Sjálfur seg-
ist Sting ekki vera allt of ánægður
með plötuna nú þremur árum síð-
ar. „Ætli ég sætti mig ekki við
þriðjung hennar, hitt er ég ósáttur
við,“ sagði hann nýverið í viðtali.
Auk Don’t Stand So Close to Me
segir Sting lögin When the World
Is Running Down og Driven to
Tears.
Síðla árs 1981 fór Sting að
glugga í verk Arthurs Koestler og
heillaðist af bók hans Ghost in the
Machine. Næsta plata Police, sem
kom út árið 1982, bar einmitt
þetta nafn. Þótti hún engu síðri en
Zenyatta Mondatta og hróður Pol-
ice barst enn víðar. „Sándið" varð
örðuvísi og að sögn Sting varð
hann æ hrifnari af „overdubbum".
Summers segir um Ghost in the
Machine, að á henni hafi hljóm-
sveitin fjarlægst tríó-formið mest
af öllum plötunum.
Á Synchronicity kvað svo aftur
við annan tón. Einfaldleikinn
ruddi sér til rúms á ný, þótt
tæknibrellum væri beitt í flestum
lögunum. „í raun beittum við að-
eins þessum þremur grunnhljóð-
færum, sem hljómsveitin hefur yf-
ir að ráða, á Synchronicity,“ hefur
Sting sagt.
Lykillinn að velgengninni
Margir hafa vel því fyrir sér
hver sé lykillinn að velgengi Pol-
ice. Þremenningunum ber saman
um að ógjörningur sé að benda á
eitthvert eitt ákveðið atriði öðrum
fremur. „Þetta er röð þátta,“ segir
Sting. „Hins vegar má vera að það
leiki stórt hlutverk á plötum
okkar, að við förum ekki í hljóðver
án þess að eiga a.m.k. 20 fullunnin
lög í fórum okkar," segir hann.
Þegar þremenningarnir voru að
undirbúa Synchronity hittust þeir
af og til. Eitt kvöldið leyfði hver
um sig hinum að heyra hvað hann
hafði verið að bauka og þremenn-
ingarnir tóku þegar þá ákvörðun
að halda í hljóðver. Það var ekki
hangsinu fyrir að fara og morgun-
inn eftir voru þeir allir mættir í
Air-hljóðverið til vinnu.
Hvað tónlistina áhrærir segir
Sting: „Ég held að þeir Andy og
Stewart séu þeir bestu hljóðfæra-
leikarar, sem ég get fengið til þess
að koma tónlist minni á framfæri
í samvinnu við mig. Ég treysti
þeim í blindni. Ég geri mér alltaf
ákveðnar hugmyndir um gítar-
leikinn hjá Andy, en hann veltir
þeim jafnan fyrir sér og slípar
þær niður. Stewart er margfalt
betri trommari en trommuheilinn,
sem ég nota við samningu laga
minna. Og ég er stoltur þegar ég
segi, að flestar útsetninga minna
lifa meðferð þeirra tveggja af. Ef
þær gera það ekki er það einfald-
lega vegna þess, að þeir hafa haft
betri hugmyndir en ég.“
Hvað næst
Ef lagasmíðar Police eru kann-
aðar má glöggt sjá og heyra, að
Sting er sá sem hefur völdin. Ekki
aðeins er hann helsti lagasmiður
hljómsveitarinnar heldur er hann
andlit hennar út á við; einskonar
Boy George Culture Club þó á allt
annan hátt sé. En þótt velgengni
Police sé nú slík, að með ólíkind-
um þyki, hefur Sting vissulega
sínar áhyggjur eins og aðrir jarð-
arbúar. En hvert skyldi aðal-
áhyggjuefni hans vera?
„Það vandamál, sem ég þarf
oftast að glíma við, kemur upp
þegar ég segi við sjálfan mig sem
svo: Ég nýt hylli sem vinsæll laga-
smiður, en um hvern skollann á ég
að yrkja næst?“
(Bygífl á Melody Maker og Kolling Stone,
stytt og cndur.sagt - SSv.)
Matar-
kaffistell
BLANCE
ÚR ELDFÖSTUM STEINLEIR OG POSTU- c
LÍNI. FRÁBÆRLEGA STÍLHREIN OG
VÖNDUÐ SÆNSK LISTASMÍD EINS OG
HUN GERIST BEST.
Póstsendum
■ >4.
kosta)[boda
a
Bankastræti 10. Sími 13122
NYTT LYKTARLAUST KÓPAL Á ELDHÚSIÐ
KÓPAL FLOS og KÓPAL JAPANLAKK
Nú er þér óhætt að leggja til atlögu við eldhúsið heima
hjá þér. Þú getur lakkað auðveldlega með nýja
KÓPAL-lcikkinu - bæði veggi, skápa, innréttingar, borð
og stóla án þess að hafa áhyggjur af sterkri lykt eða
höfuðverk af þeim sökum.
KÓPAL-lakkið er lyktarlaust og mengar því ekki and
rúmsloftið. Áferðin er skínandi falleg, bæði gljáandi
(KÓPAL JAPANLAKK) og perlumött (KÓPAL FLOS). Þú
getur lakkað svo að segja hvað sem er - og skolað
síðan pensla og áhöld með vatni.
Betra getur það varla verið.