Morgunblaðið - 11.03.1984, Síða 20

Morgunblaðið - 11.03.1984, Síða 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984 „Frjálst er í fjallasal“, brot úr landskunnu Ijóöi, kemur upp í hug- ann er hann dvelur í Langavatnsdal á Mýr- um og við vatnið í daln- um, Langavatn. Veiði- og ferðamenn vita líkast til sitthvað um dalinn og vatnið, en ekki er víst að allur þorri lands- manna geri sér grein fyrir, að þessi fallegi fjalladalur er samofinn ótrúlega mörgu, mann- legum harmleik, þjóð- sögum og óútskýranleg- um fyrirbærum. Þá iðar dalurinn af háfjalla- og öræfalífi og undir blál- eitu vatnsborðinu eru vatnabúarnir óteljandi. Mikið lífríki í undurf- ögrum fjalladal. Leggj- um svo af stað: Almennar upplýsingar Langavatnsdalur liggur norður í hálendið frá Mýr- unum og var áður alfaraleið milli Mýra- og Dalasýslu. f daln- um er Langavatn, stórt stöðuvatn, 5,10 ferkílómetrar að flatarmáli og í hópi stærstu vatna landsins. Hæð þess yfir sjávarmáli er 215 metrar. í Langavatn renna Beilá og Langavatnsdalsá, en úr því Langá. Gljúfurá er fyrst samferða Langá, en nokkrum kílómetrum neðan við ósinn fer Gljúfurá sína leið og allar götur niður í Norðurá, ... fljótlega greip gedda gullið og dró Guðmundur hana að landi. inn góli og hlæi allt hvað hann getur, er roði sólsetursins litar vatnið rautt. Það er ekkert annað en hluti af þögninni og gerir hana algerari. Það sama er að segja, þótt mófuglar kvaki á daginn, rjúpa ropi, kjói væli og þytur gol- unnar kippi í tjaldstögin og sveigi stráin. Það er hluti af öræfarík- inu. Tíminn virðist stöðvast. En hér var fyrrum byggð f dag er Langavatnsdalur óbyggður sem fyrr segir og helst að stangaveiðimenn sæki dalinn heim á sumrum. En svo var ekki fyrrum því þarna var einu sinni nokkur byggð, þó harðbýlt hljóti að vera á vetrum vegna snjó- þunga. í Árbók Ferðafélags ís- lands frá árinu 1952, sem Þor- steinn Þorsteinsson skrifaði um Mýrasýslu, er vitnað í kafla úr Jarðabók Árna og Páls frá árinu 1709. Þar stendur: „Lángevatns Dalur heitir eyði- pláts í fjöllum þeim, er liggja á millum Mýrasveita og Breiða- fjarðardala. Það er almer.n sögn og fyrir satt haldið, að í þessum dal hafi að fornu byggð verið og lítil sveit...“ o.s.frv. Er í Jarða- bókinni getið þriggja bæja sem í Langavatnsdal stóðu fyrrum og kunni þeir að hafa verið fleiri. Eru bæirnir nefndir Vatnseldi, Haf- ursstaðir og kirkjustaðurinn Borg. Segir jarðabókin að rústir Vatns- enda og Borgar megi enn sjá, ef grannt er skoðað. En langt er nú síðan Jarðabókin var rituð. Um 1400 mun byggð þessi hafa lagst í eyði og plágan mikla átt þar sök á. í Árbók Ferðafélagsins er þess einnig getið, að maður að nafni Bersi goðlausi hafi numið Langa- vatnsdal. Hann hafi í fyrstu búið á Bálkastöðum í Hrútafirði, en síð- an reist sér annað bú í Langa- vatnsdal. Um þetta er deilt, því í Egils sögu kemur fram, að Borg- armenn hafi átt þetta svæði og sagt að Þorsteinn Egilsson hafi hlaðið garð einn mikinn þvert yfir Langavatnsdalur sóttur heim en Langá heldur áfram ótrauð til sjávar og heldur bróðurpartinum af vatninu. Tvær ökufærar leiðir að Langavatni veit greinarhöfund- ur um. Er þar fyrst að nefna þá kunnari og fjölfarnari. Er það um 14 kílómetra langur spotti frá Svignaskarði í Borgarfirði á bakka Gljúfurár. Það voru félags- menn í veiðiklúbbnum Streng í Reykjavík sem lögðu þann veg fyrir mörgum árum, eftir að þeir höfðu tekið á leigu alla veiði í vatninu. Leið þessi liggur upp með hinni fallegu Gljúfurá. Leiðin er fjölbreytileg og forkunnarfögur og að sumarlagi sæmilega fær fiest- um bílum. Þó getur hún verið slæm í mikilli rigningatíð og vaðið á Gljúfurá er oft ekki allt sem sýnist. Sýnist það meinlaust i — Seilst undir friðarskel öræfanna og sagt frá munnmælum, þjóðsögum, miklum örlögum o.fl. meira lagi, en botninn er smá- steinóttur og laus í sér. Bílar með drif á tveimur hjólum lenda þar stundum í ógöngum. Hin leiðin er sannkölluð jeppa- slóð. Hún liggur upp með vestur- bakka Langár og loks upp á fjall það er blasir við á vesturbakka vatnsins. Útsýni er upp er komið fá orð varla lýst og leiðin öll töfr- andi. Er sums staðar eins og kom- ið sé í framandi undraheim, t.d. þegar ekið er utan í rauðum og fornum eldvörpum, með úfið ap- alhraun á aðra hönd og hlæjandi kristalstæra fjallalæki á hina. Þeir skoppa um og leika sér, uns þeir steypa sér inn í hraunið og hverfa í það í mörgum kvíslum innan um blómskrúð. Rétt þar sem vegurinn byrjar að verða brattur, skerst lítill dalur til vest- urs. Há fjöll eru á þrjá vegu, en opinn er dalurinn til Langár. Á sléttum, grösugum dalbotninum standa háar klettastrýtur hér og þar, sums staðar tvær saman og á milli þeirra liðast lítil tær á sem hverfur í hraunið. Er auðvelt að ímynda sér að hér hafi einhvern tíma í fyrndinni verið heil trölla- byggð og mikið líf og fjör. En einn góðan veðurdag hafi þau ekki átt- að sig á því að dagur var að renna ... Hraunið vekur mikla athygli á þessum slóðum. Þannig myndaðist nefnilega Langavatn, umrætt hraun rann og stíflaði dalinn. Myndaðist þá fjallavatnið bláa sem dalurinn gæti vart án verið. Víðast hvar er Langavatn djúpt. Mesta mælt dýpi er 36 metrar, en mikill hluti vatnsins er talinn yfir 20 metrar á dýpt. í öræfaríki Langavatn er í óbyggðum. Byggð var áður í dalnum og verður komið að því síðar, en þeir sem sækjast eftir friði öræfanna þurfa ekki annað en að fara til Langa- vatns. Slíkt fólk getur reyndar víða farið og fengið það sama, en Langavatn og dalurinn svíkja eng- an. Ung, hollensk kona sem þang- að fór með hérlendum manni sín- um, gat þess er til byggða kom, að hún hefði alls ekki kunnað þar við sig. Þögnin var svo alger, öræfa- kyrrðin í öllu sínu veldi. Hún var hrædd, en þau voru ein manna við vatnið í þrjá daga. Um rammíslenska öræfakyrrð er það nefnilega að segja, að hún er svo alger, að það má næstum „hlusta" á hana. Kyrrðin er svo yfirþyrmandi að menn hljóta að skynja hvers kyns afl íslensk nátt- úra er. Það er sama þó himbrim- tunguna milli suðurhluta Langa- vatns og Gljúfurár. Geymt þar sauðfé sitt. Sagt er að enn sjái móta fyrir garðinum. Harmleikur Upp úr byrjun 19. aldar gerðist það, að maður sem nefndur hefur verið Sæmundur reisti bú í hinum harðbýla Langavatnsdal. Með honum var kona hans og tvö ung börn. Sagt er, að þetta hafi verið árið 1811. Tveimur árum síðar var vetur harður, en þá varð óhappið. Eldurinn slokknaði í bænum. Sæmundur lagði af stað til næsta bæjar, Grísatungu, ofarlega við Gljúfurá, og hugðist sækja þangað eld. Ekki komst hann á leiðarenda, veður var vont og Sæmundur varð úti. Einhvern veginn tókst móður og börnum að skrimta af veturinn, en tveimur árum síðar beið þeirra ekkert annað en hordauði er kom- ið var fram á góu. Þá reif eldra barnið sig upp, stúlka, og braust til byggða i Hörðudal. Þar tókst henni að afla vista, en svo mikil var neyð fjölskyldunnar í Langa- Sæmundur bóndi þurfti að yfirgefa konu og börn til að sækja eld um

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.