Morgunblaðið - 11.03.1984, Page 22
70
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
§ TÖLVUFRÆÐSLAN s/f
NÁMSKEID Á NÆSTUNNI
KVÖLDNÁMSKEIÐ:
ALMENNT
NÁMSKEIÐ
Þetta er 8 klst. námskeiö,
4 kvöld í viku kl. 18—20.
Kennd eru undirstööu-
atriöi í tölvunotkun.
BASIC
NÁMSKEIÐ
Þetta er 8 klst. námskeiö
frá kl. 20.15—22.15 4
kvöld í viku. Kennd er for-
ritun í Basic.
Tölvunámskeið
fyrir fullorðna
Þetta er 8 klst. byrjendanámskeið og ætlað þeim
sem ekki hafa átt þess kost að læra um tölvur í
skóla.
Tekið er tillit til þess að langt er síðan þátttakend-
ur voru í skóla og engrar sérstakar undirstöðu-
þekkingar er krafist.
Kl. 18—20, mánudaga—fimmtudaga.
DAGNAMSKEID:
Aætlanagerð
með tölvum
Kennt er notkun áætlanaforritanna Visicalc og Multiplan. Þátttak-
endur geta valiö hvort kerfiö þeir vilja læra. Þetta námskeiö er
ætlað stjórnendum fyrirtækja og öörum sem semja fjárhagsáætl-
anir og framtíöarspár.
Leiðbeinendur: Dr. Kristján Ingvarsson, verkfræöingur, og Jóhann
Fannberg, verkfræðingur.
Tími: 13., 14. og 15. mars kl. 13—16.
Ritvinnslunámskeið
Kennd er notkun Apple Writer ritvinnsluforritsins. Ritvinnsla meö
tölvum er bylting í allri textavinnu.
Tími: 19., 20., og 21. mars kl. 13—16.
Utfyliing tollskýrslna er seinlegt, vandasamt og villur tíöar. Hér
kemur tölvutæknin til hjálpar.
Efni: Grundvallaratriöi viö útfyllingu tollskjala.
Notkun D-Toll forritsins til þess aö prenta aöflutningsskýrslur.
Notkun þessa forrits gerir mönnum kleift aö skrifa út tollskýrslu á
nokkrum sek. Þetta verk tók áöur fleiri klukkustundir.
Tími: 26.-27. mars kl. 9—12.
Kennaranámskeið
Þetta er námskeiö fyrir kennara og veitir góöa undirstööuþekkingu
í notkun tölva.
Námsefni: Almenn tölvufræöi.
• Basic
• Logo
• Superpilot
• Visicalc
Námskeiöiö er haldiö í samvinnu viö kennarasamtök.
Tölvuvæðing
fyrirtækja
Sérhannaö námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Efni:
• Undirstööuatriöi í tölvufræöum.
• Notkun tilbúinna forrita.
• Ritvinnsla, meö Apple Writer.
• Skjalavarsla meö D-Base kerfinu.
• Val á tölvubúnaöi.
• Almennar fyrirspurnir.
HELGARNAMSKEIÐ
IMB-PC
helgarnámskeið
Námskeiöiö er haldiö á laugardögum og sunnudögum kl. 13—17.
Fjallaö er um IBM-PC tölvuna og aðrar tölvur sem fara eftir sama
staöli.
Laugardagur:
• Kynning á IBM-PC tölvunni.
• Tenging viö jaöartæki.
• Hugbúnaöur.
Sunnudagur:
• Notendaforrit.
• Ritvinnsla.
• Gagnasöfn.
• Bókhald.
Apple —
Helgarnámskeið
Þetta er 8 klst. námskeiö frá kl. 13—17 á laugardögum og sunnu-
dögum.
Laugardagur: Fariö í Apple-soft Basic, DOS skipanir og teikni-
möguleika tölvunnar.
Sunnudagur: Apple-writer ritvinnslukerfið. Visicalc áætlanaforrit-
iö. Quick-file gagnasafnskerfiö.
Leiöbeinendur:
Dr. Kristján Ingvarsson, verkfræöingur.
Sævar Hilbertsson, yfirkennari.
Tími: 24.-25. mars kl. 13—17.
Smátölvunotkun
í læknisfræði
Námskeiö þetta er ætlaö læknum sem vilja kynnast tölvum og
möguleikum þeirra.
— Grundvallaratriöi um innri gerö tölva.
— Tengsl tölva viö læknisfræöileg mælitæki.
— Forritun á smátölvur.
— Gagnagrunnar í læknisfræöi.
— Notendahugbúnaöur
— Tölvuvæðing á sjúkrahúsum.
Leiðbeinendur:
Dr. Kristján Ingvarsson, verkfræöingur.
Gunnar Ingimundarsson, verkfræöingur.
Smátölvunotkun
Þetta námskeiö er ætlaö lögfræöingum, sem vilja kynnast tölvum
og notkun þeirra á lögfræöiskrifstofum.
Efni:
• Grundvallaratriöi um tölvur.
• Forritunarmál
• Forritun á smátölvur.
• Gagnagrunnar í lögfræði.
• Notendahugbúnaöur.
• Ritvinnsla, notkun tölva viö bréfaskriftir, samningagerö og fl.
Leiöbeinendur:
Dr. Kristjan Ingvarsson, lögfræðingur.
Sævar Hilbertsson, yfirkennari.
Tími: 31. mars og 1. apríl kl. 13—17.
Munið: Fjárfesting í menntun borgar sig alltaf.
• •
TOLVU FRÆDSLANs/
I
j
Ármúla 36, Reykjavík.
Innritun í símum: 687590 og 86790
Barnaverndarnefnd:
Ekki gerð
opinber
rannsókn á
„svartri
gæslu“
Barnaverndarnefnd ræddi á fundi
sínum þann 6. mars sl. bréf nokk-
urra dagmæðra til nefndarinnar. Þar
er þess farið á leit aö opinber rann-
sókn verði gerö á svokallaöri
„svartri gæslu“, þ.e. á því hvort
dagmæður starfi án tilskilins leyfis.
Bréfiö sendu dagmæðurnar í kjölfar
blaöaskrifa um slíka starfsemi.
Barnaverndarnefnd taldi sér
ekki fært að verða við beiðninni
um opinbera rannsókn, þó að vitað
væri um brögð að slíkri starfsemi.
Er í bókun nefndarinnar bent á að
til að fyrirbyggja slíkt muni
nefndin eftir sem áður senda frá
sér auglýsingar þar sem foreldr-
um barna í dagmömmugæslu er
bent á að kanna hvort leyfi sé
fyrir gæslunni. Ennfremur er bent
á að þau skrif sem um ræðir séu í
garð þeirra er starfa ólöglega, en
sé á engan hátt beint gegn dag-
mömmum með full tilskilin rétt-
indi, eins og þeim sem rituðu bréf-
ið.
Þó ekki komi til opinberrar
rannsóknar af hálfu barnavernd-
arnefndar verður umræðum um
ólöglega barnagæslu framhaldið
innan hennar.
Dalvík:
Góður afli og
einmuna blíða
Dalvík, 9. marz.
NÚ ER líflegt vfir atvinnulífinu hér
á Dalvík. Afli togara og rækjuskipa
hefur verið góöur og ákveðiö hefur
verið aö vinna í fiskinum yfir helg-
ina, verður hann bæöi frystur og
saltaður. Ekki spillir það, aö 9 til 10
stiga hiti hefur verið hér undanfarna
daga og er snjórinn óöum aö hverfa
og færö eins og á sumardegi. Muna
menn hér varla aöra eins blíöu á
þessum árstíma.
í gærmorgun kom togarinn
Björgúlfur inn með um 140 lestir
og í dag komu Björgvin með 150
lestir og Baldur með 80 lestir. Afli
togaranna er að mestu stór og
góður þorskur af Halamiðum.
Treglegar hefur hins vegar gengið
á netunum, en bátarnir hafa þó
verið með 4 til 5 lestir eftir tvær
lagnir, en veiðarnar stunda þeir
aðallega við Grímsey.
Þá hefur verið ágætur rækjuafli
hjá bátum héðan. Dalborg er
væntanleg inn á morgun, laugar-
dag, með ágætan afla og Bliki
landaði 16 lestum á þriðjudaginn.
Rækjan er öll unnin hjá K. Jóns-
son & Co. á Akureyri, en vonir
standa til að rækjuvinnsluvél
Söltunarfélagsins fari að koma á
staðinn og verður rækjan þá unn-
in þar. Dalborgin er nú komin með
á annað hundrað lestir af rækju
síðan hún hóf þær veiðar að nýju.
Fréttaritarar.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!