Morgunblaðið - 11.03.1984, Síða 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1984
Finnur úr
Frakkanum
Finnur Jóhannsson virðist rekast
einstaklega illa í flokki. Hann hef-
ur nú sagt stöðu sinni innan
Frakkanna lausri.
Þorsteinn Magnússon mun taka
sæti hans fyrst um sinn og kemur
fram meö sveitinni á tónleikum á
vegum SATT í Sigtúni næsta föstu-
dag og væntanlega einnig i Tóna-
bæ þann 23. þessa mánaöar.
Frakkarnir hafa haft fremur
hægt um sig aö undanförnu eftir
aö þeir sendu frá sér hina vel
heppnuðu plötu 1984.
Vissir
þú?
ABC — Martin Fry í miðjum hópi.
4. mars
★...aö Mary Wilson, fyrrum í Su-
premes, átti fertugsafmæli þennan
dag?
*...að Chris Squire, bassaleikari
Yes, átti 36 ára afmæli þennan
sama dag?
*...aö þennan dag voru 7 ár liöin
frá þvi Rolling Stones komu óvænt
fram í litlum klúbbi, El Mocambo, í
Toronto. April Wine „hitaöi upp“
og voru allir tónleikarnir teknir upp
og síöar gefnir út á tónleikaplöt-
um.
5. mars
★...aö Eddie Grant kom í heiminn
þennan dag fyrir 36 árum?
6. mars
*...að Mickey Jupþ átti fertugs-
afmæli þennan merka dag?
★...aö Dave Gilmour í Pink Floyd
hélt upp á sama merkisáfanga og
Jupp þennan dag?
★...aö Sandie Shaw gekk í fyrsta
sinn í þaö heilaga þennan dag fyrir
16 árum?
8. mars
★...aö Micky Dolenz (eitt sinn í
Monkees) varö 39 ára gamall
þennan dag?
★...aö Mel Galley, gítarleikari
Whitesnake og fyrrum í Traþeze
meö Glenn Hughes, varö 36 vetra
þennan dag?
★...aö trymbillinn Clive Burr, eitt
sinn í Iron Maiden en hefur nú sett
á stofn eigin sveit, varö 27 ára
þennan dag?
★...að þennan dag voru rétt 11 ár
liðin frá því Paul McCartney var
sektaöur um 100 sterlingspund
fyrir aö rækta marijúana í garðin-
um hjá sér? Tímarnir breytast, en
McCartney er enn viö sama hey-
garöshorniö.
9. mars
★...aö Robin Trower, sem vakti
feiknarlega athygli um miðjan síö-
asta áratug, átti 39 ára afmæli
þennan dag?
★...aö Martin Fry í ABC átti einnig
afmæli þennan dag? Hann varö þó
bara 26 ára?
10. mars
★...aö rétt 24 ár voru liðin frá því
breski „topþ 20“-listinn var fyrst
settur upþ og kynntur almenningi?
1984 — tónleikaröð á vegum SATT að hefjast:
Fjórir ólíkir
pólar í Sigtúni
á föstudag
— Vonbrigði, Frakkarnir, Grafík og Kikk
Heljarmikil tónleikaröð undir
heitinu „1984“ er nú að fara af
stað á vegum SATT. Þegar hefur
veriö ákveðiö aö efna til þrennra
tónleika, en allar líkur eru á að
þeir veröi fimm áöur en yfir lýkur.
Fyrstu tónleikarnir í rööinni
veröa haldnir í Sigtúni næsta
föstudag, 16. mars, og hefjast um
kl. 22. Fjórar af þekktari sveitum
landsins mæta þar til leiks: Von-
brigöi, Kikk, Grafík og Frakkarnir.
Óþarfi ætti aö vera aö kynna þess-
ar hljómsveitir ítarlega því þær eru
allar hver annarri þekktari. Von-
brigöi í stööugri sókn og þróun,
Kikk meö meira „kikk“ en um
langa hríð, Grafík aldrei betri og
Frakkarnir fráhnepptir og til í allt
nema . ..
Fimmtudaginn 22. mars veröa
aðrir tónleikarnir í rööinni og fara
þeir fram í Safari. Þar mun kven-
fólkiö veröa allsráöandi því tvær
hljómsveitanna sem koma fram,
Dúkkulísurnar og Jelly-systur eru
alfariö skipaðar stúlkum. Sú þriöja
heitir Dá og er rétt um þaö bil aö
skríöa úr skurninni. Dá skartar
söngkonu, þannig að kvenfólkiö
fer ekki einungis meö öll völd í
tveimur hljómsveitanna, heldur
skipar aó auki öndvegi í þeirri
þriöju.
Þriöju tónleikarnir veröa helgaö-
ir bárujárnsrokkinu, sem viröist
loks vera aö skjóta rótum hérlend-
is eftir mikiö velgengnisskeiö
beggja vegna Atlantshafsins. Þeir
fara fram í Safari 29. mars. Þrjár
sveitir munu einnig koma fram á
því kvöldi, tvær kunnar og ein lítt
eöa óþekkt meö öllu. Sú óþekkta
heitir Lizard og hefur aö undan-
förnu æft stíft í Fischersundinu. Þá
munu Centaur og Drýsill fylgja í
kjölfariö. Centaur hefur um margra
mánaöa skeið veriö sér á báti
Vonbrigði í stöðugri sókn.
Frakkarnir í ham.
íslensku tónlistarlífi, en Drýsill hef-
ur aö undanförnu slegiö í gegn
meö frábærri frammistööu sinni.
Sannkallaö keyrslukvöld í aösigi.
Þegar þetta er ritaö hefur enn
ekki verið tekin endanleg ákvörð-
un um fleiri tónleika undir heitinu
„1984“, en þess er þó aö vænta,
aö efnt veröi til a.m.k. tveggja til
viðbótar. Aörir myndu þá veröa
helgaöir „instrumental"-hljóm-
sveitum, hinir nýbylgjunni.
Ákveöiö hefur veriö aö verö að-
göngumiöa á alla tónleikana veröi
kr. 250. Forsala á tónleikana í Sig-
túni veröur í verslun Karnabæjar í
Austurstræti og Fálkans á Lauga-
vegi.
Umsögn um Mezzoforte í Cosmopolitan:
„Á meðal þeirra
allra hæfileika-
ríkustu ..."
Litlar fregnir hefur verið aö
hafa af Mezzoforte að undan-
förnu, en það þýðir þó ekki
aldeilís að strákarnir hafi set-
ið aðgerðalausir. Eins og
skýrt var frá á Járnsíöunni um
daginn tókst tónleikaferöin til
Japan ákaflega vel og að und-
anförnu hefur Mezzoforte
verið á ferðalagi um Bretland.
Fyrir skemmstu rakst umsjón-
armaóur Járnsíöunnar á stutta
umsögn um Mezzoforte í tímarit-
inu Cosmopolitan. „Nú get ég
með sanni sagt, aö Mezzoforte er
besta íslenska hljómsveitin, sem
ég hef heyrt í — reyndar sú eina,“
segir höfundur lesmálsins.
Segir höfundurinn þessa fimm
manna sveit vera á meðal þeirra
allra hæfileikaríkustu innan jazz/-
fusion-tónlistarinnar og hún hefur
þegar sýnt fram á gæöin með
plötunni Surprise Surprise Hljóð-
færaleikurinn er þéttur, en samt
um leiö notalegur og á nýju breiö-
skífunni Observations renna
0*1
Tióv. I can honesily sav thai
Mezzofortc i> the best »:roup
llijt I have ever hearJ- trom
IcclahJ. AnJ tne onlv group But
this tive piece banJ are among
the vvoilJs most talenlcJ iaz/
anJ thcv've alreaJs
singíe, “Surprise
to prove it. They’rc an
pertormance banJ. so
inl.'
I:
Mezzoforte á tónleikum, eða öllu heldur þeir Jóhann Áamundsson og
Friðrik Karlsson.
hljómborös- og gítarleikurinn
Ijúflega yfir dynjandi „rythmann"
eins og sósa yfir ís.
„Þetta er tónlist, sem þægilegt
er aö hafa sem „bakgrunnstón-
list““, segir ennfremur í umsögn-
inni. Höfundurinn bætir því hins
vegar viö í lokin, aö Mezzoforte st
samt annað og miklú meira et
einhver „bakgrunnssveit” þv
hann hafi sjálfur séö hvernic
henni tókst aö bræöa hjörti
áheyrenda í klúbbi Ronnie Scot
fyrr í vetur.