Morgunblaðið - 17.03.1984, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
ovjjimXiIníiiti
STOFNAÐ 1913
64. tbl. 71. árg.
LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
Prentsmiðja Morgunblaósins
Amin Gemayel forseti Líbanon:
Sögulegt samkomu-
lag kann að nást á
næstu klukkutímum
Lausanne og Beirut, 16. mars. AP.
HLÉ VAK á störfum þjóðarsáttar-
fundarins í Lausanne í dag til að
heiðra minningu Kamals Jumblatt,
föður Walids Jumblatt drúsaleiðtoga,
en fyrir 7 árum féll hann í Líbanon.
Fundir hefjast á ný á morgun, laug-
EVRÓPUÞINGIÐ komst að þeirri
niðurstöðu í dag, að vaxandi umsvif
spænskra veiðiskipa á hafsvæðum
Efnahagsbandalags Evrópu stofnuðu í
hættu fiskiðnaði bandalagslandanna.
Atburðurinn 7. mars síðastliðinn, er
franskt varðskip skaut á spænskan tog-
ara með þeim afleiðingum að níu
skipverjar særðust, var tilefni umfjöll-
unar þingsins.
I ályktun þingsins kom lítil samúö
fram í garð skipverjanna spænsku,
en á hinn bóginn var samþykkt að
hjálpa bæri Spánverjum, annað
hvort við að minnka fiskiskipaflota
ardag, en Amin Gemayel forseti sagði
í sjónvarpsviðtali í Sviss, að á „næstu
klukkustundum kynni svo að fara að
sögulegu samkomulagi yrði náð“.
Jumblatt, sem jafnan er svartsýnn og
vantrúaður á árangur fundarins, lét
hafa eftir sér að „nokkur árangur"
sinn eða að afla þeim nýrra veiði
svæða úti fyrir ströndum Afríku.
Floti Spánverja er talinn helmingi
stærri en floti EBE-landanna sam-
anlagður.
frski fulltrúinn á þinginu, Mark
Clinton, reyndi að fá þingið til að
samþykkja tillögu sem fól í sér
verndun írskra fiskimanna fyrir
kafbátaferðum á veiðisvæðum
þeirra. Ekki tókst það, en Clinton
sagði fimm irska fiskibáta hafa
sokkið, þar af þrjá á þessu ári, eftir
að kafbátar höfðu flækst í netum
þeirra og fært þá í kaf.
hefði náðst og má af því ætla að vel
miði í samkomulagsátt.
Lokaðir einkafundir voru margir
í Lausanne í dag, sýrlenski vara-
forsetinn, Abdul Halim Khaddam,
ræddi til skiptis við stjórnarand-
stöðuleiðtoga og ræddi jafnharðan
við Gemayel forseta. í kvöld sagði
einn stjórnarsinni, ónafngreindur,
að einungis fá mál væru óútkljáð
og þess væri vart langt að bíða að
skipan mála í „Líbanon framtíðar-
innar“ yrði birt.
Bandarískur diplómat, starfs-
maður við sendiráð Bandaríkjanna
í Beirut, var numinn á brott af
þremur vopnuðum mönnum fyrir
utan heimili sitt í vesturhluta Beir-
ut. Siðast er fréttist vissi enginn
um afdrif William Buckley, en svo
heitir sendiráðsmaðurinn, en talið
er víst að öfgasinnaðir shitar hafi
rænt honum.
Þrátt fyrir bjartsýni fundar-
manna í Lausanne, var barist af
talsverðum krafti í Beirut og
stjórnarhermenn og stjórnarand-
stæðingar skiptust á skotum og
fleygðu handsprengjum hvorir að
öðrum. Tveir menn særðust að
minnsta kosti, en vopnaskakið var
alvarlegasta brotið á hinu þriggja
daga gamla vopnahléi til þessa.
Ályktun Evrópuþingsins:
Veiðar Spánverja
hættulegar EBE
Strasbourg, Frakklandi. 16. mars. AP.
Meðlimur í nefnd á vegum Sameinuðu Þjóðanna tekur mynd af sprengju
sem varpað var úr íraskri flugvél að írönskum hermönnum en sprakk ekki.
íranir segja þetta vera eiturgassprengju og eru allir nálægir útbúnir með
tilliti til þess. Símamynd AP
íranir hrundu
gagnsókn Iraka
Nikósíu, 16. mars. AP.
Heræfingar NATO:
25.000 hermenn takast
á í norðurhluta Noregs
Setermoen, Noregi, 16. mars. Frá Rirni Biarnaítvni. blaðamanni Mhl.
Setermoen, Noregi, 16. mars. Frá Birni Bjarna.syni,
f NOTT og í morgun hafa 15 þúsund
hermenn frá Bandaríkjunum, Bret-
landi og Hollandi gengið á land í
Norður-Noregi og sækja nú auk
norskra hersveita upp snæviþaktar
fjallshlíðarnar í átökum við fjölþjóð-
legt herlið NATO og norskar sveitir.
Þar með hófst lokaþátturinn í þessum
mestu flota- og heræfingum Atlants-
hafsbandalagsins á norðurslóðum í um
500 km fjarlægð frá sovésku landa-
mærunum og tæplega 300 km fyrir
norðan heimskautsbaug. Alis 25.000
hermenn takast nú á hér allt um kring.
Um miðnætti héldu fyrstu banda-
rísku landgönguliðarnir af stað frá
skipum sínum. f fjörðunum í nánd
við Tromsö er krökkt af herskipum,
þyrlur svífa yfir trjátoppunum, gnýr
frá orrustuþotum fyllir íoftið og vart
er hægt að komast áfram eftir þjóð-
vegunum fyrir herflutningalestum. í
morgun fórst ein Sea Harrier-
orrustuþota frá bresku sveitunum en
mannbjörg varð. Þegar ég yfirgaf
landgönguskipið í dagrenningu með
þyrlu voru prammar og þyrlur að
flytja þungavopn og farartæki í
land.
Tilgangur æfinganna fyrir utan að
þjálfa hermennina í vetrarhörkum
er í stórum dráttum tvíþættur. í
fyrsta lagi hefur hraðlið NATO verið
hér í eina viku og barist gegn „óvina-
blaðamanni Mbl.
sveitum“. Liðið hélt ekki út og þess
vegna var liðsauki sendur sjóleiðis
yfir Atlantshafið og það er hann,
sem nú sækir upp frá ströndinni.
Sovétmenn hafa sýnt þessum æf-
ingum mikinn áhuga. Þeir hafa sent
fjölmargar fiugvélar yfir sóknarflot-
ann á leið hans norður með strönd
Noregs og nú eru sex sovésk njósna-
skip hér fyrir utan. Á fundi með
fréttamönnum um borð í skipi sínu
sagði Joseph Metcalf, aðmíráll, yfir-
maður sóknarflotans, að væru sov-
ésku kafbátarnir fleiri umhverfis
flotann gætu landgönguliðarnir
næstum stiklað á þeim í land.
Norðmenn hafa vaxandi áhyggjur
af vígbúnaði Sovétmanna á norður-
slóðum, ekki síst kjarnorkuvígbún-
aði.
ÍRANIR GRKINDU frá því í dag, að
írakar hefðu gert gerræðislegar og
vanhugsaðar tilraunir til að endur-
heimta Majnoon-evju og gert hvert
áhlaupið af öðru, en öllum hefði ver-
ið hrundið. „Við brytjuðum þá niður
og þeir sem uppi stóðu áttu ekki
annarra kosta völ en að flýja eða
gefast upp,“ sagði IRNA, stjórnar-
fréttastofa írana.
írakar hafa hvatt Bandarikin og
þau lönd sem hliðholl þeim eru, að
selja ekki vopn til írana og í
Bandaríkjunum er stjórnskipuð
nefnd tekin til starfa sem hefur
það verkefni að finna út hvaða að-
ilar selja írönum vopn og fá þá
ofan af því. Ónafngreindur tals-
maður nefndarinnar sagði að
Bandaríkin vildu helst að vopna-
sala til beggja aðila væri stöðvuð,
Tveir norskir hermenn við bækistöð sína ( Norður-Noregi.
Slmamynd AP
en úr því að íranir virtust vera að
ná yfirhöndinni, þætti þeim rétt
að einbeita sér að þeim.
Fæddi lif-
andi barn eft-
ir 20 vikna
meðgöngu
New York, 16. mars. AP.
SÁ ÓVENJl'LEGI atburður átti
sér stað í New York í dag, að ung
kona fæddi son eftir aðeins 5 mán-
aða meðgöngu. í fyrstu reiknuðu
allir með að barnið fæddist lífvana,
en það reyndist á lífi er það kom í
heiminn.
„Líðan barnsins er eftir atvik-
um,“ sagði hjúkrunarkona á Mis-
ericordia-fæðingardeildinni.
Hún bætti við að það væri afar
óvenjulegt að börn sem fæddust
svo snemma lifðu það af. „Móðir-
in var himinlifandi er hún heyrði
tíðindin," sagði konan. Barnið,
drengurinn Luther Raymond
Noble, var aðeins 23 sentimetrar
á lengd og 397 grömm nýfætt.
Luther litli er í öndunarvél og
verður þar fyrst um sinn.
Biðskák
Vilnius, Litháen. 16. mars. AP.
FJÓRÐA skák þeirra Smyslovs og
Kasparovs í undanúrsiitum áskor-
endaeinvígisins fór í bið í kvöld eftir
41 leik.
Kasparov, sem hafði svart, er talinn
með miklu betri stöðu, nánast unn-
ið tafl. Kasparov hefur 1 Vi vinning,
Smyslov 1 vinning.