Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 33
eða samtals í 23 ár. Hann var
einni£ fulltrúi á stofnþinni Lands-
sambands sjálfsbjartjarfélatíanna
1959, og lengi kjörinn fulltrúi síns
félags í Landssambandsstjórn og
á Þing samtakanna.
Eggert starfaði lengi að félags-
málum í heimabyggð sinni, svo
sem í Verkalýðsfélaginu og um
tíma var hann formaður í bridge-
félagi staðarins. Þó munu engin
félagsmál hafa verið huga hans
nær, en starfið fyrir „Sjálfsbjörg“
þar var hann ætíð heill og óskipt-
ur. Hvorki ófærð né illviðri, haml-
aði honum að takast langa ferð á
hendur, til að sitja fundi lands-
sambandsins.
Hann var mjög áhugasamur í
baráttumálum fatlaðra, og alveg
óragur að setja fram skoðanir sín-
ar, og benda á ýmsar nauðsynleg-
ar úrbætur fötluðum til handa.
Eggert fatlaðist sjálfur er hann
var til sjós, þegar á unga aldri, og
vissi því af eigin reynslu, hve hörð
sú lífsbarátta er, að hasla sér völl
á vinnumarkaði, með skerta
starfsorku, til að sjá sér og sínum
farborða.
Lengst af starfaði hann sem
verkstjóri á lager Síldarverk-
smiðja ríkisins, og í tilefni þess, að
hann hafði lokið þar 50 ára þjón-
ustu árið 1981, fæði stjórn SR
honum forkunnarfagurt gullúr að
gjöf.
Af mörgum góðum eðliskostum
Eggert Theódórssonar mun skap-
ferli hans hafa verið honum dýr-
mætast. Hann var léttur í lund, og
lék á alls oddi, með glens og gam-
anyrðum í góðra vina hópi. Frá
slikum stundum munu Sjálfs-
bjargarfélagar um land allt minn-
ast hans best. Fyrir hönd félag-
anna 1 „Sjálfsbjörg" á Siglufirði,
vil ég nú að leiðarlokum þakka
sérlega gott samstarf, þakka allar
ánægjnstundir á fundum og ferða-
lögum, og ekki síst þær stundir,
þegar einhugur og ábyrgð ríkti, er
tekist var á við erfið verkefni.
Eftirlifandi konu Eggerts, Elsu
Þorbergsdóttur, og börnum þeirra
sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Minningin lifir um góðan dreng.
Hulda Steinsdóttir.
Ferðafélag íslands:
Ferðaaætl-
un fyrir 1984
komin út
FERÐAFÉLAG íslands hefur nú
gefið út ferðaáætlun sína fyrir árið
1984, þar sem upplýsingar um ferðir
félagsins, sæluhús og fleira er að
finna.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að ferðafélög Akureyrar,
Svarfdæla og Fljótsdalshéraðs
auglýsi ferðir sínar í hinni nýju
ferðaáætlun og einnig sé lögð sér-
stök áhersla á að kynna nýjungar
sem boðið sé upp á. Þar segir
ennfremur, að á sumri komanda
séu áætlaðar 31 sumarleyfisferð,
göngu- og ökuferðir eða eingöngu
gönguferðir. Þá séu sumarleyfis-
ferðirnar frá fjögurra til tíu daga
langar og þær nái til allra lands-
hluta og þó sérstaklega óbyggð-
anna.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
33
Bóka_
pakkar
á hagstæðu verði
VISA og 0%
EUROCARD
Fjöldi bóka
í síðasta skipti
á hagstæðu
verði
MA<
AFSLÁTTUR
tærsti bókamarkaður
‘“i ársins 1984
Notið tækifærið...
Síöasti dagur
Opið til kl. 16 í dag
SENDUM IPÓSTKRÖFU
UMALLTLAND
Markaðshús Bókhlöðunnar
------^ Laugavegi 39 j-----
í dag og á morgun
frá kl.13-18
í sýningarsal okkar að Ámiúla 7 sýnum við teikningar af 20 nýjum MÁT einingahúsum
etiir arkitektana: Alhínu ogGuðfinnu Thordarson. Áma Friðriksson og Pál Gunnlaugsson.
Komið og kynnið ykkur nýjar leiðir í íslenskum byggingariðnaði og lægri
byggingarkostnað.
Lítil hús — stór hús
Mróáuppsettum húsum frá kr. (>(K)ÁKX) l.(KK).(KK)
Mír?
Ármúla 7, símar: 31600 og 31700
Jielgim ij—iS. mars veróur syniiy
á borÓsfcreytingum, t.d. áferminqar—
œa á pásímborÓiÓ.
Kosta)[Boda)
BORGARBLÓMÍÐ
SKlPHOLTi 35 SÍMt 3Z2I3