Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984 3 Keppnin um ungfrú ísland: Ungfrú Heimur kemur og krýnir sigurvegarann“ SARAH-JANE Hunt, breska stúlkan sem nú ber titilinn ungfrú Heimur (Miss World) er væntanleg hingað til lands 17. maí nk. í þeim tilgangi að krýna þá stúlku sem hlutskörpust reyn- ist í keppninni um titilinn ungfrú Island. Fegurðardrottningin kemur hingað ásamt Juliu Morley, framkvæmdastjóra Miss World-keppninnar. Julia Morley, framkvæmdastjóri Miss World-keppninnar, sem kem- ur til íslands með ungfrú Heim. Keppnin um titilinn ungfrú fsland verður haldin í veit- ingahúsinu Broadway dagana 11. og 18. maí. Þann 11. fara fram undanúrslit og verður sigurvegarinn krýndur þann 18. Tíu stúlkur taka þátt í keppninni, en frestur til að skila inn tillögum um kepp- endur rennur út nú um helg- ina. Þegar hefur verið bent á 30 til 40 stúlkur og verða tíu þeirra valdar til þátttöku. Sarah-Jane Hunt, ungfrú Heimur, sem krýnir sigurvegarann í keppn- inni um ungfrú ísland í maí. Dyravörður höfðar mál á hendur Skafta Jónssyni DYRAVÖRÐUR í Leikhúskjallaran um, Sigurbjartur Ágúst Guðmunds- son, hefur höfðað skaðabótamál á hendur Skafta Jónssyni, blaða- manni. Hann krefst þess að Skafti greiði krónur 10.945 í skaðabætur auk vaxta fyrir að hafa ráðist á sig við störf sem dyravörður í Leikhús- kjallaranum þann 29. nóvember 1983 og skemmt föt sín. Svo sem fram hefur komið var Skafti Jónsson hándtekinn í Leikhúskjallaranum sama kvöld. Hann kærði lögreglumennina fyrir harðræði. Embætti ríkis- saksóknara hefur ákært lögreglu- mennina fyrir ólöglega handtöku og að hafa sýnt Skafta harðræði í lögreglubifreiðinni. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans!__________x i—I o Ljósmynd: Snorri Snorrason. Loðnuskipin eru misjöfn að stærö og afkastagetu og í eigu íslendinga eru aðeins fá skip, sem bera yfir 1.000 lestir af loðnu. Kldborgin HF 13 er eitt stóru skipanna og hér er hún á leið inn Eskifjörð með 1.350 lestir. Hálf milljón lesta af loðnu komin á land NÚ ER tæplega hálf milljón lesta af loðnu komin á land, það sem af er vertíð, en litlar líkur eru taldar á að leyfilegt magn, 640.000 lestir, náist. l»ó var kvæmi í gær við Skarðsfjöru og Öndverðarnes. Fimmtudagsafl- inn varð alls 4.600 lestir af 11 skip- um og síðdegis í gær höfðu 4 skip tilkynnt um afla. Eftirtalin skip tilkynntu Loðnu- nefnd um afla á fimmtudag: Sæ- björg VE, 420, Þórshamar GK, 320, Höfrungur AK, 800, Gígja RE, 250, Sighvatur Bjarnason VE, 130, Kap II VE, 400, Gullberg VE, 140, Örn KE, 100, Huginn VE, 70, Beitir NK, 1.270 og Guðrún Þor- kelsdóttir SU með 700 lestir. Um klukkan 17 í gær höfðu eftirtalin skip tilkynnt um afla: Hilmir II SU, 550, Skírnir AK, 420, Gísli Árni RE, 600 og Svanur RE með 700 lestir. Kaupmannasamtökin: Sigurður E. Haraldsson endurkjörinn formaður Á AÐALFUNDI Kaupmannasam- taka íslands í fyrradag var Sigurður E. Haraldsson cinróma endurkjör- inn formaður samtakanna. Jafn- framt var Jón Júlíusson endurkjör- inn varaformaður. Kosning fór fram á fundinum um varaformann og lagði kjör- nefnd til, að Jón Júlíusson yrði endurkjörinn, en fulltrúar kaup- sýslumanna á Suðurnesjum lögðu til, að Jónas Ragnarsson, kaup- maður í Keflavík, yrði kjörinn varaformaður. Við atkvæða- greiðslu hlaut Jón Júlíusson 273 atkvæði, en Jónas Ragnarsson 138 atkvæði. Kjör annarra stjórnar- manna fer fram á fulltrúaráðs- fundi Kaupmannasamtakanna í næstu viku. Sigurður E. Haraldsson Vídeóvæddur sýningarsalur x Sýnum um helgina Tomma og Jenna, þýzka fótboltann, Mea\0af og m.fl. Nú þarf enginn aö sitja heima. OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10—17 Árg. Litur Km. Verð Daihatsu Charmant 1600 LE '82 Vínrauður 12 þús. 275 þús. Daihatsu Charmant 1300 LC sjálfsk. ’82 Hvítur 17 þús 265 þús. Daihatsu Charmant 1600 '81 Vínrauður 41 þús. 195 þús. Daihatsu Charmant 1400 79 Vínrauður 27 þús. 150 þús. Daihatsu Charmant 1400 station 79 Ljósbrúnn 43 þús. 140 þús. Daihatsu Charade XTE 4ra gíra '83 Vínrauður 15 þús. 235 þús. Daihatsu Charade XTE 5 gíra ’82 Silfurblár 35 þús. 215 þús. Daihatsu Charade XTE 4ra gíra ’80 Blár met. 39 þús. 155 þús. Daihatsu Charade XTE 4ra gíra '80 Gulur 30 þús. 160 þús. Daihatsu Charade XTE 4ra gíra 79 Rauður 60 þús. 135 þús. Daihatsu Charade Runabout XTE sjálfsk. ’82 Vínrauður 40 þús. 230 þús. Daihatsu Charade Runabout XTE 5 gíra '82 Vínrauður 20 þús. 215 þús. Daihatsu Charade Runabout XTE 4ra gíra ’81 Blár met. 35 þús. 190 þús. Daihatsu Charade Runabout XTE 4ra gíra '80 Rauður 31 þús. 160 þús. Daihatsu Charade Runabout XTE 4ra gíra 79 Rauður 31 þús. 140 þús. Subaru 4WD station ’82 D.grænn 42 þús. 330 þús. VW Golf 3ja dyra ’80 Rauður 79 þús. 165 þús. Toyota Corolla sjálfsk. 4ra dyra ’81 Rauður 30 þús. 240 þús. Mitsubishi 4WD Pick-up '82 Blár 60 þús. 280 þús. Toyota Corolla DX 4ra dyra '80 Blár 70 þús. 195 þús. Höfum góöa kaupendur að Daihatsu Charade árg. 1980 og 1981 DAIHATSUUMBOÐIÐ ÁRMÚLA 23 85870-81733

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.