Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
27
fMt SÍM3 W*, A MOOWfiMb I
liyCA lAHðf 1RWK13’ 5AM 5*6W1E> WM ÍjWdfT-
.t, fWC fcíRtffHíCWöO’HS WOtí ^ »00*6 KAiAN WM«*MAlWWRí>
««w OWWS .MWVWKU m Om W w,<*.Or*«, MOtWD SflWtl
W«rf>S*^rt,tASaDK>W3,AíiC. o«Wc,/C»W«AH5A»<ífR
0-.Wó,«AÍMf ClfffCtö
uwwmwi-w [Emj
Regnboginn
sýnir „Frances“
Kvikmyndahúsið Kccnboginn hcfur
nú hafið sýningar á ensk-bandarísku
kvikmyndinni Frances.
Með aðalhlutverk í myndinni fara
Jessica Lange, Sam Shephard og
Kim Stanley. í tilkynningu frá
kvikmyndahúsinu segir að hér sé um
að ræðá sanna sögu kvikmynda-
stjörnunnar Frances Farmar sem
náði frægð og frama, en var svo
dæmd til vistar á geðveikrahæli
fyrir tilstilli móður sinnar, þrátt
fyrir að þeir, sem þekktu hana best,
fullyrði að hún hafi aldrei verið geð-
veik.
Richard Gere leikur hlutverk Jesse í
myndinni „Hugfangin**.
„Hugfangin" í
Háskólabíói
Háskólabíó hefur nú hafið sýningar
á bíómyndinni „Hugfangin" sem Jim
McBride leikstýrir.
í frétt frá kvikmyndahúsinu segir
að myndin fjalli um ungan mann,
Jesse, sem stelur bíl og öðru sem
hann þarf á að halda og þegar lög-
reglan veiti honum eftirför, skjóti
hann lögregluþjón og sé þar með
orðinn eftirlýstur glæpamaður. Þá
kynnist hann ungri stúlku og eigi í
eldheitu ástarsambandi sem endist
skamma hríð og endi á óvæntan og
sorglegan hátt.
Öldungaráö Menntaskól-
ans við Hamrahlíð:
Fundur um stöðu
öldungadeilda innan
skólakerfisins
ÖLDUNGARÁÐ Menntaskólans við
Hamrahlíð heldur opinn fund um stöðu
öldungadeilda innan skólakerfisins
nk. miðvikudag, 21. mars, kl. 20.30.
Verður rætt um stöðu deildanna og
hvernig þær munu tengjast lögum um
framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu.
Gestir fundarins verða Kagnhildur
Helgadóttir, menntamálaráðherra,
Guðmundur Magnússon, háskólarekt-
or, Guðmundur Arnlaugsson, fyrrum
skólameistari Menntaskólans við
llamrahlíð, og núverandi skólameist-
ari, Örnólfur Thorlacius.
í fréttatilkynningu sem öldunga-
ráðið sendi frá sér vegna fundarins
er greint frá því að á sl. tíu árum
hafi sex frumvörp til laga um fram-
haldsskóla og fjögur um fullorðins-
fræðslu verið lögð fram á Alþingi, en
ekkert þeirra náð afgreiðslu.
„Laxþvæla“
í Garðabæ
LAXÞVÆLA nefnist söngleikur eftir
l>ór Jónsson sem vcrður frumsýndur í
félagsmiðstöðinni Garðalundi í Garða-
skólanum við Vífilsstaðaveg í kvöld
kl. 21.00. Uppfærsla á leiknum er í
höndum nemenda fjölbrautaskólans í
Garðabæ, en höfundurinn cr einnig
nemandi skólans.
Laxþvæla er frumsýnd í tengslum
við Imbrudaga skólans, en frumsýn-
ingunni varð að fresta vegna veik-
inda tveggja leikara. í fréttatil-
kynningu sem aðstandendur leiks-
ins hafa sent frá sér segir að um
skopstælingu á Laxdælu sé að ræða,
auk þess sem inn í verkið fléttist
atriði úr frægum óperum sem eru
með öllu óskyidar íslendingasögun-
um.
Selfoss:
Stofnfundur
Málfreyju-
deildar
MÁLFKEYJUDEILD verður stofnuð á
Selfossi í dag. Stofnfundurinn, sem
verður í félagsheimilinu Seli, er hald-
inn í framhaldi af kynningarfundi sem
rtbreiðslunefnd Fyrsta ráðs málfreyja
hélt á Selfossi þann 3. mars sl.
Nýlega voru stofnaðar tvær
málfreyjudeildir á Akureyri og 6.
apríl nk. er áætlað að halda kynn-
ingarfund á Patreksfirði og annan í
Borgarnesi í byrjun maí. Forseti
Fyrsta ráðs málfreyja á íslandi er
Kristjana Milla Thorsteinsson.
Kynnir: Magnús Axelsson.
Stjórnandi: Sigurður Haraldsson.
Verð kr. 70 fyrir börn yngri en 12 ára
og kr. 130 fyrir fullorðna.
Sjá einnig auglýsingu um Ferðaveislu
í Súlnasal á sunnudagskvöld.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
eVfc°
HMs
Stórglœsileg Hollandshátíð! Fjöldi góðra gesta frá
Hollandi kemur með ýmislegt spennandi í pokahorninu,
og íslenskir skemmtikraftar láta ekki sitt eftir liggja.
í anddyrinu verða settir upp spéspeglar, lírukassaleikari
sér um tónlistina, tréklossasmiður og gamaldags
ljósmyndari verða að störíum, og allir fá pönnukökur sem
hollenskur bakari bakar á staðnum.
★ Inni í salnum verður teiknimyndasýning á stóra tjaldinu.
★ Aíhent verða ókeypis bingóspjöld og allir taka þátt í
glœsilegu íerðabingói þar sem aðalvinningurinn er að
sjálísögðu dvöl í sœluhúsi í Hollandi fyrir alla íjölskylduna.
★ Allir taka þátt í nýstárlegum leikjum.
★ Barnaleikhúsið Tinna sýnir Nátttröllið - bráðskemmtilegt
barnaleikrit.
★ Steini og Olli (Magnús og Ómar) mœta, og aldrei að vita
hvað þeim dettur í hug.
★ Trúðurinn Skralli (Aðalsteinn Bergdal) leikur við krakkana.
★ Allir fá sœlgœti.