Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.03.1984, Blaðsíða 48
ffgtmttUifeife HLEKKUR í HEIMSKEÐJU LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. <0mm> Metafli hjá Afli hefur verið ágætur víðast hvar við landið að undanfornu og þá einkanlega á Breiðafirði. Eyja- bátar hafa sömuleiðis aflað vel og var þessi mynd tekin þar af löndun úr Þórunni Sveinsdóttur VE Morjjunbladið/Sijfurgeir. aflakóngum 401 í vikunni. Sigurjón Óskarsson og félagar hans höfðu þá komið að landi með rúmlega 116 tonn og á einni viku um 300 tonn, sem er algjört met í Eyjum. Unglingar fá sömu laun og aðrir í Y f ir vinnuban n inu frestað, félagsfund- ir á sunnudaginn SAMNINGAR tókust í kjaradeil- unni í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og var yfirvinnubanni, sem byrjað hafði klukkan 17, þá frestað. Fundir um samningana verða haldnir á sunnudag í Verkalýösfélagi Vest- mannaeyja og Verkakvennafélaginu Snót. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er grundvöllur samning- anna samkomulag ASÍ og VSÍ á Eyjum dögunum. Þá var einnig samið um að ekki verði greidd lægri laun fyrir 16 og 17 ára unglinga og um fatapeninga upp í kostnað vegna hlífðarfatnaðar. Fleiri atriði, sem ekki eru í heildarsamkomulaginu, munu einnig vera inni í Eyja- samkomulaginu. Klukkan 17 í gær lagðist vinna niður i fiskvinnslustöðvunum í Vestmannaeyjum og vinnu var hætt í loðnubræðslunum. Er sam- ist hafði var yfirvinnubanninu frestað og átti loðnumóttaka að hefjast í gærkvöldi og bræðslurn- ar að fara í gang á ný um hádegi í dag. Reglugerðin og hvatning ráðuneyt- isins liggur fyrir Meira ætti ekki að þurfa, segir Matthías Bjarnason, samgönguráðherra, um notkun björgunarbáta með sjálfvirkum sleppibúnaði Rafveitustjórar sveitarfélaga: Afnema ber verðjöfn- unargjald af raforku RAFVEITUSTJÓRAR sveitarfélaga beina þeim tilmælum til stjórnvalda, að ráðstafanir verði gerðar til lækk- unar raforkuverðs með þrennum hætti, afnámi verðjöfnununargjalds af raforku, lækkun annarra opin- berra gjalda af raforkusölu, efnt verði til dreifikerfa og loks með vinnu að bættu skipulagi raforku- dreifingar. Framangreindar upplýsingar koma fram í ályktun Félags raf- veitustjóra sveitarfélaga. þar seg- ir ennfremur: „Sú ákvörðun að draga úr mismun á húshitunar- kostnaði eftir búsetu í landinu er eitt, — leiðin til slíkra aðgerða er annað. Varað er við þeirri aðferð að beita niðurgreiðslum úr ríkis- Pönnuköku- deig á fernum Borgarnesi, 15. marN. Mjólkursamlagið í Borgarnesi er með það í athugun að hefja fram- ieiðslu á pönnukökudeigi í fernum, tilbúnum á pönnuna og líkum vör- um, svo sem deigi í kínarúllur. Jón Guðmundsson, mjólkur- fræðingur hjá MSB, tók fram í samtali við blm. Mbl. að undirbún- ingur væri enn skammt á veg kominn og of snemmt að fullyrða um hvort eða hvenær framleiðsla gæti hafist. sjóði og raska þannig verðskrám einstakra rafveitna. í stað verðjöfnunargjalds af raforku kann að vera rétt að veita fé eða lánafyrirgreiðslu til ein- stakra raforkuframkvæmda, sem eru óarðbærar en réttlætanlegar af öðrum ástæðum." Að lokum segir, að í stað niður- greiðslu á verði raforku til húshit- unar virðist milliliðalausir styrk- ir, skattaívilnanir og/eða aðstoð við orkusparandi aðgerðir væn- legri kostir. „ÞAÐ liggur þegar fyrir reglugerð, sem skyldar fiskiskip til að vera með sjálfvirkan sleppibúnað björgunar- báta og samgönguráðuneytið hefur lagt á það áherslu við Siglingamála- stofnun, að því verði flýtt aö slíkur búnaður verði settur um borð í skip- in. Meira ætti ekki að þurfa,“ sagði Mattías Bjarnason, samgönguráð- herra, er blm. Morgunblaðsins innti hann eftir því hvort ráðuneyti hans myndi beita sér fyrir því af auknum krafti, aö búnaður þessi yrði settur í skipin. Matthfas Bjarnason sagði ennfremur, að hann byggist ekki við því, að sá frestur, sem gefinn hefur verið til að setja upp þennan útbúnað, yrði styttur. í þeim efn- um væru ýmis vandkvæði og það væri nóg að hafa sett reglugerð og hvatt til þess, að þessu yrði flýtt. Ráðuneytið færi ekki að stoppa skip vegna þess. Það væri venjan að gefa mönnum nokkurn aðlög- unartíma, þegar ný öryggistæki væru tekin í gagnið. Því væri ólíklegt að fresturinn yrði styttur. Hins vegar væri daglega verið að setja þennan búnað um borð í skip og þetta gengi allt í rétta átt. Barðaströnd: Yerður fjárlaust? BarAaströnd, 5. mars. GRUNUR leikur á að riðuveiki sé hér á mörgum bæjanna og er verið að kanna hvað gera skuli. Heyrst hefur að jafnvel muni til þess koma að allt fé verði skorið niður, hér og ef til vill víðar. Skelvinnsla hefur gengið vel og fer henni senn að ljúka. Tíðarfar hefur verið frekar slæmt í vetur, umhleypingasamt, en frostlítið. SJ.Þ. Kvóta má færa með skipstjóra milli skipa SAMKVÆMT breytingum þeim sem sjávarútvegsráðuneytið hefur gert á reglugerð um stjórnun fisk- veiða verður heimilt að færa áunn- inn aflakvóta með skipstjóra og áhöfn milli skipa, hafi sami skip- stjóri stýrt skipinu samfellt allt við- miðunartímabilið og taki hann við sambærilegu skipi. Tekur þessi heimild til skipa, sem eru 51 brúttó- lest að stærð eða stærri. Þessi heimild hækkar meðal annars afla- kvóta Viðeyjar RE 6 um 51%. Heimild þessi tekur til mjög fárra skipa, en dæmi um þetta er áhöfn skuttogarans Viðeyjar RE 6 í eigu Hrannar hf. Reykjavík, sem á viðmiðunartímabilinu var á skuttogaranum Snorra Sturlu- Heimildin hækk- ar aflakvóta Við- eyjar RE um 51% syni RE 219 frá Bæjarútgerð Reykjavíkur. Snorra Sturlusyni var úthlutað samanlagt afla- markinu 4.987 lestum sem sam- svarar 3.779 lestum í útreiknuð- um þorskígildum, en Viðey 3.173 lestum, sem í þorskígildum sam- svarar 2.501 lest. Heildarafli Snorra Sturlusonar var á síðasta ári 4.444 lestir, en heildarafli Við- eyjar 2.970 lestir. Án umræddra breytinga hefði skipið fengið um 33% lægra aflamark en ella. Ólafur Örn Jónsson, skipstjóri Viðeyjar, sagði í viðtali við blm. Morgunblaðsins, að lagfæringar þessar væru réttlætismál gagn- vart þeim mönnum, sem hér ættu í hlut. Réttur þeirra með fyrra fyrirkomulagi hefði verið fyrir borð borinn. Þeir væru því mjög ánægðir með þetta. „Á þessu ári höfum við aflað tæplega 1000 lesta, sem er ívið meira en á Snorra í fyrra og í dag, föstudag, komum við inn með 200 lestir af karfa eftir viku úthald," sagði ólafur Örn Jóns- son. Sjá nánar um breytingar á reglugerðinni á bls.25 í dag. —HBj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.